Morgunblaðið - 20.03.2005, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sólin fer í hrútsmerkið í dag og nú
er komið að hrútnum að endurnýja
sig. Gerðu áætlanir um að næra,
hressa og blása nýju lífi í sjálfan þig
það sem eftir lifir ársins.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarfnast hvíldar um þessar
mundir, á því leikur enginn vafi.
Reyndu að taka það rólega næstu
fjórar til sex vikur. Þú þarft að
byggja þig upp, viðurkenndu það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinátta verður þér mikilvægari en
margt annað á næstu sex vikum.
Tjáðu þig við þá sem eru þér næstir.
Leggðu spilin á borðið, búir þú yfir
einhverri vitneskju.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sólin trónir efst í korti þínu um
þessar mundir. Það er ekki ólíklegt
að þú verðir valinn sérstaklega til
þess að gegna trúnaðarstarfi sem
beinir athygli umheimsins að þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Útþrá þín fer vaxandi á næstu vik-
um og byggist upp innra með þér.
Þig langar til þess að leggja land
undir fót og skoða heiminn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú færð að líkindum tækifæri til
þess að klára mál sem tengjast
sköttum, skuldum, tryggingum,
sameiginlegum eigum og dán-
arbúum. Brettu upp ermarnar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sólin er beint á móti vogarmerkinu
þessa dagana og vogin beinir sjón-
um sínum því að nánum samböndum
á meðan. Mundu að manngæskan er
öllu æðri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er fullur eldmóðs um
þessar mundir. Þú hefur kraftinn
sem þarf til þess að bæta skipulagið
í vinnunni og á heimilinu. Ást og
rómantík fær gleðina til þess að
skína úr andliti þínu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Næsta mánuð verður enginn skortur
á fjöri og yndisþokka. Veislur, orlof,
afþreying með smáfólkinu, ást og
rómantík auka á gleðina í lífi þínu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú skaltu taka þig til og einbeita
þér að heimili og fjölskyldu. Þú
tekst á við málefni sem tengjast
fasteignum. Notaðu næstu vikur til
þess að fást við verkefni í einkalíf-
inu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert svo sannarlega með nóg á
þinni könnu núna, þú sækir fundi og
ferð á mannamót. Gættu þess að
bíllinn sé í lagi og gefðu þér góðan
tíma á næstu vikum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Veltu því fyrir þér hvernig þú vilt
sjá þér farborða. Með því að gaum-
gæfa það tekur þú jafnframt afstöðu
til lífsskoðana þinna. Hvað er mik-
ilvægt í lífinu? Það er spurningin.
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Skapgerð þín er einstök blanda af lógík,
skynsemi og greind og viðkvæmni, miklu
ímyndunarafli og dulrænum þáttum.
Þetta er nokkuð vítt svið. Mörg ykkar eru
sérstökum gáfum eða hæfileikum gædd.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Myndlist
Café Kulture | Mila Pelaez sýnir olíumyndir.
FUGL | Eygló Harðardóttir – Innlit – Útlit.
Gallerí + Akureyri | Joris Rademaker –
Energy patterns.
Gallerí Auga fyrir auga | Pinhole ljós-
myndaverk eftir Steinþór C Karlsson.
Gallerí Skuggi | Anna Jóa og Ólöf Oddgeirs-
dóttir – Mæramerking II.
Gallerí Sævars Karls | Magnea Ásmunds-
dóttir – Augnablikið mitt
Gallerí Tukt | Ljós- og stuttmyndir nem-
enda í fornámsdeild Myndlistaskólans í
Reykjavík.
Gerðuberg | Ljósberahópurinn – Hratt og
hömlulaust. María Jónsdóttir – Gullþræðir.
Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíu-
málverk og fleira í Boganum.
Grafíksafn Íslands | Margrét Birgisdóttir
sýnir verk sín.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Jónína Guðnadóttir – lág-
myndir og innsetningar í aðalsal. Barbara
Westmann – Adam og Eva og Minnismyndir
frá Vestmannaeyjum. Hallsteinn Sigurðsson
er myndhöggvari marsmánaðar í Hafn-
arborg.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Gerða Kristín
Hammer sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í
Menningarsal á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Auður Inga Ingvarsdóttir form,
ljós og skuggar.
Listasafn ASÍ | Kristín Sigfríður Garð-
arsdóttir – Handleikur. Sigrid Valtingojer –
Hörund Jarðar.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14–17. Högg-
myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf op-
inn.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930
–1945 og Rúrí – Archive –endangered
waters. Kristín Arngrímsdóttir myndlistar-
maður veitir leiðsögn um sýningarnar kl. 15.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands – Mynd Ársins
2004 á efri hæð. Ragnar Axelsson – Fram-
andi heimur á neðri hæð.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jóns-
son og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían –
Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í austursal.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Aðföng,
gjafir og önnur verk eftir Sigurjón.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir. Stendur til 22. maí.
Norræna húsið | Maya Petersen Overgärd –
Hinsti staðurinn.
Safn | Ingólfur Arnarsson – Teikningar. Sam-
sýning listamanna frá Pierogi Gallerí í New
York.
Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir – Hugar-
heimur Ástu.
Leiklist
Borgarleikhúsið | Draumleikur eftir August
Strindberg í samstarfi við útskriftarárgang í
leiklistardeild LHÍ. Að auki taka 7 leikarar
LR þátt. Agnes dóttir guðs kemur til jarð-
arinnar til að skoða mennina. Leikstjóri er
Benedikt Erlingsson. Leikmynd gerir Gretar
Reynisson. Frumsýning 11. mars. Sýnt á
Stóra sviðinu.
Borgarleikhúsið | Segðu mér allt eftir Krist-
ínu Ómarsdóttur er sýnt á Nýja sviði Borg-
arleikhússins. Álfrún Örnólfsdóttur leikur
Guðrúnu sem er 12 ára í hjólastól. Aðrir leik-
endur: Marta Nordal, Ellert Ingimundarson,
Edda Björg Eyjólfsdóttir og Þór Tulinius.
Leikstjóri: Auður Bjarnadóttir. Leikmynd:
Rebekka Ingimundardóttir.
Listasýning
Auga fyrir auga | Síðasta sýningar helgi.
Opið kl. 14–18.
Handverk og Hönnun | Pétur B. Lúthersson
húsgagnaarkitekt og Geir Oddgeirsson hús-
gagnasmiður sýna sérhannaða stóla og
borð sem smíðuð eru úr sérvalinni eik. Á
sýningunni er einnig borðbúnaður eftir
Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur keramiker
sem hún hannar og framleiðir.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10 – 17.
Skemmtileg og fræðandi hljóðleiðsögn um
húsið, margmiðlunarsýning um ævi skálds-
ins og fallegt umhverfi. Sími 586 8066 net-
fang: gljufrateinn@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin, Þjóð-
minjasafnið – Svona var það, Heimastjórnin
1904. Hallgrímur Pétursson er skáld mán-
aðarins.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til–menning og
samfélag í 1200 ár. Ómur Landið og þjóðin í
íslenskri hönnun. Ljósmyndasýningarnar Í
vesturheimi 1955 ljósmyndir Guðna Þórð-
arsonar og Íslendingar í Riccione, ljós-
myndir úr fórum Manfroni bræðra. Opið kl.
11–17.
Fréttir
Tungumálamiðstöð HÍ | Föstudaginn 13.
maí heldur Háskóli Íslands alþjóðleg próf í
spænsku. Prófin eru haldin á vegum Menn-
ingarmálastofnunar Spánar (Instituto Cerv-
antes). Innritun fer fram í Tungumála-
miðstöð Háskóla Íslands, sími 5254593,
sabine@hi.is. Frestur til innritunar rennur út
8. apríl.
Kærleikssamtökin | Opið hús í Kærleiks-
samtökunum að Hraunbergi 4, 3.hæð (beint
á móti Zídon sól) í dag frá kl. 14-17. Starf-
semi og dagskrá kynnt og tekið á móti fram-
lögum og styrkjum. Kynningin er fyrir börn -
foreldra þeirra og fullorðna. Allir velkomnir.
Fundir
ITC–Harpa | Fundur á morgun kl. 20, á
þriðju hæð í borgartúni 22. Gestir velkomnir.
Tölvupóstfang ITC Hörpu er itch-
arpa@hotmail.com heimasíða http://
itcharpa.tripod.com Nánari uppl Guðrún Rut
S:8989557.
UBAA | Uppkomin börn og aðstandendur
alkóhólista eru með 12-sporafundi öll mánu-
dagskvöld kl. 20.30 að Tjarnargötu 20. Ver-
ið velkomin.
Málþing
Þjóðminjasafn Íslands | Málþing um nunnu-
klaustrið Kirkjubæ verður haldið í fundarsal
Þjóðminjasafns í dag, kl. 13–17. Fræðimenn
af ýmsum sviðum gera grein fyrir rann-
sóknum sínum sem á einn eða annan hátt
tengjast klaustrinu og klausturlífi. Málþingið
er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | Sex kvölda sjálfshjálp-
arnámskeið fyrir fólk með gigt og aðstand-
endur þeirra, hefst þriðjudaginn 29. mars.
Farið verður í þætti sem tengjast daglegu lífi
með gigtarsjúkdóma og hvað hægt er að
gera til að bæta líðan sína. Skráning á skrif-
stofu félagsins í síma 5303600.
Þriggja kvölda námskeið fyrir fólk með
vefjagigt hefst miðvikudaginn 30. mars kl.
19.30. Læknar, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og fé-
lagsráðgjafi fjalla um sjúkdóminn, einkenni,
meðferð, þjálfun og tilfinningalega og fé-
lagslega þætti. Skráning á skrifstofu félags-
ins í s. 5303600.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Á mánudögum kl. 18
er gengið í Elliðaárdalnum og farið frá Topp-
stöðinni við Elliðaár. Allir velkomnir, ekkert
þátttökugjald.
Páskaferð í Bása 26.–29. mars. Brottför kl.
9. Farið verður í gönguferðir, skíðaferðir og/
eða sleðaferðir allt eftir árferði. Verð
11.900/13.700 kr.
Ferð til Ólafsfjarðar 24. – 28. mars. Farið
verður á Reykjaheiði, Burstarbrekkudal, upp
á Lágheiði og Skeggjabrekkudal. Brottför
ákveðin síðar, farið á einkabílum. Verð
16.200/18.500 kr. Fararstjóri Reynir Þór
Sigurðsson.
Farið verður á Esjufjöll í Vatnajökli 24.–28.
mars. Brottför á eigin bílum frá skrifstofu
Útivistar kl. 18. Verð 13.500/15.800 kr. Far-
arstjóri Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir.
Íþróttir
Hellisheimilið | Stigamót Taflfélagsins Hellis
verður haldið í fjórða sinn dagana 22.–26.
mars. Mótið er opið öllum skákmönnum
með meira en 1800 skákstig. Nánari upplýs-
ingar á Hellir.com.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
GRANDROKK, Laugarásvídeó og Sonet blása til
hvíldardagskvölds í kvöld kl. 20 á Grandrokki. Sam-
kvæmt venju litast dagskráin að ákveðnum hluta af
heimildaþáttunum „Jazz“, en þar er lifandi og for-
vitnileg saga djasstónlistarinnar rakin á mjög að-
gengilegan hátt fyrir hinn almenna áhorfanda. Einnig
er sérstaklega vakin athygli á myndinni „The Ladies
Sing the Blues“ og er um að ræða samantekt á sjón-
varps- og kvikmyndaupptökum með mörgum af
helstu djass- og blússöngkonum á fyrri hluta 20 ald-
ar. Einnig verða sýndir tónleikar Stjörnukvintetts
Charlie Parker, sem vottaði meistaranum virðingu
sína á ógleymanlegan hátt árið 1990, en flytjendur
áttu það sammerkt að hafa leikið með hljómsveit
Parkers á fyrri tíð.
Allir sannir djassgeggjarar eða aðrir áhugamenn
eru eindregið hvattir til þess að fjölmenna á þessa
metnaðarfullu dagskrá sem einungis fer fram í þetta
eina sinn á risaskjá og í góðu hljómkerfi.
Djassað hvíldardagskvöld
á Grandrokki
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 sefa harm, 4
skríll, 7 grasflöt, 8 rót-
arávöxturinn, 9 sigað, 11
kyrr, 13 espi, 14 líkams-
hlutinn, 15 krukka, 17
álfa, 20 spíra, 22 tré, 23
aldni, 24 einskæran, 25
ójafnan.
Lóðrétt | 1 nærgætin, 2
dreggjar, 3 bylgja, 4
sjálfshreykni, 5 ólmir
hestar, 6 dreg í efa, 10
hnöttur, 12 tangi, 13 sam-
tenging, 15 gin, 16 yfir-
höfnum, 18 búið til, 19
fæddur, 20 tímabilin, 21
sníkjudýr.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 feðrungar, 8 legum, 9 uggir, 10 ufs, 11 tírur, 13
týnir, 15 fjöld, 18 galli, 21 urr, 22 flóin, 23 urðar, 24 hag-
anlegt.
Lóðrétt | 2 elgur, 3 rómur, 4 naust, 5 angan, 6 glit, 7 grár,
12 ull, 14 ýta, 15 fífl, 16 ölóða, 17 dunda, 18 grufl, 19 liðug,
20 iðra.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Íslandsmótið.
Norður
♠874
♥G95 V/NS
♦1097542
♣6
Vestur Austur
♠ÁDG93 ♠1062
♥4 ♥10732
♦G863 ♦–
♣D108 ♣ÁKG932
Suður
♠K5
♥ÁKD86
♦ÁKD
♣754
Keppnisspilarar þekkja vel útspils-
dobl á slemmum, sem kennd eru við
Bandaríkjamanninn Theodore Lightn-
er (1893–1981) og nefnd Lightner-dobl.
Lightner skrifaði grein í tímaritið The
Bridge World árið 1929 þar sem hann
setti fram skilyrðin fyrir slíkum dobl-
um og rökin að baki. Grunnhugmyndin
er sú að óvænt dobl á frjálsmeldaðri
slemmu sýni eyðu einhvers staðar, sem
makker er beðinn um að finna í út-
spilinu.
Þessi hugmynd Lightners hefur lifað
góðu lífi allar götur frá 1929, en auðvit-
að þróast svolítið og slípast. Þeir spil-
arar eru til sem vilja nota Lightner-
doblin í víðara samhengi. Gott tækifæri
til þess gafst í spilinu að ofan, sem kom
upp í 8. umferð Íslandsmótsins. Á einu
borðinu vakti austur á hindrunarsögn
og doblaði svo fimm hjörtu mótherj-
anna til að benda á „óvænt“ útspil:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 3 lauf Dobl
5 lauf Pass Pass 5 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Austur leit svo á að doblið hlyti að
vísa á eyðu til hliðar, því ella væri ekki
hægt að dobla. Vestur var á öðru máli
og kom út með laufáttu – þriðja hæsta.
Hann fékk að eiga þann slag og sá þá
til hvers var ætlast og skipti yfir í tígul.
Skömmu síðar skráðu NS 1.100 í sinn
dálk fyrir að taka fimm hjörtu fjóra
niður.
„Ég hélt að Lightner-gamli ætti
bara við um slemmur,“ sagði vestur
eftir spilið, hálfvegis feginn að hafa
ekki komið út með spaðaásinn.
„Það er rétt, en þetta dobl var
Lightner júníor – sonur hans,“ svaraði
austur, líka ánægður með útspilið.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is