Morgunblaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍRAKSÞING FUNDAR
Íraska þingið kom í gær saman á
sínum fyrsta fundi eftir kosning-
arnar í janúar. George W. Bush
Bandaríkjaforseti fagnaði mjög
þessum áfanga í gær og sama gerði
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna. Sjítum og
Kúrdum, sem hafa samanlagt yfir
tvo þriðju atkvæða á þinginu, hefur
ekki enn tekist að mynda nýja rík-
isstjórn.
Krónan oftast lægst
Krónan var oftast með lægsta
verðið í verðkönnun á matvöru sem
verðlagseftirlit ASÍ gerði í mat-
vöruverslunum á þriðjudaginn en
verslanir Bónuss voru ekki hafðar
með í verðsamanburðinum. Í til-
kynningu frá ASÍ í gærkvöldi segir
að ekki hafi verið unnt að birta nið-
urstöður úr verslun Bónuss „þar
sem starfsmenn Bónuss höfðu óeðli-
leg áhrif á niðurstöður könnunar-
innar“.
Wolfowitz tilnefndur
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur ákveðið að mæla með
Paul Wolfowitz, aðstoðarvarn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, í
embætti yfirmanns Alþjóðabankans
sem losnar í júní. Wolfowitz er tal-
inn meðal herskáustu liðsmanna
stjórnar Bush og er mjög umdeild-
ur.
Kjalar með nær 60% í Keri
Kjalar ehf., sem Ólafur Ólafsson,
stjórnarformaður Samskipa, er að-
aleigandi að, hefur keypt stærsta
hluta Vogunar og Fiskveiðihluta-
félagsins Venusar í Keri hf. Eftir
kaupin á Kjalar ehf. 55,7% eign-
arhlut í Keri, Vogun 5%, stjórn-
endur 4,4% og aðrir hluthafar eiga
34,9%.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 30/33
Erlent 14 Minningar 34/39
Höfuðborgin 22 Hestar 43
Akureyri 22 Dagbók 44
Landið 23 Víkverji 44
Suðurnes 23 Velvakandi 45
Neytendur 24 Staður og stund 46
Daglegt líf 25 Menning 44/53
Listir 26 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
Viðhorf 30 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
AFGANSKUR dómstóll dæmdi í gær fjóra
menn til dauða vegna sjálfsmorðsárásarinn-
ar á íslenska friðargæsluliða í Hænsnastræti
í Kabúl í fyrrahaust og vegna hryðjuverka-
starfsemi og árásar á bandarískt öryggis-
gæslufyrirtæki tveimur mánuðum áður.
Þrír Bandaríkjamenn voru meðal þeirra
sjö sem létust í árásinni á öryggisgæslufyr-
irtækið og þrír Íslendingar slösuðust í sjálfs-
morðsárásinni á friðargæsluliðana, eins og
kunnugt er, auk þess sem tveir vegfarendur,
bandarísk kona og afgönsk stúlka, létust í
þeirri árás.
Í fréttaskeyti AP-fréttastofunnar vegna
málsins kemur fram að mennirnir eru taldir
tengdir hryðjuverkasamtökum Osama bin
Laden, Al Qaeda, en um er að ræða þrjá Afg-
ana og einn Tadshíka.
Ekki kemur fram hvort dómnum hefur
verið áfrýjað.
Sjálfsmorðsárásin
í Hænsnastræti
Fjórir dæmd-
ir til dauða
VONIR standa til að fjölmiðlanefnd
menntamálaráðherra, sem skipuð var sl.
haust, skili niðurstöðum sínum fyrir mán-
aðamót. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er á þessu stigi talið líklegt að sam-
staða náist innan nefndarinnar um tillögur
þess efnis að takmörk verði sett á eignar-
hald aðila; einstaklinga og fyrirtækja í fjöl-
miðlafyrirtækjum.
Enn hafi þó ekki náðst sátt um endanlega
prósentutölu í þeim efnum. Vinnan í nefnd-
inni er talin á viðkvæmu stigi, þessa dagana.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
mun nefndin leggja áherslu á að gegnsæi í
eignarhaldi á fjölmiðlafyrirtækjum verði
tryggt. Þá hefur Morgunblaðið heimildir
fyrir því að nefndin muni ekki leggja til
bann við því að ljósvakamiðlar og dagblöð
verði á einni og sömu hendi.
Menntamálaráðherra skipaði nefndina sl.
haust, og var henni m.a. ætlað að fjalla um
eignarhald á fjölmiðlum. Fulltrúar allra
stjórnmálaflokka á Alþingi eiga sæti í
nefndinni. Formaður hennar er Karl Axels-
son hrl.
Takmörk
verði sett á
eignarhald á
fjölmiðlum
KONUM með of háan blóðþrýsting á meðgöngu
er 2–3 sinnum hættara við að deyja af völdum
hjarta- og æðasjúkdóma síðar á ævinni, og lífs-
líkur þeirra eru um 5–7 árum skemmri en
kvenna sem hafa eðlilegan blóðþrýsting á með-
göngu. Þetta er meðal þess sem fram hefur kom-
ið í tveim íslenskum rannsóknum sem unnar
hafa verið af læknum á kvennadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss.
Reynir Tómas Geirsson, prófessor og yf-
irlæknir á kvennadeild LSH, segir að ný rann-
sókn á 325 konum sem fengu háan blóðþrýsting
á meðgöngu á árunum 1931–47 og samanburð-
arhópi 629 kvenna sem fæddu á sama tíma en
voru ekki með háan blóðþrýsting, staðfesti þetta
með skýrari hætti en áður. Þeir sem unnu að
rannsókninni voru læknarnir Reynir Tómas
Geirsson, Gerður Å. Árnadóttir, Lilja S. Jóns-
dóttir og Reynir Arngrímsson, og Örn Ólafsson
stærðfræðingur.
Greint frá niðurstöðunum
í bresku vísindatímariti
Að sögn Reynis Tómasar hafa sams konar
rannsóknir í Noregi (1) og Bretlandi (3) leitt
svipaðar niðurstöður í ljós og fundust í fyrstu ís-
lensku rannsókninni, en aldrei áður hefur konum
verið fylgt jafnlengi eftir og nú. Greint er frá
niðurstöðunum í marshefti BJOG, bresku vís-
indatímariti um fæðingar- og kvensjúkdóma-
fræði.
Konunum var fylgt eftir í rúm 50 ár og dán-
arorsakir allra þeirra sem bjuggu á Íslandi
kannaðar. Að sögn Reynis Tómasar var áhætta
kvenna með háan blóðþrýsting á meðgöngu til
staðar í öllum aldurshópum, en var meiri ef þær
fengu meðgönguháþrýsting þegar þær voru eldri
og ef þær voru með blóðþrýstingshækkun í ann-
arri meðgöngu en í þeirri fyrstu. Átti þetta bæði
við um hjartasjúkdóma eins og hjartadrep og
kransæðastíflu og heilablæðingar. Enginn mun-
ur var hins vegar á tíðni krabbameins.
10–12% kvenna fá
meðgönguháþrýsting
„Ef konan fékk meðgöngueitrun eða áþekk al-
varlegri form af háum blóðþrýstingi á meðgöngu
voru líkur á hjarta- og æðasjúkdómum líka
meiri. Reykingar virtust ekki skipta eins miklu
máli þegar bornar voru saman líkur á dauða úr
hjarta- og æðasjúkdómum hjá konum sem fæddu
fyrir 1941, þegar reykingar voru fátíðar meðal
kvenna, og eftir þann tíma, þegar stríðsárin
breyttu reykingavenjum,“ segir Reynir Tómas.
Að sögn hans fá um 10–12% kvenna með-
gönguháþrýsting á ári hverju (alls um 500–600
konur) og þar af fá 120–150 konur svonefnda
meðgöngueitrun. Orsaka meðgönguháþrýstings
er að hans sögn að leita í samspili erfða og þátta
í ónæmiskerfi konunnar, en aðrir þættir, svo sem
offita, auki líka áhættu á háum blóðþrýstingi á
meðgöngu, eins og nýlegar rannsóknir Sigrúnar
Hjartardóttur læknis og samverkamanna á
kvennadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss og
hjá Íslenskri erfðagreiningu hafi sýnt fram á.
Reynir Tómas bendir á að nú sé verið að
kanna tíðni kransæðasjúkdóma, hjartadreps og
heilablóðfalla hjá afkomendum kvennanna, nær
3.000 börnum sem nú eru á aldrinum 55–75 ára, í
samvinnu við Íslenska erfðagreiningu og Hjarta-
vernd.
Fyrstu niðurstöður bendi til að erfðaþátturinn
skipti máli og að synir og ef til vill dætur kvenna
með háþrýsting á meðgöngu kunni að vera lík-
legri til að fá hjarta- og æðasjúkdóma síðar á
lífsleiðinni. Niðurstöðurnar gætu þannig haft
verulega þýðingu í forvörnum gegn hjarta- og
æðasjúkdómum, að hans mati.
Íslenskum konum fylgt eftir í rúm 50 ár og dánarorsakir kannaðar
Háþrýstingur á meðgöngu
getur verið hættulegur
♦♦♦
HAFÍS er landfastur við Horn og
hefur lokað siglingaleiðinni öllum
venjulegum skipum. Þá eru allir
firðir og vogar norðan Gjögurs og
að Horni fullir af ís að því er fram
kom í ískönnunarflugi í gær.
Í ískönnunarfluginu kom fram
að vestan við Straumnes var þétt-
leikinn við ísbrúnina víða 7/10 til
9/10 og ísdreifar suður af meginísn-
um. Austan við Straumnes var
þéttleikinn minni, en þó svipaður
innar. Meginísjaðarinn lá að landi
milli Kögurs og Geirólfsgnúps, en
þess utan var ísbrúnin næst landi
18 sjómílur norður af Skagatá, 17
sjómílur norður af Grímsey og 12
sjómílur norðnorðaustur af Rauða-
núp. Þór Jakobsson veðurfræðing-
ur sagði að skip sem hefði ætlað að
fara fyrir Horn hefði þurft að snúa
við vegna íssins í gær. Þá hefði
komið í ljós í ískönnunarfluginu að
ísbrúnin væri skammt norður af
Grímsey og mikill dreifður ís allt
um kring. Þá væru það tíðindi að ís-
inn væri kominn fyrir Ísafjarðar-
djúp og það væri ljóst að það væri
komið mikið af hafís fyrir norðvest-
an og norðan land
Þór sagði að ljóst væri að ófært
yrði fyrir Horn í dag, en það væri
bót í máli að veðurspár næstu dag-
ana bentu til þess að ísjaðarinn
gæti lónað frá. Á föstudag væri
spáð austlægri átt og hvössu fyrir
norðan og frá laugardegi til þriðju-
dags væri útlit fyrir suðaustlægar
áttir, sem kæmi í veg fyrir að meiri
ís kæmi úr Grænlandssundi. Hins
vegar væri fullsnemmt að fagna því
það tæki ísinn að minnsta kosti
nokkra daga að brotna og bráðna.
Minnir á hafísvorið 1979
Þór sagði aðspurður að um tíma
hefði þessi hafís minnt á hafísinn
árið 1988. Síðan hefði hann aukist
og því þyrfti eiginlega að fara aftur
til ársins 1979 til að hafa saman-
burð, en þá hefði verið síðasta haf-
ísvorið. Þá hefði hafísinn lagst að
landi í nokkrar vikur og orsakað
meðal annars kal í túnum.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í gær kom í ljós að siglingaleiðin fyrir Horn er lokuð.
Hafís lokar siglinga-
leiðinni við Horn