Morgunblaðið - 21.03.2005, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 7
FRÉTTIR
! " # !
$ %% &
! '''(
(
&)*
+
+ ,
,
(
- ,
.
/
.
.
,
/&
012 345 (
,67
$
/
(
08926:3)2
/ &( ,0;24 <=>>769
/ 88?@AAB=6 C41DB82*0
& &
$
EF
F
F F E F GF
,(
G/,
/
"
. /
,', H
.
/ & ,,
+
JKI
- -
.
-
,
+ +
+
+
((((
$
$
$
'E
+
J
$
KJARASAMNINGUR milli Félags
íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og
samninganefndar ríkisins, f.h. fjár-
málaráðherra, var undirritaður síð-
astliðinn föstudag. Samningurinn
gildir frá 1. mars 2005 til 30. apríl
2008 og var undirritaður með fyrir-
vara um samþykki félagsmanna.
Eru þá öll aðildarfélög innan BHM
búin að undirrita kjarasamninga við
ríkið.
Áfangahækkanir samningsins eru
á svipuðum nótum og samið hefur
verið um hjá öðrum félögum BHM,
að því er segir í fréttatilkynningu frá
FÍN. Tekin verður upp ný launatafla
1. maí á næsta ári og að teknu tillliti
til allra þátta samningsins verða um-
samin heildaráhrif nálægt 17% á
samningstímanum.
Í samningnum er gert ráð fyrir
sérstöku fjármagni til frekari styrk-
ingar á stofnanasamningum nátt-
úrufræðinga í maí 2006 og 2007, en
ötullega hefur verið unnið að þeim
allt frá árinu 1997.
Gert er ráð fyrir að samningurinn
verði kynntur félagsmönnum strax
eftir páska og atkvæði um hann
greidd að því loknu.
Atkvæðagreiðslum 24 aðildar-
félaga BHM, sem sömdu við ríkið 28.
febrúar síðasliðinn, verður lokið um
næstu mánaðamót.
Þá skrifaði Félag flugmálastarfs-
manna ríkisins, sem er innan BSRB,
undir samninga við launanefnd rík-
isins síðastliðið föstudagskvöld.
Samningarnir eru á svipuðum nótum
og aðrir hafa verið að semja við ríkið.
Náttúrufræð-
ingar og flug-
málastarfs-
menn semja
ÞRIGGJA ára gamalt stúlku-
barn var flutt á slysadeild
Landspítala - háskólasjúkra-
húss í Fossvogi eftir að það
hljóp í veg fyrir bíl á Ægisíðu í
Reykjavík á þriðja tímanum á
laugardag, samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu.
Lenti barnið á hægra horni
bifreiðarinnar. Að sögn lögregl-
unnar voru meiðsli barnsins
ekki talin alvarleg.Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þriggja
ára barn
fyrir bíl
MÁLEFNASAMNINGUR milli
H-lista lista vinstri manna og
óháðra og D-lista lista sjálfstæð-
ismanna á Blönduósi um meiri-
hlutasamstarf í bæjarstjórn
Blönduós var frágenginn síðdeg-
is á laugardag. Valgarður Hilm-
arsson, sem gegnt hefur starfi
forseta bæjarstjórnar, heldur
sínu embætti en Ágúst Þór
Bragason af D-lista verður for-
maður bæjarráðs í stað Valdi-
mars Guðmannssonar af Á-lista.
Bæjarstjóri verður áfram Jóna
Fanney Friðriksdóttir. Þessi
meirihluti er þriðja stjórnar-
mynstrið í bæjarstjórnarmálum
á Blönduósi á kjörtímabilinu.
Í málefnasamningnum kemur
m.a. fram að stefnt sé að sölu
eigna og lækkun skulda til að
skapa sveitarfélaginu fjárhags-
legt svigrúm til nauðsynlegra
verkefna. Þá eru aðilar sammála
um mikilvægi þess að sveitarfé-
lagið hætti að safna skuldum.
Stefnt er að því að ná árangri í
kosningu um sameiningu sveitar-
félaga á svæðinu sem fram fer í
október. Endurmeta skal kosti
og galla samstarfs sveitarfélag-
anna í héraðinu hið fyrsta. Vinna
á markvisst að uppbyggingu i at-
vinnumálum. Lögð verði áhersla
á að efla núverandi fyrirtæki og
stofnanir sem fyrir eru í sveitar-
félaginu og vinna að vaxtarmögu-
leikum þeirra. Lokið verði við
byggingu þjónustuhúss á tjald-
stæðinu í Brautarhvammi í vor.
Þá á að vinna að stefnumörkun
og kostnaðarmati m.a. vegna
stofnunar hafíssafns á Blöndu-
ósi, hönnunarsamkeppni um
göngubrú yfir ósinn og bygg-
ingu sundlaugar.
Málefnasammningurinn
verður kynntur á bæjarstjórn-
arfundi á morgun.
Þriðji
meirihlut-
inn á kjör-
tímabilinu
Blönduósi. Morgunblaðið.