Morgunblaðið - 13.04.2005, Side 15

Morgunblaðið - 13.04.2005, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 15 ERLENT                                                    !  "          #   $  $  $   % & '(       ) *                                    ! "  #  $  %     &&&                 Bagdad. AFP. | Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, réð nýjum ráðamönnum í Írak frá því í gær að efna til pólitískra hreinsana þegar þeim hefur tekist að mynda starfhæfa rík- isstjórn í landinu. Þá hvatti hann þá til að tryggja að spilling skyti ekki rótum innan stjórnar þeirra. Vöktu hörð ummæli Rumsfelds nokkra athygli en hann kom óvænt í heimsókn til Íraks í gær og hitti þá m.a. Ibrahim al-Jaafari, nýskipaðan forsætis- ráðherra, og Jalal Talabani, nýkjörinn forseta Íraks. Rumsfeld sagði að ráðamenn í Bagdad yrðu að ná tveimur meginmarkmiðum, að koma á lýðræði í Írak og ráða niðurlögum uppreisnarmanna í land- inu. Sagði Rumsfeld að ráðamenn í Washington óttuðust að nýir ráðamenn – en sjítinn al-Jaafari og Kúrdinn Talabani fara fremst í flokki þeirra – tækju til hendinni og rækju alla yfirmenn írösku öryggissveitanna sem kunna að hafa þjónað undir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. „Allt sem þeir gera í innanríkis- og varnarmálaráðu- neytunum ætti að miðast við að Írakar eru drepnir á hverjum degi, þeir verða því að hafa góðar ástæður fyrir gjörðum sínum,“ sagði Rumsfeld við blaðamenn. Gert var ráð fyrir því að Rumsfeld færi í heim- sókn til borgarinnar Mosul í Norður-Írak. Upp- reisnarmenn stóðu fyrir tveimur sjálfsmorðsárás- um í Mosul í gærmorgun og beindust þær gegn bílalestum Bandaríkjamanna. Fórust fjórir Írakar í árásunum. Pólverjar frá Írak fyrir árslok Rumsfeld vildi ekki nefna neinar dagsetningar í tengslum við hugsanlegt brotthvarf Bandaríkja- hers frá Írak. Jerzy Szmajdzinski, varnarmálaráð- herra Póllands, greindi hins vegar frá því í gær að allir pólskir hermenn yrðu kallaðir frá Írak fyrir árslok. 1.700 pólskir hermenn eru í Írak, var fækk- að um 700 eftir kosningarnar í Írak í janúar, og Pólverjar segja að brotthvarf hersins eigi ekki að koma Bandaríkjamönnum á óvart, um þetta hafi verið rætt fyrir nokkrum mánuðum. Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í óvænta heimsókn til Íraks Varar nýja ráðamenn við pólitískum hreinsunum Reuters Donald Rumsfeld (t.h.) hlýðir á íraska forsætis- ráðherrann, Ibrahim al-Jaafari, í gær. VATNSHÁTÍÐIN svokallaða hófst í Taílandi í gær en hún markar um leið upphaf nýs árs samkvæmt gömlu tímatali þar í landi. Fagna landsmenn þessum tímamótum með ýmsum hætti og til dæmis með því að ausa vatni hver yfir annan. Hér hefur erlendur ferða- maður fengið yfir sig væna vatns- gusu en það er að sjálfsögðu allt í góðu enda er því trúað, að vatnið hafi þann kraft að hreinsa burt alla ólukku.Reuters Nýju ári fagnað í Taílandi París. AFP. | Það bendir allt til þess að Frakkar muni hafna evrópsku stjórn- arskránni en hún verður lögð í dóm þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu 29. maí nk. Ný könnun sýnir að 53% Frakka eru andsnúin stjórnarskránni og er þetta tíunda könnunin í röð þar sem fram kemur að meirihluti Frakka sé mótfallinn samþykkt hennar. Könnunin var gerð fyrir dagblaðið Le Figaro og útvarpsstöðina Europe 1. Virðist andstaða við stjórnarskrána nokkuð stöðug, hefur verið á bilinu 51-55% í könnunum undanfarið. Þetta eru slæm tíðindi fyrir forystumenn ESB, verði stjórnarskráin felld í þjóð- aratkvæðagreiðslu í Frakklandi yrði það mikið áfall fyrir ráðamenn í Brussel. Raunar er talið að það gæti riðið stjórnarskránni að fullu. Ljóst þykir að Jacques Chirac Frakklands- forseti er farinn að hafa verulegar áhyggjur af málinu. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að taka ekki nógu mikinn þátt í baráttu fyrir samþykkt stjórnarskrárinnar en á morgun, fimmtudag, mun hann sitja fyrir svör- um um málefnið í sjónvarpsþætti fyr- ir ungt fólk. Frakkar ekki hrifnir af stjórn- arskrá ESB Berlín. AFP. | Lögreglan í Þýskalandi frelsaði í gær fjórar skólastúlkur, sem maður vopnaður hnífum hafði haldið í gíslingu í nokkrar klukku- stundir. Maðurinn, sem er fimmtugur, ír- anskur hælisleitandi, réðst inn í skólabíl í bænum Ennepetal í Nord- Rhein-Westfalen og er haft eftir vitnum, að hann hafi hrópað upp, að hann krefðist þess af þýskum yfir- völdum að mega fá fjölskyldu sína til sín frá Íran. Að því búnu fór hann með fjórar stúlkur, á aldrinum 11 til 16 ára, inn í nærliggjandi hús. Sat fjölmennt lögreglulið um húsið í nokkurn tíma áður en ráðist var inn í það og gíslarnir frelsaðir. Gíslar frelsaðir Washington. AP. | Fyrrverandi yfir- maður leyniþjónustu bandaríska ut- anríkisráðuneytisins fór í gær hörð- um orðum um John R. Bolton, sem Bandaríkjastjórn vill, að verði næsti sendiherra henn- ar hjá Sameinuðu þjóðunum. Sagði hann, að fram- koma Boltons við samstarfsfólk sitt, einkum þá, sem undir hefðu verið settir, hefði verið til skamm- ar. „Ég hef aldrei kynnst manni eins og Bolton,“ sagði Carl W. Ford jr. þegar hann kom fyrir utanríkismáladeild öldunga- deildarinnar. „Hann misnotar vald sitt gagnvart undirmönnum sínum.“ Ford sagði, að Bolton hefði reynt að fá sérfræðinginn Christian Wester- mann rekinn fyrir að vera ekki sam- mála honum um hættuna, sem Bandaríkjunum stafaði af Kúbu, og fram kom hjá demókratanum Bar- böru Boxer, sem á sæti í utanríkis- málanefndinni, að það væri ekki eina dæmið um framkomu af því tagi. Þrátt fyrir þessa hörðu gagnrýni og þrátt fyrir ýmsar undarlegar yf- irlýsingar Boltons um Sameinuðu þjóðirnar er búist við, að repúblik- anar, sem eru í meirihluta í utanrík- ismálanefndinni, muni staðfesta út- nefningu hans sem sendiherra. Hörð orð um Bolton John Bolton ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.