Morgunblaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 17. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landsst. 6005031718 VIII Sth. kl. 18:00 Töfrar Egyptalands Í haust verður farin ferð á veg- um Ljósheima til Egyptalands. Ferðin er farin til að tengja sig við töfra horfinnar menningar sem lifir þó enn í hofum lands- ins. Í kvöld mun Sólbjört Guð- mundsdóttir, sem leiðir ferðina, kynna hana í máli og myndum í Ljósheimum, Brautarholti 8. Fyr- irlesturinn hefst kl.20:30. Allir velkomnir www.ljosheimar.is. Fimmtudagur 17. mars. Allmenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Mikill söngur og vitnisburðir. Predikun sr. Karl V. Matthías- son. Allir eru velkomnir. Mánudagur 21. mars. Fræðslukvöld í Þríbúðum, Hverf- isgötu 42, kl. 19:30. Gestur kvöldsins er Halldór Lárusson. Allir eru velkomnir. www.samhjalp.is Vélstjórar Vantar vélstjóra á Hoffell SU 80. Þarf að hafa VF réttindi og geta leyst yfirvélstjóra af. Hoffell stundar uppsjávarveiðar og er gert út frá Fáskrúðsfirði. Búseta á staðnum er æskileg. Allar nánari uppl. gefur Eiríkur Ólafsson útgerð- arstjóri í síma 470 5000 eða gsm 893 3009. Loðnuvinnslan hf. Barcelóna - Mahon Íbúð til leigu í miðbæ Barcelóna og hús við höfnina í Mahon, Menorca. Laust um páskana og áfram. Uppl. gefur Helen í síma 899 5863. I.O.O.F. 11  1853178  Í kvöld kl. 20.00 Bæn og lofgjörð í umsjón Elsabetar og Miriam. Allir velkomnir. Frístandandi milligólf og lagerhillur til sölu! Til sölu mjög vandað frístandandi millgólf með veggeiningakerfi frá Rými. Hentar fyrir allar gerðir fyrirtækja. Hægt er að bæta við það. Erum að taka það niður núna. Nánari uppl. í símum 825 9111 og 825 9199. Atvinnuauglýsingar Félagslíf Húsnæði erlendis Raðauglýsingar 569 1111 Til sölu NÝTT vefsetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands var opnað í síð- ustu viku. Árni Magnússon félags- málaráðherra og Ólöf Inga Hall- dórsdóttir, ung hreyfihömluð kona og nýútskrifaður grunnskólakenn- ari, opnuðu vefsetrið formlega við athöfn sem fram fór í Norræna hús- inu. Vefsetur í fötlunarfræðum http://www.fotlunarfraedi.hi.is er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Vefsetrið er miðstöð þekk- ingar og upplýsinga í fötl- unarfræðum og fróðleiksbrunnur um málefni fatlaðra. Það mun þjóna fötluðu fólki og þeim sem tengjast málefnum þess í leik og starfi, en mikið er kallað eftir aðgengilegu efni á þessu sviði hér á landi. Vefsetrið er starfrækt í tengslum við framhaldsnám í fötlunarfræði við félagsvísindadeild Háskóla Ís- lands. Fötlunarfræði er nýtt fræða- svið sem vaxið hefur hratt á und- anförnum árum. Fræðileg þróun á þessu sviði endurspeglar aukinn áhuga á fötlun sem samfélagslegu fyrirbæri og mikilvægum þætti í lífi okkar allra, segir í fréttatilkynn- ingu. Vefsetur í fötlunarfræðum er mikilvægur vettvangur til að kynna þessi nýju fræði og er ætlað að bæta úr brýnni þörf fyrir aðgengi- legt efni um málefni fatlaðs fólks. Vefsetrið er liður í að gera þetta nýja fræðasvið sýnilegt og stuðla að uppbyggingu þess hér á landi, segir ennfremur. Kennslumálasjóður Háskóla Ís- lands hefur styrkt verkefnið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt vefsetur í fötl- unarfræðum við HÍ MIÐSTJÓRN Samiðnar lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Ríkiskaupa um að hafna tilboði Slippstöðvarinnar í viðgerðir á Ægi og Tý og taka pólsku tilboði, þar sem munurinn á tilboðunum var óverulegur. Ákvörðunin lýsir fyrst og fremst metnaðarleysi íslenskra stjórnvalda fyrir hönd íslensks iðn- aðar og skorti á vilja til að halda verkefnum í skipaiðnaði í landinu. „Miðstjórnin bendir á að ekki liggi fyrir að þurft hafi að bjóða verkefnið út á EES. Einnig vill miðstjórn benda á að aðrar þjóðir beita ýmsum leiðum til þess að halda mikilvægum verkefnum í landi þrátt fyrir tilvist samnings- ins. Miðstjórnin lýsir yfir ánægju sinni með að íslenskur skipaiðn- aður skuli standast erlend tilboð frá löndum sem hafa aðgang að ódýru vinnuafli eins og tilboð Slippstöðvarinnar sýnir. Einnig bendir fundurinn á að í saman- burðinum hefur ekki verið tekið til- lit til þess óbeina hagnaðar sem kemur til ef verkið er framkvæmt hér á landi. Miðstjórn Samiðnar skorar á fjármálaráðherra, dómsmálaráð- herra og iðnaðarráðherra að beita sér fyrir því að ákvörðun Ríkis- kaupa um að taka hinu pólska til- boði verði endurskoðuð og tryggja að viðgerðir á Ægi og Tý fari fram í íslenskum skipasmíðastöðvum. Miðstjórn hvetur alla aðila sem málið snertir að taka höndum sam- an til að tryggja farsæla niðurstöðu í þessu máli.“ Ályktanir Samiðnar og járniðnaðarmanna Lýsir metnaðarleysi íslenskra stjórnvalda FÉLAG járniðnaðarmanna mótmæl- ir harðlega þeirri ákvörðun Ríkis- kaupa að ganga til samninga við pólska skipasmíðastöð um viðgerðir á varðskipunum Ægi og Tý. Segir m.a. svo í ályktun félagsins um þetta efni: „Þetta er í annað skiptið á fjór- um árum sem Ríkiskaup ákveða að senda varðskipin úr landi með þeim rökstuðningi að verðið sé lægra í Pól- landi. Fyrir fjórum árum munaði 6,8 milljónum á tilboði Vélsmiðjunnar Orms og Víglundar og þessarar sömu pólsku skipasmíðastöðvar í við- gerðir á tveimur varðskipum. Í skýrslu sem Félag járniðnaðar- manna fékk þá hjá VSÓ ráðgjöf um kostnað við siglingu varðskipa til Póllands kom hins vegar fram að það yrði nokkur hundruð þúsund krón- um ódýrara að gera við skipin hér heima. Nú er þessi fjögurra ára saga að endurtaka sig þrátt fyrir yfirlýsingar ráðamanna á Alþingi fyrir fjórum ár- um. Félag járniðnaðarmanna bendir á að aðrar þjóðir setja ýmis skilyrði í sínum útboðum til að auðvelda þar- lendum fyrirtækjum að bjóða í verk.“ Vilja að verkið verði unnið hérlendis AUGLÝST hefur verið eftir tilnefn- ingum íslenskra nýmiðlunarlausna í landskeppni World Summit Award – nýmiðlunarverðlauna Sameinuðu þjóðanna. Þær tilnefningar sem berast fara fyrir dómnefnd sem velur bestu lausnina í hverjum flokki. Skráning í landskeppnina fer fram á vefsíð- unni http://www.hi.is/page/ wsa2005. Nýmiðlunarverðlaun Sameinuðu þjóðanna, World Summit Award (WSA), er samkeppni sem haldin er samtímis um heim allan. Tilgang- urinn er að velja og kynna besta rafræna efnið og nýmiðlun í veröld- inni um þessar mundir. Að skipu- lagningu samkeppninnar standa fulltrúar 168 landa í fimm heims- álfum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: www.wsis- award.org. Verðlaun í flokkunum átta verða veitt á verðlaunahátíð sem haldin verður í Háskóla Íslands laug- ardaginn 21. maí og þær nýmiðl- unarlausnir verða síðan sendar í aðalkeppnina sem haldin verður í Túnis í haust. Þáttökugjald er 10.000 kr og er skilafrestur til 31. mars. Keppnin hér á landi er skipulögð í samvinnu Háskóla Íslands, menntamálaráðuneytisins og Sam- taka iðnaðarins. Ný miðlunar- verðlaun Sam- einuðu þjóðanna EFTIRFARANDI ályktun hefur borist frá Heimdalli: „Í ljósi þeirra deilna sem staðið hafa um rekstrarfyrirkomulag Ríkisútvarpsins áréttar Heimdall- ur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, að nauðsynlegt er að selja Ríkisútvarpið hið snarasta. Jafnframt er Heimdallur andvígur þeim áformum að stofna sameign- arfélag um rekstur Ríkisútvarps- ins. Ástæða þess er sú að ábyrgð ríkisins á rekstrinum mun eftir sem áður verða ótakmörkuð. Heimdallur telur að það sé ekki hlutverk ríkisins að reka fjölmiðil, allar markaðsforsendur eru fyrir hendi til að leysa Ríkisútvarpið úr krumlum ríkisvaldsins og koma fyrirtækinu á almennan markað. Núverandi fyrirkomulag er með öllu óásættanlegt þar sem brotið er á þeirri grundvallarreglu að ríkið eigi ekki að vera í sam- keppni við einkarekin fyrirtæki á markaði.“ Nauðsynlegt að selja Ríkis- útvarpið Á AÐALFUNDI Lögmannafélags Íslands, sem haldinn var á Radison SAS Hótel Sögu, 11. mars sl., var Helgi Jóhannesson hrl., kjörinn for- maður félagsins til eins árs. Aðrir nýir stjórnarmenn eru Stefán Geir Þórisson hrl., og Helga Jónsdóttir hdl. en auk þeirra sitja í stjórn fé- lagsins þau Jóhannes Albert Sæv- arsson hrl. og Helga Melkorka Ótt- arsdóttir hdl. Ný stjórn Lög- mannafélagsins ELDUR kom upp í einbýlishúsi við Fjarðarstræti á Ísafirði á þriðja tím- anum í gær. Kviknaði hann í her- bergi sem notað er sem nuddstofa. Slökkvistarf gekk fljótt og vel, samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Ísafirði, en smávægilegar skemmdir urðu á húsnæðinu af völd- um reyks. Slökkviliðsmenn voru fljótir á vettvang þar sem umrætt hús stendur beint á móti slökkvistöð- inni. Eldur í nuddstofu STARFSMANNAFÉLAG Reykja- víkurborgar hefur gert kjarasamn- ing við ríkisvaldið vegna fé- lagsmanna sinna á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Samningnum svipar til samninga sem Starfsmannafélag ríkisstofn- ana hefur áður gert við ríkisvaldið vegna félagsmanna sinna og sem Bandalag háskólamanna hefur gert vegna háskólamenntaðra starfs- manna. Samningurinn verður kynntur og borinn upp á næstu dögum. Samið við ríkið vegna LSH HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugs- aldri í 3 mánaða fangelsi fyrir innbrot og þjófnað í Lágafells- skóla í Mosfellsbæ í marsmánuði 2004 þar sem stolið var verkfær- um að verðmæti 832 þúsund krónur. Ennfremur var ákærði sakfelldur af ákæru fyrir vopna- laga- og fíkniefnabrot. Gerði dómurinn upptækar tvær axir, þrjá hnífa og eitt skrúfjárn auk lítilræðis af hassi. Ákærði á að baki nokkurn sakaferil og var því ekki hægt að skilorðsbinda refsingu hans að þessu sinni. Arnfríður Einarsdóttir héraðs- dómari dæmdi málið. Verjandi var Hlöðver Kjartansson hrl. og sækjandi Dagmar Arnardóttir frá lögreglustjóranum í Reykjavík. Fangelsi fyrir innbrot í skóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.