Morgunblaðið - 29.01.2005, Page 60

Morgunblaðið - 29.01.2005, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Heilsukoddar Heilsunnar vegna Opi› í dag laugardag frá kl. 11-16 DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið í sam- starfi við Biskupsstofu og útfararstofur vinnur nú að gerð siðareglna fyrir útfar- arstofur. Forvinnu við reglugerðina er lok- ið og verður á næstunni skipuð nefnd sem ganga mun frá reglunum. Í gildi eru nú þegar ýmis lög og reglur sem ná til útfara og útfararþjónustu og í reglugerð um útfararþjónustu er m.a. kveðið á um að útfararstofnanir skuli í störfum sínum hafa til hliðsjónar siðareglur sem gilda fyrir útfararstofnanir í Evrópu. „Í ljós hefur komið að það þurfa að vera nánari reglur um útfarir og allt sem að þeim lýtur,“ segir Kristján Valur Ingólfs- son, hjá Biskupsstofu, um tilefni gerðar siðareglna. Hann bendir á að engin lands- samtök útfararstofa séu til hér á landi eins og tíðkast á öllum Norðurlöndunum og víð- ar, en slík samtök setja sér m.a. innri siða- reglur. Úr því sé brýnt að bæta og taka þurfi til umfjöllunar samhliða gerð siða- reglna. Þá bendir hann á að engar reglur séu um það í íslenskum lögum hvernig flytja skuli lík og ösku milli landa. Þetta þurfi tvímæla- laust að taka til skoðunar./8 Lög og reglur um útfararstofur Verið að semja siðareglur FYRSTA alþjóðlega sundmótið í hinni nýju og glæsilegu keppnislaug í Laugardalnum í Reykjavík hófst í gær. Það er Reykjavík International sem Sund- félagið Ægir sér um og stendur yfir alla helgina. Hér stinga fyrstu keppendurnir sér með tilþrifum í 400 metra skriðsundi kvenna, fyrstu grein mótsins. Teresa Als- hammar frá Svíþjóð, heimsmethafi í 50 og 100 metra skriðsundi í 25 metra laug, er meðal þeirra erlendu keppenda sem mættir eru til leiks. Morgunblaðið/Þorkell Stinga sér til sunds í nýju lauginni BAUGUR Group hefur tvöfaldað hlut sinn í Flugleiðum. Greint var frá því í til- kynningu til Kauphallar Íslands í gær að Baugur hefði keypt 77 milljónir hluta í Flugleiðum og aukið hlut sinn úr 3,03% af heildarhlutafé félagsins í 6,07%. Ekki var greint frá gengi hlutabréf- anna í þessum við- skiptum. Lokaverð þeirra í gær var 13,45, hækkaði um 1,1% í viðskiptum dagsins, og því má ætla að kaupverð þess hlutar sem Baugur keypti hafi verið um einn millj- arður króna. Baugur hefur áð- ur átt stóran hlut í Flugleiðum. Í maí á síðasta ári seldu Baugur og Eignar- haldsfélagið Fengur öll hlutabréf sín í Flugleiðum, alls tæplega 27% hlutafjár- ins. Hlutur Baugs var þá 21%. Skarp- héðinn Berg Steinarsson, framkvæmda- stjóri innlendra fjárfestinga hjá Baugi, sagði af því tilefni, að salan væri í sam- ræmi við þá stefnu félagsins að draga úr fjárfestingum hér á landi en auka þær erlendis. Aðspurður segir Skarphéðinn Berg að fjárfesting Baugs í Flugleiðum, sem greint var frá í gær, feli ekki í sér stefnubreytingu hjá Baugi, heldur líti fyrirtækið á Flugleiðir sem góðan fjár- festingarkost. Að hans sögn liggur ekki fyrir á þessu stigi hvort hlutur Baugs í Flugleiðum verði aukinn. Sjóvá-Almennar seldu Í gær var greint frá því að Sjóvá- Almennar tryggingar hefðu selt 115 milljónir hluta í Flugleiðum og minnkað þannig eignarhlut sinn í félaginu úr 9,02% í 4,49%. Miðað við lokaverðið í gær má ætla að söluverðið hafi verið um 1,5 milljarðar króna. Baugur tvöfaldar hlut sinn í Flugleiðum var á þessum slóðum. Ekki var tal- ið að um bráða hættu væri að ræða enda rak skipið í átt frá landi. ÓSKAÐ var eftir aðstoð Land- helgisgæslunnar vegna Dettifoss Eimskipafélagsins í gærkvöld, en skipið rak þá stjórnlaust um átta sjómílur austur af Eystrahorni. Varðskipið Týr var komið að skipinu um kl. 22 og var ráðgert að kanna hvort stýrisblað væri dottið af því eða hvort eitthvað annað ylli því að það lét ekki að stjórn. Að sögn Hörpu Þorláksdóttur, kynningarstjóra hjá Eimskip, var unnið að því seint í gærkvöldi að koma skipinu í tog og áformað að draga það til hafnar á Eskifirði, um 50 sjómílna leið. Tókst að koma taug um borð í skipið en hún slitnaði kl. 23:37. Var ætlunin að koma taug í skipið á nýjan leik. Var alls óvíst um það hvernig til tækist, því haugasjór Dettifoss var á leið frá Reykja- vík til Eskifjarðar en skipið er not- að til gámaflutninga milli landa. Dettifoss er stærsta skipið í flota Eimskips ásamt Goðafossi, 14.664 brúttótonn að stærð. Dettifoss stjórnlaus undan landi Morgunblaðið/Golli LANDSBANKI Íslands skilaði 12,7 milljarða króna hagnaði á árinu 2004 og er það um þremur milljörðum meiri hagnaður en markaðsaðilar reiknuðu með. Er þetta rösklega fjórföldun hagn- aðar í samaburði við árið 2003. Hagnaður af Íslandsbanka nær tvöfaldaðist á sama tímabili og var 11,4 milljarðar en það er einnig umfram meðalspá á mark- aði. Samanlagður hagnaður við- skiptabankanna þriggja nam því 39,9 milljörðum króna á árinu 2004. Mikill útlánavöxtur einkennir uppgjör Landsbankans og Ís- landsbanka sem skilar sér m.a. í aukningu á hreinum vaxtatekjum frá árinu áður. Einnig setur stór- aukinn gengishagnaður, sem fyrst og fremst er myndaður af hluta- bréfaeign í öðrum félögum, mark sitt á afkomu félaganna. Rekstrartekjur Landsbankans jukust í heild um 77% og námu tæplega 34 milljörðum króna. Hjá Íslandsbanka námu rekstrartekj- urnar alls röskum 38 milljörðum króna og jukust um 87%. Mest var aukningin, í krónum talin, á gengishagnaði og vaxtatekjum hjá báðum bönkunum. Vegna hinnar góðu afkomu var arðsemi eigin fjár mikil hjá bönkunum tveimur, eða 50% hjá Landsbank- anum og 40% hjá Íslandsbanka. Vöxtur í útlánum Landsbank- ans nam 68% á árinu eða 223 milljörðum króna og vöxtur út- lána Íslandsbanka nam 49% eða 155 milljörðum á árinu. KB banki birti afkomu sína fyrr í vikunni og er samanlagður hagnaður viðskiptabankanna þriggja nærri 40 milljarðar króna. Það er 145% meiri hagnaður en var af bönkunum samanlagt í fyrra. Sé Straumi Fjárfestingar- banka einnig bætt við nemur samanlagður hagnaður bankanna 46,3 milljörðum króna. Hagnaður Landsbanka 12,7 milljarðar – Íslandsbanka 11,4 Samanlagður hagnaður viðskipta- bankanna þriggja 40 milljarðar &+   %::1%::2 E  G       E C  " !   "  /!   65%: %357 5&15 47144 44:? 11:? 37? 425?  Hagnaður/13 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.