Morgunblaðið - 21.03.2005, Side 2

Morgunblaðið - 21.03.2005, Side 2
2 MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LÖGREGLA SEIN TIL Fjórir Lettar, sem verkalýðs- hreyfingin og Vinnumálastofnun hafa bent á að séu ekki með at- vinnuleyfi hér á landi, eru enn að störfum við Kárahnjúkavirkjun. Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, segist langþreyttur á ástandinu og segist ekki skilja í seinaganginum hjá lögreglu. Aukin raforkunotkun Raforkunotkun hér á landi hef- ur aukist mikið síðustu árin, að- allega vegna eflingar orkufreks iðnaðar. Almenn notkun hefur einnig vaxið talsvert en árin 2002 og 2003 dró nokkuð úr þeim vexti. Árið 2004 jókst hann að nýju og hefur vaxið mikið síðan. Spenna í Líbanon Spennan í Líbanon hefur farið vaxandi og jókst enn í gær þegar Walid Jumblatt, einn helsti tals- maður stjórnarandstöðunnar, neit- aði að eiga viðræður við Emile Lahoud, forseta landsins, um ástandið. Er Lahoud hallur undir Sýrlandsstjórn og sat í raun í hennar skjóli. Terje Rød-Larsen, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Líb- anon, kvaðst í gær hafa miklar áhyggjur af ástandinu og óttast nýtt, pólitískt morð í líkingu við morðið á Rafiq Hariri, fyrrverandi forseta. Breytingar á SÞ Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kynnti í gær drög að tillögum um miklar breyt- ingar á samtökunum. Eru þær helstar, að fulltrúum í örygg- isráðinu verði fjölgað úr 15 í 24 og jafnvel, að fastafulltrúunum verði fjölgað en þeir eru nú fimm. Vill hann, að ákveðið verði nákvæm- lega hvenær leyfist að hefja hern- að lögum samkvæmt og hann leggur til, að aðildarríkin komi sér saman um skilgreiningu á hryðju- verkastarfsemi. 10% ónæm fyrir alnæmi Um 10% Evrópumanna eru að hluta eða öllu leyti ónæm fyrir al- næmissmiti. Er það niðurstaða breskra vísindamanna, sem segja ákveðna stökkbreytingu í erfða- efni valda þessu. Telja þeir, að hún hafi fyrst komið fram fyrir 2.500 árum en orðið miklu algeng- ari vegna drepsóttanna á miðöld- um. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 20/24 Fréttaskýring 8 Myndasögur 26 Viðskipti 11 Dagbók 26/28 Vesturland 12 Víkverji 26 Erlent 13 Staður og stund 27 Daglegt líf 14 Leikhús 29 Listir 15 Bíó 30/33 Umræðan 16/17 Ljósvakar 34 Bréf 17 Veður 35 Forystugrein 18 Staksteinar 35 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SPURNINGA- og ræðukeppnir hafa verið áberandi hluti af fé- lagslífi framhaldsskólanema til þessa, en færri hafa fengið að heyra af öllu þjóðlegri uppákomu, Hestaíþróttamóti framhaldsskól- anna, sem haldið var um helgina í Reiðhöllinni í Víðidal. Þar var keppt í fjórgangi, fimmgangi og tölti. Nokkur fjöldi fólks var þar sam- an kominn til að fylgjast með sín- um mönnum. Í gárungaham heyrðist einhver kalla keppnina „Töltu betur“, en aldrei er að vita hvort hún nær jafnmikilli hylli þjóðarinnar og spurningakeppnin sívinsæla. Signý Ásta Guðmundsdóttir, nemi á náttúrufræðibraut Mennta- skólans við Sund, sigraði í tölti og fjórgangi á hryssunni Framtíð frá Árnagerði. Signý Ásta er einn af skipuleggjendum mótsins, en þetta er að sögn Signýjar ellefta árið sem mótið er haldið. „Mótið er hefur stækkað með hverju ári og hestakosturinn hefur styrkst mjög síðan þetta hófst,“ segir Signý, en hátt í 200 manns fylgdust með 60 keppendum frá 19 skólum sem tóku þátt. „Þetta er alveg metþátt- taka og við erum himinlifandi með útkomuna. Það er búið að vera ótrúlega mikið að gera hjá okk- ur.“ Þá sigraði í fimmgangi Rósa Birna Þorvaldsdóttir úr MR á Kjarabót frá Valþjófsdal og Bjarni Bjarnason úr Menntaskólanum á Laugarvatni bar sigur úr býtum í skeiði á Kolbeini frá Þórodds- stöðum. Fjölbrautaskóli Suður- lands vann skólakeppnina. Á mótinu mátti einnig sjá eins konar sendiherra Háskólans á Hólum sem kynnti keppendum starfsemi skólans. Morgunblaðið/Eggert Signý Ásta og Framtíð tóku vel á í tölti og fjórgangi um helgina. „Töltu betur“ í Reiðhöllinni HOLLENSKIR blómaræktendur, PJ Kooij en Szonen, hafa fengið lóð undir 2.400 fermetra gróðurhús á Flúðum. Hyggjast þeir rækta þar eftirsótt stofublóm, Nertera grana- densins, og flytja út til Hollands. Bjarni Jónsson endurskoðandi hefur verið milligöngumaður Hol- lendinganna, sem komu hingað til lands í fyrra og skoðuðu nokkra staði undir þessa ræktun. Um er að ræða gamalt fjölskyldufyrirtæki sem áður hefur starfað hér á landi, var með gróðurhús í Biskupstungum á árun- um 1995 til 1998 og gerði síðan mis- heppnaða tilraun til ræktunar í Keflavík. Bjarni segir að á Flúðum ætli Hol- lendingarnar að nota íslenskt sumar til að líkja eftir hollenskum vetri, og ná þannig að rækta þetta blóm allt árið um kring. Íslensku framleiðsl- unni er sáð í Hollandi í mars og ætl- unin er að flytja plönturnar inn í gámum til frekari ræktunar hér á landi frá júnímánuði og fram í októ- ber eða nóvember. Síðan verða blómin flutt aftur út og segir Bjarni þá hollensku ekki ætla í samkeppni við íslenska starfsbræður sína. Einingar í gróðurhúsið verða fljót- lega fluttar inn frá Hollandi og á allt að verða klárt fyrir sumarið, að sögn Bjarna. Reikna má með að nokkur tímabundin störf skapist vegna þess- arar starfsemi. Hollenskir blómabænd- ur fá lóð á Flúðum OLÍUFÉLÖGIN Esso og Olís fet- uðu í fótspor Skeljungs um helgina og hækkuðu verð á elds- neyti vegna þróunar á heimsmark- aði síðustu daga. Hækkaði Esso einnig verð á Ego-stöðvum sínum. Á sjálfsafgreiðslustöðvum Orkunn- ar, Atlantsolíu og Ób-stöðva var ekki búið að tilkynna hækkun í gær. Stóru olíufélögin hækkuðu bens- ínlítrann um 2,70 krónur og dísil- olíu um 2,50 krónur. Er algengt bensínverð í sjálfsafgreiðslu nú frá 98 krónum til ríflega 100 króna og algengt verð á dísilolíu 47,60 kr. lítrinn. Hjá Orkunni og mörgum stöðv- um Ób kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni enn rúmar 96 krónur í gær og dísilolían 43,60 krónur. Hjá Atlantsolíu var lítrinn á 97,20 krónur og lítri af dísilolíu 44,70 krónur. Stóru olíufélögin hækkuðu bensínið „ÁNAMAÐKAR eru bæði skemmtilegar og gagn- legar lífverur, enda hafa þeir mjög jákvæð áhrif á umhverfið,“ segir Bjarni E. Guðleifsson, plöntulíf- eðlisfræðingur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, en hann flutti erindi er nefndist „Líf og ástarlíf ánamaðka“ á námskeiði á vegum Landbúnaðarhá- skóla Íslands fyrir helgina. Að sögn Bjarna er ástarlíf ánamaðka nokkuð sérkennilegt, sem og æxlun þeirra, en ánamaðkar eru tvíkynja lífverur. „Það þýðir að sumar ána- maðkategundir geta frjóvgað sig sjálfar, en einnig er til í dæminu að ánamaðkar myndi afkvæmi með eins konar klónun eða meyfæðingu án frjóvgunar. Stóru ánamaðkarnir verða hins vegar að skiptast á sæði til að mynda afkvæmi, þ.e. það á sér stað víxlfrjóvgun.“ Aðspurður segir Bjarni ánamaðka að meðaltali makast fjórum til fimm sinnum á ári, en úr hverju egghylki geta allt að tuttugu litlir maðkar skriðið. Ánamaðkar verða yfirleitt ekki nema nokkurra mánaða til tveggja eða þriggja ára gamlir, en hafa í ræktun lifað í allt að tíu ár. Að sögn Bjarna er enn ýmislegt sem fræðimenn vita ekki um ánamaðka, þrátt fyrir rannsóknir á lífverunum. Þannig er það athæfi ánamaðka að koma upp úr moldinni í rigningu, sem er flæk- ingur er leiðir marga þeirra til dauða, enn með öllu óútskýrður. „Ein tilgátan snýr að því að ána- maðkar séu í rigningu hreinlega að nota tækifærið til að veita ævintýraþrá sinni útrás, því ánamaðk- ar óttast þurrk mest af öllu en í rigningu geta þeir skriðið óhræddir upp á yfirborðið.“ Þykja mikið hnossgæti Ánamaðkar eru, að sögn Bjarna, ræktaðir víða um heim, bæði til handa veiðimönnum en einnig til að nýta þá til að brjóta niður búfjáráburð eða önn- ur úrgangsefni í lífrænan áburð. „Einnig hafa ánamaðkar verið ræktaðir til fóðurs, en þeir eru próteinríkir og hafa verið gerðar tilraunir með fóðrun gripa á ánamaðkamjöli bæði vestan- og austanhafs með góðum árangri.“ Bjarni bendir á að ánamaðkar gætu í sjálfu sér einnig hentað til manneldis, en próteininnihald þeirra er meira en í venjulegu kjöti. „Sumir frum- byggjar telja þá til hnossgætis og hafa þeir er- lendis verið étnir hráir, soðnir eða stappaðir.“ Ástarlíf ánamaðka sérkennilegt Fræðimenn vita enn ekki hvers vegna ánamaðk- ar skríða upp á yfirborð jarðar þegar rignir. Sumir telja að um sé að ræða ákveðna ævin- týraþrá og að þeim sé auðveldara að komast upp á yfirborðið þegar jörð er blaut. LÖGREGLAN í Hafnarfirði hand- tók í fyrrinótt tvo menn á þrí- tugsaldri sem voru með í fórum sínum um 60 grömm af ætluðu amfetamíni. Voru þeir stöðvaðir við venjubundið lögreglueftirlit. Eftir yfirheyrslur og húsleit í gær var mönnunum sleppt, en játning þeirra liggur fyrir. Grunur leikur á að mennirnir hafi ætlað að selja efnið. Málið er í rannsókn og eiga mennirnir von á ákæru. Aðfaranótt laugardags komu svo upp þrjú ótengd fíkniefnamál þar sem þrír voru handteknir. Voru þeir allir með amfetamín undir höndum og var samanlagt magn um 16 grömm. Alls voru því um 76 grömm af amfetamíni gerð upptæk hjá lög- reglunni í Hafnarfirði um helgina. Tveir teknir með 60 grömm af amfetamíni ENN er skipum ráðlagt að sigla ekki fyrir Horn nema í björtu, vegna hafíss á svæðinu, sam- kvæmt upplýsingum Veðurstof- unnar. Veðurstofan fékk í gær- morgun tilkynningu frá Litlu-Ávík á Ströndum um að ís væri landfastur frá vestanverðri Reykjaneshyrnu og norðvestur í Veturmýrarnes og þaðan land- leiðina út í Selsker. Aðallega er um að ræða íshrafl eða ísmauk. Óráðlegt að sigla fyrir Horn nema í björtu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.