Morgunblaðið - 20.03.2005, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 20.03.2005, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 2/4 kl 14 – AUKASÝNING Su 3/4 kl 14 – AUKASÝNING Lokasýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20 AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA Í kvöld kl 20, Su 3/4 kl 20 Ath: Miðaverð kr 1.500 SEGÐU MÉR ALLT - Taumlausir draumórar? AMERICAN DIPLOMACY eftir Þorleif Örn Arnarsson Í samstarfi við Hið lifandi leikhús Fi 31/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20 Síðustu sýningar SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20 Síðustu sýningar HOUDINI SNÝR AFTUR Fjölskyldusýning um páskana Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 15, Fi 24/3 kl 20, Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20 SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur Í kvöld kl 20, Fö 1/4 kl 20. LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur Í kvöld kl 21, - Breyttur sýningartími! Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 20, Fö 1/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 2/4 kl 20 - UPPSELT Fi 14/4 kl 20, Fö 15/4 kl 20 - UPPSELTHÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20 DRAUMLEIKUR eftir Strindberg Samstarf: Leiklistardeild LHÍ Í kvöld kl 20, Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20, Síðustu sýningar STÓRKOSTLEG SPENNUATRIÐI, TRÚÐAR, ELDUR OG SPRENGINGAR, GAMAN OG GALDRAR. Tryggðu þér miða í síma 568 8000 23. mars kl. 2024. mars kl. 1524. mars kl. 2026. mars kl. 1526. mars kl. 20 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími „Fjarskalega leiftrandi og skemmtileg sýning“ H.Ö.B. RÚV Óliver! Eftir Lionel Bart Lau. 26.3 kl 14 Örfá sæti laus Lau. 26.3 kl 20 Örfá sæti laus Allra síðustu sýningar Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! Pakkið á móti Eftir Henry Adams Fös. 15.4 kl 20 Frums. UPPSELT Lau. 16.4 kl 20 Örfá sæti laus Fim. 21.4 kl 20 Örfá sæti laus KRISTINN Sigmundsson söngvari kallaði Jónas Ingimundarson píanó- leikara einhvern tímann Jónas Syngi- mundarson vegna þess hve vel hon- um tækist að láta píanóið syngja. Það er ekkert sjálfgefið; píanóið er í eðli sínu ásláttarhljóðfæri, sem skýrir gamla íslenska orðið slagharpa. Til gamans má geta að gárungar hafa búið til nýtt orð yfir píanóleikara; slagherpir, en Jónas er enginn slíkur, svo mikið er víst. Leikur hans er allt annað en herpingslegur; áslátturinn er silkimjúkur, nánast draum- kenndur þegar best lætur. Er það auðheyrt á tveimur geisladiskum sem fylgja ævisögu hans, Á vængjum söngsins, er kom út núna um jólin. Á geisladiskunum kennir ýmissa grasa þó að Jónas haldi sig við höf- uðsnillingana Bach, Beethoven, Brahms og Schu- bert. Athygl- isverðustu upp- tökurnar, sem allar eru úr safni Ríkisútvarpsins og voru upp- haflega ekki hugs- aðar til útgáfu, eru fyrsti píanó- konsert eftir Brahms og sá þriðji eftir Beethoven. Konsertinn eftir Brahms, sem var tekinn upp í Útvarpssal við Skúlagötu árið 1979, er að mörgu leyti ágætlega fluttur, hljómsveitin spilar af öryggi undir stjórn Páls P. Pálssonar og Jónas heldur býsna vel um alla meginþætti verksins. Syngj- andi hlutar einleikspartsins eru prýðilega útfærðir eins og vænta mátti; helst má finna að hæga kafl- anum fyrir að vera ívið Chopin-legur (hvar eru allir þykku hljómarnir sem einkenna Brahms?) auk þess sem há- punktarnir í fyrsta og síðasta kafl- anum eru dálítið varfærnislegir og því ekki eins magnaðir og þeir þyrftu að vera. Svipaða sögu er að segja um hinn konsertinn, sem var tekinn upp árið 1991; hið ljóðræna og innhverfa í tón- listina skilar sér ágætlega en túlk- unina skortir spennu og er af þeim sökum bragðlítil og ekki í anda Beethovens. Það er helst hægi þátt- urinn sem er ánægjulegur áheyrnar. Mun meiri spenna er í þremur tónaljóðum eftir Schubert, þar er leikur Jónasar eins líflegur og tónlist- in krefst og þrír sálmaforleikir eftir Bach í útsetningu Busonis eru þrungnir svo mikilli andakt að unaður er á að hlýða. Sónata Beethovens í As-dúr op. 26 er auk þess sérlega fal- lega mótuð, áslátturinn litríkur, túlk- unin markviss og full af alls konar til- finningum. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki lesið bókina um Jónas en sjálf- sagt er gaman að gera það og hlusta á hann spila á sama tíma; ég er viss um að það gefur bókinni meiri dýpt en ella. Vængjaðir geisladiskar TÓNLIST Íslenskar plötur Geisladiskar sem fylgja bókinni Á vængj- um söngsins, ævisögu Jónasar Ingimund- arsonar, skráðri af Gylfa Gröndal. JPV- útgáfa 2004. Á vængjum söngsins Jónas Ingimundarson Jónas Sen er verk sem ég hef oft heyrt en aldr- ei spilað áður.“ Þeir Schubert og Schumann eru fastagestir á efnisskrám kamm- ertónleika en Milhauds síður. Tón- list hans er mörg hver afar glaðleg, exótísk og jafnvel súrrealísk. „Jú, þetta er líflegt og glaðlegt verk með mjög fallegum millikafla. Þetta er kannski ekki djúp tónlist en engan veginn léleg. Hún er létt og leik- andi. Milhaud samdi ósköpin öll af verkum og þessi Sónatína er ópus 324.“ Sigurgeir segir að hann hafi haft mikið að gera síðan hann kom heim úr námi og tók við stöðu 2. sellóleik- ara í Sinfóníuhljómsveitinni. „Það er búið að vera brjálað að gera en nú er maður að verða kominn vel inn í rútínuna. Ég hef líka verið að leysa fyrsta sellistann, Bryndísi Höllu Gylfadóttur, af. Þetta er búið að vera ótrúlega gaman og ég þarf ekki að kvarta undan verkefnaskorti. Þetta er bæði gaman og erfitt – allt- af gaman þegar maður er beðinn að spila með öðrum eins og nú.“ SIGURGEIR Agnarsson sellóleik- ari er gestur Tríós Reykjavíkur á lokatónleikum starfsárs tríósins í Hafnarborg í kvöld kl. 20, en Sig- urgeir hefur verið 2. sellóleikari Sin- fóníuhljómsveitar Íslands frá hausti 2003. Á efnisskránni eru þrjú verk, Fimm lög í þjóðlegum stíl eftir Schumann, Sónatína ópus 324 fyrir fiðlu og selló eftir Daríus Milaud, og Píanótríó ópus 100 í Es-dúr eftir Schubert. Tríó Reykjavíkur býður gestum oft að leika með sér og nú, þegar Gunnar Kvaran, sellóleikari tríósins, er að undirbúa tvenna tónleika með einleikssvítum Bachs, lá beint við að gesturinn yrði annar sellóleikari en Sigurgeir hefur leikið með þeim Peter Máté píanóleikara og Guð- nýju Guðmundsdóttur fiðluleikara áður – þó hvoru í sínu lagi. En þekkti hann verkin áður? „Já og nei. Verk Schumanns, sem við Peter spilum, hef ég leikið áður. Dúó Milhauds þekkti ég ekki og það er ekki mjög þekkt. Schubert tríóið Tónlist| Sigurgeir Agnarsson er gestur Tríós Reykjavíkur í kvöld Alltaf gaman að vera beðinn að spila Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigurgeir Agnarsson með Guðnýju Guðmundsdóttur og Peter Máté. ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Föt fyrir allar konur FRÉTTIR mbl.is Hjá Almenna bókafélaginu er komin út bókin Þú átt nóg af pen- ingum. Þú þarft bara að finna þá eftir Ingólf H. Ing- ólfsson. Í kynningu út- gefanda segir m.a.: „Alltof margir kannast við það að launin virðast hverfa við hver mánaðamót, reikning- arnir gleypa nánast allt og erfitt að átta sig á hvert peningarnir hafa eig- inlega farið. Í þessari nýstárlegu bók eru fjármál fjölskyldunnar sett í stærra samhengi og bent á leiðir til að endurskipuleggja fjármálin og eignast fé án þess að þurfa að breyta um lífsstíl eða herða sultarólina. Það er hægt að ná ótrúlega góðum árangri á stuttum tíma og gjörbreyta fjár- hagnum ef litið er til lengri tíma.“ Bókin er 182 bls. Útgefandi: Al- menna bókafélagið. Verð bókarinnar er 3.490 kr. Fjármál
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.