Morgunblaðið - 20.03.2005, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hvergi í Evrópu búa jafn-margir sígaunar og íRúmeníu. Fjöldi þeirrahefur þó ekki veriðskráður en talið er að
hann sé á bilinu 500 þúsund til tvær
milljónir en í heildina búa rúmlega
22 milljónir manna í Rúmeníu.
Sígaunarnir búa bæði í þorpum og
borgum en taka mismikinn þátt í
samfélaginu. Miklir fordómar eru í
garð þeirra meðal almennings og þá
sérstaklega í þá átt að þeir nenni
ekki að vinna heldur betli frekar
þrátt fyrir að eiga stærðarinnar
hallir á víð og dreif um landið.
Verkefnið Romanimation var með
eitt af meginmarkmiðum að vinna
gegn fordómum, koma á óformlegri
menntun og bæta samskiptin milli
sígaunanna og Rúmena. Orðið rom-
animation samanstendur af roma
sem stendur fyrir sígaunar, romani
fyrir Rúmeníu og animation sem
gæti kallast sýnikennsla en það var
aðferðin sem var notuð til að ná til
fólks og vinna að markmiðunum.
Þátttakendur í verkefninu komu
frá fimm Evrópulöndum auk þátt-
takenda frá Rúmeníu en Evrópu-
sambandið og Evrópuráðið styrkja
ótal verkefni af þessu tagi á hverju
ári.
Engin óformleg menntun
Unnið var í tveimur þorpum í
vesturhluta landsins, Dudestii Noi
og Satchinez. Veruleikinn er harður
og bilið milli vel stæðra og fátækra
skuggalega breitt. Menntun er af
skornum skammti og þrátt fyrir að
langflest rúmensk börn gangi í
skóla þá vantar mikið upp á að öll
sígaunabörnin komist til mennta.
Engin óformleg menntun er í þorp-
unum. Hvergi er boðið upp á skipu-
lagða dagskrá eða íþróttaæfingar
fyrir börn. Af þessum sökum er agi
takmarkaður og einfaldir hlutir eins
og að fara í röð geta vafist mjög fyr-
ir börnum.
Kynþáttafordómar eru miklir og í
öðru þorpinu ríkti hálfgerð aðskiln-
aðarstefna. Rúmensku börnin léku
alls ekki við sígaunabörnin og beittu
þau jafnvel ofbeldi. Sígaunarnir
bjuggu við miklu verri kost, mörg
barnanna voru illa til fara og oft
með flær og lýs.
Hefðbundinn dagur hófst með
undirbúningi fyrir athafnir dagsins.
Sérstaklega var gætt að því að bjóða
upp á vinnustofur fyrir ungt fólk í
þeirri von að það komi til með að
fylgja starfinu eftir. Börnin lærðu
að búa til hljóðfæri, spila á spil,
hoppa í snú snú, leika ýmsa götu-
leiki og inn í þetta allt saman var
fléttaður boðskapur jafnréttis og
samvinnu.
Fótboltavöllur stærsta óskin
Í fyrra þorpinu, Dudestii Noi, lét
árangurinn ekki á sér standa. Þátt-
takendum fjölgaði dag frá degi,
byggður var lítill leikvöllur úr timbri með dyggri aðstoð ungs fólks
í þorpinu og eftir dvöl fjölþjóðlega
teymisins liggur fyrir stofnun
tveggja samtaka, önnur fyrir
sígauna í þorpinu en hin fyrir ungt
fólk.
Starfið var öllu strembnara í
Satchinez. Fátæktin var meiri og
henni fylgir vonleysið auk þess sem
bæjaryfirvöld voru áhugalaus um
verkefnið. Það sem kom einna mest
á óvart var hversu léleg samskipti
þorpsbúa voru. Allt fram á okkar
síðasta dag kom fólk undrandi og
spurði hvað við værum að gera og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir okkar
náðum við litlum sem engum
tengslum við stærstan hluta þorps-
búa. Að undanskildum stöku gæsa-
hópum voru göturnar auðar og fólk
virtist aðeins koma saman á barnum
en þar var því miður minnst af okk-
ar markhópi.
Fyrsta daginn kom mikið af börn-
um, bæði Rúmenar og sígaunar.
Þeim fækkaði þó dag frá degi og að
lokum voru eingöngu rúmensk börn
eftir en sagan segir að foreldrar hafi
bannað börnunum sínum að koma á
staðinn þar sem þau ættu ekki að
leika við börn af öðrum kynþáttum.
Þá var lítið annað að gera en að
setja upp vinnustofu í sígaunahverf-
inu og reyna þannig að ná til
barnanna.
Ein af leiðunum til þess að ná til
ungs fólks var að spila fótboltaleik
við unglinga. Skemmst er frá því að
segja að hið fjölþjóðlega lið var ger-
sigrað þrátt fyrir að hafa verið með
knattspyrnusnilling frá Ítalíu, ís-
lenska og sænska víkinga og fótfráa
Belga. Markmið leiksins náðist þó
og að honum loknum féllust ung-
lingarnir á að starfa með okkur að
því að bæta bæjarfélagið. Ósk
þeirra var einföld og skýr. Allt tal
um sundlaugar og skemmtigarða
vék fyrir þeirra mikilvægasta mark-
miði: Að byggja upp fótboltavöll til
þess að geta verið með skipulegar
æfingar.
Í þorpinu er fótboltavöllur en
hann er eign olíufyrirtækis og
starfsmenn þess fá forgang á
völlinn. Rétt hjá vellinum er hús og
íbúarnir reka alltaf börn í burtu ef
þau eru nógu dökk til að kallast
sígaunar en láta rúmensk börn óaf-
skipt.
Innantóm loforð yfirvalda
Unglingarnir voru tregir til sam-
vinnu við bæjaryfirvöld þar sem
þeir sögðu bæjarstjórann gefa út
loforð í sífellu sem aldrei yrðu efnd.
„Við höfum áður byrjað að vinna við
völlinn. Við erum með ákveðið svæði
í huga, bæjarstjórinn samþykkti það
og við byrjuðum að hreinsa svæðið.
Hann hafði lofað að sjá til þess að
grasið yrði slegið en nú eru komin
nokkur ár síðan og ekkert hefur
gerst,“ sagði 19 ára gamall leiðtogi
unglinganna.
Hópurinn undirbjó ósk sína vel.
Útbúið var sérstakt skjal með ósk
unglinganna, ástæðum og yfirlýs-
ingu um fullan vilja til þess að sjá
um alla vinnuna í kringum uppbygg-
inguna sjálfir, ef þeir aðeins fengju
leyfi, stuðning og nauðsynleg tæki
og tól.
Á fundum með bæjarstjóranum
og varabæjarstjóranum féllu stór
loforð og mikill skilningur var á
stöðu sígauna. Að loknum fundinum
spurðu vongóðu og kannski um
margt barnslega einlægu útlending-
arnir hvernig þetta legðist í okkar
menn. Þeir hristu hausinn. Vonin
var engin. Þetta er það sama og þeir
segja alltaf. Engu að síður er nú haf-
in vinna við hreinsun svæðisins sem
hefur verið notað sem ruslahaugur
undanfarin ár. Þá er bara spurning
hvort bæjarstjórarnir standi við sín
loforð. Til stendur að fara á næsta
ári til Satchinez og bjóða upp á
þjálfun fyrir ungmenni sem geta
tekið að sér hlutverk leiðtoga og
sérstaklega verður hugað að mennt-
un fyrir tilvonandi knattspyrnu-
þjálfara.
Þróunarhjálp
á villigötum?
Í báðum þorpunum rákum við
okkur á arfleifð þeirrar stefnu í þró-
unarhjálp að gefa peninga án þess
að fylgjast með því í hvað þeir eru
nýttir. Í öllum þorpum hafa verið
reistar menningarmiðstöðvar sem
standa oftar en ekki auðar þar sem
enginn veit hvað á að gera við þær.
Samheldni er lítil og fólk bíður eftir
að eitthvað breytist á meðan lítil við-
leitni er til að stuðla að breytingum.
Það er augljóst að öll þróunarhjálp
þarf að eiga sér stað í samráði við al-
menning því peningar klárast en
hugmyndir, sköpun og uppbygging
lifa. Hungrað fólk mun aldrei hafa
kraft eða hvata til að skapa eitthvað
nýtt.
Morgunblaðið/Halla
Unglingsstrákarnir í Satchinez hafa hafist handa við að hreinsa svæðið þar
sem þeir vilja byggja upp fótboltavöll.
Í ágústmánuði fóru þrír Ís-
lendingar til Rúmeníu og
tóku þátt í fjölþjóðlegu
verkefni sem m.a. hafði það
að markmiði að bæta sam-
skipti sígauna og Rúmena.
Halla Gunnarsdóttir tók
þátt í því ásamt Þresti Sig-
urðssyni og Unni Gísladótt-
ur og komst að því að
stærsta ósk unglingsstráka í
litlu þorpi þar í landi er að
hafa aðgang að fótboltavelli.
hallag@mbl.is
Uppbygging fótboltavallar
í litlu þorpi í Rúmeníu
Morgunblaðið/Halla
Í þorpunum er ekkert skipulagt félagsstarf fyrir börn og unglinga og agi því oft takmarkaður. Eitt af markmiðum verkefnisins var að koma á óformlegri menntun.