Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
H
rin
gb
ro
t
BRAUÐBÆR - SÍMI 511 6200 - FAX 511 6201
ODINSVE@ODINSVE.IS - WWW.ODINSVE.IS
SMURT BRAUÐ veisla í hverjum bita
VERULEGUR ágreiningur er með
Bandaríkjastjórn og stjórnvöldum í
Ísrael um það, sem taka á við að
loknum brottflutningi Ísraela frá
Gaza. Kom það berlega fram á
fundi þeirra George W. Bush
Bandaríkjaforseta og Ariels Shar-
ons, forsætisráðherra Ísraels, á
fundi þeirra á búgarði Bush í Texas
í fyrradag.
Ísraelskir fréttaskýrendur og
flestir fjölmiðlanna eru sammála
um, að Sharon hafi ekki farið neina
frægðarför til Bandaríkjanna að
þessu sinni.
Tilgangur hans með 10. fundi sín-
um með Bush hefði fyrst og fremst
verið að sýna fram á hve mikill ein-
hugur væri með þeim en Bush hefði
þá lagt áherslu á, að Bandaríkja-
stjórn myndi ekki sætta sig við út-
þenslu landtökubyggðanna á Vest-
urbakkanum.
Þetta hefði hann endurtekið hvað
eftir annað og jafnvel á frétta-
mannafundi, sem væri mjög óvenju-
legt.
Brottflutningurinn frá Gaza
til að létta af þrýstingi
Fréttaskýrendur segja, að þótt
Sharon hafi sett nafn sitt við Veg-
vísinn, áætlunina um frið í Mið-
Austurlöndum, líti hann ekki á
brottflutninginn frá Gaza sem und-
anfara sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna, heldur vilji hann með hon-
um létta á kröfum um frekari
brottflutning.
„Bandaríkjastjórn er óánægð.
Hún er ekki aðeins andvíg útþenslu
landtökubyggða Ísraela á Vestur-
bakkanum, heldur óttast hún, að
Sharon ætli að láta sitja við brott-
flutninginn frá Gaza og koma síðan
í veg fyrir friðarsamninga við Pal-
estínumenn,“ sagði ísraelski frétta-
skýrandinn Akiva Eldar í dag-
blaðinu Haaretz.
Eldar minnti á, að Dov Weis-
glass, helsti samstarfsmaður Shar-
ons, hefði ýtt við mörgum í Banda-
ríkjunum á síðasta ári þegar hann
sagði í viðtali við Haaretz, að „til-
gangurinn með brottflutningnum
frá Gaza er að binda enda á frið-
arferlið“.
Semjið við Abbas
Orly Azulai, fréttaskýrandi fyrir
blaðið Yediot Aharonot, segir, að
Vegvísirinn hafi komið fram 2003,
þegar Yasser heitinn Arafat var
leiðtogi Palestínumanna, og þá hafi
Sharon samþykkt hann í þeirri trú,
að í raun væri ekki við neinn að
semja. Bush hafi þá verið því sam-
mála en tilraunir Sharons nú til að
ófrægja Mahmoud Abbas, hinn nýja
leiðtoga Palestínumanna, hafi mis-
tekist herfilega.
„Það gekk ekki upp. Bush sagði
Sharon skýrt og skorinort: Ísraelar
hafa nú mann, sem þeir geta rætt
við, og það verða þeir að gera,“ seg-
ir Azulai.
Í Yediot Aharanot segir þó líka,
að Sharon hafi ekki farið algera er-
indisleysu vestur um haf. Til dæmis
hafi Bush ekki gert neina athuga-
semd við þá yfirlýsingu Sharons, að
núverandi landtökubyggðir á Vest-
urbakkanum yrðu áfram ísraelskar.
Vildi ekki gista
á búgarði Bush
Ísraelskir fréttaskýrendur segja,
að það segi kannski hvað mest um
fund þeirra Bush og Sharons og
niðurstöðu hans, að Sharon hafnaði
boði Bush um að gista á búgarð-
inum eina nótt og fór í þess stað á
hótel í 30 km fjarlægð.
„Bush sendi Sharon skýr skila-
boð: Allt hefur sín takmörk og við
höfum fengið nóg. Það er kominn
tími til að borga af skuldinni,“ sagði
dagblaðið Maariv.
Eftir fundinn reyndi Sharon að
gera lítið úr ágreiningnum við
Bandaríkjastjórn en aldrei þessu
vant höfðu Palestínumenn ástæðu
til að fagna. Hrósuðu þeir Bush og
sögðu, að hann skildi, að stækkun
landtökubyggðanna væri tilræði við
hugmyndina um sjálfstætt ríki Pal-
estínumanna.
Bush setur Sharon
stólinn fyrir dyrnar
Tók af öll tvímæli um andstöðu Bandaríkjanna við út-
þenslu landtökubyggða á Vesturbakkanum og vísaði á
bug tilraunum Sharons til að ófrægja Abbas
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
AP
Það er engu líkara en Sharon sé ekki alveg viss um hvort hann á að taka í
höndina á Bush að loknum fréttamannafundi eftir viðræður þeirra á mánu-
dag. Þá tók Bush af skarið um það, að Bandaríkjastjórn væri andvíg stækk-
un landtökubyggða Ísraela á Vesturbakkanum.
’Allt hefur sín takmörkog við höfum fengið nóg.
Það er kominn tími til að
borga af skuldinni.‘
London. AFP. | Charles Kennedy, leiðtogi frjálslyndra
demókrata í Bretlandi, tók sér í gær frí frá kosninga-
baráttunni en í fyrrinótt ól kona hans honum son. Af
sömu ástæðu var ákveðið að bíða með að kynna stefnu-
skrá flokksins.
Kennedy og Sarah kona hans tilkynntu í gær, að
Donald James hefði litið dagsins ljós á St. Thomas-
sjúkrahúsinu í London laust eftir miðnætti í fyrrinótt
og vegið tæpar 12 merkur.
Sagði talsmaður flokksins, að móður og barni heils-
aðist vel en ekki vildi hann neitt um það segja hvort
barnsburðurinn myndi hafa einhver áhrif á gengi
flokksins í kosningunum.
Fjölgar hjá frjálslyndum
Donald litli James .
DEILA Kínverja og Japana magn-
aðist enn í gær þegar Wen Jiabao,
forsætisráðherra Kína, lét þannig um
mælt að Japanir yrði að „gangast við
fortíð sinni“ og viðurkenna að hafa
valdið miklum sársauka með verkum
sínum í síðari heimsstyrjöldinni.
Leiddu Kínverjar hjá sér óskir Jap-
ana um afsökunarbeiðni vegna of-
beldisfullra mótmælaaðgerða í Kína
um helgina er beindust gegn Jap-
önum þar. Deila þessi hefur magnast
stig af stigi frá því að greint var frá
því í síðustu viku að japönsk yfirvöld
hefðu lagt blessun sína yfir texta
námsbóka þar sem heldur er gert lít-
ið úr ódæðisverkum japanskra her-
manna í seinni heimsstyrjöld.
Junichiro Koizumi, forsætisráð-
herra Japans, harmaði á mánudag
árásir gegn japönskum ríkisborg-
urum og eignum Japana í Kína um
helgina og sagði að kínversk yfirvöld
yrðu að tryggja öryggi Japana í Kína.
Sagðist hann vilja eiga viðræður við
Kínverja um málið.
Ættu að íhuga betur framboð
til öryggisráðs SÞ
Wen Jiabao sagði hins vegar í gær
að í forgrunni samskipta Kína og
Japans væri sú staðreynd „að Jap-
anir yrðu að gangast við fortíð sinni“.
Tengdi Wen mál þetta, eftir því sem
fram kom í frétt BBC, við tilraunir
Japana til að tryggja sér fast sæti í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,
sagði að stjórnvöld í Tókýó þyrftu að
hugsa „vel og ítarlega“ um það atriði.
„Aðeins ríki sem ber virðingu fyrir
sögunni, gengst við ábyrgð á fortíð
sinni og ávinnur sér traust íbúa Asíu
og heimsins alls er fært um að taka
að sér aukna ábyrgð á alþjóðavett-
vangi,“ sagði hann.
Segir Japana verða „að
gangast við fortíð sinni“
,
,
'
-
#%*
( %. -
%/ %"'
%0'
%
#%*
.1* %(
+/ -
3+%
2
+ *
#% ?0 $. 4/ - *9 ( $)$*4'
)$
( )* -
)$ -/ )
*( < $*0
$ 8' * *
45678()9:8.$;<.$=$9$
54(9
7$
2&
P0
=
>' (' ( ) 9 $
.$=$9
=
?7@78
(A8$ &
1
9+ B"+2'
%
. $4' $ $*()
'$*
/0
>
#.
C,8'$(2 40
C,I$*$54(98'$-&$
C,DE 2 5*$ ;
)$ $*8'
C, L$&54(9)
C, EB, 2 +4 &*$:4$
C,C8'$7$
C,58'($ $*QR@) 4
C8'$( )0 .
CE 8'$) ''5(($
91
2
. &'
2'F&
*$ $*
5@.
)$ *
)$
4
?
F4'G$
)$ *
)$/
4 $*.&=
;
H. $)-
)$ 4' () 9*$
- &
1 .&$R$($ 9$ $
$ $ ($* 4'
(
!"
BJÖRGUNARMENN í Bangla-
desh unnu í gær að því að losa um
níutíu manns undan rústum níu
hæða byggingar sem hrundi í
fyrradag.
Þeir sögðu hins vegar að tíminn
væri að renna út, raddir fólks sem
vitað væri að lægi fast undir húsa-
rústunum hefðu þagnað og hætta
væri á að margir væru látnir.
Búið var að finna 26 lík í rúst-
unum í gær en um 100 hafði verið
bjargað.
Notuðu björgunarmenn skóflur
og jafnvel berar hendur í leit
sinni að fólki á lífi. Um var að
ræða verksmiðjubyggingu sem
hrundi til grunna vegna ketil-
sprengingar.
Á myndinni sést kona reyna að
hugga systur sína (t.v.) sem missti
eiginmann sinn.
Reuters
Óttast um níutíu
manns í rústunum