Morgunblaðið - 20.03.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 29
Framtalsaðstoð
Annast framtalsaðstoð
fyrir einstaklinga
með og án reksturs.
Annast einnig
frestbeiðnir.
Pantið tímanlega
í síma 511 2828 eða með
tölvupósti bergur@vortex.is
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Suðurveri v/Stigahlíð
Frönsk hönnun og smíði
Hagstætt gengi
Frábært verð
Kr. 8.400
Kr. 9.900
ERNA Skipholti 3
Sími 552 0775 ◆ www.erna.is
Prima Embla
Stangarhyl 1
110 Reykjavík
Sími 511 4080
Fax 511 4081
www.embla.is
M
IX
A
•
fí
t
•
0
5
6
0
5
PEKING – XIAN – GUILIN
6. MAÍ - 17.MAÍ
Njóttu þess besta sem Kína hefur að bjóða, í litlum
hópi ferðafélaga, þar sem þú öðlast innsýn í mannlíf,
menningu og sögu þessa forvitnilega lands.
Napóleon keisari á að hafa sagt eitt sinn: „Þegar Kína vaknar þá
skelfur heimurinn“. Kína er að vakna. Efnahagslegar framfarir
hafa verið slíkar að með ólíkindum er. Markmið ferðarinnar er
að upplifa þessa nýju dögun í Kína, þar sem heillandi andstæður
hins forna mæta hinum nýju vestrænu gildum sem setja æ ríkari
svip á mannlíf og umhverfi landsins.
BERIÐ SAMAN VERÐ OG GÆÐI
flugsæti til og frá íslandi aðeins 78.600 kr.
HEILDARVERÐ FERÐAR AÐEINS 219.000 KR. Á MANN.
Innifalið: Flug og flugvallaskattar, gisting í 10 nætur á sérvöldum 5 stjörnu gisti-
stöðum, morgunverður, 7 hádegisverðir og 3 kvöldverðir, allar skoðunarferðir, allt
innanlandsflug, siglingar, heimsókn og hádegisverður hjá kínverski fjölskyldu og
glæsileg danssýning með gala-kvöldverði.
PEKING (5 nætur)
Á bak við alla ljósadýrð Peking nútímans er borg sem á sér yfir
3000 ára sögu. Mikilfengleiki hinnar „Forboðnu borgar“ lyftir
tjaldi tímans. Jafnframt heimsækjum við Kínamúrinn, Sumar-
höllina, Himnamusterið, elsta borgarhlutann og þorpið
Chuandixia. Síðasti hluti ferðarinnar er í Peking 16. og 17.
maí, en þá er opinber heimsókn forseta Íslands til Kína hafin.
XIAN (3 nætur)
Hápunktur ferðar til Kína er að kynnast hinum heimsfrægu
Terracotta hermönnum sem hafa verið í viðbragðsstöðu í yfir
2000 ár.
GUILIN (2 nætur)
Töfraheimur náttúrunnar bíður þín í Guilin, þar sem lands-
lagið er eins og klippt út úr kínversku málverki. Sigling eftir
ánni Li þar sem sérkennilega lagaðir fjallstindar rísa við sjón-
deildarhringinn er ógleymanlegt ævintýri.
KínaDásemdir
FYRIR AÐEINS
219.000 KR. –
ALLT INNIFAL
IÐ!
ins og vann að því að keyptar voru
tvær sjúkraflugvélar til Akureyrar.
„Það var alltaf barningur við það að
hér væri staðsett flugvél.“ Fyrri
sjúkravélin, eins hreyfils Cessna 180,
var keypt í samvinnu við bræðurna
Jóhann og Tryggva Helgasyni. Sú vél
fórst með fjórum mönnum á Vaðla-
heiði í ársbyrjun 1959, þar á meðal
flugmaðurinn Jóhann Helgason.
Seinni sjúkravélin var tveggja
hreyfla Piper Apache, sem Tryggvi
Helgason keypti á móti Rauða kross-
inum. Sú vél er enn til, hún var end-
urbyggð og er í Reykjavík. Á Ak-
ureyri er mikill áhugi fyrir að
Flugsafnið eignist þá vél.
Tíminn í lögreglunni var góður
Gísli sagði að tíminn í lögreglunni á
Akureyri hefði alls ekki verið erfiður.
„Eftir 40 ár í lögreglunni hugsa ég vel
til baka enda hafði ég afbragðsgóða
menn með mér. Ég hef ekki heyrt
annað í bænum eftir allan þennan
tíma en lögreglustarfið hafi gengið
vel. Allt fólk sem ég hef hitt í gegnum
tíðina er svo velviljað að það er hreint
með ólíkindum. Ég skil bara ekkert í
því stundum. Ég fór nú heldur ekki
um með yfirgangi eða hrottaskap.
Lykillinn að því að komast eitthvað
áfram er að koma vel fram við fólk.“
Eftir að Gísli tók við stöðu yfirlög-
regluþjóns fór hann að vinna að því að
byggð yrði ný lögreglustöð, enda
gamla stöðin í Laxagötu engan veg-
inn boðleg lengur að hans mati.
„Byggð var ný lögreglustöð við Þór-
unnarstræti og allir mjög ánægðir
með það,“ sagði Gísli. Húsnæðið við
Þórunnarstræti var tekið í notkun á
afmælisdegi Akureyrarbæjar 29.
ágúst 1968. Lögreglustöðin var opnuð
formlega á ný síðastliðið haust eftir
gagngerar endurbætur sem staðið
höfðu yfir frá því í desember 2003.
Jafnframt var ný varastöð fyrir Al-
mannavarnir, Neyðarlínuna og Fjar-
skiptamiðstöð lögreglunnar opnuð í
húsnæðinu. Gísla var að sjálfsögðu
boðið að vera viðstaddur við þetta
tækifæri og hann lét sig ekki vanta.
Þar kom fram í máli Björns Jósefs
Arnviðarsonar sýslumanns að það
hefði ekki síst verið fyrir þrotlausa
baráttu Gísla, fyrrverandi yfirlög-
regluþjóns, að ráðist var í byggingu
stöðvarinnar á sínum tíma og að hann
hefði verið stórhuga. Daníel Guð-
jónsson, núverandi yfirlögreglu-
þjónn, sagði m.a. við sama tækifæri.
„Sérstaklega þykir mér vænt um að
sjá þann mann sem án efa átti mestan
þátt í því að hús þetta var reist yfir
starfsemi lögreglunnar á Akureyri,
Gísla Ólafsson, fyrrverandi yfirlög-
regluþjón. Húsið dugar enn vel og
sýnir það framsýni Gísla að ekki var
bætt við einum fermetra af húsrými
við þessar endurbætur þrátt fyrir að
nýrri starfsemi væri bætt við.“ Gísli
tók fyrstu skóflustunguna að húsinu
árið 1963.
Þegar unnið var að byggingu
þyrlupallsins við FSA fékk Gísli
fjölda aðila til leggja hönd á plóginn
og án þess að þeir fengju krónu fyrir
sitt framlag. „Þetta gekk alveg ótrú-
lega vel og mér var alls staðar vel tek-
ið. Þegar búið var að byggja undir
pallinn sá bærinn um að malbika
hann.“
Gísli gekk í Oddfellow árið 1940 og
var mjög virkur í starfinu alla tíð.
Hann hefur gegnt öllum æðstu emb-
ættum reglunnar á Akureyri en hefur
nú að mestu dregið sig í hlé. Hann
mætir þó enn í kaffi í Oddfellowhúsið
við Sjafnarstíg, enda bæði heið-
ursfélagi og aldursforseti reglunnar í
bænum. Gísli lét mikið að sér kveða í
starfi Oddfellow og hann var einn
helsti hvatamaðurinn að því að ráðist
var í byggingu glæsilegs félagsheim-
ilis við Sjafnarstíg. Það kom líka í hlut
Gísla að taka fyrstu skóflustunguna
að húsinu hinn 16. nóvember 1986 en
húsið, sem er alls um 1.100 fermetrar,
var formlega vígt 10. september 1994.
Húsið stendur andspænis lög-
reglustöðinni sem Gísli tók einnig
skóflustungu að um 25 árum áður.
Árni Bjarnarson og Gísli Ólafsson með tveimur erlendum stúlkum sem farið höfðu í útsýnisflug í þessari flugvél.