Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 56
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
Litli Svalur
© DUPUIS
SAFARÍ ALLI HEGGUR LEIÐ
SÍNA Í GEGNUM ÞYKKAN
FRUMSKÓGINN
ALLT Í EINU BRÝST
RISAGÓRILLA Í GEGNUM
TRÉN!
TAKTU TIL Í
HERBERGINU
ÞINU
HVAÐ?
TAKTU TIL. ÞAÐ
ER EINS OG
FRUMSKÓGUR
HÉRNA INNI
SNIFF
HVAÐ ER AÐ AFI MINN? AF HVERJU
ERTU SVONA SORGMÆTUR
ÉG ER EKKI SORG-
MÆTUR KALLINN MINN, ÉG
ER GAMALL
UNGUR, STERKLEGUR MAÐUR ER AÐ GEFA HENNI MAGNEU
MINNI KONFEKT OG BLÓM. SNIFF... GETURÐU SAGT MÉR HVAÐ
HANN HEFTUR SEM ÉG HEF EKKI
PRINSESSURÆNINGI!
ÞÚ GETUR EKKI LÁTIÐ
HANN VAÐA SVONA
YFIR ÞIG AFI
HVAÐ GET ÉG GERT? EINVÍGI?
ÉG Á EKKI EINU SINNI HANSKA TIL ÞESS AÐ
SLÁ HANN UTAN UNDIR MEÐ. EKKI SLÆ ÉG
HANN MEÐ INNISKÓ
ÉG Á
HANSKA
AFI
EF ÞÚ
GERIR EKKERT
Í MÁLUNUM ÞÁ
GÆTI FARIÐ SVO AÐ
HANN GERI HANA
ÓHAMINGJUSAMA
HA! ÞAÐ ER RÉTT HJÁ
ÞÉR... HEL... BÍDDU
AÐEINS
HEYRÐU... KASANÓVA!
VILTU GJÖRA SVO VEL AÐ LÁTA HANA MAGNEU
MÍNA VERA! ÉG SKORA Á ÞIG Í EINVÍGI!
AFI, ÞÚ
GLEYMDIR
HANSKANUM
KOMDU Á MORGUN VIÐ
DAGRENNINGU EF ÞÚ ÞORIR!
OG TAKTU MEÐ ÞÉR VITNI!
HANN TÓK ÁSKORUNINNI MEÐ RÓ. TAKK
FYRIR HANSKANN VINUR. FALLEGT AF
ÞÉR AÐ LÁNA MÉR HANN
SEINNA...
MMM... UNGFRÚ MAGNEA, ÉG KOM MEÐ
KONFEKT HANDA ÞÉR
EN HVAÐ ÞÚ
ERT MIKILL
SÉNTILMAÐUR!
ÉG VAR EINMITT
AÐ TALA UM ÞIG
VIÐ JÓHANN...
JÓHANN!
JÁ, BARNABARN
MITT. HANN
VAR AÐ KOMA
ÚR FERÐALAGI
OG HVAÐ HELDURÐU
AÐ HAFI KOMIÐ
FYRIR? EINHVER
FANTUR RÉÐST Á
HANN
HMM.. HEHE...
BLESSAÐUR VINUR...
Dagbók
Í dag er sunnudagur 20. mars, 79. dagur ársins 2005
Einhverjir hafa bentá að íslenskunni
stafi hugsanlega
hætta af svokölluðu
sms-tungumáli sem
viðgengst meðal ungs
fólks. Þetta er ekki ný
umræða. Víkverji hef-
ur ekki miklar áhyggj-
ur, telur gott að
krakkar tjái sig sem
mest í rituðu máli þó
að vissulega gæti þess
t.d. á spjallrásum og
svokölluðum korkum
á vefsíðum, að vönduð
stafsetning sé ekki
endilega markmiðið.
Víkverja hefur verið
bent á þrennt í þessu samhengi sem
honum finnst þó ekki geta tengst
sms-ritstílnum. Orðin þetta, þau og
asnalegt eru mikið notuð en þau eru
skrifuð á eftirfarandi hátt: „þettað“,
„þaug“ og „asnarlegt“. Orðin eru því
ekki stytt eins og vaninn er í sms-
skilaboðum heldur er stöfum bætt
við. Svo virðist sem unga fólkið telji
að svona eigi að skrifa orðin því það
beri þau fram svona. Víkverji hefur
því velt því fyrir sér hvort að í fram-
tíðinni verði þau rituð svona, eða
hvort þetta sé vandamál sem hægt
er að lagfæra. Hvort þetta er yf-
irleitt vandamál er svo annar hand-
leggur.
Ung vinkona Vík-
verja, þó fermd, sagði
um áramótin að gam-
an væri að horfa á
„flugveldana“. Þar átti
hún við flugelda. Þá
hefur önnur vinkona
Víkverja stundum tal-
að um að „löðreglan“
geri hitt og þetta er
hún talar um verði lag-
anna hér á landi. Vík-
verja finnst þetta
reyndar spaugilegt.
x x x
Kunningi Víkverjaætlaði að setja bíl-
inn sinn upp í annan
hjá bílaumboði. Umboðið sagði
gangverð bílsins 795 þúsund en vildi
þó ekki taka hann upp í annan not-
aðan bíl nema fyrir 500 þúsund þeg-
ar upp var staðið. Höfðu þeir þó áður
sagt að svokallað uppítökuverð bíls-
ins væri 620 þúsund. Hver lítil rispa
á bílnum kostaði að þeirra mati 50
þúsund og var bíllinn lækkaður í
verði sem því nam eftir söluskoðun á
verkstæði. Ekkert var hins vegar
slegið af gangverði bílsins sem
kunningi Víkverja vildi fá í staðinn.
Offramboð er á notuðum bílum.
Það er hægara sagt en gert að losa
sig við bíla. Það sama á greinilega
við um venjulegt fólk og umboðin.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Faxaflói | Nokkuð var um sterkar vindhviður í borginni á fimmtudag, en m.a.
heyrðist af manni sem skaust eins og slöngvusteinn út af veitingastað í mið-
bænum þegar vindhviða greip hurð veitingastaðarins um leið og hann opnaði
dyrnar á útleið. Ku maðurinn hafa fokið á einn af grænu staurunum sem liggja
meðfram götunni og marist illa á afturendanum og kennt mikilla eymsla.
Á föstudaginn lægði þó aðeins og nýtti Landhelgisgæslan góða veðrið til
björgunaræfinga. Þau Louis Owens og Marie Maxwell Owens frá Írlandi fylgd-
ust með æfingunni úr öruggri fjarlægð þegar ljósmyndari átti leið hjá.
Morgunblaðið/Eyþór
Björgunaræfingar á flóanum
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
„Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Gjörið iðrun og trúið fagn-
aðarerindinu.“ (Mark. 1, 15.)