Morgunblaðið - 17.03.2005, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þá ættu allir að geta haldið áfram að una glaðir við sitt.
Hagstofa Íslandsmælir verðlag ávörum og þjón-
ustu til að finna út vísitölu
neysluverðs og meðal und-
irvísitalna eru fargjöld til
útlanda. Þegar þær tölur
eru skoðaðar sést hækkun
milli febrúar og mars um
2,5% og miðað við mars-
mánuð árið 2004 hafa far-
gjöldin hækkað um 4,4%.
Þegar leitað er skýringa
á þessari hækkun hjá flug-
félögunum benda þau
strax á hækkun eldsneyt-
isverðs, en þotueldsneyti
er nú 65% hærra á heims-
markaði en fyrir ári.
Lækkun dollars hafi síðan
dregið úr hækkunarþörf á far-
gjöldunum og hefði dollarinn ekki
lækkað þá gætu fargjöldin verið
enn hærri en þau eru í dag, segja
talsmenn félaganna. Frá því í mars
í fyrra hefur gengi dollars lækkað
um 17%.
Félögin segja hins vegar að al-
mennt hafi fargjöld ekki hækkað
svo mikið og þannig bendir upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, Guðjón
Arngrímsson, á að áætlanir félags-
ins geri ráð fyrir að fargjöld eigi
eftir að lækka á þessu ári. Það sé
bara áframhald á þeirri þróun sem
hafi verið í millilandaflugi almennt.
Undir þetta tekur framkvæmda-
stjóri Iceland Express, Almar Örn
Hilmarsson, og segir þá þróun vera
hjá evrópskum flugfélögum að
verð muni halda áfram að lækka,
þó innan skynsamlegra marka. Fé-
lag eins og Iceland Express starfi
ekki eins og einhver sjálfboðaliða-
samtök.
Hjá Neytendasamtökunum
fengust þær upplýsingar að kvart-
anir hefðu borist frá fólki sem hefði
pantað sér ferð á ákveðnum tíma
og jafnvelt greitt inn á þær, en síð-
an þegar farið hefði verið í ferð-
irnar og þær greiddar að fullu þá
hefði fargjaldið hækkað. Sesselja
Ásgeirsdóttir hjá samtökunum
sagði þó engin stór mál hafa risið
vegna þessa en hún hefði orðið vör
við umræðu um hækkandi fargjöld.
Ábendingar hafa einnig borist
frá flugfarþegum um að erfiðara sé
en áður að verða sér úti um ódýrari
fargjöld í millilandafluginu hjá Ice-
landair og Iceland Express. Þegar
þetta er borið undir félögin segja
þau fjölda ódýrustu fargjaldanna
fara eftir framboði og eftirspurn og
í ljósi stöðugrar fjölgunar flugfar-
þega megi reikna með að minna sé
um ódýr sæti en þegar eftirspurn
er lítil. Á móti sé ódýrum sætum
haldið eins lengi og hægt er ef illa
gengur að selja í einhverja ferð.
Almar Örn bendir á að félagið
hafi fækkað vélum sínum úr tveim-
ur í eina sl. haust og eðlilega
minnki strax framboð á ódýrum
sætum við það. Aftur verður bætt
við vél í sumar en í 148 sæta vél
hafa að allt að 15 sæti verið í ódýr-
asta flokki. Almar bendir einnig á
að fargjaldið hækki eftir því sem
líði nær brottför og því sé hag-
kvæmast að panta ferðir með
löngum fyrirvara. Á þessu geti
munað tugum þúsunda króna. Erf-
itt sé að meta heildaráhrifin á far-
gjöldin og vel geti verið að þau hafi
lítillega hækkað milli ára.
Almar segir Iceland Express
starfa eftir þeirri „einföldu“ reglu
að selja alltaf ódýrustu sætin fyrst
og vel fram í tímann. Eðli málsins
samkvæmt hafi þeim sætum fækk-
að þegar gripið var til þess ráðs að
fækka um eina vél. Það hafi verið
neyðaraðgerð til að bjarga rekstri
félagsins. Um leið hafi dýrum sæt-
um einnig fækkað. Almar segir að
þótt framboð á ferðum hafi minnk-
að þá hafi félagið verið reglulega
með hagstæð tilboð. Ekki sé þó
endalaust verið að bjóða ferðir á
eina eða tvær krónur. Allir heilvita
menn sjái að það gangi ekki til
lengdar. Einhvers staðar verði
menn að fá salt í grautinn.
„Ég ætla mér að reka Iceland
Express til að græða á því fyrir
eigendurna, annars verð ég bara
rekinn. Ég geri mér einnig vel
grein fyrir því að til að fá fólk í vél-
arnar verðum við að bjóða sann-
gjörn fargjöld. Það er íslenskri
þjóð til heilla að þetta fyrirtæki
lifi,“ segir Almar Örn og bætir því
við að félagið fylgist vel með far-
gjöldum keppinautarins, Icelanda-
ir. Verðkannanir fari fram mörg-
um sinnum á sólarhring og hið
sama sé gert hjá Icelandair.
Guðjón Arngrímsson hjá Ice-
landair segir að skýring á 4,4%
hækkun á flugfargjöldum milli ára
geti verið sú að páskarnir séu í
mars þetta árið en það sé ein helsta
flugvertíðin. Eftirspurn sé gríðar-
leg og fargjöldin geti verið eftir því.
Telur Guðjón framboð á ódýrum
sætum ekki hafa minnkað frá því
sem verið hefur. Félagið hafi verið
að fjölga flugsætum og ferðum og
breytt sinni starfsemi verulega.
Farþegum fjölgi stöðugt í milli-
landafluginu.
Lítill verðmunur
Kannaður var í gær verðmunur
á ferðum félaganna til Kaup-
mannahafnar, með brottför að
morgni 1. apríl nk. og heimkomu
sjö dögum síðar. Hagstæðasta verð
hjá Iceland Express var rúmar 23
þúsund krónur en lægsta fargjald
hjá Icelandair var rúmar 22 þús-
und krónur. Sömu leið var þó hægt
að fá hjá félaginu á 30 þúsund
krónur ef brottför væri á hádegi 1.
apríl.
Fréttaskýring | Samkeppni Icelandair og
Iceland Express í millilandaflugi
Spáð lægri
fargjöldum
Samkvæmt mælingum Hagstofunnar
eru fargjöldin nú 4,4% hærri en í fyrra
Farþegum fjölgar og fargjöld hafa hækkað.
Farþegar um Leifsstöð
13,7% fleiri en í fyrra
Umferð farþega um Keflavík-
urflugvöll og Leifsstöð jókst um
12% í febrúarmánuði sl. miðað
við sama mánuð í fyrra. Fyrstu
tvo mánuði ársins fóru 154 þús-
und farþegar um völlinn, sem er
13,7% fjölgun milli ára. Þar af
fóru um 89 þúsund manns um
völlinn í febrúar. Ef aðeins er lit-
ið á fjölda farþega frá landinu þá
voru þeir tæplega 38 þúsund í
febrúar sl. en voru ríflega 34
þúsund í sama mánuði árið 2004.
bjb@mbl.is