Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 13

Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu 5,3 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 2,9 milljarða. Úrvals- vísitalan lækkaði um 1,4% og er lokagildi hennar 3933 stig. Af félögum í úrvalsvísitölunni hækkaði gengi bréfa Marels og FL Group mest, eða um 0,4%. Bréf Bakkavarar lækkuðu hins vegar mest, eða um 2,2%. Úrvalsvísitalan lækkar um 1,4% ● MAGNÚS Jónsson, formaður stjórnar Atorku Group hf. verður starfandi stjórnarformaður félagsins frá og með síðastliðnum föstudegi. Magnús mun einbeita sér sér- staklega að útrásarverkefnum fé- lagsins, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Magnús starfandi stjórnarformaður Atorku ● HÁMARKSLÁN Íbúðalánasjóðs hefur verið hækkað um eina milljón króna, úr 14,9 milljónum í 15,9 millj- ónir. Breyting þessi tók gildi í gær. Frá því var greint í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði í gær að félagsmála- ráðherra hefði ákveðið hækkun á há- marksláni Íbúðalánasjóðs og und- irritað reglugerð þar að lútandi. Hámarkslán ÍLS hækk- ar í 15,9 milljónir                       "# $ %&'() "&%&'()  %&'() * () + %&'() +  $*$() ,  -$() .'/$ 0*-$() . () 1 -$,  () 2 () 3)4 $'$() 5(4$() 5+4 ) $-() 6 () !  "#$% +$ *,  () 7 %$() 7'$*4() 8*-&$() 1)9$ 4*$() :;(4$() 5,+() 5 )< 5*   ) 5 $* (*) $(() = $$*  *$() >$   *$() ?&*$@59-() & '%  % ( ) " -$() +$  $A 4)4*() 1 $,  () =9$)9$() ( * +% BCAD 5*  $*  *         @    @ @ @ @ @ @   @ @   @  @ @  $) )  $*  * @ @ @ @  @ @ @ @   @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ @ E@ !F @ E@  !F E@!F @ E!F E@ !F E@ !F E !F E@!F E!F @ @ @ E@ !F @ E@!F @ @ @ @ E@ !F @ E@!F @ @ @ @ @ @ @ @ 7$  $* $'$  $ =$ -&* & G .'5                       @ @ @ @ @  @   @ @ @  @ @               @        @                @                >$* $'$/0  "=7H"( $ $ +4 $ $* $'         @ @ @ @ @  @ @ @  @  @ @ "=7@I $  )( $ ( )4  "=7@ 5 $ * 4) )$ $ -&*() &)  "=7@ >) $ )4  )<   "=7@"*-$*$0) ÍSLAND gæti verið meðal 10 bestu landa í heimi þegar kemur að því að stofna fyrirtæki. Tiltölulega auðvelt og ódýrt er að stofna fyrirtæki hér á landi og er kostnaðurinn, mældur í tíma og peningum svipaður því sem gerist á hinum Norðurlöndunum en það er almennt töluvert sársauka- fyllra að stofna fyrirtæki í öðrum löndum OECD. Þetta eru meginnið- urstöður greiningardeildar Alþjóða- bankans en Simeon Djankov, fram- kvæmdastjóri deildarinnar, kynnti þær í gær á hádegisverðarfundi sem haldinn var í samvinnu Verslunar- ráðs, Viðskiptaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins og Alþjóðabankans. Meðal þess sem fram kom hjá Djankov var að það tekur um 5 daga að stofna fyrirtæki á Íslandi, sem er með því allra besta sem gerist í heiminum. Fremst er Ástralía með 2 daga og í Danmörku tekur 4 daga að stofna fyrirtæki. Í Svíþjóð tekur það 16 daga. Meðaltal OECD er 25 dagar og heimsmeðaltal er 49 dagar. Kostnaðurinn við að hefja rekstur sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu á hvern einstakling sagði Djankov vera 4,5% á Íslandi. Hann væri hins vegar lægstur í Dan- mörku, nálgist 0%. Meðaltal OECD er 8% og heimsmeðaltal er 79%. Djankov benti þó á að ýmislegt megi betur fara hér á landi. Til að mynda sé aðgangur fyrirtækja að lánshæfisupplýsingum langt frá því sem best gerist. Stjórnarhættir fyrirtækja Djankov sagði það hafa neikvæð áhrif á mat Alþjóðabankans hversu stutt Ísland væri komið hvað varðar reglugerðir um stjórnarhætti fyrir- tækja. Mikilvægt að setja markviss- ar reglur í þessum efnum. Varðandi gegnsæi fjármálageir- ans gaf Djankov Íslendingum frekar slaka einkunn. Ef löndum er raðað á kvarða á bilinu 0–5 þar sem 5 er best fékk Ísland einkunnina 2. Danmörk og Noregur fengu einkunnina 5 sem bendir til þess að fjármálamarkaðir þar séu mun gegnsærri en á Íslandi. Enn fremur gefa réttindi hins al- menna hlutafjáreigenda hérlendis neikvæða mynd af landinu en á kvarða á bilinu 0–20 fær Ísland 0. Heilt yfir var það þó niðurstaða Djankovs að gott væri að stofna fyr- irtæki hérlendis. Hann sagði grein- ingardeild Alþjóðabankans ekki hafa lokið greiningu sinni á Íslandi en í mati hans var þó að Ísland væri með- al 10 bestu landa heims hvað þetta varðar þótt margt megi betur fara. Auðvelt að stofna fyrirtæki hérlendis SAMANLAGÐUR hagnaður Ís- landsbanka, KB banka og Straums Fjárfestingarbanka verður um 49 milljarðar króna á þessu ári, sam- kvæmt spá greiningardeildar Landsbanka Íslands. Ef spá deild- arinnar gengur eftir verður hagn- aður þessara þriggja banka um 45% hærri á þessu ári en í fyrra, en þá var samanlagður hagnaður þeirra tæplega 34 milljarðar króna. Greiningardeild Landsbankans hefur spáð fyrir um afkomu sextán félaga í Kauphöll Íslands. Gerir deildin ráð fyrir að hagnaður ellefu þeirra aukist milli áranna 2004 og 2005, mælt í íslenskum krónum. Þar af hljóðar spá deildarinnar upp á að hagnaður eins félags tvöfaldist milli ára, en það er Og Vodafone, en félaginu er spáð mestri hlutfalls- legri aukningu hagnaðar. Í krónum talið er KB banka hins vegar spáð mestri hagnaðaraukningu, eða um 10 milljörðum króna. Þá gerir greiningardeild Landsbankans ráð fyrir að það eina af þeim sextán fé- lögum sem tekin voru til skoðunar og skilaði tapi á síðasta ári, SÍF, skili hagnaði á þessu ári, samtals liðlega 500 milljónum króna. Þau fimm félög sem greiningar- deild Landsbankans spáir að skili minni hagnaði á þessu ári en í fyrra, mælt í íslenskum krónum, eru Bakkavör, FL Group, HB Grandi, Landssíminn og Össur. Hafa ber hins vegar í huga að gert er ráð fyr- ir að hagnaður Bakkavarar aukist lítillega í pundum talið, en vegna lækkunar þess gagnvart krónunni frá fyrra ári, er útkoman minni hagnaður í krónum. Mestur hagnaður hjá KB banka Greiningardeild Landsbankans spáir því að KB banki skili mestum hagnaði á þessu ári af þeim sextán félögum sem deildin gerir afkomu- spá fyrir. Spáir deildin því að hagn- aður KB banka verði 25,6 milljarðar króna á árinu, sem er 62% aukning frá fyrra ári. Hagnaður Íslandsbanka mun aukast um 16% milli áranna 2004 og 2005, ef spá greiningardeildar Landsbankans gengur eftir, og verða um 13,3 milljarðar á þessu ári. Straumur Fjárfestingarbanki mun hagnast um liðlega 10 millj- arða í ár og aukast um 27% milli ára samkvæmt spá greiningardeildar Landsbankans. Spá 45% hagnaðar- aukningu banka BAUGUR Group hefur gengið til liðs við fjármálafyrirtækið Barclays Capital í viðræðum um hugsanleg kaup á bresku verslanakeðjunum Somerfield og Kwik Save. Barclays hefur verið í samstarfi við Apax Partners Worldwide og Tchenguiz Group, fyrirtæki fast- eignafjárfestisins Robert Tchenguiz, vegna tilrauna til yfirtöku á breska félaginu Somerfield Plc., sem á verslanakeðjurnar Kwik Save og Somerfield. Baugur hefur nú gengið inn í það samstarf að því er fram kemur í frétt á fréttavef Bloomberg. Tilboði Baugs um yfirtöku á Som- erfield fyrir liðlega einn milljarð punda var hafnað í febrúar síðast- liðnum. Í marsmánuði buðu Tchenguiz, Barclays og Apax Partn- ers Worldwide um 1,1 milljarð punda fyrir félagið. Fjárfestingarfélag bræðranna Ian og Richard Living- stone hefur einnig lýst áhuga á að yf- irtaka Somerfield. Sigurinn vís Í frétt Bloomberg um samstarf Baugs, Barcleys og fleiri segir að viðræður um kaup þessa hóps á Somerfield séu á frumstigi. Samein- aðir búi þessir aðilar yfir umtals- verðri rekstrarreynslu og fjármála- þekkingu og reynslu á sviði þeirra viðskipta sem Somerfield fæst við. Haft er eftir Bryan Roberts, sér- fræðingi hjá Planet Retails í Lond- on, í frétt Bloomberg að þegar tveir sterkustu keppinautarnir ákveði að snúa bökum saman með þessum hætti sé sigurinn væntanlega vís. Segist hann búast við að óformlegt tilboð Baugs, sem hljóðaði upp á 190 pens á hlut, verði væntanlega hækk- að um í kringum tvö pens. Baugur í samstarf um kaup á Somerfield ● BRESKA stjórnin ætlar að lána Rover-verksmiðjunum 6,5 milljónir sterlingspunda, sem svarar til um 750 milljóna íslenskra króna, til að gera fyrirtækinu kleift að greiða laun í þessari viku. AFP-fréttastofan greinir frá þessu. MG Rover hefur farið fram á greiðslustöðvun og þeir, sem falin hefur verið stjórn fyrirtækisins í svip- inn, segja, að án þessa styrks hefði orðið að segja upp 5.300 manns. Gáfu þeir í skyn, að fyrirtækið væri að tapa 20 milljónum punda, 2,3 milljörðum króna, á mánuði. Vandræði Rovers, sem komust í fréttirnar þegar ljóst var orðið að ekkert yrði af samstarfi þess við kín- verskan bílaframleiðanda, koma sér mjög illa fyrir Tony Blair og bresku ríkisstjórnina nú rétt fyrir kosningar. Því telja margir líklegt, að fyrirtækinu verði haldið á floti fram yfir kjördag. Lán til Rovers VERÐTRYGGING gagnast bæði lánveitendum og lántakendum. Þetta er mat Greiningardeildar KB banka. Í nýjustu Efnahagsfréttum, sem er rit deildarinnar, segir að við fyrstu sýn virðist sem verðtrygg- ingin gagnist aðeins lánveitendum en ekki lántakendum, sem sitji uppi með óvissuna. Staðreyndin sé þó sú að verðtrygging gagnist báðum að- ilum. Ástæðan fyrir því að verðtrygg- ing gagnast bæði lánveitendum og lántakendum segir Greiningardeild KB banka að sé sú, að lánveitendur séu fúsir til þess að lána fjármagn út á lægri vöxtum þegar óvissu um verðlagsþróun hefur verið eytt. Þá segir hún að verðtrygging verji fjárfesta fyrir óvæntum verðbólgu- skotum en verðsveiflur verð- tryggðra bréfa séu minni en óverð- tryggðra. Sveiflur í afborgun óverðtryggðra lána á breytilegum vöxtum séu að öllu jöfnu meiri en verðtryggðra á föstum vöxtum. Aukinn markaður Ísland var eitt af fyrstu lönd- unum í heiminum til að taka upp verðtryggingu með útgáfu verð- tryggðra skuldabréfa upp úr sjö- unda áratug síðustu aldar. Segir Greiningardeild KB banka að eig- inleikar verðtryggðra bréfa hafi valdið því að lönd með lága verð- bólgu, líkt og Bandaríkin, Kanada, Svíþjóð og Frakkland, séu nú í auknum mæli að gefa út verðtryggð skuldabréf. Markaðurinn fyrir verð- tryggð skuldabréf hafi stækkað einna mest að umfangi undanfarin 5 til 10 ár. Þannig hafi markaðurinn með verðtryggð ríkisskuldabréf í heiminum vaxið úr um 145 millj- örðum Bandaríkjadollara í 551 milljarð á tímabilinu frá árinu 1997 til loka árs 2003. Verðtrygging hagstæð : J 5KL        ! ! +=5A M"N         ! ! C"C 32N       ! ! .+N :$$      ! ! BCAN M&O8&       ! ! Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.