Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 64
64 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Tilnefnd til 3
Óskarsverðlauna
Óperudraugurinn
Mynd eftir Joel Schumacher.
Byggt á söngleik Andrew Lloyd Webber.
Með Íslandsvininum, Gerard Butler (Bjólfskviða), Emmy Rossum
(Mystic River) , Miranda Richardson og Minnie Driver
M.M. Kvikmyndir.com
Með tónlist eftir Sigur Rós!
Bráðfyndin gamanmynd frá Wes Anderson, framleiðenda
Royal Tenenbaums með Bill Murray, Owen Wilson, Kate
Blanchett og Anjelicu Huston í aðalhlutverkum.
r fy i y fr r , fr l i
y l ill rr y, il , t
l tt j li t í l l tv r .
Besta mynd ársins
Besti Leikstjóri - Clint Eastwood
Besta Leikkona - Hillary Swank
Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman
Kvikmyndir.isDV
H.J. Mbl.
Heimsins stærsti söngleikur birtist nú
á hvíta tjaldinu í fyrsta sinn!
LIFE AQUATIC KL. 3-5.30-8-10.30 B.I. 12
PHANTOM OF THE OPERA KL. 3-6-9 B.I. 10
LES CHORISTES (KÓRINN) KL. 6.10-8
THE AVIATOR (5 ÓSKARSV.) KL. 3 -10 B.I. 12
MILLION DOLLAR BABY (4 ÓSKARSV.) KL. 3-5.30 - 8 - 10.30 B.I. 14
RAY (2 ÓSKARSV.) KL. 3-6 -9 B.I. 12
M.M.J.kvikmyndir.com
Ó.H.T. Rás 2 S.V. MBL.
Hringrás óttans hefur náð hámarki.
Heimsfrumsýnd samtímis í USA og á Íslandi.
Tryllingslegt framhald "The Ring"
Samara er komin aftur á kreik. Þorið þið í hana?
Brjálæðislegur spennuhrollur sem fær hárin til að rísa...aftur.
DV
MÚSÍKTILRAUNUM Tónabæjar
og Hins hússins lauk í Austurbæ sl.
föstudagskvöld. Þá kepptu þær ell-
efu hljómsveitir sem komust áfram
úr undanúrslitum næstsíðustu viku,
en alls kepptu fimmtíu hljómsveitir í
tilraununum að þessu sinni.
Sú tilhögun að gefa hljómsveit-
unum vikufrí fyrir úrslitin reyndist
einkar vel, allar voru þær óhemju vel
undirbúnar og þéttar, menn hafa
lagt nótt við dag við æfingar og laga-
smíðar. Fyrir vikið var þetta úr-
slitakvöld með bestu úrslitakvöld-
um, hljómsveitirnar mjög jafnar að
getu og frammistaðan almennt mjög
góð.
Motyl hóf leikinn að þessu sinni og
byrjaði vel í fínu lagi með góðri stíg-
andi. Næsta lag var ekki síður
skemmtilegt og þyngdist er á leið.
Söngvarinn fór á kostum í þriðja lag-
inu, besta laginu, þar sem vel var
keyrt í trommum og bassa.
Hello Norbert byrjaði með gríp-
andi stuðlagi, rokkuðu poppi sem
flestum ætti að falla í geð. Næsta lag
var skondið og skemmtilegt og löðr-
andi í kímni. Síðasta lagið, Gameboy-
lagið, var einna best, vissulega undir
sterkum áhrifum en þeir félagar
unnu vel úr þeim áhrifum.
Gay Parad tætti og tryllti með
fínni keyrslu í óvenjulegu lagi. Bætti
hún við snúningi í öðru laginu en
hægði svo aftur á í lokalaginu þar
sem sungið var um illkvittna kókvél
að því er mér heyrðist. Gott lag með
skemmtilegu viðlagi.
Elysium spilaði fulllágt fannst
mér, en eflaust er um að kenna ein-
hverjum tækjavandræðum. Hún var
eiturþétt og keyrslan gríðarleg – há-
dramatískt sinfónískt rokk. Söngv-
ari sveitarinnar stóð sig afbragðsvel
en þó mátti heyra á köflum að radd-
böndin voru ekki langt frá því að
bila, sérstaklega í öðru lagi sveit-
arinnar.
Aðal Mjólk, 6 og fúnk félaga er
fjörið, en þeir eru líka framúrskar-
andi hljóðfæraleikarar, sérstaklega
gítarleikarinn, aukinheldur sem
blásararnir áttu frábæra spretti.
Fyrstu lögin voru þau sömu og þeir
léku í undanúrslitum, en nú enn bet-
ur flutt. Þeir voru ekki sömu uglu-
speglarnir í þriðja laginu, kannski
meiri alvara á ferð, en það stóð hin-
um þó lítt að baki.
The Dyers spilaði rokk en kom þó
úr annarri átt en þær rokksveitir
sem á undan komu. Fyrsta lagið var
fínasta popp með skemmtilegum til-
brigðum í söng og dapurlegum texta.
Annað lagið var fjölbreytt og
skemmtilegt rokkbúgí en meira fjör
vantaði í sönginn. Þriðja lagið var
svo það besta sem hún bauð upp á að
þessu sinni, suðurríkjalegt rokk með
frábæru samspili gítarleikaranna.
Áslenska sveitin Jakobínarína
byrjaði með stæl, fór rólega af stað
og endaði í miklu fjöri. Annað lagið
var svo þýska lagið, Rammstein hitt-
ir Joy Division í skuggasundi í Ás-
landinu – afbragðs lag. Þriðja lag
sveitarinnar var grípandi og gott lag
með góðri bassakeyrslu og góðum
tilþrifum í söng. Hljómborðsleikari
sveitarinnar stóð sig með prýði og
hefur mikið að segja um hve framlag
sveitarinnar var vel heppnað.
Með bestu úrslitakvöldum
TÓNLIST
Austurbær
Úrslit Músíktilrauna Tónabæjar og Hins
hússins. Þátt tóku Motyl, Hello Norbert,
Gay Parad, Elysium, Mjólk, 6 og Fúnk,
The Dyers, Jakobínarína, Koda, Jamie’s
Star, We Painted The Walls og Mystical
Fist. Haldið í Austurbæ föstudaginn 18.
mars.
MÚSÍKTILRAUNIR
Aðstandendur Tíma völdu We
Painted the Walls athyglisverð-
ustu hljómsveitina.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Jakobínarína, sigursveit Músíktilrauna 2005, fékk að launum hljóðverstíma auk fleiri verðlauna.