Morgunblaðið - 21.03.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 33
ndin gamanmynd frá Wes Anderson, framleiðenda Royal
baums með Bill Murray, Owen Wilson, Cate Blanchett og
Anjelicu Huston í aðalhlutverkum.
i l i l
ill il l
li í l l
Með tónlist eftir Sigur Rós!
RING TWO kl. 5.40 - 8 - 10.20 B.I. 16
RING TWO í Lúxus VIP kl. 5.40 - 8 - 10.20 B.I. 16
LIFE AQUATIC kl. 5.40 - 8 - 10.20
CONSTANTINE kl. 8 - 10.20 B.I. 16
PHANTOM OF THE OPERA kl. 8
WHITE NOISE kl. 8.15 - 10.20 B.I. 16
BANGSÍMON og FRÍLLINN m/ísl.tali. kl. 4 - 6 Fjö. 250 kr.
POLAR EXPRESS m/ísl.tali. kl. 5.50 Fjö. 250 kr.
LEMONY SNICKETT´S kl. 3.45 - 6 Fjö. 250 kr.
HJÁLP ÉG ER FISKUR ísl.tal kl. 4 Fjö. 250 kr.
RING TWO kl. 5.40 - 8 - 9.15 - 10.20 B.I. 16
COACH CARTER kl. 8 - 10.30
BANGSÍMON og FRÍLLINN ísl.tal kl. 5.30 - 7 Fjö. 250 kr.
TEAM AMERICA kl. 6 Fjö. 250 kr. B.i. 14
RING TWO KL. 8-22.20 B.I. 16
COACH CARTER KL. 8 -10.20.
RING TWO KL. 8-22.15 B.I. 16
ROBOTS m. ísltali KL. 8
HITCH KL.8 -10.20.
ÁLFABAKKI
KRINGLAN
AKUREYRI
Mbl.
DV
Magnaður spennutryllir sem þú mátt ekki missa af!
með Keanu Reeves í aðalhlutverki
KEFLAVÍK
Samuel L. Jackson
Flott mynd. Töff tónlist (HOPE með
Twista, BALLA með Da Hood & Mack
10). Byggð á sannri sögu.
Með hinum eina sanna töffara,
Samuel L. Jackson
l . li (
i ,
). i .
i i ,
l . Sló í gegn í USA
DV
TÓNLIST
Erlendar plötur
Elton John - Peachtree Road
ELTON John – öllum að óvörum –
endurreisti sjálfan sig sem alvöru
listamann árið 2001 með hinni frá-
bæru Songs from the West Coast.
Plötur Eltons höfðu
um langt skeið ver-
ið hreinasta hörm-
ung, geld svuntu-
þeysaratónlist
gefin út af manni
sem var með hug-
ann við eitthvað allt annað en tónlist-
ina sína. Það var því ótrúlegt að
heyra þennan ágæta tónlistarmann
– sem á að baki mörg snilldarverkin
– vakna svo hressilega til lífsins.
Á Songs ... var draslinu semsagt
loksins hent fyrir róða og þess í stað
sótt í brunn þann sem gat af sér
plötur eins og Honky Chateau, Mad-
man Accross the Water og Tumble-
weed Connection en allar eru þær
frá upphafi áttunda áratugarins.
Platan atarna er bara skrambi heil-
steypt, hljómurinn mjúkur og þægi-
legur með nettum tílvísunum í
kántrí, blús og sálartónlist. Já, ótrú-
legt en satt. Platan seldist svo ekki
neitt, sem segir sig auðvitað sjálft í
þessum fræðum. Um leið og Elton
kom frá sér almennilegri plötu vildi
fólk ekkert af henni vita (var líklega
að bíða eftir American Songbook
plötunum hans Rod. Púff...).
Á Peachtree Road er þessari veg-
ferð haldið áfram, áfallalaust að
mestu. Lögin sökkva velflest hægt
og rólega inn og er upphafslagið,
„Weight of the World“, skýrasta
dæmi um þessa háttu plötunnar sem
rennur vel og verður þekkilegri með
hverri spilun. En þó að Peachtree
Road svipi svona til forverans er
heildarbragurinn ekki eins sterkur
og lög sem minna á andlausa tíð
skjóta upp kolli.
Brotalamirnar eru þó minniháttar
og það er mjög greinilegt að í dag er
Elton í mun að reyna á þessa hæfi-
leika sem hann óumdeilanlega býr
yfir. Rod, ertu að punkta niður hjá
þér?
Arnar Eggert Thoroddsen
Áfram
veginn
NELSON Mandela, hin víðfræga
stjórnmálahetja og fyrrverandi for-
seti Suður-Afríku, er ekki af baki
dottinn við að láta gott af sér leiða.
Nýlega stóð stofnun hans fyrir
stórtónleikum til að safna fé fyrir
baráttunni gegn alnæmi. Þetta er í
annað sinn sem hinn 86 ára gamli
Mandela framkvæmir slíkt en á tón-
leikunum kom fram fjöldi góðra
gesta. Bandaríski leikarinn og rapp-
arinn Will Smith var kynnir á hátíð-
inni en auk hans komu fram tónlist-
armenn á borð við hljómsveitina
Queen og Annie Lennox, fyrrum
söngkonu Eurythmics. Auk þeirra
komu fram Katie Melua, Paul Rod-
gers og India Arie að ógleymdu suð-
ur-afrísku tónlistarfólki.
Suður-afrískar konur í sex
sinnum meiri hættu en karlar
Að sögn Mandela söfnuðust 1,6
milljónir bandaríkjadollara meðan á
tónleikunum stóð en þeim var sjón-
varpað víðs vegar um heim. Var
gjafafénu safnað með textaskilaboð-
um úr farsímum og verður allt notað
í baráttunni gegn alnæmi. Voru tón-
leikarnir að þessu sinni helgaðir kon-
um og alnæmi en í Suður-Afríku eru
konur í sex sinnum meiri hættu á að
smitast af HIV-veirunni en karlar.
Annie Lennox talaði til tónleika-
gestanna 20.000 og hafði þetta að
segja: „Í þessu samfélagi eru konur
vanmáttugar og auðsæranlegar
gagnvart duttlungum karlmanna
sem neita að stunda öruggt kynlíf og
nota smokka.“ Sjálfur sagðist Nel-
son Mandela svo gjarnan vilja njóta
friðhelgi ellinnar en að hann vissi að
líkt og margir áheyrenda ætti hann
erfitt með að hvílast meðan hans ást-
kæra heimsálfa sætir tortímingu af-
banvænni farsótt.
Talið er að í Suður-Afríku séu 5,3
milljónir af 45 milljónbúum landsins
smitaðar af HIV-veirunni, en það er
hærri tala en í nokkru öðru landi
heims.
Hin HIV-smitaða Gertrude Maqana hjálpar Nelson Mandela á tónleikasviðið. Með þeim eru Graca, eiginkona
Mandela, og Will Smith.
Hjálparstarf | Tónleikar í Suður-Afríku
Stjörnur styðja baráttu
Mandela gegn alnæmi
Nonhlanhla Mafu og Theo Patak-
aosinkwe í Suður-Afrísku hljóm-
sveitinni Mafikizolo komu fram á
46664-tónleikunum.
Reuters
„46664“ var yfirskrift tónleikanna
en talan vísar til fanganúmers
Mandela meðan á 27 ára fangels-
isvist hans stóð.