Morgunblaðið - 20.03.2005, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 59
DAGBÓK
MT-stofan, Síðumúla 37, býður upp á hóptíma í æfingasal stofunnar.
Einstaklingsmiðuð þjálfun.
Fáir í hverjum tíma.
Sértæk styrktarþjálfun sem eykur stöðugleika liða
í mjóbaki og/eða hálsi.
Fyrir langvarandi vandamál í mjóbaki og/eða hálsi s.s:
❏ Fyrir viðkvæma ofhreyfanlega liði.
❏ Eftir tognanir.
❏ Eftir brjósklosaðgerðir.
❏ Eftir brjósklos- eða brjóskþófaröskun.
❏ Við slitgigt.
7 vikna þjálfun - Hádegis- og eftirmiðdagstímar.
Æft tvisvar sinnum í viku - Skráning í vikunni. - Æfingar hefjast eftir páska.
Leiðbeinandi: Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari og sérfræðingur í
greiningu og meðferð á hrygg.
Upplýsingar og skráning á MT-stofunni í símum 568 3660 og 568 3748.
Netfang: mtstofan@mmedia.is
Bakþjálfun
Hálsþjálfun
Þjálfun stöðugleika mjóbaks og/eða háls
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Prag
28. mars
Kr. 9.990
Flugsæti aðra leið með sköttum
Netverð.
Róm
12. maí
Kr. 39.990
Flugsæti með sköttum.
Netverð.
Dubrovnik
12. maí
Kr. 39.990
Flugsæti með sköttum.
Netverð.
Búdapest
25. apríl
Kr. 28.890
Flugsæti með sköttum.
mánud. til fimmtud.
Netverð.
Madrid
21. apríl
Kr. 39.990
Flugsæti með sköttum.
Netverð.
Barcelona
3. apríl
Kr. 29.990
Flugsæti með sköttum.
Netverð.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS - TVÆR ÍBÚÐIR
Skólavörðurstígur 28 - tvær hæðir og ris
Efri hæð og ris
5 herb. 123 fm hæð ásamt risi í fallegu húsi, teiknuðu af Guðjóni Samúelssyni.
Hæðin skiptist í stofu, 4 herbergi, þar af eitt forstofuherbergi, eldhús, búr og
snyrtingu. Verð 29,9 millj.
Neðri hæð og bílskúr
5 herbergja neðri hæð ásamt litlum 16,5 fm bílskúr (geymslu). Hæðin skiptist í
stofu, 4 herbergi, þar af eitt forstofuherbergi, eldhús, búr og snyrtingu.
Í íbúðunum er mikil lofthæð og eru gifslistar í loftum. Hæðirnar hafa verið nýttar
sem skrifstofuhæðir og bjóða upp á mikla möguleika. Verð 25,5 millj. 4849
OPIÐ HÚS Í, SUNNUDAG KL. 13.00-15.00.
85 ÁRA afmæli. Í dag, 20. mars, er85 ára Júlíus Júlíusson, fyrr-
verandi leigubílstjóri. Af því tilefni
tekur hann og fjölskylda hans á móti
gestum á heimili hans á Þinghólsbraut
10 í Kópavogi í dag á milli kl. 16 og 19.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Listahátíðin Gullkistan verður haldin áLaugarvatni frá 17. júní til 3. júlí í sum-ar, en þar mun kenna margra grasa,bæði í myndlist, tónlist, leiklist og öðr-
um listgreinum auk þess sem lagt verður í fjöl-
breytta útivist og íþróttir. Í dag rennur út frestur
til að sækja um þátttöku í hátíðinni, en hægt er að
sækja um þátttöku á vefslóðinni www.gullkist-
an.is. Alda Sigurðardóttir, annar skipuleggjenda
hátíðarinnar, segir miklar væntingar vera uppi til
hátíðarinnar, enda eru tíu ár síðan hún var síðast
haldin og aðstæður hafi um margt breyst síðan.
„Það eru aðrar kröfur, en það er ennþá jafnmikill
þorsti í listamönnunum að komast í þetta um-
hverfi og fá að starfa á eigin forsendum,“ segir
Alda.
Hvers vegna listahátíð á Laugarvatni?
„Ég og vinkona mín Kristveig Halldórsdóttir
útskrifuðumst saman árið 1993, en þá höfðum við
unnið saman eitt sumar á Hótel Búðum á náms-
tímanum. Svo bjuggum við á Laugarvatni á sama
tíma í eitt ár, en þá var ég hjúkrunarfræðingur og
hún var leikskólastjóri. Þá datt okkur í hug að fá
að nota húsnæðið á Laugarvatni fyrir myndlist-
arsýningu.
Framtíð gamla Héraðsskólans var þá óráðin og
húsið að drabbast niður. Svo var svo mikill áhugi á
þessu að það voru sýningar úti um allt, úti á víða-
vangi, í skólastofum og heimavistarherberjum,
inni í skápum og á klósettum og yfir vöskum svo
dæmi séu nefnd. Það voru yfir hundrað listamenn
sem tóku þátt í þessu og yfir 50 aðrir listamenn og
aðrir sem áttu innlegg í hátíðina. Þetta var opið í
hálfan mánuð og mikil umferð allan tímann. Það
eiga margir leið um Laugavatn og margir sem
lögðu leið sína þangað. Nú eru tíu ár liðin og við
höfum oft verið hvattar til þess að gera þetta aft-
ur. Það er ekki ennþá búið að ákveða hvað eigi að
gera við Héraðsskólann og hann er í ennþá verra
ástandi en hann var fyrir tíu árum, svo við létum
slag standa. Viðtökur listamanna eru frábærar,
þeir sýna þessu mikinn áhuga. Þetta er mjög lýð-
ræðisleg hátíð, það mega allir sækja um að vera
með og það kostar þá ekki neitt að vera með en við
veljum svo úr því og sjáum um allt sem er sameig-
inlegt. Við erum með vefsíður bæði um gömlu há-
tíðina og þessa nýju. Við erum líka með sýning-
arskrá og höldum utan um allt skipulagið og erum
tengiliðir milli listamanna og þeirra sem ráða yfir
húsunum.“
En er ekki dýrt að halda svona hátíð?
„Vissulega er þetta dýrt en við sníðum okkur
stakk eftir vexti eftir því hvað við fáum mikla pen-
inga í formi auglýsinga og styrkja. Við fengum
lágmarksstuðning frá sveitarfélaginu, sem voru
dálítil vonbrigði fyrir okkur, en við erum enn að
leita að styrktaraðilum til að geta staðið mynd-
arlega að verki. Það verður ýmislegt fleira sem
var ekki síðast, ýmsir nýir þættir, og það verður
örugglega gengið aftur á Gullkistuna (Bergstapa
ofan á Miðdalsfjalli) eins og á Jónsmessunótt.“
Listviðburðir | Umsóknarfrestur um þátttöku í listahátíðinni Gullkistunni að renna út
Afar góðar viðtökur listamanna
Alda Sigurðardóttir
er fædd í Reykjavík árið
1960 en ólst upp í
Hafnarfirði. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Flensborgarskóla og
hjúkrunarfræðiprófi frá
Háskóla Íslands árið
1984. Þá útskrifaðist
hún frá Myndlista- og
handíðaskólanum 1993.
Alda hefur starfað sem
hjúkrunarfræðingur og einnig sem myndlist-
arkona. Þá hefur hún komið að undirbúningi
margra listviðburða. Alda er gift Jóni Özuri
Snorrasyni og eiga þau þrjú börn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4. Bd3
c5 5. Rf3 Bd6 6. c3 Bg4 7. Be3 c4 8.
Be2 Rd7 9. a4 a6 10. a5 b5 11. axb6
Dxb6 12. b3 cxb3 13. Rbd2 b2 14.
Ha2 Bf5 15. 0-0 a5 16. Re5 Bxe5 17.
dxe5 Db7 18. Bg4 Re7 19. Bg5 Be6
20. Bxe6 fxe6 21. Bxe7 Kxe7 22. Dg4
g6 23. Dg5+ Kf7 24. Ha4 Hhe8 25.
h4 Dc7 26. Rf3 Kg7 27. h5 Dd8 28.
Dg3 Rc5 29. Rg5 h6
Staðan kom upp í 2. deild Íslands-
móts skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Menntaskólanum í
Hamrahlíð. Hlíðar Þór Hreinsson
(2.187) hafði hvítt gegn Gunnari
Finnlaugssyni (2.173). 30. Rf7! Kxf7
31. Dxg6+ Ke7 32. Dg7#. Gunnar
hefur verið búsettur í Lundi í Sví-
þjóð í fjölda ára en kemur orðið
ávallt til landsins að tefla í Íslands-
móti skákfélaga. Sveit hans, Skák-
félag Selfoss og nágrennis, lenti í
öðru sæti í 2. deild og vann sér þátt-
tökurétt í fyrstu deild að ári. Tívolí-
syrpu Íslandsbanka verður fram
haldið í dag í höfuðstöðvum bankans
í Kirkjusandi.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
BJARNI Hinriksson, sýningarstjóri
Myndasögumessunar Níunnar í
Listasafni Reykjavíkur - Hafn-
arhúsi verður með sýning-
arstjóraspjall og leiðsögn um sýn-
inguna í dag kl. 15. Á sýningunni
getur að líta ógrynni af myndasög-
um úr ýmsum áttum, bæði íslensk-
ar og erlendar. Meðal höfunda sem
eiga verk á sýningunni eru Banda-
ríkjamaðurinn Art Spiegelman,
Bretinn Dave McKean og Íslend-
ingarnir Erró, Bjarni Hinriksson,
Jóhann L. Torfason, Þorri Hrings-
son, Halldór Baldursson, Ólafur J.
Engilbertsson, Hallgrímur Helga-
son, Helgi Þorgils Friðjónsson,
Þorvaldur Þorsteinsson og Hug-
leikur Dagsson, svo fáeinir séu
nefndir. Sýningin stendur til 24.
apríl.
Í tilefni af sýningunni hefur ver-
ið gefin út vegleg sýningarskrá
sem inniheldur m.a. greinar um ís-
lenskar og erlendar myndasögur,
yfirlitsgrein um myndasögur á Ís-
landi og íslensku myndasöguna
eftir Ingu Maríu Brynjarsdóttur,
greinar um Dave McKean og Art
Spiegelman eftir Úlfhildi Dags-
dóttur, grein um söguna Gisp! eftir
Bjarna Hinriksson að ógleymdu
viðtali við Erró sem Bjarni tók
fyrr á þessu ári.
Leiðsögn um Níuna