Morgunblaðið - 17.03.2005, Side 24

Morgunblaðið - 17.03.2005, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Bónus Gildir 17. mars–20. mars verð nú verð áður mælie. verð Grillsagaður lambaframpartur ............... 399 499 399 kr. kg Frosið snyrt lambalæri .......................... 799 899 799 kr. kg Ferskir kjúklingabitar ............................ 259 329 259 kr. kg Gæðagrís Bayonneskinka ..................... 779 1169 779 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 17. mars–19. mars verð nú verð áður mælie. verð Svínalæri kjötborð................................ 368 525 368 kg Svínakótilettur ..................................... 698 898 698 kg Svínahnakki úrb. sneiddur, kjötborð....... 858 1178 858 kg Svínahryggur með puru......................... 598 898 598 kg FK Bayonneskinka................................ 779 1298 779 kg FK grill svínakótilettur ........................... 972 1389 972 kg Hótelrækja 2,5 kg ................................ 1898 2245 759 kg FK hamborgarhryggur, kjötborð ............. 798 1198 798 kg Fjalla lambalæri ................................... 998 1298 998 kg Móa ferskur heill kjúklingur ................... 398 598 398 kg Hagkaup Gildir 17. mars–20. mars verð nú verð áður mælie. verð Nautalundir frá Nýja Sjálandi ................ 2387 3979 2387 kr. kg Bayonneskinka .................................... 779 1298 779 kr. kg Óðals svína hamborgarhryggur .............. 839 1398 839 kr. kg Reykir frosinn heill kalkúnn ................... 599 799 599 kr. kg Kjötborð svínalundir ............................. 1756 2195 1756 kr. kg Holta úrb. kjúklingalæri í magnpk. ......... 899 1499 899 kr. kg Ísl. matv. reyktur lax, bitar ..................... 2160 2700 2160 kr. kg Nettó Gildir meðan birgðir endast verð nú verð áður mælie. verð Móa lausf. kjúkl.bitar, 9 stk................... 220 439 220 kr. kg Best helgarsteik m/sólþ. tómötum ........ 779 1298 779 kr. kg Ferskar kjötv. hamborgarhr. m/b ........... 799 1398 799 kr. kg Ferskar kjötv. baconpakki ..................... 649 1298 649 kr. kg Borg. franskar grillpylsur ....................... 389 777 389 kr. kg Kjörís heimaís, vanillu, 2 l..................... 299 499 150 kr. ltr Ql ferskur appelsínusafi 1 l ................... 99 159 99 kr. ltr Kristjáns hjónabandssæla .................... 298 498 726 kr. kg Nóatún Gildir 17. mars–23. mars verð nú verð áður mælie. verð Svínalundir, fylltar ................................ 1398 2298 1398 kr. kg Jarðarber í boxi 250 g .......................... 199 268 796 kr. kg Nóatúns hamborgarhryggur .................. 1299 1398 1299 kr. kg Nóatúns þurrkryddað lambalæri ............ 1039 1599 1039 kr. kg Nóatúns þurrkryddaðar grísakótilettur .... 998 1489 998 kr. kg Nóatúns Bayonneskinka ....................... 895 1398 895 kr. kg Lambainnralæri ................................... 1949 2998 1949 kr. kg Rainbow ananassneiðar ....................... 99 115 174,6 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 17. mars–27. mars verð nú verð áður mælie. verð Kalkúnn 1. flokkur................................ 599 798 599 kr. kg Borgarneskjötv. hamborgarhr. m/beini ... 779 1298 779 kr. kg OLD WEST grísarif ................................ 1146 1637 1146 kr. kg Ísfugl ferskur kjúklingur......................... 399 689 399 kr. kg Bautabúr gráðostafylltur grísahnakki...... 974 1299 974 kr. kg Bautabúr rauðvínskr. grísahnakki .......... 972 1495 972 kr. kg SS koníaks grísabógsneiðar .................. 674 899 674 kr. kg Emmess skafís 1,5 l............................. 349 698 233 kr. ltr Jarðarber box 250 g............................. 198 299 792 kr. kg Góa Marsbúaegg nr. 4, 325 g ............... 679 899 2089 kr. kg Spar, Bæjarlind Gildir 17. mars–22. mars verð nú verð áður mælie. verð Ungnautalundir úr kjötborði .................. 2338 3898 2338 kr. kg Lambalæri F+ úr kjötborði..................... 798 1129 798 kr. kg Lambalæri Úrvals úr kjötborði ............... 866 1197 866 kr. kg Londonlamb, frampartur....................... 998 1230 998 kr. kg Hátíðarlambalæri, villikryddað .............. 1099 1299 1099 kr. kg Kindavöðvar, kjötborð........................... 1098 1298 1098 kr. kg Kindagúllas, kjötborð ........................... 998 1298 998 kr. kg Kindahakk, kjötborð............................. 529 689 529 kr. kg Koldin sinnep, sætt, 450 g ................... 98 153 218 kr. kg McCain franskar kart. rifflaðar 1kg......... 278 359 278 kr. kg Þín verslun Gildir 17. mars–23. mars verð nú verð áður mælie. verð Ísfugls kjúklingabringur......................... 1499 1998 1499 kr. kg 4 hamborgarar, 4 brauð og ostur........... 478 598 478 kr. pk. Koníakslegin svínasteik ........................ 958 1198 958 kr. kg McCain rifflaðar franskar 1 kg ............... 269 299 269 kr. kg Tilda Rizazz 250 g 5 teg........................ 229 289 916 kr. kg BKI kaffi 500 g .................................... 359 299 598 kr. kg McCain súkkulaðikaka 510 g................ 349 478 663 kr. kg Vanillu skafís 1 ltr................................. 398 477 398 kr. ltr Hamborgarhryggur og lambalæri Morgunblaðið/Árni Torfason  HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is Aðalheiður Rúnarsdóttir kennari íVogaskóla er einhleyp og barnlausung kona sem hefur nýlega festkaup á sinni fyrstu íbúð. Eins og margt ungt fólk sem er að koma sér fyrir í líf- inu eftir nám þá hefur Aðalheiður ekki mikið fé á milli handana og er því hagsýn í inn- kaupum. „Mér finnst dýrt að versla fyrir mig eina því það er allt í svo stórum pakkningum, það er allt miðað við fjölskyldustærðina. Oft kem- ur það fyrir að ég er ekki nógu fljót að borða það sem ég þarf að kaupa í fjölskyldupakkn- ingum svo það skemmist bara.“ Ítölsk matarást Aðalheiður bjó á Ítalíu í langan tíma, fyrst fór hún þangað sem au-pair en síðan í há- skólanám. Þar kynntist hún ítalskri mat- argerð og hreifst af. „Ég smitaðist af mataræðinu á Ítalíu í heild sinni, mér finnst svo skemmtileg samsetn- ingin hjá þeim. Þótt svo þeir borði mikið af pasta og hvítu brauði þá er samsetningin svo skynsöm, það er alltaf grænmeti með og ávextir í eftirrétt þannig að það verður ekki eins þungt í maga og margir halda. Ástríðan sem Ítalir leggja í matargerðina finnst mér líka æðisleg.“ Ekki þarf að undra að Aðalheiður byði upp á ítalskan rétt ef hún ætti von á vinum í mat. „Ég myndi bjóða upp á eitthvað ódýrt en gott eins og risotto, vegna þess að það er ein- falt og fljótlegt og ekki eins algengt og pasta en þó í svipuðum verðflokki.“ Morgunkorn í öll mál Það er freistandi fyrir Aðalheiði að borða morgunkorn í öll mál: „Ef mér fyndist það boðlegt fyrir vítamínbúskapinn í líkamanum þá myndi ég borða Cheerios í öll mál en ég reyni að borða úr öllum fæðutegundum.“ Hún er á þeirri skoðun að það sé mjög per- sónubundið hvað einhleypt ungt fólk er dug- legt að hugsa út í matargerð en telur sjálfa sig vera einstaklega lata við það. „Ég er alin upp við mjög fastar mat- arvenjur, foreldrar mínir voru útivinnandi svo það var snarl í hádeginu en á kvöldin var allt- af heitur matur. Svona klassískur heim- ilismatur eins og fiskur, hakk og grjónagraut- ur. Ef að það var pítsa þá var það fjölskyldustund á laugardagskvöldum að gera hana saman.“ Smærri pakkningar „Neyslumynstrið hjá unga fólkinu í dag er svakalegt en ég vona að flest ungt fólk sé skynsamt í matarinnkaupum og það hugsi um hvað fer í innkaupakörfuna.“ Aðalheiður tínir ofan í körfuna ýmislegt fjölbreytt. Fyrir valinu verður mikið af græn- meti, skyrdós og hrökkbrauð, hún vandar val- ið, skoðar innihaldslýsingar og athugar verðið. „Krónan á Bíldshöfða er uppáhalds búðin mín, hún er stór og snyrtileg en þó með lágt vöruverð.“ Verslanir mættu þó að hennar mati koma meira til móts við þá sem búa einir. „Aðallega finnst mér að það mætti bjóða upp á græn- meti og kjöt í smærri pakkningum. En ef ein- ingarnar verða smækkaðar þá verður verðið að vera í takt við það, það má ekki verða „minnamagn-álagning“.“ Þrátt fyrir að Aðalheiður sé fædd og uppal- in á Selfossi þá á hún marga ættingja og vini á höfuðborgarsvæðinu. „Ég er rosalega dugleg að bjóða mér í mat til frændfólks, það gerist að minnsta kosti tvisvar í viku. Það er mjög sniðugt að detta inn í kaffi um klukkan sex því þá er alltaf sagt: „Þú borðar bara með okkur, elskan.“ Það er gott að eiga svona góða að,“ segir Aðalheiður en bætir þó við að hún sé nú oft heima hjá sér enda loksins komin í eigin íbúð. „Þegar ég flutti inn í nýju íbúðina mína fyr- ir um mánuði þá byrjaði ég á því að kaupa mér ísskáp og hann er svo æðislegur að ég þarf alltaf að eiga eitthvað skemmtilegt í hon- um. Ég fer aðallega í Ikea í leit að dóti í íbúð- ina því það er hagstæðast. Það er margt þar sem ég sé og langar í en ég hugsa alltaf: „Nei, ekki núna.“ Maður þarf nefnilega að sníða sér stakk eft- ir vexti.“  HVAÐ ER Í MATINN? | Aðalheiður Rúnarsdóttir þarf að halda fast um budduna Býður sjálfri sér í mat tvisvar í viku Morgunblaðið/Árni Torfason Krónan á Bíldshöfða er í uppáhaldi hjá Aðalheiði því hún segir að búðin sé stór og snyrtileg. og blandað saman við laukinn og svepp- ina. Ef þið eigið skvettu af hvítvíni er mjög gott að setja hana útá grjónin áður en vatninu er bætt útí. Þegar vatnið sýð- ur er því bætt í pottinn með grjónunum smá og smá í einu og hrært í á milli þar til grjónin eru soðin. Þá er smjörklíp- unni bætt útí, en ekki látið sjóða eftir það. Gott að bera fram ferskt salat ann- aðhvort fyrir eða eftir risottoið. Skerið niður það salat sem ykkur þykir best, jöklasalat, kínakál, rucola, bleytið í því með smá ólífuolíu og stráið salti og pip- ar yfir. Verði ykkur að góðu. 1l vatn 1 teningur grænmetiskraftur ½ laukur 200 g sveppir (ferskir eða í dós) 3–4 msk. ólífuolía 2 dl hrísgrjón smjörklípa Látið suðuna koma upp í vatninu og setjið þá grænmetiskraftinn útí. Skerið laukinn og sveppina niður. Ol- ían er hituð í potti og laukurinn og sveppirnir steiktir í henni í smá stund. Næst er ósoðnum hrísgrjónum bætt útí „Mér finnst gaman að elda og ég er góður kokkur en það er ekkert gaman að elda fyrir einn svo ég geri lítið af því. Þegar ég elda fyrir mig eina þá er það eitthvað einfalt og fljót- legt,“ segir Aðalheiður Rún- arsdóttir. Risotto með sveppum (fyrir tvo)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.