Morgunblaðið - 20.03.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 31
Á undanförnumvikum hef égkomist íkynni viðnýjan anga
af viðskiptalífinu á
Fróni, fermingariðn-
aðinn. Svo er almennu
aðgengi að kennitölum
og öðrum persónu-
upplýsingum fyrir að
þakka að gervallur við-
komandi viðskipta-
heimur veit af því að
ungmenni á ferming-
araldri býr hér í húsinu.
Inn um lúguna hafa
enda streymt tilboð og
auglýsingar um þjónustu
sem talið er að gagnist í
þessu samhengi. Veislu-
salir og veisluþjónustur
falbjóða sig, mynd-
skreyttir vörulistar með til-
völdum fermingargjöfum hrann-
ast upp, auk loforðs um fimm
þúsund króna
fjárstyrk
handa ferm-
ingarbarninu
ef það lætur
svo lítið að
leggja að lág-
marki vikulaun leikskólakennara
inn á reikning í tilteknum banka.
Og svo framvegis.
Allt þetta þjónustuframboð og
meðfylgjandi litprentuð skógar-
eyðing varð til þess að ég fór að
rifja upp eigin fermingu snemma
á áttunda áratugnum. Og sjá. Þá
eins og nú þótti mörgum að allt
væri að fara úr böndum í gjafa-
ofstæki og auðhyggju og að
trúarlegt inntak athafnarinnar
hefði ekkert vægi lengur.
Þeir sem héldu þessu fram
höfðu auðvitað rétt fyrir sér. Í
minningu minni snerist ferm-
ingin um pínlegt augnablik þar
sem ég, ungur og fjarska feiminn
piltungur milli stóla á umbreyt-
ingarskeiðinu úr barni yfir í full-
orðna manneskju, var klæddur í
hvíta gardínu og gerður að mið-
punkti í fjölmennri kirkjuathöfn.
Góðu fréttirnar voru þær að
þetta yrði afstaðið á tveimur tím-
um og mér myndi áskotnast
langþráður rafmagnsgítar og
magnari fyrir vikið.
Það er sjálfsagt að taka það
fram að ég hafði ekkert á móti
því að stimpla mig persónulega
inn í þjóðkirkjuna og mér hefur
ekki þótt hún hefta persónulegt
frelsi mitt síðan. Í raun höfum
við ekkert verið mikið að ves-
enast hvort með annað síðan
þetta var og hvorugt saknað
hins.
Hvort sem okkur líkar betur
eða verr búum við Íslendingar í
afar lítt kirkjuræknu samfélagi
og höfum gert um áratugaskeið.
Það þýðir ekki að við séum öll
trúlaus og okkur þyki lítt til
kristilegs boðskapar koma. Það
þýðir bara að við tengjum trúar-
legar hugsanir okkar ekkert
endilega við kirkjubyggingar eða
embættismenn kirkjunnar, hvað
þá að við lítum á þetta tvennt
sem nauðsynlegan tengilið við al-
mættið, eilífðina og hið góða.
Þetta býsna almenna sinnu-
leysi gagnvart kirkjunni sem
stofnun, táknar heldur ekki fyr-
irlitningu á því starfi sem þar fer
fram eða þeim starfsmönnum
sem því sinna. Það er hins vegar
óneitanlega til marks um það að
við teljum okkur sjálf til þess
bær, sem einstaklingar, að vega
og meta flesta atburði og atvik í
lífinu og taka afstöðu til þeirra,
án atbeina kirkjunnar. Það getur
varla talist óeðlilegt í samfélagi
sem býr við góða almenna
menntun og frjálst og mikið að-
gengi að hvers konar upplýs-
ingum og þekkingu.
Við erum hins vegar þakklát
fyrir tilvist ýmissa kirkjulegra
hefða og siða sem tengja okkur
við arfleifð okkar, fortíð og for-
feður og auðvelda okkur að tak-
ast á við það hlutskipti að vera
dauðlegar verur, sem elska aðrar
dauðlegar verur. Þegar þungbær
áföll dynja yfir kunnum við yf-
irleitt vel að meta þá þjónustu
sem kirkjan og þjónar hennar
veita.
Það kann að virðast bera vott
um skort á heilindum að vilja
helst sem minnst af kirkjunni
vita nema þegar eitthvað veru-
lega bjátar á, en er þó í raun af-
ar eðlileg og mannleg afstaða.
Við erum jú alin upp við það sem
betur fer að leita þeirra upplýs-
inga, þeirrar þekkingar, þeirrar
aðstoðar sem við teljum okkur
þurfa hverju sinni.
Sú staðreynd að við teljum
okkur ekki oftar en raun ber
vitni þurfa að leita þessara fyr-
irbæra í kirkjunni er bara stað-
festing þess að hún eins og svo
margar stofnanir er barn síns
tíma og hefur ekki aðlagast sam-
félaginu sem við lifum í. Grunn-
urinn að boðskap hennar er þó
jafn ágætur og fyrr: Ef þú vilt að
aðrir komi vel fram við þig,
skaltu koma vel fram við þá.
Í nafni guðs, gítars og magnara
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson
FERÐA-OG LISTAVAKA
GRAND HÓTEL
mánudagskv. 21.03. kl. 20-22
Ingimundur Sigfússon, fv. sendiherra, endurvakti
tengslin við Þýskaland nútímans og mun lýsa Berlín
hinni nýju, menningarlegu framúrstefnuborg heimsins
sem hann þekkir flestum betur, leiðsögumaður í
ferðinni.
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og
sérfræðingur í verkum og ævi Jóns Leifs, ræðir um feril hans í
Þýskalandi og þýsk áhrif á íslenskt tónlistarlíf.
Benedikt Gunnarsson, listmálari og fv. lektor, segir frá
safnaheimsókn í Berlín.
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri, segir frá ferðinni
LISTAÞRÍHYRNINGUR ÞÝSKALANDS:
DRESDEN-LEIPZIG-BERLÍN - 9.-20. júní og sýnir myndir.
Aðgangur ókeypis. Hægt að panta nokkur óseld sæti í lok
kynningar. EINSTÖK FERÐ Á FRÁBÆRUM KJÖRUM!
HEIMSKRINGLA, sími 861 5602.
Upplýsingar og pantanir PRIMA-EMBLA S. 511 4080
CHANEL ALLURE
HOMME SPORT
Nú er einnig fáanlegt
After Shave, After
Shave Balm, svitalyktar-
eyðir og sturtusápa!
Kynningar og kaupaukar
í öllum verslunum Hygeu
mánudag, þriðjudag og
miðvikudag!
Gréta Boða veitir fag-
lega ráðgjöf við val á
kremum og förðunarvör-
um í Hygeu Kringlunni
þriðjudag og miðvikudag.