Morgunblaðið - 21.03.2005, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 21.03.2005, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR           !"#$% %&%'( %)  &%*(                          Þið haldið að maður sé alltaf að skrökva, kíkið þið bara sjálfir. Flugvellir í áætlunar-flugi innanlandseru nú mun færri en fyrir fáum árum og miklar breytingar hafa orðið í áætlunarfluginu síðustu árin. Raunar hafa flugsamgöngur innan- lands þróast hratt þessa tiltölulega fáu áratugi sem þær hafa staðið. Í dag eru í notkun 14 flugvellir fyrir innanlandsflugið en það er ekki lengra síðan en árið 1986 að innanlandsvellirn- ir voru 36 talsins. Þá eru í dag um 50 aðrir flugvellir og lendingarstaðir á land- inu sem sinna sjúkra- og einkaflugi. Með breyttu rekstrarumhverfi í áætlunarflugi, m.a. þegar sérleyf- in voru afnumin árið 1997, jókst samkeppni í innanlandsfluginu og árin 1998, 1999 og 2000 var far- þegafjöldinn á ári allt upp í 480 þúsund manns. Áfangastöðum fækkaði síðan í kjölfar þessarar auknu samkeppni og fækkaði far- þegum niður í um 336 þúsund manns árið 2002. Í fyrra voru far- þegar alls um 407 þúsund. Þrátt fyrir þetta bakslag og aðra aftur- kippi í farþegafjölda, sem stund- um hefur mátt rekja til bágara efnahagsástands, hefur farþegum í innanlandsflugi fjölgað síðustu 30 ár um 2,7% að meðaltali sem er ekki langt frá meðaltalsfjölgun landsmanna. Betri vegir þýða minna flug Það sem hefur meðal annars áhrif á flugstarfsemina innan- lands eru betri vegasamgöngur. Nú er ekki tiltölumál að aka milli höfuðborgarsvæðisins og t.d. Snæfellsness, Norðurlands vestra og jafnvel lengra í erindum milli þessara byggðarlaga. Þótt menn séu fljótir í förum með flugi getur verið hentugra að aka og nota bíl- inn til snúninga og vera ekki held- ur háður ákveðnum ferðum og tíðni áætlunarflugsins. Þá eru vegasamgöngur innan hvers byggðarlags orðnar mun öruggari en áður og meiri vetrarþjónusta Vegagerðarinnar þýðir að síður þarf að halda uppi flugi innan byggðarlaga. Flugvellirnir fjórtán eru í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöð- um, Vestmannaeyjum, Ísafirði (með Þingeyri sem aðra flug- braut), Bíldudal, Gjögri, Sauðár- króki, Þórshöfn, Vopnafirði, Rauf- arhöfn, Höfn, Grímsey og Bakka. Þrír þessara valla eru varaflug- vellir fyrir utanlandsflugið sem nú fer svo til eingöngu fram frá Keflavíkurflugvelli, en það eru vellirnir í Reykjavík, Akureyri og á Egilsstöðum. Meðal flugvalla sem ekki eru lengur áfangastaðir í áætlunarflugi eru Siglufjörður, Aðaldalsflugvöllur vegna Húsa- víkur auk valla á Austfjörðum og Vestfjörðum. Af þessum völlum er Aðaldalsflugvöllur trúlega sá best búni, með þokkalegri flugstöð og malbikaðri braut. Flogið var til um 30 áfangastaða innanlands þegar mest var en nú eru þeir kringum 12. Ólíklegt er að áfangastöðum innanlands fjölgi á næstunni nema tekið verði upp þjónustuflug til staða eins og Siglufjarðar eða Húsavíkur, líkt og er í dag með t.d. Gjögur og Bíldudal. Koma stjórnvöld þá inn í kostnað við slíkt flug. Miðað við nýjustu frétt- ir af jarðgöngum mun þó vart til þess koma hvað varðar Siglufjörð. Farþegum hefur fjölgað mest á stærstu áfangastaðina síðustu ár- in, t.d. milli Reykjavíkur og Akur- eyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar. Reykjavíkurflugvöllur er mið- stöð innanlandsflugsins og um hann fóru í fyrra rúmlega 379 þús- und manns. Um Reykjavíkurflug- völl er einnig talsvert sjúkraflug og millilandaflug til Grænlands og Færeyja og nokkuð er um ferju- flug erlendra véla og erlendar einkavélar hafa oft Reykjavík sem áfangastað. Næstmest umferð er um Akureyrarflugvöll eða 175 þúsund farþegar og um Egils- staðavöll fóru 109 þúsund farþeg- ar í fyrra. Fæstir fara um Gjögur en Bakkaflugvöllur er drjúgur því um hann fóru í fyrra rúmlega 27 þúsund manns. Til samanburður má nefna að um Vestmannaeyja- völl fóru rúmlega 45 þúsund manns. Í þessum tölum er átt við fjölda farþega sem um vellina fara, þ.e. bæði komur og brottfar- ir. Auknar kröfur um flugvernd og viðbúnað Mikil uppbygging hefur einnig farið fram á flugvöllum landsins undanfarna áratugi og hafa verið lagðir 11,4 milljarðar í uppbygg- ingu þeirra árin 1987 til 2003. Undanfarin ár hafa aukist mjög kröfur um flugvernd og viðbúnað á flugvöllum. Þannig er nú búið að herða mjög aðgang að flugvöllum og t.d. er Reykjavíkurflugvöllur lokaður öðum en þeim sem þang- að eiga erindi vegna flugs eða þjónustu við flugvélar. Áður var hægt að ganga þar inn og út eins og hverjum sýndist. Flugvalla- og leiðsögusvið Flugmálastjórnar rekur deild sem sinnir þessum málefnum. Meðal verkefna henn- ar er að tryggja að björgunarmál flugvallanna séu í lagi hjá viðkom- andi aðilum, hafa umsjón með flugslysaáætlunum og sjá um eft- irlit og samhæfingu flugvalla- varða á þessum sviðum. Fréttaskýring | Sífelld fækkun flugvalla Voru 36 1986 en eru nú 14 Yfir 11 milljarðar króna lagðir í upp- byggingu flugvalla árin 1987 til 2003 Frá flughátíð á Reykjavíkurflugvelli. Áætlunarflugið svipað en aukning í snertilendingum  Þegar skoðaðar eru flughreyf- ingar einstakra flugvalla lands- ins kemur í ljós að áætlunarflug var svipað árið 2003 og 2004 eða rúmlega 48 þúsund hreyfingar alls. Umferð minnkar um Reykjavíkurflugvöll en eykst um flesta aðra velli. Snertilendingar, sem eru yfirleitt vegna flug- kennslu, aukast hins vegar mjög eða úr 61.463 árið 2003 í 66.118 í fyrra. Flughreyfingar jukust alls úr 144 þúsund í 152 þúsund. joto@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.