Morgunblaðið - 29.01.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 33
KIRKJUSTARF
argildi Biblíunnar. Organisti Antonia Hev-
esi. Kór kirkjunnar leiðir söng. Sunnu-
dagaskóli fer fram á sama tíma í
safnaðarheimilinu og Hvaleyrarskóla.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Fjölbreytt og
skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.
Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur: Sr. Yrsa Þórðardóttir. Kór Víði-
staðasóknar syngur undir stjórn Úlriks
Ólasonar www.vidistadakirkja.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Góð stund
fyrir alla fjölskylduna. Nanna Kristín Jó-
hannsdóttir syngur en Nanna Kristín vakti
nýlega athygli með söng sínum í Idol
keppninni.
Æðruleysismessa kl. 20. AA maður flytur
vitnisburð og reynslusporin 12 lesin.
Hljómsveit Fríkirkjunnar leiðir söng. Kaffi í
safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjón-
ustu.
ÁSTJARNARSÓKN: samkomusal Hauka
að Ásvöllum: Kirkjuskóli á sunnudögum
kl. 11–12. Kaffi, djús, kex og leikir eftir
helgihaldið.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Stóru-
Vogaskóla á laugardögum kl. 11.15. Fjöl-
skylduguðsþjónusta með léttum söng og
helgisiðum í Kálfatjarnarkirkju sunnudag-
inn 30. janúar kl. 17. Þema guðsþjónust-
unnar er mannréttindi og kristin trú.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Félagar úr kór Vídalínskirkju syngja og
leiða almennan safnaðarsöng. Sunnu-
dagaskólinn á sama tíma í safnaðarheim-
ilinu, yngri og eldri deild. Nýtt og
skemmtilegt efni, frábæru leiðtogarnir og
skemmtilegu börnin og foreldrar þeirra.
Barn borið til skírnar. Organisti: Jóhann
Baldvinsson. Við athöfnina þjónar sr.
Hans Markús Hafsteinsson, ásamt leik-
mönnum. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu á eftir í boði sókn-
arnefndar, í umsjá Kvenfélags
Garðabæjar. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskólinn í
Álftanesskóla kl. 11.
Sama skemmtilega efnið og sömu
skemmtilegu leiðbeinendurnir. Ekki má
heldur gleyma öllum skemmtilegu börn-
unum og foreldrum þeirra.
Mætum vel. Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Samverustundir í trú og gleði í um-
sjón samstarfshóps um barnastarfið í
kirkjunni. Guðsþjónusta kl. 20. Létt
kirkjuleg sveifla með kór og hljómsveit
kirkjunnar. Notaleg helgistund með létt-
um trúarlegum söngvum (gospel) og nýj-
um tóni. Sr.Yrsa Þórðardóttir þjónar.
Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega
hvött til að mæta. TTT-starf verður nú á
þriðjudögum kl. 18-19. Bjóðum öll 10-12
ára (TTT) börn velkomin. Foreldramorgnar
á þriðjudögum kl. 10-12. Ferming-
arfræðsla á miðvikudögum kl. 14.40-16.
Spilavist eldri borgara á fimmtudögum kl.
14-17.
Sóknarnefnd og sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Baldur Kristjánsson
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudaginn 30. janúar kl. 14. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Natalíu
Chow Hewlett organista. Meðhjálpari Ást-
ríður Helga Sigurðardóttir. Aðalsafn-
aðarfundur Ytri-Njarðvíkursóknar verður
haldinn í safnaðarsal kirkjunnar að lok-
inni guðsþjónustu 6. febrúar kl. 14.
Sunnudagaskóli sunnudaginn 30. janúar
kl. 11 í umsjá Margrétar H. Halldórs-
dóttur og Gunnars Þórs Haukssonar. For-
eldrar eru hvattir til að mæta með börn-
unum.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík):
Sunnudagaskóli í Ytri-Njarðvíkurkirkju
sunnudaginn 30. janúar kl. 11. í umsjá
Margrétar H. Halldórsdóttur og Gunnars
Þórs Haukssonar. Foreldrar eru hvattir til
að mæta með börnunum. Ekið frá Safn-
aðarheimilinu kl. 10.45 og komið við í
strætóskýlinu Akurbraut á leið í Ytri-
Njarðvíkurkirkju.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Biblíudagurinn.
Sunnudagaskóli kl. 11. Elín Njálsdóttir,
umsjónarmaður. Eiríkur Valberg, Arnhildur
H. Arnbjörnsdóttir, Sigríður Helga Karls-
dóttir, Sara Valbergsdóttir og Ólafur Freyr
Hervinsson. Engin messa verður þennan
dag vegna ferðar starfsfólks og sókn-
arnefndar í Skálholt. Minnum á myndlist-
arsýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur,
Mátturinn og dýrðin, í Kirkjulundi og Lista-
safni Reykjanesbæjar kl. 13-17.30 til 6.
mars. Sjá: keflavikurkirkja.is
HVALSNESKIRKJA: Laugardagurinn 29.
janúar, Safnaðarheimilið í Sandgerði:
Kirkjuskólinn kl. 11. Sunnudagur, Bibl-
íudagurinn: Safnaðarheimilið í Sandgerði.
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Hvalsneskirkju
syngur. Organisti Steinar Guðmundsson.
NTT -Níu til tólf ára starf er ísafn-
aðarheimilinu í Sandgerði áþriðjudögum
kl.17. Foreldrastundir eru á þriðjudögum
kl. 13 í safnaðarheimilinu í Sandgerði.
Miðvikudagurinn 26. janúar: Helgistund í
Miðhúsum kl. 11. Safnaðarheimilið Sæ-
borg: Alfa-námskeið kl 19. á mið-
vikudögum. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagurinn 29.
janúar, Safnaðarheimilið Sæborg: Kirkju-
skólinn kl. 13. Sunnudagur, Biblíudag-
urinn. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Útskála-
kirkju syngur. Organisti Steinar
Guðmundsson. Garðvangur: Helgistund
kl. 15.30. NTT -Níu til tólf ára starf er í
safnaðarheimilinu á fimmtudögum kl. 17.
Miðvikudagurinn 2. febrúar: Helgistund í
samkomuhúsinu í Garði kl. 12.30. Safn-
aðarheimilið Sæborg: Alfa-námskeið kl.
19 á miðvikudögum. Sóknarprestur.
BORGARNESKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.15.
Messa kl 14. Stefán Einar Stefánsson,
guðfræðinemi, flytur hugleiðingu.Sókn-
arprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Fjölskyldumessa
sunnudag kl. 11 í öllum regnbogans lit-
um. Sr. Magnús Erlingsson.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20.30. Biblíudagurinn. Prestur sr. Svavar
A. Jónsson. Stúlknakór Akureyrarkirkju
flytur Taize-söngva. Stjórnandi: Eyþór Ingi
Jónsson. Tekið við samskotum til Biblíu-
félagsins.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjón-
ar. Barnakór kirkjunnar leiðir söng. Stjórn-
andi Ásta Magnúsdóttir. Organisti Hjörtur
Steinbergsson. Kvöldguðsþjónusta með
léttri tónlist kl. 20.30 Sr. Gunnlaugur
Garðarsson þjónar. Krossbandið sér um
tónlistina.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Hjálp-
ræðissamkoma sunnudag kl. 11. Ræðu-
maður Erlingur Níelsson. Sunnudagaskóli
kl. 11.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Messa kl. 14.
Fundur með foreldrum fermingarbarna
eftir messu. 31. jan. (mánud.) Kyrrð-
arstund kl. 18. Sóknarprestur.
SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal: Guðs-
þjónusta kl. 14. Kristín Björnsdóttir leikur
á orgel og stjórnar kór kirkjunnar. Fjöl-
mennið til kirkju. Sóknarprestur.
KIRKJUSKÓLINN Í MÝRDAL: Munið sam-
veru kirkjuskólans, í Víkurskóla frá kl.
11.15 til 12.00. Nýjar bækur og myndir.
Rebbi refur og fleiri heimsækja brúðuleik-
húsið. Biblíusögur, söngur og litastund.
Sóknarprestur og starfsfólk kirkjuskól-
ans.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
kl. 11.00.
Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Sunnu-
dagaskóli kl. 11.15. Léttur hádegisverður
á eftir í safnaðarheimilinu. Morguntíð
sungin þriðjudag til föstudags kl. 10,
kaffisopi á eftir. Foreldramorgnar mið-
vikudag kl. 11. Sólrún Auðbertsdóttir,
sjúkraliði og nuddari, kemur og kynnir
ungbarnanudd. Kirkjuskóli í Fé-
lagsmiðstöðinni miðvikudaga kl. 13.30.
Sr. Gunnar Björnsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.
HVERAGERÐISKIRKJA: Biblíudagurinn:
Sunnudagaskóli kl. 11. Foreldramorgnar
á þriðjudagsmorgnum kl. 10–11.30 í
Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju. Jón
Ragnarsson.
HRÍSEYJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.00.
HOLTSPRESTAKALL, EYVIND-
ARHÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn með foreldrum sér-
staklega boðin. Sóknarprestur.
Tómasarmessa í
Breiðholtskirkju
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til fyrstu
messunnar á þessu ári í Breiðholts-
kirkju í Mjódd sunnudagskvöldið
30. janúar, kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borgarinnar,
en slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu sjö árin. Fram-
kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi
eru Breiðholtskirkja, Kristilega
skólahreyfingin, Félag guð-
fræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist,
mikil áhersla er lögð á fyrirbæn-
arþjónustu og sömuleiðis á virka
þátttöku leikmanna. Stór hópur
fólks tekur jafnan þátt í undirbún-
ingi og framkvæmd Tómasarmess-
unnar, bæði leikmenn, djáknar og
prestar.
Ensk messa í
Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 30. janúar nk. kl.
14.00 verður haldin ensk messa í
Hallgrímskirkju. Prestur verður
sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
Hörður Áskelsson. Guðrún Finn-
bjarnardóttir mun leiða almennan
safnaðarsöng. Messukaffi að athöfn
lokinni. Fjórða árið í röð er boðið
upp á enska messu í Hallgríms-
kirkju síðasta sunnudag hvers mán-
aðar.
Service in English
SERVICE in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja).
Sunday 30th of January at 2 pm.
The Fourth Sunday of Epiphany.
Holy Communion. Celebrant and
Preacher: The Revd Bjarni Thor
Bjarnason. Organist: Hörður Ás-
kelsson. Leading singer:Guðrún
Finnbjarnardóttir. Refreshments
after the Service.
Biblíusýning í
Hafnarfjarðarkirkju
á biblíudag
NÆSTKOMANDI sunnudagur er
biblíudagur Þjóðkirkjunnar. Af því
tilefni fjallar sr. Þórhallur Heim-
isson um Biblíuna við guðsþjónustu
dagsins í Hafnarfjarðarkirkju sem
hefst kl. 11.00. Eftir guðsþjón-
ustuna mun hann sýna Biblíusafn
sitt í safnaðarheimili kirkjunnar. Í
Biblíusafninu er m.a. að finna
grænlenska, rússneska, kínverska
og latneska Biblíu svo eitthvað sé
nefnt. Gefst kirkjugestum kostur á
að bera saman ólíkar útgáfur hinn-
ar helgu bókar á mörgum tungu-
málum, en engin bók hefur verið
þýdd á fleiri tungumál en einmitt
Biblían, eins og alkunna er.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af holdi
og blóði.
Þess vegna er hægt að fara út úr
kirkjubyggingum með helgihald og
fagnaðarerindið og mæta fólki í
dagsins önn. Í tilefni af því bjóðum
við til guðsþjónustu í Kolaportinu
næsta sunnudag 30. janúar kl.
14.00.
Ragnheiður Sverrisdóttir djákni
flytur hugleiðingu og þjónar ásamt
prestunum Jónu Hrönn Bolladóttur
og Irmu Sjöfn Óskarsdóttur.
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur
Halldórsson leiðir lofgjörðina.
Hægt er að leggja inn fyrirbæn-
arefni til þeirra sem þjóna í guðs-
þjónustunni áður en stundin hefst. Í
lok stundarinnar verður blessun
með olíu. Guðsþjónustan fer fram í
kaffistofunni hennar Jónu í Kola-
portinu sem ber heitið Kaffi port,
þar er hægt að kaupa sér kaffi. All-
ir velkomnir.
Miðborgarstarf þjóðirkjunnar.
Æðruleysismessa
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
SÍÐASTLIÐIÐ haust var bryddað
upp á þeirri nýbreytni að halda
æðruleysismessur í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði. Haldnar voru mán-
aðarlega slíkar messur fram að
áramótum og hefjast þær nú aftur.
Á sunnudaginn kemur, 30. janúar,
verður haldin æðruleysismessa í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 20 og
er það sem fyrr hópur áhugafólks
um æðruleysismessur sem stendur
á bak við þetta helgihald ásamt
prestum Fríkirkjunnar. Þetta
áhugafólk hefur kynnst reynslu-
sporunum 12 sem liggja til grund-
vallar í öllu starfi AA samtakanna
svo og samtaka aðstandenda alkó-
hólista í Al-Anon og öðrum sam-
tökum sem vinna á sama grunni.
Í messunni á sunnudaginn kemur
mun AA maður greina frá reynslu
sinni og reynslusporin 12 verða les-
in og kynnt. Tónlistin verður af
léttara taginu í samræmi við þá
gleði sem auðkennir góðan bata og
annast „Fríkirkjubandið“ hana
undir stjórn Arnar Arnarsonar. Að
lokinni messu munu þau sem standa
á bak við þetta framtak bjóða upp á
kaffisopa í safnaðarheimili Frí-
kirkjunnar.
Litamessa í
Laugarneskirkju
Á MORGUN, sunnudag 30. janúar,
býður söfnuður Laugarneskirkju til
Litamessu, þar sem allt tal og söng-
ur verður á forsendum barnanna.
Sunnudagaskólakennararnir Hild-
ur Eir Bolladóttir, Heimir Haralds-
son og Þorvaldur Þorvaldsson stýra
samverunni ásamt Sigurbirni Þor-
kelssyni framkvæmdastjóra. Trúð-
urinn lítur inn, brúður spjalla um
lífsgátuna, bænir eru beðnar og
sunnudagaskólalögin eru sungin af
gleði. Guðsþjónusta með prédikun
verður kl. 13.00 í sal Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu að Hátúni 12,
og er allt fólk velkomið að taka
þátt. Guðrún K. Þórsdóttir djákni
prédikar og þjóna ásamt hópi sjálf-
boðaliða. Organisti Aðalheiður Þor-
steinsdóttir.
Þorrahátíð aldraðra
í Grensáskirkju
NÆSTKOMANDI miðvikudag, 2.
febrúar, verður árlegur þorrafagn-
aður í starfi aldraðra í Grens-
áskirkju. Samverustundin hefst
með helgistund kl. 12.10 en að
henni lokinni verður sest að borð-
um og snæddur þorramatur. Þátt-
taka kostar kr. 2000 og fólk er beð-
ið um að skrá sig í síma
580 0800 í síðasta lagi fyrir há-
degi á þriðjudag, 1. febrúar.
Biblíudagurinn
í Neskirkju
HVAÐA gleraugu notar þú til að
lesa Biblíuna? Hver er þinn skiln-
ingur á hlutverki hennar? Í messu í
Neskirkju, sunnudaginn 30. janúar,
verður fjallað um biblíunotkun og
biblíuskilning. Dr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Ósk-
arsdóttur. Organisti Steingrímur
Þórhallsson og Kór Neskirkju leiðir
safnaðarsöng. Börnin byrja í mess-
unni, en fara síðan í safnaðarheim-
ilið. Kaffihúsið verður opið
Alfanámskeið
í Vídalínskirkju
ALFA er tíu vikna námskeið, einu
sinni í viku, þar sem fjallað er um
grundvallaratriði kristinnar trúar.
Auk þess fara þátttakendur í eina
sólarhringsferð út úr bænum.
Fjallað er um mikilvægustu
spurningar lífsins. Hvorki eru gerð-
ar kröfur um trúarafstöðu, né um
heimalærdóm eða aðrar kröfur
gerðar til þátttakenda. Á námskeið-
inu gefst fólki tækifæri til að spyrja
spurninga og taka þátt í skapandi
umræðu um lífið og tilveruna.
Alfa er öllum opið og er fyrir þá
sem vilja leita svara við spurn-
ingum um tilgang lífsins og vilja
kynna sér grundvallaratriði krist-
innar trúar og þá sem langar til að
velta fyrir sér hvaða gildi móta í
raun líf okkar og samfélag. Alfa er
fyrir þá sem trúa, sem efast og síð-
an ekki síst fyrir þá sem ekki trúa,
eða eru leitandi á trúarsviðinu.
Alfanámskeiðið stendur yfir í 10
vikur, á þriðjudagskvöldum frá kl.
19.00 til kl. 22.00.
Hvert kvöld hefst með léttum
málsverði.
Síðan er umræðuefnið útskýrt og
rætt í umræðuhópum.
Fyrsta samveran mun verða
þriðjudaginn 1. febrúar, kl. 19.00.
Innritun stendur yfir á skrifstofu
Vídalínskirkju, sími 565-6380.
Eða í gsm Hans Markúsar 897-
6545 eða netfang: hansmark-
@centrum.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugarneskirkja
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið:
mán. - föstud. 11-18
laugard. 11-15
Útsölulok
Síðasti dagur útsölunnar, allt að 50% aflsáttur.
MESSUR Á MORGUN