Morgunblaðið - 20.03.2005, Page 10
10 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
T
veggja vikna ráðstefna
kvennanefndar Sameinuðu
þjóðanna snerist um að undir-
strika þörfina á því að rík-
isstjórnir leggi meiri áherslu á
kynjajafnrétti en áður, greiði
fyrir framgöngu kvenna á öll-
um sviðum, og berjist gegn
misrétti gegn þeim. Mikilvægasta niðurstaðan
var sú ákvörðun ráðherrahóps SÞ að staðfesta á
ný tíu ára samþykkt Pekingráðstefnunnar, ásamt
því að brýna fyrir ríkisstjórnum að halda áfram á
þessari braut. Það gekk ekki snurðulaust fyrir
sig, því Bandaríkjastjórn lagði fram tillögu þess
efnis að staðfesting Pekingáætlunarinnar fæli
ekki í sér viðurkenningu á neinum nýjum rétt-
indum, t.d. rétti til fóstureyðingar. Tillaga BNA
hlaut lítinn sem engan stuðning annarra ríkja en
Bandaríkjamenn féllu ekki frá henni fyrr en á síð-
ustu stundu.
Ekki tókst heldur að slíta ráðstefnunni á síð-
asta degi eða 11. mars, vegna tafa við að afgreiða
ályktanir, og verður henni slitið formlega á næstu
dögum ásamt því að setja 50. fund til að kjósa
næstu stjórn nefndarinnar. Nefndin samþykkti
sex nýjar ályktanir um samþættingu kynjasjón-
armiða í stjórnsýslunni, gagnasöfnun um misrétti
gegn konum, mansal, stöðu kvenna eftir nátt-
úruhamfarir eins og vegna flóðbylgjunnar í Ind-
landshafi, frumbyggjakvenna, um rannsóknir og
þjálfun kvenna í vísindum (INSTRAW), og um
stöðu kvenna í efnahagslífinu. Þá samþykkti
fundurinn einnig texta um konur og HIV/AIDS,
stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan og um stöðu
og aðstoð við palestínskar konur. Síðastnefnda
ályktunin olli nokkrum usla þar sem orðalag
hennar mátti mögulega túlka sem gagnrýni á Ísr-
aelsmenn. Lyktir urðu þær að 38 þjóðir sam-
þykktu þessa ályktun í atkvæðagreiðslu, Banda-
ríkjamenn greiddu atkvæði gegn henni og tvær
þjóðir sátu hjá; Kanada og Ísland. Fjórar þjóðir
voru fjarverandi.
Hlutur Íslands
á ráðstefnunni
Ráðstefnan í New York 28. febrúar til 1. mars
var 49. fundur kvennanefndarinnar og fór fram í
höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
Fundurinn var tileinkaður mati á framkvæmd
Peking-áætlunarinnar, sem samþykkt var á
kvennaráðstefnunni 1995, og niðurstöðu 23. auka-
allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, sem haldið
var árið 2000 sem kölluð eru þúsaldarmarkmiðin.
Í New York voru bæði lokaðir samningafundir og
opnir fundir fyrir fulltrúa ráðstefnunnar. Talið er
að um 6000 fulltrúar hafi sótt ráðstefnuna, hvað-
anæva úr heiminum. Jafnframt aðaldagskrá var
önnur viðamikil dagskrá skipulögð af frjálsum fé-
lagasamtökum (NGO, Non-Governmental Org-
Uppræta virðingarleysi og brot á mannrétt-
indum stúlkna.
Karlmenn og fjölmiðlar
Umræðan á kvennaráðstefnunni núna var
mjög þróuð og þar skiptust konur á mikilvægum
upplýsingum og bættu tengslanet sitt. Samninga-
nefndir þjóðanna í kvennanefndinni samþykktu
ályktanir, bæði nýjar og gamlar. Vandinn er þó
iðulega sá sami, fáir karlar sitja ráðstefnuna, og
enn er óljóst hvort orðræðan festir rætur í orð-
ræðu leiðtoganna. Verður fagleg og upplýst um-
ræðan á kvennaráðstefnunni jaðarumræða áfram
eða tekst að fleyta henni inn í meginstraum al-
þjóðastjórnmála?
Fjölmiðlar sinntu ráðstefnunni ekki og á blaða-
mannafundum í höfuðstöðvum SÞ höfðu frétta-
menn mun meiri áhuga á skipun Johns Boltons, í
embætti sendiherra Bandríkjanna hjá Samein-
Vinna gegn fátækt kvenna
Jafna aðgang kynjanna að menntun
Jafna aðgang kynjanna að
heilbrigðisþjónustu
Uppræta ofbeldi gegn konum
Sporna gegn áhrifum stríðsátaka
á konur og stúlkur
Auka þátttöku kvenna í efnahagslífinu
og bæta aðgang að upplýsingum
Vinna á misskiptingu valda milli
kynjanna og þátttöku í ákvarðanatökum
Krefjast fullnægjandi aðgerða
til að rétta hlut kvenna á öllum stigum
Vinna gegn virðingarleysi
fyrir mannréttindum kvenna
Vinna gegn óhagstæðum
staðalmyndum kvenna í fjölmiðlum
Vinna að jöfnum hlut kynjanna
að náttúruauðlindum og verndun umhverfis
anizations) frá morgni til kvölds í Church Center
for the United Nations, tólf hæða í byggingu
handan götunnar. Þar voru yfir 100 fjölsóttar og
fjölbreyttar málstofur. Á ráðstefnunni tóku þátt
80 ráðherrar, 1800 sendifulltrúar frá 165 aðild-
arríkjum, sjö eiginkonur forseta og a.m.k. 2600
fulltrúar frá óháðum samtökum.
Í efnahags- og félagsmálanefnd SÞ eiga 54 ríki
sæti. Kvennanefndin tilheyrir henni og tóku Ís-
lendingar sæti í henni árið 2004 í fyrsta sinn.
Kvennanefndin er mjög öflug og hefur fylgt fast
eftir samþykktum niðurstöðum frá ráðstefnunni í
Peking 1995. Sendinefnd Íslands 2005 tók virkan
þátt í ráðstefnunni, m.a. í samnorrænni dagskrá
um ungt fólk og kynjahlutverk. Árni Magnússon
félagsmálaráðherra sótti ráðstefnuna og flutti
ræðu 1. mars. Í ávarpi sínu fjallaði ráðherra m.a.
um áhrif stríðsástands á stöðu kvenna og stúlkna.
Hann ræddi einnig um mansal kvenna og ábyrgð
allra ríkja í því sambandi. Þá lagði ráðherra
áherslu á mikilvægi þess að vinna gegn launamis-
rétti kynjanna og greindi frá sjálfstæðum rétti
feðra á Íslandi til fæðingarorlofs sem er ekki
framseljanlegur. Hann undirstrikaði mikilvægi
þess að karlar taki virkari þátt í jafnréttisbarátt-
unni. Frásögn hans af feðraorlofinu vakti athygli
og varð tilefni margra fyrirspurna.
Pekingáætlunin og
þúsaldarmarkmiðin
Þúsaldarmarkmið SÞ eru í brennidepli á þessu
ári, en þau voru samþykkt haustið 2000 og tengj-
ast stöðu kvenna. Konur eru t.a.m. 80% fátækra,
börn eru oftar á þeirra ábyrgð, og konur smitast
nú örar af alnæmi en karlar. Þúsaldarmarkmiðin
eru eftirfarandi: 1.Eyða fátækt og hungri. 2. Öll
börn njóti grunnskólamenntunar árið 2015.
3.Vinna að jafnrétti kynjanna og styrkja sjálfs-
ákvörðunarrétt kvenna. 4. Lækka dánartíðni
barna. 5. Vinna að bættu heilsufari kvenna. 6.
Berjast gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúk-
dómum sem ógna mannkyninu. 7. Vinna að sjálf-
bærri þróun. 8. Styrkja hnattræna samvinnu um
þróun.
Leiðtogafundur SÞ í haust mun væntanlega
staðfesta þúsaldarmarkmiðin á ný, en valdavæð-
ing kvenna er talin árangursríkasta leiðin til að
breyta heiminum til batnaðar. Kynjajafnrétti er
forsenda friðar og jafnvægis í heiminum, að mati
Kofi Annan sem flutti ávarp við upphaf kvenna-
ráðstefnunnar (CSW-49), ásamt samþættingu
kynjasjónarmiða í stjórnkerfinu eins og t.d. í fjár-
lögum ríkja.
Hann sagði að jafnrétti kynjanna væri ekki að-
eins verkefni kvenna, heldur allra og hann vonaði
að leiðtogafundurinn í september áttaði sig á því.
Þúsaldarmarkmiðin byggjast að nokkru leyti á
Pekingáætluninni frá 1995 en hún felst m.a. í því
að:
Jafnrétti kynjanna er for
Jafnréttisumræðan á 49. kvennafundi Sameinuðu þjóðanna og hjá frjálsum
félagasamtökum mun skila sér inn í stjórnsýslu landanna á næstu misserum.
Gunnar Hersveinn sótti ráðstefnuna í New York fyrr í mánuðinum. Ályktanir
hennar munu sennilega knýja ríkisstjórnir til að samþætta jafnréttissjón-
armið í allar þýðingarmiklar ákvarðanir, t.d. um fjárlög.
Kvennaráðstefnan fjallaði m.a. um þungar byrðar kvenna víða um heim. Hér eru indverskar konur
í vinnu austur af Agartala, daginn fyrir alþjóðakvennafrídaginn 8. mars 2005.
NOKKUR hópur Íslendinga sótti 49.
fund kvennanefndar Sameinuðu þjóð-
anna í New York 28.–11. mars. Nokkrar
þeirra voru spurðar um viðbrögð:
Margrét /Feministafélagi Íslands
„Kvennaráðstefnan hefur gildi sem
upplýsingastreymi á milli fólks og sem
tengslamyndun,“ segir Margrét Pét-
ursdóttir sem fór til New York fyrir
hönd Feminstafélags Íslands.
„Mest áhrif hafði á mig sú óbilandi
barátta kvenna, þrátt fyrir allt það sem
þær mega þola, trúin á að betri tímar
muni koma. Andrúmsloftið var ólgandi,
kvenlegt, og gaf vísbendingu um að allt
sé líklegt í þessari baráttu.“
Alvarlegast fannst henni að fram-
sæknar þjóðir eru í raun að staðna í
þessum málaflokki vegna þess að
þeim finnst að þær séu komnar svo
langt að í lagi sé að slaka á, leyfa tím-
anum að vinna vinnuna. Það er aftur á
móti ávísun á bakslag.
„Gleðilegast er að konur eru að
styrkjast, þær taka það versta úr
feðraveldinu í gegnum aldirnar þ.e. of-
beldi og blóðsúthellingar og umbreyta
því á sinn hátt sér til stuðnings og
gegn því valdi sem er þeim óvinveitt,“
segir Margrét.
Birna / UNIFEM á Íslandi
„Ég var mjög spennt fyrir fundinum
enda var um að ræða fyrsta alþjóðlega
kvennafundinn sem ég fékk að sækja.
Ég þekkti ágætlega söguna af kvenna-
ráðstefnunum fjórum og andinn sem
sveif yfir vötnum í kringum ráðstefn-
urnar í Turku og Peking árin 1994 og
1995 voru mér í fersku minni, þó ég
hafi einungis verið unglingur á þeim
tíma,“ segir Birna Þórarinsdóttir fram-
kvæmdastjóri UNIFEM á Íslandi. „Það
var því óneitanlega nokkuð svekkjandi
tilfinning að sækja fund sem reyndist
vera meiri varnarleikur en sóknarleikur.
Við höfðum verið vöruð við þessu áð-
ur; að vitað væri að miðað við þá vinda
sem blésu um Sameinuðu þjóðirnar
væri líklegra að stigin yrðu skref aftur
á bak en áfram á fundinum ef farið
væri að hreyfa of mikið við textanum.
Þrátt fyrir viðvörunina þótti mér súrt í
broti, og hreinlega erfitt, að horfa upp
á öflugasta ríki heims standa fyrir nið-
urrifsstarfsemi á fundinum – og það
jafnvel í þeim tilgangi einum að skora
stig í landspólitíkinni. Ég fékk nasaþef-
inn af áhrifavöldum þessarar stefnu
þegar ég sótti málstofu hjá hópinum
Concerned Women for America, hópi
sem stærði sig af því að hafa barist
fyrir breytingatillögu Bandaríkjanna.
Ég hef aldrei kynnst öðru eins sam-
ansafni af ranghugmyndum í einu er-
indi. Þar var femínisma líkt við komm-
únisma, t.d. hvað varðar fjölda
skilnaðarbarna og fóstureyðinga vs.
fórnarlömb Stalíns, Maó og Pol Pot, því
var haldið fram að óvígð sambúð leiði
frekar til heimilisofbeldis en hjónaband
og að femínismi standi fyrir hatur á
karlmönnum, samkynhneigð kvenna
og róttæka vinstristefnu.“
Kolbrún / Vinstri grænir
„Gildi ráðstefnunnar er margþætt. Í
fyrsta lagi tryggir hún að málefni
kvenna detta ekki út af dagskrá rík-
isstjórna, sama hvar er í heiminum,“
segir Kolbrún Halldórsdóttir alþing-
iskona. „Í öðru lagi er hún ákjósanlegur
miðill upplýsinga, sem fjölmiðlar, há-
skólar og fagaðilar geta auðveldlega
nýtt sér í þeim tilgangi að þróa um-
ræðuna áfram. Og í þriðja lagi byggir
hún brýr milli fólks, en tengsl milli ein-
staklinga sem hafa sömu hugðarefni
og baráttumál geta valdið straum-
hvörfum í þróun málaflokka.“
Eitt af því Kolbrún heillast svo af í
starfi SÞ er hversu frjáls félagasamtök
eiga þar sjálfsagðan sess. Það tryggir
víðsýni í starfinu, að hennar mati.
„Þessar tvær vikur í NY voru sneisa-
fullar af athyglisverðum málstofum,
sem frjáls félagasamtök buðu uppá. Ég
sótti nokkrar slíkar og sú sem hafði
mest áhrif á mig var málstofa sem
skipulögð var af „The Coalition
Against Trafficking in Women“
(CATW), sem bar yfirskriftina „Lögleið-
ing vændis gerir ríkið að melludólg/
vændismiðlara“. Þar var fjallað um
ástandið í þeim ríkjum sem nýverið
hafa lögleitt vændi og vinna nú við að
setja lög og reglur um „atvinnugrein-
ina“. Það hefur reynst ansi snúið.“
Friðbjörg / Kvenréttindafélagið
„Að sækja Kvennaþing, Bejing+10, á
vegum SÞ í höfuðstöðvum þeirra í
New York hefur einstök áhrif á vitund
manns sem konu, þar sem kvenlegur
kraftur hvaðanæva úr heiminum sam-
einast í máttugri orðræðu. Það hvín í
undan réttmætum ábendingum og
kröfum um jafnari skilyrði og þar með
betri heimsbyggð,“ segir Friðbjörg
Ingimarsdóttir, kennsluráðgjafi í fjöl-
menningu, sem fór á ráðstefnuna fyrir
hönd Kvenréttindafélags Íslands.
„Konurnar þekkja hvar á brýtur og
hafa bent á hvar leiðirnar liggja. Orð
skulu verða að stefnu, stefna að að-
gerðum og aðgerðir bundnar fjár-
magni til þess að konur, mæður og
dætur framtíðarinnar geti og fái notið
„Óbilandi barátta kvenna“
Friðbjörg
Ingimarsdóttir
Kolbrún
Halldórsdóttir
Birna
Þórarinsdóttir
Margrét
Pétursdóttir