Morgunblaðið - 20.03.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 43
SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998
FÉLAG FASTEIGNASALA
ÁRNI TEKUR Á MÓTI ÞÉR!
BLÖNDUBAKKI 20 - OPIÐ HÚS KL. 15:00 TIL 17:00
WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fasteignasali
Góð 110,5 fm 3ja herb. íbúð á 1.hæð
með aukaherb. Flísalagt hol/gangur
m/parketi, eldhús m/borðkrók, stór
stofa og borðstofa m/parketi á gólfi
og útgengi á svalir, 2 rúmgóð svefn-
herb., fataherbergi, baðherb. m/flís-
um á gólfi, sturtu og þvottahús innaf.
Stórt aukaherb. fylgir íbúðinni í sam-
eign. Þvottahús og hjólageymsla eru í
sameign. V. 16,5 m. (4149)
... í öruggum höndum
565 5522Reykjavíkuvegi 60 • Fax 565 5572
Opið: mán-fim 9-18 og fös 9-17
Gunnar Sv. Friðriksson hdl. löggiltur fasteinga- og skipasali
www.fasteignastofan.is • Allar eignir á mbl.is
Höfum fengið í sölu 11 íbúða fjölbýli á Bíldudal. Tveir stigagangar
eru í fjölbýlinu og eru íbúðir 2ja–5 herb., (frá 61,9 fm upp í 124 fm).
Stærð lóðar er 1.500 fm. Hús og íbúðir þarfnast verulegra endur-
bóta jafnt að innan sem að utan. Gott tækifæri fyrir verktaka þar
sem mikil atvinnuuppbygging er á Bíldudal, ný verksmiðja að rísa
og eru bjartir tímar framundan. Óskað er eftir tilboðum í fjölbýlið og
veitir Ívar allar nánari uppl. á skrifstofu Fasteignastofunnar. Einnig er
hægt að sjá myndir og lýsingu á mbl.is/fasteignir undir gilsbakka.
Fjölbýli á Bíldudal
Laugavegur 182 • 105 Rvk • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Allar eignir á netinu: www.midborg.isOpið mán.-fös. frá kl. 9-18, lau. frá kl. 11-14
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i !
Björn Þorri,
hdl., lögg.
fast.sali.
Kristján,
sölumaður.
Karl Georg,
hrl., lögg.
fast.sali.
Fríður,
ritari.
Perla,
ritari.
Þórunn,
ritari.
Þorlákur
Ómar,
sölustjóri.
Magnús,
sölumaður.
Sigurður,
sölumaður.
Glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í 4-6
hæða lyftuhúsi á mjög eftirsóttum stað. Fallegt út-
sýni er úr íbúðunum og stutt í útiveru, golf, verslan-
ir og alla þjónustu. Íbúðirnar, sem eru mjög aðgengilegar, eru fyrir 50 ára og eldri, hannaðar
af Kristni Ragnarssyni arkitekt. Íbúðunum er skilað fullbúnum án gólfefna, með vönduðum
eikar- og mahóníinnréttingum ásamt glæsilegum stáltækjum.
Íbúðirnar eru frá 60 til 106 fm og kosta 12,9-22,8 millj. kr. Húsinu verður skilað fullfrágengnu
að utan með steinaðri áferð, en klætt álklæðningu að hluta á stigahús og útbyggingar. Einnig
verður hluti svalaganga klæddur með hertu gleri. Lóð verður skilað frágenginni með malbik-
uðum bílastæðum, steyptum gangstéttum og grassvæðum þar sem við á á lóð. Þak er stein-
steypt og einangrað að ofan og þétt með þakdúk. Öllum íbúðum á efri hæðum fylgja góðar
svalir en hellulögð verönd með jarðhæðum.
SÓLEYJARIMI 1-7 Í GRAFARVOGI
www.soleyjarimi.is
VIÐ UNDIRRITUÐ, aðstandendur
ráðstefnunnar Með höfuðið hátt,
vegna stofnunar háskólaseturs á
Vestfjörðum og umræðu um há-
skólamál á Vestfjörðum, viljum
koma eftirfarandi á framfæri:
Í tengslum við „Með höfuðið
hátt“, ráðstefnu ungs fólks um
framtíð Vestfjarða, sem haldin var
á Ísafirði sl. sumar, var efnt til
táknrænnar athafnar þar sem
stofnun Háskóla Vestfjarða var
sviðsett af leikurum Morrans, at-
vinnuleikhúss ungs fólks á Vest-
fjörðum. Þá þegar höfðu ýmsir lýst
yfir vilja sínum til að sjálfstæður
háskóli verði stofnaður á Vest-
fjörðum og forseti Íslands, hr. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, heiðraði at-
höfnina með nærveru sinni. Vitað
var að meðal heimafólks var ein-
dreginn vilji til að háskóli yrði
stofnaður á Vestfjörðum og létu
viðbrögðin ekki á sér standa. Að-
standendum ráðstefnunnar kom
mest á óvart hversu mikinn sam-
hljóm kallið eftir háskóla á Vest-
fjörðum fékk utan fjórðungs. „Nú
verður horft til þingmanna þessa
landshluta um að taka við því
merki, sem vestfirzkt æskufólk hef-
ur hafið á loft og bera það fram til
sigurs“, eins og leiðarahöfundur
Morgunblaðsins komst að orði af
þessu tilefni.
Ekki hefur farið á milli mála að
það hefur valdið vonbrigðum í fjórð-
ungnum að starfshópur mennta-
málaráðherra hafi ekki fengið um-
boð til að vinna að stofnun Háskóla
Vestfjarða og að markið hafi ekki
verið sett á stofnun sjálfstæðs há-
skóla. Aðstandendur ráðstefnunnar
telja þó ástæðu til að staldra ekki of
lengi við umræður um stofnun há-
skólaseturs – heldur er ástæða til
að einhenda sér í stofnun sjálfstæðs
háskóla á Vestfjörðum.
Skrattanum yrði fyrst skemmt ef
þetta mál yrði til þess að áhuga-
menn um háskóla færu í hár saman
út af aukaatriðum. Vonandi verður
háskólasetrið til að efla það há-
skólasamfélag sem þegar er í fjórð-
ungnum og plægja jarðveginn fyrir
sjálfstæðan háskóla sem ekki má
dragast stundinni lengur að koma á
fót.
Fjarnámsvæðingunni á síðustu
árum hefur fylgt mikil frjósemi og
hún hefur tvímælalaust styrkt sam-
félagið, en það er ekki að ástæðu-
lausu að hún hefur verið orðuð við
nýlendustefnu.
Í Háskóla Íslands er u.þ.b. eitt
starf á hverja fimm nemendur. Ef
gert er ráð fyrir að sömu lögmál
gildi annars staðar þýða fimm
hundruð háskólanemar á Vest-
fjörðum, eins og gert er ráð fyrir að
verði eftir fimm ár í áætlunum Há-
skólaseturs Vestfjarða, að eitt
hundrað störf verða til með beinum
hætti. Því er eftir miklu að slægjast
í sjálfstæðum háskóla, ekki einungis
að fjöldi háskólanema verði í fjórð-
ungnum heldur einnig samsvarandi
störf við rannsóknir, kennslu,
stjórnun og rekstur.
Sjálfstæður háskóli hefur líka tök
á því að laða nemendur inn á svæð-
ið og gerir Vestfirðingum kleift að
taka þátt í rannsóknarsamstarfi á
jafningjagrundvelli.
Margir stjórnmálamenn hafa lýst
yfir stuðningi við háskóla á Vest-
fjörðum á síðustu dögum og hlýtur
að teljast til stórtíðinda í málinu að
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra gekk til liðs við baráttu Vest-
firðinga nú fyrir skömmu. Þegar
stuðningsyfirlýsingar berast úr öll-
um landshlutum hlýtur það að vera
skylda allra Vestfirðinga að snúa
bökum saman og vinna að því sem
einn maður að Háskóli Vestfjarða
verði stofnaður – ekki seinna en
innan þriggja ára.
Mikilvægt er að hafa í huga að
árangur í málinu verður ekki mæld-
ur í orðum og yfirlýsingum, í fyr-
irheitum og loforðum. Árangurinn
verður einungis mældur í fjár-
framlögum, stöðugildum, fjölda
nemenda og rannsóknarafköstum.
Fyrir hönd undirbúningshóps
Með höfuðið hátt:
ALBERTÍNA FRIÐBJÖRG
ELÍASDÓTTIR,
KRISTINN HERMANNSSON,
SUNNA HERMANNSDÓTTIR,
ÞORLÁKUR RAGNARSSON,
ÞORSTEINN MÁSSON.
Stofnun háskóla
dragist ekki lengur
Frá undirbúningshópi
Með höfuðið hátt:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is