Morgunblaðið - 20.03.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 41
UMRÆÐAN
ARAGERÐI - VOGUM - EINBÝLI
Nýkomið í einkasölu gott einbýli
á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr, samtals um
220 fermetrar, vel staðsett við
Aragerði, Vogum, Vatnsleysu-
strönd. Eignin skiptist í forstofu,
hol, eldhús, búr, stofu, borð-
stofu, 3 herbergi og baðher-
bergi. Á neðri hæð er inngangur,
hol, geymsla, tvö stór herbergi,
sjónvarpshol, þvottahús og
snyrting. Ný eldhúsinnrétting og allt nýtt á baði. Gólfefni eru að mestu park-
et og flísar. Gróinn garður. Verð 24,5 millj. 43350
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Barmahlíð - Efri sérhæð
Falleg, björt og vel skipulögð 110 fm
efri sérhæð í þríbýli auk sérbílastæðis á
lóð og bílskúrsréttar. Hæðin skiptist í
breiðan og góðan gang með skápum,
eldhús, samliggjandi parketlagðar stof-
ur, 3 herbergi og flísalagt baðherbergi
með þvottaaðstöðu. Geymsluris og 2
geymslur í kj. Verð 22,9 millj.
Klapparstígur - Útsýni
Glæsileg 102 fm 4ra herb. útsýnisíbúð
á 8. hæð í lyftuhúsi auk sérstæðis í
bílageymslu og sérgeymslu í kj. Íb.
skiptist í forstofu, fallegt flísalagt bað-
herbergi, stórar og bjartar samliggj-
andi stofur m. útbyggðum gluggum
og tvennum svölum, eldhús með
vönduðum eikarinnrétt. og 2 herbergi.
Parket og marmari á gólfum. Sameig-
inl. þvottaherb. á hæð. Húsvörður.
Verð 31,9 millj.
Sigtún
Glæsileg og nánast algjörlega endur-
nýjuð 108 fm 4ra herb. íbúð í lítið nið-
urgröfnum kj. í fjórbýli í Laugardalnum
auk 4,3 fm sérgeymslu. Íb. skiptist í
hol, stofu, borðstofu með fallegum
bogadregnum gluggum, eldhús m.
nýl. spautulökkuðum, innrétt., endur-
nýjað flísalagt baðh. og 2 stór herb.
með skápum. Íb. fylgir 1 herb. á gangi
utan íbúðar með aðg. að salerni.
Parket á gólfum. Verð 19,9 millj.
Sumarbústaður við Dalflöt,
Hvítársíðu 57 fm nýlegur sumarbú-
staður við Dalflöt, Hvítársíðu. Bústaður-
inn, sem stendur á u.þ.b. 2ja ha leigu-
landi, skiptist í forstofu, eldhús, stofu, 3
herbergi og baðherbergi. Teikn. á skrifst.
Verð 9,9 millj.
Ránargata - 4ra herb. Glæsileg
96 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í nýlegu
steinhúsi í gamla vesturbænum. Íb. skipt-
ist í rúmgóða stofu m. útg. á suðursvalir,
eldhús m. hvítum innrétt. og góðri borð-
aðst., 2 herb., borðstofu, þvottaherb./-
geymslu og flísal. baðherb. Parket og flís-
ar á gólfum. Afgirt baklóð m. leiktækjum.
Verð 21,9 millj.
Háteigsvegur - 3ja herb. Fal-
leg 87 fm íbúð á jarðhæð/kj. með sérinng.
í fjórbýli. Eldhús m. uppgerðum innrétt. og
borðaðst., rúmgóð parketl. stofa m. síð-
um fallegum gluggum, 2 herb. og flísal.
baðherbergi. Sérbílastæði á lóð. Verð
15,9 millj.
Brávallagata - 2ja herb. Falleg
og nánast algjörlega endurnýjuð 53 fm
íbúð á 2. hæð með góðri lofthæð auk sér-
geymslu í kj. Nýjar innrétt. og tæki og
lagnir. Olíuborin eik á gólfum, rósettur í
loftum. Laus strax. Verð 14,2 millj.
VEGNA þess að hluti af ís-
lenska skólakerfinu er haldgott
nám í dönsku eða sænsku eða
norsku fyrir þá sem hafa sér-
stakar forsendur hafa Íslendingar
með stúdentspróf að baki getað
farið beint í háskólanám annars
staðar á Norðurlöndum. Nem-
endur frá öðrum löndum, sem
ætla í háskóla í Dan-
mörku, hafa þurft að
taka „Den Store
Danskprøve“ áður en
þeir hafa fengið inn-
göngu í venjulegt há-
skólanám. Hér er um
að ræða próf sem
fæstir geta tekið án
þess að stunda nám í
málaskóla í Dan-
mörku heilan vetur.
Nú stendur til að
færa hluta dönsku-
kennslu bóknáms-
brauta framhalds-
skóla niður í
grunnskóla, og er þá hætt við að
danskir háskólar fari að hugsa
sinn gang og loka dyrum sínum.
Menntamálaráðuneytið verður að
sjá til þess að Íslendingar, sem
fara í háskóla annars staðar á
Norðurlöndum, þurfi ekki hangsa
hálft eða heilt ár í einhverri und-
irbúningsdeild.
Þá væri til lítils að stytta fram-
haldsskólann!
Nú segja menn vissulega að hér
sé bara um tilfærslu að ræða. En
er það? Það er grunnkenning í
uppeldisfræðum að hæfileikar til
að læra vaxi að minnsta kosti
fram að 24 ára aldri. Þeim mun
eldri sem nemandinn er, þeim
mun meira getur hann lært á
ákveðnum tíma. Þetta á líka við
um tungumálanám.
Margir, ekki síst stjórn-
málamenn sem ekkert vita um
tungumálanám, halda því fram að
það sé betra að byrja snemma.
Þetta var í tísku í kringum 1960
þegar menn héldu að meðvitund-
arlaus endurtekning væri besta
aðferðin í tungumálanámi. Rann-
sóknir undanfarinna 45 ára sýna
ótvírætt að aðeins að einu leyti er
betra að byrja snemma í tungu-
málanámi: Þá eru nemendur betri
til að herma eftir réttum hreim ef
kennarinn talar án hreims. Öll
önnur svið tungumálanáms byggj-
ast á málþroska og reynsluheimi
nemandans. Hvernig á 15 ára ung-
lingur að læra að rökstyðja um-
sókn um háskólavist á dönsku
þegar hann er ekki fær um að
gera það á íslensku?
Það er fínt að læra ensku
snemma af því að enska er alls
staðar í kringum okkur hér heima,
en ekkert vit er í að læra aðrar
tungur snemma því þar reynir á
allt annan þroska.
Ef teknar eru þrjár kennslu-
stundir á viku af framhaldsskól-
anum og færðar niður í grunn-
skóla þá er hætt við að kunnátta
nemenda fari niður fyrir það lág-
mark sem danskir háskólar setja
til að hleypa íslenskum náms-
mönnum inn án aukaprófs í
dönsku.
Raddir um þetta hafa komið
fram hvað eftir annað
þegar dönskukennsla
hefur verið skorin
niður og það hefur
gerst nokkuð reglu-
lega undanfarin 35 ár.
Þegar ég byrjaði að
kenna dönsku við
Menntaskólann við
Sund 1986, fengu
nemendur á nátt-
úrufræðibraut 7 tíma
á viku en nemendur á
félagsfræði- og mála-
braut 8 tíma.
Nú fá nemendur á
málabraut 9 tíma en á
hinum brautunum fá þeir aðeins 6.
Þessu stendur nú til að fækka um
3 yfir línuna.
En nú hefur gerst annað: Þang-
að til fyrir örfáum árum voru inn-
tökuskilyrði á bóknámsbrautir
m.a. að nemendur hefðu fengið
þokkalega lokaeinkunn í dönsku í
grunnskóla. Þetta á ekki lengur
við um nemendur sem sækja inn á
félagsfræða- eða náttúrufræði-
braut.
Afleiðing af þessu hefur verið að
á þessum brautum sitja nú nokkr-
ir, ekki margir sem betur fer, sem
tóku ekki samræmt grunnskóla-
próf í dönsku og héldu einhvern
veginn að þeir þyrftu aldrei fram-
ar að læra hana.
Og svo bíður þeirra 6 eininga
nám sem getur kostað allt að einu
ári til viðbótar í framhaldsskóla! Á
þessa nemendur hefur vissulega
verið skellt hurð í andlitið. Þeir
eru dæmi um það að mennta-
málaráðuneytið hugsar síður en
svo alltaf um að láta nám opna
dyr.
En skipta þessar opnu dyr að
Norðurlöndum okkur máli? Vin-
sældir háskólanáms þar fara að
minnsta kosti sívaxandi. Síðustu
tölur, sem ég sá, sýndu að hvergi
erlendis var vinsælla að stunda
nám:
Þjóðfélagið er líkt og styður
jafnvel betur við mann en hér
heima. Engin inntökupróf. Sæmi-
lega ódýrt að lifa. Engin innrit-
unargjöld eða skólagjöld. Fáir að-
lögunarerfiðleikar í náminu.
Það er ákveðið álag á skólakerfi
að hafa þrjú erlend tungumál á
öllum bóknámsbrautum. Þar
gjöldum við þess að vera lítil þjóð.
Margar stórar þjóðir hafa bara
eitt, sumar ekkert. Flestar þjóðir
hafa bara tvö. Þeir sem ákváðu
upp úr aldamótunum 1900 að stað-
setja menntaskólanámið þar sem
það er í dag, vissu vel að það var
ári lengra en í Danmörku sem var
þá eina viðmiðið. Helstu rökin þá
voru að íslenskir nemendur þurftu
líka að læra dönsku. Svo mik-
ilvægt er dönskunám sem betur
fer ekki í dag.
En það er stefna í Evrópu að
hafa þrjú tungumál á bóknáms-
brautum. Með þeim hætti höldum
við í fjöltyngi Evrópu sem eru
menningarleg verðmæti sem ekki
má glata.
Ég skora á menntamálaráðu-
neytið að tryggja með samningum
við danska, norska og sænska há-
skóla að íslenskt stúdentspróf
veiti greiðan aðgang að þeim eins
og það hefur gert undanfarin 100
ár, og segja okkur skýrt og satt
frá stöðunni eins og hún kemur í
ljós, áður en menn framkvæma
námskrárbreytingar.
Ef nemendur þurfa að taka
valáfanga í dönsku í framhalds-
skóla til að fá aðgang, þá má
semja áfangalýsingu í námskrá.
Það á ekki að þurfa að setja Ís-
lendinga á skólabekk í Danmörku
með öðrum útlendingum til að
komast inn í hlýjuna.
Höldum dyrunum að Norð-
urlöndum opnum.
Nám á að opna dyr
Pétur Rasmussen fjallar um
kennslu í Norðurlandamálum ’Ef nemendur þurfa aðtaka valáfanga í dönsku
í framhaldsskóla til að fá
aðgang, þá má semja
áfangalýsingu í nám-
skrá.‘
Pétur
Rasmussen
Höfundur er framhaldsskólakennari
í dönsku og var um skeið konrektor
Menntaskólans við Sund.
SÚ FRÉTT sem hvað mest
hefur slegið menn síðasta kastið
er sú ákvörðun Ríkiskaupa að
semja við pólska skipasmíðastöð
um endurbætur á varðskipum
okkar. Sá kerfiskalla klafi sem
við virðumst bundin er óskiljan-
legur fyrir okkur sauðsvartan al-
múgann. Fjárhæð sem nemur
andvirði eins til tveggja ráð-
herrabíla, fjárhæð sem er 1,5 %
af ætluðum kostnaði við að
tryggja okkur „bráðnauðsynlegt“
sæti í öryggisráði hinna Samein-
uðu þjóða, eða fjárhæð sem er
brotabrot af því sem kostaði
þjóðfélagið að koma á koppinn
sendiráði Íslands í Japan, er lát-
in ráða úrslitum í málinu.
Það hlýtur öllum að vera ljóst
að þótt ekki kæmi til neitt nema
tekjur hins opinbera í formi op-
inberra gjalda þeirra iðnaðar-
manna sem að verkinu kæmu þá
væri þar um að ræða mun hærri
upphæðir en flaggað er sem
ástæðu fyrir þessari fráleitu
ákvörðun. Auk þess sem afkoma
starfsmanna Slippstöðvarinnar
og fjölskyldna þeirra væri tryggð
meðan á verkinu stæði. Eigum
við Akureyringar að trúa því að
þetta séu þær trakteringar sem
Ríkisstjórn Íslands býður iðnað-
armönnum upp á í höfuðstað
Norðurlands á því herrans ári
2005?
Árni Bjarnason
Dapurleg
niðurstaða
Höfundur er forseti Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands.
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöð-
unni er að láta TR ganga inn
í LHÍ og þar verði höf-
uðstaður framhalds- og há-
skólanáms í tónlist í landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég
er ein af þeim sem heyrði
ekki bankið þegar vágest-
urinn kom í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson:
„Forystumennirnir eru und-
antekningarlítið menntamenn
og af góðu fólki komnir eins
og allir þeir, sem gerast
fjöldamorðingjar af hugsjón.
Afleiðingar þessarar auglýs-
ingar gætu því komið á
óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn
að halda í þeirri list að þola
góða daga en á helvít-
isprédikunum á valdi óttans
eins og á galdrabrennuöld-
inni.“
Jakob Björnsson: „Það á að
fella niður með öllu aðkomu
forsetans að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon:
„Ljóst er að án þeirrar hörðu
rimmu og víðtæku umræðu í
þjóðfélaginu sem varð kring-
um undirskriftasöfnun Um-
hverfisvina hefði Eyjabökk-
um verið sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir:
„Viljum við að áherslan sé á
„gömlu og góðu“ kennsluað-
ferðirnar? Eða viljum við að
námið reyni á og þjálfi sjálf-
stæð vinnubrögð og sjálf-
stæða hugsun?“
Bergþór Gunnlaugsson:
„Ég hvet alla sjómenn og út-
gerðarmenn til að lesa sjó-
mannalögin, vinnulöggjöfina
og kjarasamningana.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar