Morgunblaðið - 20.03.2005, Page 19
listrænt séð og hvað allan viðbúnað og aðstöðu
varðaði. Svo hefur líka mikið verið rætt um
Frieze-kaupstefnuna í London og Fiac í París
sem aldrei hefur verið betri en nú í haust. Þar
sem allt þetta heppnaðist svo vel frá listrænu
sjónarmiði, miðað við það sem áður gerðist á
kaupstefnum, er töluverður þrýstingur á
stjórnendur í Feneyjum að standa sig. Þetta
sýnir að allar stórsýningar og kaupstefnur bera
sig saman við Feneyjatvíæringinn.
Mér finnst það athyglisvert og mín tilfinning
er sú að María de Corral og Rosa Martínez hafi
verið ráðnar sem sýningarstjórar til þess að
bæta tvíæringinn. Þó það sé auðvitað svolítið öf-
ugsnúið er ljóst að stjórnendur tvíæringsins eru
orðnir meðvitaðir um þennan samanburð og
ætla sér að bregðast við með því að bæta sig. Í
því felst að þjóðarskálarnir þurfa líka að gera
betur. Einnig við; og það er á hreinu að það þarf
að leggja meira fjármagn í þetta verkefni.
Skilningur ráðamanna heima hefur þó gjör-
breyst. Reynslan af fyrri þátttöku hefur fætt af
sér sannfæringu um að þessi vettvangur er
mikilvægur fyrir menningu þjóðarinnar og
framlagið núna er meira en síðast. Umfang
verkefnisins er þó það mikið og margþætt að
enn vantar töluvert upp á. Við þurfum þess
vegna að leita til einkafyrirtækja og annarra
stofnana en ríkisins, enda er jákvætt að fleiri
ólíkir aðilar geti nýtt sér þátttöku á þessum
mikilvæga alþjóðlega vettvangi. Íslandsbanki
hefur styrkt okkur, en Valur Valsson, sem var
bankastjóri Íslandsbanka þegar við Rúrí vorum
að vinna að undirbúningi, lagði til þrjár millj-
ónir í tvíæringsverkefni sem skiptast til að taka
þrisvar þátt. Stuðningur Íslandsbanka nýtist
því til sex ára sem er að mínu mati mjög árang-
ursríkt.“
Opnunin hluti af verki Gabríelu
Að þessu sinni verður í fyrsta sinn af Íslands
hálfu haldið veglegt opnunarboð er miðar að því
að ná til sem flestra málsmetandi gesta í list-
heiminum, þannig að kynningin á íslenska lista-
manninum verði sem best og þátttakan þjóni
sínum tilgangi. Búið er að leigja leikhús í Fen-
eyjum þar sem fyrirhugað er að hafa veisluna.
Að sögn Laufeyjar er opnunarveislan í raun
hluti af listaverki Gabríelu. „Þar munu ólíkir
listamenn, sem komið hafa að gerð innsetning-
arinnar, taka sig saman og flytja verk sem
sprottið er úr samstarfinu. Þegar þessir hæfi-
leikaríku listamenn koma saman gæti allt eins
fæðst óvænt, glænýtt og sjálfstætt verk, ef vel
tekst til og stemningin verður góð. Þetta gæti
því orðið mjög áhrifarík leið til að koma okkur á
framfæri. Eigandi leikhússins hefur gríðarleg-
an áhuga á Íslandi og við teljum okkur heppin
að hafa fengið hann til samstarfs við okkur.
Þessi viðburður yrði þann 11. júní, en opnunar-
dagar þjóðarskálanna standa í fjóra daga þang-
að til tvíæringurinn verður opnaður almenningi
þann 12. júní.“
endurreisnar
fbi@mbl.is
Úr Tetralógíu: Hluti af innsetningu Gabríelu
Friðriksdóttur á Feneyjatvíæringnum er
fjögur myndbandsverk er nefnast Tetralógía. Í
þeim vinna þær Björk Guðmundsdóttir og Erna
Ómarsdóttir með Gabríelu, en að sögn Lauf-
eyjar Helgadóttur sýningarstjóra búa þær „all-
ar þrjár yfir stórkostlegum sprengikrafti sem
einkennir að sumu leyti listsköpun unga fólks-
ins á Íslandi í dag“.