Morgunblaðið - 21.03.2005, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÚTLIT er fyrir milt og öðru hverju vætusamt veð-
ur um páskana með suðlægum áttum, að sögn
Helgu Ívarsdóttur, veðurfræðings á Veðurstofu Ís-
lands. Helga segir að ágætlega ætti að viðra til úti-
vistar en óvissa geti verið um skíðafærið ef hlýind-
in haldi áfram.
Mjög hlýtt var á
landinu í gær.
Á skírdag er gert
ráð fyrir suðaust-
lægri átt, skýjuðu
og þurru en vax-
andi vindi um land-
ið sunnan og vest-
anvert. Á
föstudaginn langa og laugardag verða áfram suð-
lægar áttir en geta snúist í austanátt. Rigning
verður öðru hverju, einkum sunnanlands, en að
mestu þurrt um landið norðaustanvert. Helga seg-
ir langtímaspám bera ágætlega saman um að á
laugardag sé lægð aftur væntanleg að landinu með
vætu og hlýindum. Því megi ekki vænta mikilla
breytinga frá því á páskadag og annan í páskum.
Mest 14 stiga hiti í gær
Hlýtt var yfir landinu í gær, pálmasunnudag.
Hæstur mældist hitinn 14 stig á Skrauthólum á
Kjalarnesi, Sámsstöðum í Fljótshlíð og Seyðisfirði.
Á Hallormsstað fór hitinn í 13 stig og 12 stig sáust
á mælum Veðurstofunnar í Reykjavík, Straums-
vík, Þykkvabæ og á Akureyri.
Morgunblaðið/Ómar
Milt veður
um páskana
IÐKENDUR hjólabretta- og
línuskautaíþrótta fengu lang-
þráða aðstöðu til æfinga þegar
nýr hjólabrettagarður var opn-
aður í Héðinshúsinu við Seljaveg
í Reykjavík á laugardag. Hjóla-
brettagarðurinn er að hluta til á
vegum Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur (ÍTR),
sem greiðir leigu en umsjón með
garðinum hafa áhugamenn um
hjólabrettaiðkun.
Þegar blaðamaður heimsótti
hjólabrettagarðinn í gær var
ljóst að gríðarleg eftirspurn hef-
ur verið eftir þessu tóm-
stundaúrræði undanfarið, en á
fimmta tug ungra hjóla-
brettaþeysara fór hamförum í
garðinum, þar sem hver fermetri
er nýttur til hins ýtrasta.
„Strákarnir eru búnir að vera
að byggja þetta í allan vetur,“
segir Róbert Ingimarsson, einn
af áhugamönnum um hjóla-
brettaiðkun sem hjálpa til við
umsjón. „Það var hérna „park“ í
fyrra sem verslunin Smash borg-
aði fyrir. Svo nú í haust, þá tóku
þeir allan viðinn sem var búið að
fara með í Sorpu og komu með
hann hingað aftur og byrjuðu að
smíða. Við erum búnir að nýta
okkur þessar aðstæður eins og
hægt er. Strákarnir eru búnir að
ná fram hámarksnýtingu á þessu
plássi.“
Helstu notendur eru unglingar
á aldrinum 10–15 ára, en að-
spurðir segja þeir mikið fagn-
ánægðir með þetta nýja úrræði
og þakklátir ÍTR og framtaks-
sömum ungum hjólabrettamönn-
um.
eina er að þetta hefði alveg mátt
koma fyrr og vera varanlegra,“
var þó viðkvæði nokkurra ungra
drengja, sem kváðust samt afar
aðarefni að fá æfingaaðstöðu inn-
anhúss, enda sé búin að vera
mikil úrkomutíð og lítið hægt að
æfa sig utanhúss á veturna. „Það
Hjólabrettagarður opnaður í Héðinshúsinu
Kom sér vel enda mikil eftirspurn
Morgunblaðið/Eggert
MÖGULEGT er að framhaldsskóli taki til starfa á
Siglufirði með tilkomu jarðganga milli Siglufjarð-
ar og Ólafsfjarðar en þingmenn lýstu þeirri hug-
mynd sinni á fundi þar þegar Sturla Böðvarsson
kynnti nýja framkvæmdaáætlun vegna ganganna.
Fyrsti bekkur gæti tekið til starfa haustið 2006 og
þegar göngunum verður lokið, í árslok 2009, yrði
kominn þar framhaldsskóli sem næði til allra
bekkjardeilda.
Þingmennirnir Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, og Birkir Jónsson, Siglfirðingur og þingmaður
Framsóknarflokksins, lýstu þessum möguleika og
sagði Halldór Blöndal að framhaldsskóli út með
Eyjafirði væri gamalt baráttumál og hefði alltaf
tengst þessari framkvæmd. Kvaðst hann hafa lýst
því yfir á Alþingi að fyrsti bekkur framhaldsskóla
tæki til starfa á Siglufirði haustið 2006 og stefna
ætti að því að þegar göngin væru komin í gagnið
yrði kominn þar framhaldsskóli sem tæki til allra
bekkjardeilda.
Birkir Jónsson sagði að hvergi annars staðar
hér á landi væri yfir fjögur þúsund manna byggð-
arlag þar sem ekki væri hægt að stunda fram-
haldsmenntun. Sagði hann að stefna ætti óhikað
að þessu marki um leið og göngin væru gerð, þetta
myndi gjörbreyta ásýnd sveitarfélaganna við ut-
anverðan Eyjafjörð.
Stefna beri
að fram-
haldsskóla
á Siglufirði
Stór dagur/18
eitthvað sé gert þá séu mörg
dæmi þess að starfsmennirnir
séu farnir úr landi og búnir að
skila umbeðnu verki.
Enn engin niðurstaða
yfirskattanefndar
Þorbjörn bendir á að enn sé
ekki komin niðurstaða hjá yfir-
skattanefnd varðandi skattamál
erlendra starfsmanna sem komi
til landsins í gegnum starfs-
mannaleigur. Fyrirtækin geri
ágreining um túlkun laga og
reglna og takist þannig að þæfa
mál. Á meðan vinni þessir
starfsmenn sína vinnu eins og
ekkert hafi í skorist.
„Það er synd að þetta sé svona
ennþá því Impregilo hefur tekið
verulega á sínum málum og er
með atvinnuleyfi fyrir alla sína
starfsmenn,“ segir Oddur.
Þorbjörn Guðmundsson seg-
ist ekkert skilja í þeim seina-
gangi sem birtist hjá löggæsl-
unni fyrir austan. Félags-
málaráðherra og Vinnumála-
stofnun hafi gefið út þær
yfirlýsingar að ólögleg atvinnu-
starfsemi verði stöðvuð en eftir
því virðist ekki vera unnið á öll-
um stöðum. Hingað komi fjöldi
manna í gegnum erlendar
starfsmannaleigur og geti unnið
hér „á svörtu“ vikum og mán-
uðum saman, án þess að yfirvöld
aðhafist nokkuð. Loksins þegar
FJÓRIR Lettar, sem verkalýðs-
hreyfingin og Vinnumálastofnun
hafa bent á að séu ekki með at-
vinnuleyfi hér á landi, eru enn
að störfum við Kárahnjúkavirkj-
un. Oddur Friðriksson, aðal-
trúnaðarmaður á virkjunar-
svæðinu, segist vera orðinn
langþreyttur á því að ekkert
gerist í málinu hjá embætti
sýslumanns á Seyðisfirði og
undir það tekur Þorbjörn Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Samiðnar, sem segist ekkert
skilja í seinaganginum hjá lög-
reglu.
„Regluverkið hjá okkur er allt
of seinvirkt,“ segir Oddur en
meira en mánuður er liðin síðan
löggæsluyfirvöldum var bent á
að Lettarnir störfuðu hér á
landi án atvinnuleyfis. Þeir hafa
verið yfirheyrðir af lögreglunni
sem og forráðamenn GT-verk-
taka. Oddur segir að þrátt fyrir
þetta haldi mennirnir störfum
sínum áfram, en þeir hafa ekið
rútum á virkjunarsvæðinu.
Leita á náðir Impregilo
Þegar rætt var við Odd í gær
var hann að útbúa bréf sem stíl-
að var á Impregilo, en GT-verk-
takar eru undirverktaki Ítal-
anna. Ætlar Oddur að leita eftir
aðstoð Impregilo við að stöðva
þá ólöglegu starfsemi sem
verkalýðshreyfingin segir fram
fara hjá þessum undirverktaka.
Lettar án atvinnuleyfis enn að störfum við Kárahnjúka
Samiðn skilur ekki
seinagang lögreglu
Morgunblaðið/ÞÖK
Nú er svo komið að yfirtrúnaðarmaður leitar til Impregilo eftir að-
stoð við að stöðva meinta ólöglega starfsemi hjá undirverktaka.
Vinna/4
ÓLAFUR Elíasson lagði á dög-
unum til átta verk á uppboð til
styrktar skólastarfi í Addis
Ababa, höfuðborg Eþíópíu.
Fimmtíu
danskir lista-
menn gerðu
slíkt hið
sama og
söfnuðust
samtals 5,7
milljónir ís-
lenskra
króna. Þar af
fengust 3,6
milljónir króna fyrir verk Ólafs.
Að sögn danska blaðsins
Politiken vakti uppboðið ekki
síst athygli vegna þátttöku
Ólafs enda væri hann með
þekktustu mönnum í hinum al-
þjóðlega listheimi um þessar
mundir.
Það var fyrirtækið Ewiket
Lehibret sem gekkst fyrir upp-
boðinu en það hefur á tíu ára
tímabili fengið átta hundruð
börn og annan eins fjölda full-
orðinna í Addis Ababa til að
hefja skólagöngu.
Peningarnir sem söfnuðust
nú gera það að verkum að fyr-
irtækið getur byggt skóla í Eþí-
ópíu, sem er eitt af fátækustu
löndum Afríku.
Ólafur fer innan skamms til
Eþíópíu til að kynna sér fram-
kvæmdir við skólann, auk þess
sem hann mun taka ljósmyndir
fyrir Unesco í norðurhluta
landsins.
Ólafur
styrkir
skólastarf
í Eþíópíu
MIÐASALA á tónleika rokksöngvarans Roberts
Plant fór stórvel af stað á laugardag. Vel yfir
þrjú þúsund miðar höfðu selst í gær og aðeins
voru nokkur hundruð eftir í stæði. Plant var
söngvari hinnar dáðu bresku rokksveitar Led
Zeppelin en á einnig að baki tuttugu ára sólófer-
il. Að sögn Gríms Atlasonar, annars skipuleggj-
enda tónleikanna, mun Plant syngja lög af öllum
ferli sínum, þ. á m. gamla Led Zeppelin slagara.
Hann mun einnig kynna nýja plötu sína, Mighty
Rearranger, sem dreift verður hérlendis í maí. Í
dag fer fyrsta lagið af plötunni, Shine It All
Around, í spilun á Rás 2, en í því segir Grímur að
sé „gott grúv“. /30
Plant vinsæll
♦♦♦
♦♦♦