Morgunblaðið - 20.03.2005, Page 44
44 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HERRA biskup, Karl Sigurbjörns-
son.
Bestu þakkir fyrir bréfið sem þú
skrifaðir mér í Morgunblaðið 8. febr-
úar sl. Mig langar að skrifa þér fáein-
ar línur aftur og gera smá grein fyrir
upp úr hvernig trúarlegum jarðvegi
ég er sprottinn, ef ég má taka þannig
til orða.
Foreldrar okkar systkinanna voru
trúað sveitafólk. Það var föst regla
hjá þeim, frá því ég man fyrst eftir
mér, að lesa húslestra á hverjum
sunnudegi, og voru til þess notaðar
ræður sem prestar landsins höfðu
flutt í kirkjum sínum. Mig minnir að
bókin heiti 50 eða 100 presta hug-
vekjur. Svo voru líka oft lesnar ræð-
ur sem prófessor Haraldur Níelsson
hafði flutt og hét bókin Árin og eilífð-
in, ef ég man rétt. Móðir mín hafði
miklar mætur á þeirri bók. Á föst-
unni las móðir mín alltaf Pass-
íusálma, þangað til farið var að lesa
þá í útvarpinu. Faðir minn dó þegar
ég var 12 ára, þá fertugur, og hafði
átt við heilsuleysi að stríða þrjú síð-
ustu árin sem hann lifði.
Ég tel að ég hafi fengið kristilegt
uppeldi, því auk þess sem áður segir
kenndi móðir okkar okkur systk-
inunum bænir og vers og lagði
áherslu á að við færum alltaf með
þær áður en við færum að sofa á
kvöldin. Ég hef reynt að halda þeim
sið alla ævina þó ég sé kominn tals-
vert á níunda áratuginn.
Trúarskoðanir mínar hafa lítið
breyst frá því að ég var ungur. Ég tel
hafa mig fyrir löngu verið búinn að fá
nægar sannanir fyrir lífi í öðrum
heimi, strax eftir dauðann, og einnig
hef ég orðið vitni að því að lækninga-
miðillinn Einar Jónsson á Ein-
arsstöðum, læknaði konu sem há-
lærður sérfræðingur á öðrum stóra
spítalanum í Reykjavík var búinn að
gefast upp á að lækna, en sagði
mörgum árum seinna þegar sama
konan kom inn á lækningastofu hans,
við aðstoðarlækni sinn, og benti á
hana: Þessi kona læknaði sig sjálf.
Ég hef þessa sögu eftir manni sem
mér dettur ekki í hug að rengja.
Kraftaverkin gerast ennþá eins og á
dögum Jesú Krists. Því skyldi Jesús
ekki geta veitt góðum og kærleiks-
ríkum mönnum leyfi til þess að
lækna fólk með krafti trúarinnar.
Við hjónin höfum bæði fengið ríf-
legan skammt af alls konar sjúkdóm-
um, ég er til dæmis búinn að vera
lamaður upp að mitti í 40 ár og kona
mín er búin að vera meira en 75% ör-
yrki í 27 ár. Auk þess höfum við átt
við margs konar sjúkdóma að stríða.
Við eigum því auðvelt með að setja
okkur í spor annarra sem hafa átt við
langvinn veikindi að stríða.
Við fórum einu sinni á miðilsfund,
einkafund, hjá Hafsteini Björnssyni,
og þar komu fram nægar sannanir
fyrir því að líf sé eftir dauðann og að
þessi margumtalaði grafarsvefn sé
bara gömul kenning sem mikill
minnihluti þjóðarinnar trúir, en auð-
vitað mega þeir sem vilja trúa því.
En á þessum fundi fékk ég vissu fyr-
ir því að líf er til eftir dauðann og síð-
an hef ég aldrei hræðst dauðann. Ég
get því sagt eins og séra Hallgrímur:
Dauði, kom þú sæll þá þú vilt.
Mér finnst ég njóta þess best að
hafa bænastund áður en ég fer að
sofa á kvöldin, þá fer ég með versin
sem mér voru kennd í æsku og oftast
einhvern sálm líka. Einnig bið ég
gjarnan fyrir sjúkum vinum eða ætt-
ingjum. Og ég vil taka undir með
skáldinu Kristni Júlíussyni sem
sagði í einu ljóði sínu: „Í einrúmi er
drottinn mér næstur og viðræðu
bestur.“
Ég hef kynnst mörgu fólki á langri
ævi og oft rætt trúmálin við margt
fólk og reynsla mín er sú að það hef-
ur langflest haft svipaðar skoðanir á
trúmálum og ég, það er að segja hef-
ur verið andatrúar, eða spíritistar
eins og sumir kalla það. Hvernig
stendur á að þjóðkirkjan virðist vera
algerlega andvíg vísindalegum sálar-
rannsóknum? Hvað þarf að fela fyrir
öllum almenningi? Mjög margir sem
ég hef talað við um trúmál eru afar
hissa á samþykkt sem prestastefnan
gerði 1975, með miklum meirihluta
atkvæða, að telja þá sem aðhyllast
spíritismann villutrúarmenn sem
eigi ekkert erindi í þjóðkirkjuna. Ég
spyr var Haraldur heitinn Níelsson
villutrúarmaður? Ég man ekki betur
en að hann væri lengi prófessor við
guðfræðideild Háskólans, og hjá
flestum í miklu áliti. Nú eru orðin 30
ár á komandi vori síðan þessi marg-
fræga samþykkt var gerð. Mér fynd-
ist mjög við hæfi að kirkjan minntist
þessa ágæta prófessors með því að
afturkalla þessa samþykkt. Þá væri
aftur komin á full sátt milli þessara
tveggja trúarhópa. Er það líka ekki í
samræmi við kenningar Jesú að
vinna að sáttum og kærleika milli
manna hér á jörð.
Ég bið góðan guð að opna augu
allra kristinna manna hér á landi svo
að þessar sundruðu kirkjudeildir hér
geti sameinast í eina öfluga þjóð-
kirkju.
SIGURÐUR LÁRUSSON,
Egilsstöðum.
Var Haraldur heitinn
Níelsson villutrúarmaður?
Frá Sigurði Lárussyni
á Egilsstöðum:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Skipholti 29a,
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili. is
Einar Guðmundsson, lögg. fast.
Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast.
Bogi Pétursson, lögg. fast.
sími 530 6500
Einar og Gyða taka á móti fólki milli kl. 14 og 16 í dag.
Verið velkomin!
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sérlega björt og góð ca 103 fm íbúð í kjallara í fallegu húsi á
þessum eftirsótta stað í Reykjavík. Tvö stór svefnherbergi og björt
og góð stofa. Parket og flísar á gólfum. Verð 19,0 millj.
Flókagata 45
Opið hús í dag
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Sumarbústaður á Þingvöllum
Erum með í einkasölu glæsilegan sumarbústað í Þjóðgarðinum. Sumarbú-
staðurinn er um 92 fm auk 35 fm tengibyggingar. Sumarbústaðurinn, sem
hvílir á steinsteyptum stólpum, skiptist í stofu, eldhús, bað, forstofu, hol
og þrjú svefnherbergi. Gólfborð eru úr furu. Gengið er úr stofu út á stóra
verönd/pall. Í viðbyggingu er sólstofa, gufubað, sturta o.fl. Stór sólverönd.
Bústaðurinn stendur á 5.600 fm landi. Þar er að finna kjarr, krækiberjalyng
og bláberjalyng auk þess er mikið af trjágróðri og allhávöxnum trjám:
Birki, lerki, greni og aspir. Sandkassi og rólur eru við bústaðinn. Upplýstur
malarborinn göngustígur með hellum liggur frá malarbornu bílastæði að
bústaðnum. Glæsilegt útsýni er úr sumarbústaðnum yfir vatnið og fjalla-
hringinn frá Botnssúlum að Hengli. Verð 25 millj. 2506
KRISTNIBRAUT - ÚTSÝNISÍBÚÐ
Stórglæsileg 5 herb. 124 fm íbúð á 3ju hæð í
nýlegri mjög fallegri lyftublokk, sem staðsett er
fremst í Grafarholtinu og því nýtur íbúðin ein-
staklega fallegs útsýnis yfir borgina. Íbúðin er
mjög skemmtilega hönnuð, björt og rúmgóð
með stórum og fallegum útsýnisgluggum.
Íbúðin er vel innréttuð, s.s. massívt parket og
flísalagt bað. Laus strax. Verð 27,9 millj.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Mávahlíð
Mjög falleg 5 herbergja efri hæð við Mávahlíð í Reykjavík. Íbúðin skiptist þannig:
Tvær stofur, þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi, fataherbergi og hol. Mikið hefur
verið gert fyrir eignina sl. ár, t.a.m. eru gler, gluggar og þak nýlegt. Sameiginlegt
þvottahús er í kjallara. Útigeymsla tilheyrir þessari íbúð. Verð 26,7 millj.