Morgunblaðið - 20.03.2005, Side 6
6 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMVINNUNEFND um miðhá-
lendi Íslands fékk athugasemdir frá
alls um 150 manns vegna tillögu að
breytingu á svæðisskipulagi miðhá-
lendisins til ársins 2015. Eru það
mun fleiri athugasemdir en þegar
sagt var síðast frá málinu í Morg-
unblaðinu en þá höfðu allar póst-
sendingar ekki borist.
Allar þessar athugasemdir, utan
ein, sneru að aðalskipulagi Skeiða-
og Gnúpverjahrepps og Ásahrepps
vegna Norðlingaölduveitu. Athuga-
semdir frá um 130 manns voru að
mestu samhljóða, að sögn Fríðu B.
Eðvarðsdóttur, starfsmanns nefnd-
arinnar. Þannig bárust nefndinni
engar athugasemdir vegna Há-
göngulóns eða vetrarmiðstöðvar í
Kerlingarfjöllum, svo dæmi séu tek-
in. Samvinnunefndin hefur nú átta
vikur til að fara yfir athugasemdirn-
ar og mun m.a. fjalla um þær á fyr-
irhuguðum fundi 7. apríl næstkom-
andi. Til marks um áhuga fólks á
Norðlingaölduveitu þá bárust 95 at-
hugasemdir þegar svæðisskipulagið
miðhálendisins var fyrst kynnt í
heild sinni á sínum tíma.
Eins og fram hefur komið í blaðinu
er í tillögum að Norðlingaölduveitu
Landsvirkjunar gert ráð fyrir lón-
hæð upp á 566 metra yfir sjó að sum-
arlagi. Hæsta staða að vetrarlagi
getur orðið 567,8 m.y.s. en rekstr-
arhæð lónsins er 30 sentimetrum
lægri. Á meðfylgjandi korti, sem að
grunni til kemur frá Landsvirkjun,
sést staða lónanna betur.
Athugasemdir frá 150 manns vegna hálendisskipulags
!" Allar utan ein sneru
að Norðlingaöldulóni
FÉLAGAR í Karlakórnum Heimi
í Skagafirði komu Sigfúsi Péturs-
syni, einum söngbræðranna frá
Álftagerði, á óvart á æfingu í vik-
unni og gáfu honum myndir af
þeim um 100 kirkjum sem hann
hefur sungið í hér á landi í gegnum
tíðina. Hefur Sigfús ýmist sungið í
þessum kirkjum einn síns liðs eða
með kórnum og bræðrum sínum.
Oftast hefur Stefán Gíslason, kór-
stjóri og organisti, verið með Sig-
fúsi í för, enda segist hann ætla að
deila myndunum með Stefáni.
Það var formaður kórsins, Páll
Dagbjartsson, sem afhenti Sigfúsi
myndirnar sem að stórum hluta
eru úr myndasafni Morgunblaðs-
ins en einnig frá Sigurði Boga
Sævarssyni blaðamanni, Jóni Ög-
mundi Þormóðssyni, lögfræðingi
og áhugaljósmyndara, og fleirum.
„Íslandsmet, ef
ekki heimsmet“
Páll segir þessa hugmynd hafa
fæðst er þeir Sigfús sátu saman í
einni söngferð til Húsavíkur og
þegar ekið var fram hjá einni
kirkju hafi það dottið upp úr Sig-
fúsi að hann hefði nú líklega sungið
í um 100 kirkjum á Íslandi. „Ég
spurði hvort hann hefði tekið
myndir af þessum kirkjum, því ég
veit að Sigfús er mikill safnari í
sér, en hann sagðist því miður ekki
hafa gert það. Mér fannst þetta dá-
lítið merkilegt og eitt sinn barst
þetta í tal við séra Karl Sig-
urbjörnsson biskup hérna á
Löngumýri og hann taldi að þetta
væri áreiðanlega Íslandsmet, ef
um, vegna sameiginlegra tónleika
þeirra á Sauðárkróki 26. mars og
síðan 9. og 10. apríl í Keflavík og
Reykjavík. „Það leggst ljómandi
vel í mig að syngja með Hljómum,
alltaf gaman að prófa eitthvað
nýtt. Þetta eru karlar á svipuðum
aldri og ég og forðum daga hlust-
aði maður alltaf á þá. Við bræð-
urnir höfum áður starfað með
Gunnari Þórðarsyni, þar fer alveg
sérstakur öðlingur,“ segir Sigfús,
kominn á sjötugsaldurinn en þykir
sjaldan hafa sungið betur.
sungið í, með tilliti til hljómburðar,
segir Sigfús margar kirkjur koma
til greina. Nefnir hann þó sér-
staklega Fella- og Hólakirkju,
enda hafi þeir bræður tekið þar
upp eina plötu.
Á svipuðum aldri og
„karlarnir“ í Hljómum
Sigfús er enn að, bæði í karla-
kórnum og með bræðrunum. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu á
föstudag eru Heimismenn að æfa
lög með bítlahljómsveitinni Hljóm-
ekki heimsmet,“ segir Páll.
Sjálfur segir Sigfús af sinni
kunnu hógværð að eflaust geti
þessi kirkjusöngur verið sérstakur
en þetta hafi nú tekist á 40 ára
söngferli. Ef kirkjur í útlöndum
séu meðtaldar sé fjöldinn kominn
vel á annað hundraðið. Hann segir
söng í kirkjum gefa sér mikið en
eðlilega sé erfitt að syngja við at-
hafnir eins og jarðarfarir, ekki síst
í litlum kirkjum þar sem nálægð
við aðstandendur er mikil. Spurður
um bestu kirkjuna sem hann hefur
Sigfús í Álftagerði fékk kirkjumyndir að gjöf frá Karlakórnum Heimi
Hefur sungið í yfir hundrað kirkjum
Páll Dagbjartsson, formaður Heimis (t.h.), afhenti Sigfúsi Péturssyni kirkjumyndirnar á æfingu Karlakórs-
ins Heimis. Kórinn æfir nú af kappi lög með Hljómum sem þeir munu flytja með hljómsveitinni um páska.
„ÞETTA var greinilega mikið högg þegar
bílarnir lentu saman því sá sem var á leið
upp brekkuna snerist við og rann niður hana.
Ég kannaði stöðuna hjá þeim sem kom á
móti en ökumaðurinn hafði meiðst og það
blæddi úr honum en hann var þó ekki alvar-
lega meiddur. Ég þorði ekki að stoppa þarna
lengi og hélt áfram en sá í speglinum að fleiri
bílar lentu á hinum,“ sagði Ólafur Tryggva-
son sem búsettur er á Ströndum.
Ólafur sagði að vegrið á milli akreinanna
hefði getað afstýrt svona árekstri því alla-
vega hefðu fólksbílarnir lent á vegriðinu en
ekki hvor framan á öðrum. Ekki er gert ráð
fyrir vegriði á nýja kafla vegarins yfir Svína-
hraunið neðan Hveradalabrekkunnar en þar
verður lagður svokallaður 2 + 1 vegur.
Ólafur var á leið upp Hveradalabrekkuna í
fyrradag, á eftir bíl sem lenti í fyrsta
árekstrinum í brekkunni og sá þegar
árekstrahrinan hófst sem endaði með tíu bíla
árekstri. „Það var mikil hálka, lágarenningur
á veginum og erfiðar aðstæður. Ég var á
jeppa og sá sæmilega yfir kófið en bíllinn á
undan mér var á vinstri akreininni, alveg inn
við miðju vegarins og sá sem kom á móti var
líka við miðjuna og þeir bara skullu saman.
Þeir voru ekki á mikilli ferð en samt var
þetta mikið högg,“ sagði Ólafur. Hann sagð-
ist hafa mætt flutningabíl þegar hann kom
upp fyrir brekkuna og sá lenti síðan á öðrum
bílum í brekkunni.
Vegrið hefði
getað afstýrt
árekstri í
Hveradala-
brekkunni
FÉLAGSMENN í Póstmanna-
félagi Íslands hafa samþykkt ný-
gerðan kjarasamning við Íslands-
póst eins og fram kemur á vef
BSRB.
Á kjörskrá voru 1.072. Atkvæði
greiddu 638 eða tæp 60%. Já
sögðu 368 eða 58%. Nei sögðu 255
eða 40%. Auðir seðlar og ógildir
voru 15 eða 2%.
Samningurinn gildir til þriggja
ára eða til ársloka 2007 og nær til
um 1.100 félagsmanna Póstmanna-
félagsins. Áhersla var á að hækka
laun þeirra lægst launuðu. Með-
alhækkun launa er um 21% á
samningstímanum. Upphafshækk-
un á þessu ári er 4,25%, 3,0% frá
1. janúar 2006 og 2,5% frá 1. jan-
úar 2007.
Póstmenn samþykkja
nýjan kjarasamning