Morgunblaðið - 20.03.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 47
MINNINGAR
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför móður minnar,
GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR,
lengst af til heimilis
á Esjubraut 6,
Akranesi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hörður Ólafsson.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÞÓRARINS BRYNJÓLFSSONAR
vélstjóra,
Þverbrekku 4,
Kópavogi.
Sigurdís Þóra, Guðrún Þórarna, Eva og Ásta Þórarinsdætur,
tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
SIGURJÓNS MAGNÚSSONAR
vélstjóra og húsasmíðameistara
frá Friðheimi í Mjóafirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Magnús Sigurjónsson,
Jón Hermann Sigurjónsson,
Rúnar Sigurjónsson,
tengdadætur og barnabörn.
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur hluttekningu og virðingu vegna
útfarar ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
RÖGNU R. SIGURÐSSON,
Espigerði 2.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni fyrir sérlega góða um-
önnun og hlýju allt frá stofnun heimilisins.
Guð blessi ykkur öll.
Örn Jónsson, Júlíana Signý Gunnarsdóttir,
Margrét, Jón Ragnar og Gunnar Örn,
Máni Örn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR ÁRNA ÓLAFSSONAR
THORLACIUS.
Sigríður Thorlacius,
Guðríður Thorlacius
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls ást-
kærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
AÐALHEIÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Hamraborg 18.
Guðrún Sigurðardóttir, Kristinn Vermundsson,
Sigurborg Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson,
Oddný Sigurðardóttir, Ólafur B. Guðmundsson,
Jóna Gunnarsdóttir,
Ófeigur Sigurðsson, Linda Garðarsdóttir,
Þorbjörg Sigurðardóttir, Guðmundur Guðmundsson,
Þór Sigurðsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir, amma og langamma,
ÞORBJÖRG HULDA ALEXANDERSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1B,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 14. mars, verður jarð-
sungin frá Kópavogskirkju mánudaginn
21. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast
hennar, vinsamlegast láti Hjálparsveit skáta í Kópavogi eða Sunnuhlíðar-
samtökin í Kópavogi njóta þess.
Ingimar Sigurðsson,
Guðrún Kristinsdóttir, Helgi Stefánsson,
Alexander Ingimarsson, Edda Ástvaldsdóttir,
Guðmundur S. Ingimarsson,
Birna Rúna Ingimarsdóttir, Friðþjófur Th. Ruiz,
Jórunn Alexandersdóttir, Lórens Rafn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR JÚLÍU ELÍASDÓTTUR,
Aðalsteini,
Stokkseyri.
Sævar Gunnarsson, Kristbjörg Eðvaldsdóttir,
Auður Gunnarsdóttir, Geir Valgeirsson,
Andrea Gunnarsdóttir, Borgar Benediktsson,
Gunnar Elías Gunnarsson, Valgerður Gísladóttir
og ömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR EYJÓLFSSONAR,
Hrafnistu í Reykjavík,
áður til heimilis í
Álftamýri 49.
Eyjólfur Guðmundsson, Eygló Úlfhildur Ebeneserdóttir,
Hörður Guðmundsson, Anna Margrét Tryggvadóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigurgeirsson,
Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur R. Vilbertsson,
Guðveig Nanna Guðmundsdóttir, Sigurður Grétar Geirsson,
Guðlaugur Björn Guðmundsson, Anna María Valdimarsdóttir,
Sigurjón Guðmundsson, Dagbjört Erla Ásgeirsdóttir
og afabörn.
✝ Kristín GuðrúnBorghildur
Bogadóttir Thor-
arensen fæddist í
Hvammsdal í Saur-
bæjarhreppi í Dala-
sýslu 16. ágúst 1911.
Hún lést á Landspít-
alanum í Fossvogi,
5. mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Bogi Jónsson
Thorarensen, bóndi
í Hvammsdal, f. 18.
febrúar 1875, d. 24.
febr. 1913, og Guð-
rún Guðmundsdótt-
ir, f. 8. sept. 1884, d. 25. febr.
1925. Systkini Kristínar Borghild-
ar eru; Jón, f. 5. júlí 1907, d. 5.
sept. 1987, Guðmundur, f. 24. júlí
1908, d. 2. nóv. 1985, Steinunn
Jakobína, f. 11. febr. 1910, Bog-
hildur Lára, f. 29. sept. 1913, d.
28. sept. 1984, og hálfbróðir er
Sæmundur Þorsteinsson, f. 8.
sept. 1920.
Kristín Borghildur giftist hinn
15. október 1938 Sigurði Jakobs-
syni, bifreiðasmið og trésmíða-
meistara frá Snotrunesi í Borg-
arfirði eystra, f. 30. sept. 1910, d.
23. mars 1944. Foreldrar hans
voru Jakob Sigurðsson, f. 15 nóv.
1884, d. 15. febr. 1952 og Þuríður
Björnsdóttir, f. 21. sept. 1881, d.
framkvæmdastjóri, f. í Ósgerði í
Ölfushreppi í Árnessýslu 28. júní
1908, d. 7. ágúst 1988. Foreldrar
hans voru Magnús Magnússon, f.
3. sept 1861, d. 10. sept. 1914, og
Málfríður Jónsdóttir, f. 18. júlí
1870, d. 8. júlí 1945. Sonur Krist-
ínar Borghildar og Magnúsar er
Sigurður Magnús, f. 12. nóv. 1953,
maki Dröfn Guðmundsdóttir, f.
11. febr. 1953, börn þeirra eru
Sesselja, f. 7. maí 1980, og Magn-
ús, f. 28. sept. 1984.
Kristín Borghildur var fædd og
uppalin í Hvammsdal í Saurbæj-
arhreppi í Dalasýslu. Eftir að hún
missti móður sína 14 ára gömul
fluttist hún að Kverngrjóti í sömu
sveit, til Jóns Guðmundssonar og
Guðbjargar Guðmundsdóttur
móðursystur sinnar. Þar dvaldi
hún í nokkur ár, en hélt síðan til
Reykjavíkur þar sem hún vann við
ýmis störf, m.a. sem vinnukona á
heimilum, á veitingahúsum, við
fiskvinnslu og verksmiðjustörf.
Hún stundaði einnig nám við hús-
mæðraskólann á Blönduósi í einn
vetur. Hún kynntist verðandi eig-
inmanni sínum Sigurði Jakobssyni
í Reykjavík. Þar stofnuðu þau
heimili og gengu í hjónaband 15.
okt. 1938. Eftir að Sigurður lést
1944 vann hún fyrir sér og börn-
unum með saumaskap og fleiri
störfum. Eftir að hún hóf sambúð
með Magnúsi Magnússyni, gafst
henni meiri tími til að sinna ýms-
um hugðarefnum sínum t.d. út-
saumi, myndlist og ljóðlist.
Útför Kristínar Borghildar fór
fram í kyrrþey, að hennar ósk.
31. okt. 1971. Kristín
Borghildur og Sig-
urður eignuðust tvö
börn, þau eru: 1)
Reynir, f. 20. jan.
1939. Maki 1 Unnur
Þóra Jónsdóttir, f. 27.
maí 1941, d. 16. apríl
1976. Sonur Unnar og
Reynis er Sigurður
Steinar, f. 1. júní
1961. Dætur Sigurðar
eru Unnur Þóra, f.
1989, og Sigrún Eir, f.
1992. Maki 2 Sólrún
Garðarsdóttir, f. 7.
júní 1943. Synir Sól-
rúnar og Reynis eru; Atli Reynir,
f. 25. nóv. 1979, og Andri Garðar,
f. 14. júní 1984. Uppeldissynir
Reynis eru Eiríkur Þór, f. 20. okt.
1966, og Leif Davíð, f. 27. ágúst
1969. 2) Guðrún Þuríður, f. 1. okt.
1940. Dætur hennar eru: a) Sig-
rún Mary Þórarinsdóttir, f. 28.
nóv. 1959, börn Sigrúnar og Don-
ald Strohm eru Kristín Mary
Strohm, f. 1980, Karen Mary
Strohm, f. 1982, og Konráð Don-
ald Strohm, f. 1985. b) Karen
Kristín, f. 4. febr. 1963, börn Kar-
enar og Glenn Graham eru Lexis
Nikole Graham, f. 1995, og Tiger
William Graham, f. 1997.
Seinni maður Kristínar Borg-
hildar var Magnús Magnússon
Elsku amma, nú hefur þú kvatt
okkur og lagst til hinstu hvílu eftir
langt og gæfuríkt líf. Á þessum erf-
iða tíma er okkur efst í huga glað-
værð þín og góðvild í okkar garð. Við
erum afskaplega þakklát fyrir sam-
verustundirnar og allt sem þú gerðir
fyrir okkur. Þú hafðir mjög góða
nærveru og þótti okkur sérstaklega
skemmtilegt að koma til þín í góðar
kræsingar og spila á spil. Kímnigáf-
an var aldrei langt undan og þú sagð-
ir okkur iðulega skemmtilegar og
spennandi sögur. Það sem stendur
þó upp úr er hversu reiðubúin þú
varst til þess að tala við okkur og
gefa okkur góð ráð. Við lærðum
bænirnar okkar samviskusamlega
hjá þér elsku amma og búum við að
því til æviloka.
Þær stundir sem okkur þykir hvað
vænst um eru þær fjölmörgu jólahá-
tíðir sem við vorum saman. Það var
mjög hátíðlegt og skemmtilegt að fá
þig heim til okkar til þess að halda
hátíðina með okkur. Brúnuðu kart-
öflurnar voru alltaf fullkomnar undir
þinni stjórn og nutum við þess að
hlusta á messuna áður en við tókum
til við kræsingarnar og opnuðum
gjafirnar. Næstu jól verða tómleg án
þín en við vitum að þú munt fylgjast
með okkur frá himnum.
Elsku besta amma, nú er komið að
kveðjustund. Söknuðurinn er mikill
en við erum sannfærð um að þér líð-
ur vel í himnaríki. Guð geymi þig.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Sesselja og Magnús.
KRISTÍN BORGHILD-
UR THORARENSEN
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Minningar-
greinar