Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UNG KONA TIL FORYSTU Danskir jafnaðarmenn kusu sér nýjan leiðtoga í gær og varð Helle Thorning-Schmidt, 38 ára gamall þingmaður frá Kaupmannahöfn, fyr- ir valinu. Thorning-Schmidt hét því að sameina flokkinn og berjast af alefli gegn ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen. Býður í farsímaleyfi Björgólfur Thor Björgólfsson hef- ur lagt fram tilboð í samstarfi við pólskt símafyrirtæki í fjórða GSM- símaleyfið í Póllandi og í svonefnt UMTS-leyfi, sem er þriðju kyn- slóðar flutningskerfi. Áfrýjun hafnað Beiðni íslenska ríkisins um að tek- inn verði fyrir bótaþáttur í máli fyrr- verandi sjómanns hjá Mannréttinda- dómstóli Evrópu, hefur verið hafnað af yfirdeild Mannréttinda- dómstólsins. Varar við hreinsunum Donald Rumsfeld, varn- armálaráðherra Bandaríkjanna, fór í óvænta heimsókn til Íraks í gær. Varaði hann væntanlega ríkisstjórn við því að ganga of hart fram í að fjarlægja fyrrverandi liðsmenn Baath-flokks Saddams Husseins úr mikilvægum embættum. Styðja uppbyggingu í Súdan Ríki heims hétu því á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ósló í gær að leggja fram alls 4,5 milljarða dollara, rúmlega 280 milljarða króna, næstu þrjú árin til uppbyggingar í Súdan. Úrskurðaðir í farbann Tveir lettneskir starfsmenn GT verktaka, sem unnið hafa við Kára- hnjúka, hafa verið ákærðir fyrir að starfa hér á landi án atvinnuleyfa. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur úrskurðað mennina í farbann til 29. apríl. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 25/30 Fréttaskýring 8 Minningar 32/34 Viðskipti 13 Dagbók 38/41 Erlent 14/15 Myndasögur 38 Minn staður 16 Víkverji 38 Höfuðborgin 17 Velvakandi 39 Landið 17 Staður og stund 41 Suðurnes 18 Leikhús 42 Akureyri 19 Af listum 48 Daglegt líf 20/23 Bíó 46/49 Menning 24, 42/49 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 Viðhorf 28 Staksteinar 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " #        $         %&' ( )***                         www.safaris.is / Sími 822 0055 FJÓRHJÓLAFERÐIR Í SKORRADAL BORGARNESI AGNES Bragadóttir hefur sótt um launalaust leyfi frá Morgunblaðinu til þess að koma á laggirnar félagi sem mun hafa það að markmiði að bjóða í stóran hlut Símans fyrir hönd almennings. Mikill fjöldi Ís- lendinga hefur heitið því að leggja fé í verkefnið og eru komin loforð upp á um einn milljarð króna frá almenningi. „Hin feikilegu viðbrögð sem ég fékk gerðu það að verkum að ég endurskoðaði hug minn og hef þess vegna sótt um launalaust leyfi frá Morgunblaðinu og mun sinna þessu verkefni og engu öðru þar til útboðsfrestur rennur út 6. maí næstkomandi,“ sagði Agnes í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Hún mun því taka fullan þátt í þessu verkefni í stað þess að koma hugmyndinni af stað eins og hún ætlaði sér áður. Hún sagði að fjöl- margar áskoranir hefðu borist all- staðar að af landinu. Fólk hefði sagt sér að hún bæri ábyrgð á því að hugmyndin væri komin á loft og hún bæri ábyrgð á því að fylgja henni eftir. Orri Vigfússon athafnamaður, sem hefur unnið að því að þessi hugmynd verði að veruleika, segir að hann og Agnes hafi þegar feng- ið á bilinu 6–700 tölvupósta vegna málsins. Hann segir að margir lofi að leggja til fé, gjarnan á bilinu 1– 10 milljónir hver, en einhverjir lofi meiru, 10–30 milljónum. „Ég gæti vel trúað því að það sé í kringum milljarður kominn,“ segir Orri. Líklegt söluverð Símans alls er talið verða í kringum 60 milljarða króna, en enginn einn fjárfestir mun geta keypt meira en 45% hlut í Símanum. Stofnað verður félag Næsta skrefið er að stofna lög- formlegt félag sem hefur það markmið að bjóða í hluta af Sím- anum og segist Orri vonast til þess að það gerist á innan við viku. Þegar það sé komið verði hægt að fara í almennt hlutafjárútboð. Þangað til félagið hefur verið stofnað sé þó gott að fá tölvupósta frá áhugasömum þar sem fram komi nafn, kennitala og símanúm- er, ásamt þeirri upphæð sem við- komandi gæti hugsað sér að fjárfesta fyrir, á netfangið orri- @icy.is. Þegar búið verður að stofna kjölfestufélagið mun því almenn- ingur geta keypt hlut í því félagi, sem verður rekið í 2–3 ár. Svo verði fyrirtækið lagt niður og hlut- hafar í því verði hluthafar í Síman- um. „Þá fá þeir fullan ávinning af þessu frá upphafi. Ég geri ráð fyr- ir því að mesti ávinningurinn komi frá þessum tímapunkti frá því Síminn verður seldur í sumar og fram að því að fyrirtækið verði sett í almenna sölu,“ segir Orri, og bendir á sambærilega reynslu af sölu bankanna. Spurður hvort um áhættusama fjárfestingu verði að ræða segir Orri erfitt fyrir sig að segja til um það eins og standi. „Það er alltaf einhver áhætta, en ég geri ráð fyr- ir því að margir telji þetta litla áhættu og þetta sé mjög arðvæn- legt. En við erum ekki búnir að setja þetta niður skilmerkilega, sem er gert þegar farið er í lög- formlegt hlutafjárútboð.“ Agnes Bragadóttir í leyfi frá störfum til að stýra boði almennings í Símann Loforð hafa þegar borist fyrir um einum milljarði króna Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Agnes Bragadóttir Orri Vigfússon VINNSLUSTÖÐIN í Vestmanna- eyjum er nú að íhuga að láta smíða fyrir sig tvö ný fiskiskip. Þau yrðu 29 metra löng togveiðiskip með mögu- leika á netaveiðum. Endurnýjun þessi byggist á því að breytingar verði gerðar á núverandi mönnun og út- haldi skipanna. Fulltrúar samtaka sjómanna og út- vegsmanna funduðu nú í vikunni með stjórnendum VSV um hugsanlegar breytingar á kjarasamningi sjómanna og útvegsmanna. Niðurstaða liggur ekki fyrir. „Hugmyndin snýst um að beita bátunum meira en gert hefur verið og auka þannig afköst. Þá yrði mönnunin þannig að fastráðinn hópur á bátun- um yrði stækkaður, en hugsanlega færri um borð hverju sinni og alltaf einhverjir í fríi. Á netaveiðum gætum við aftur á móti séð fjölgun í áhöfn en á sama hátt yrði áhöfn tryggt frí þótt skipið reri. Þannig fengju sjómenn- irnir lögbundin frí í hverjum mánuði auk sumarfría, en skipin ekki. Við ætlum að hvíla mennina en ekki stál- ið. Samningar af þessu tagi eru, auk annarra breytinga sem við óskum eft- ir, forsenda þess að skynsamlegt sé að endurnýja skipin,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmda- stjóri VSV. Í samræmi við samninga „Vinnslustöðin kallaði okkur, full- trúa sjómannasamtakanna og útgerð- armanna, á sinn fund til að ræða breytingar á mönnun og úthaldi. Hugmyndir þeirra eru að mestu leyti í samræmi við síðustu kjarasamninga og það er í sjálfu sér bara jákvætt ef allir aðilar málsins geta hagnast á þessum breytingum,“ segir Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. Vinnslustöðin íhugar skipakaup Breytingar á mönnun og úthaldi skipanna forsenda endurnýjunar  Hvíla/B1 MIKIÐ líf er ætíð á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og þeim fjölgar sífellt fuglategundunum sem þangað sækja þegar líður á vorið. Þessir mávar bit- ust ákaft um brauðbita sem vegfarandi hafði hent út í tjörnina. Morgunblaðið/ÞÖK Bitist um bitann FULLTRÚAR ríkja á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ósló hétu í gær að leggja fram næstu þrjú árin alls 4,5 milljarða dollara, rúmlega 280 milljarða króna, til uppbyggingar í sunnan- og norð- anverðu Súdan þar sem borgara- stríð geisaði í 21 ár. Talsmenn SÞ, Alþjóðabankans og súd- anskra stjórnvalda höfðu áður sagt að verja þyrfti minnst 2,6 milljörðum dollara til starfsins. Framlag Íslendinga til upp- byggingarstarfsins verður um 60 milljónir króna. Mun helmingur- inn af því fé fara til starfs á veg- um Íslensku friðargæslunnar í Súdan. Talið er að 1,5 milljónir manna hafi fallið síðustu áratugi í átökunum í Súdan eða vegna þeirra og fjórar milljónir manna flúið heimili sín. Vopnahlé náðist loks í janúar síðastliðnum. Hundruð þúsunda manna hafa að auki týnt lífi í átökum síðustu tvö árin í Darfur-héraði í vest- urhlutanum en þar eru stjórn- völd í Karthoum sögð styðja hópa arabískra vígamanna sem herja á óbreytta borgara úr röð- um blökkumanna. Bandaríkja- menn sögðu ljóst að erfitt yrði fyrir önnur ríki að tryggja að vopnhléið frá því í janúar héldi ef stjórn Súdans og andstæðingar hennar beittu sér ekki einnig fyrir því að stöðva ofbeldið í Darfur. Heita miklu fé til uppbygging- ar í Súdan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.