Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 17

Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 17 MINNSTAÐUR Skagaströnd | Nýr og fullkominn björgunarbátur kom í heimahöfn á Skagaströnd um helgina. Báturinn er í eigu Landsbjargar og Björg- unarbátasjóðs Húnaflóa en stað- settur á Skagaströnd þar sem Björgunarsveitin Strönd hefur um- sjón með honum. Báturinn er reyndar ekki nýr heldur var hann keyptur notaður í Plymouth í Englandi af RNLI björgunarliðinu þar. Kaupverð bátsins var um 14 milljónir króna. Mun Björgunarbátasjóður Húna- flóa greiða helming kaupverðsins og tryggja sér þannig að hann verði staðsettur á Skagaströnd og um leið er Landsbjörg að þétta net stórra og öflugra björgunarbáta kringum landið. Mun nýi báturinn þjónusta Húnaflóa allan og Skaga- fjörð að hluta því næstu bátar Landsbjargar eru staðsettir á Ísa- firði og Siglufirði. Báturinn er búinn tveimur rúm- lega 500 hestafla vélum og getur gengið fast að 20 mílum á klukku- stund. Auk aðalvélanna tveggja er í bátnum ljósavél og öflug dæla. Bát- urinn er vel búinn og í fullkomnu lagi við komuna enda var honum siglt frá Reykjavík til Skagastrand- ar á tuttugu tímum með einu olíu- stoppi á leiðinni. Fleiri tæki munu verða keypt í bátinn á næstunni og er þar um að ræða tæki sem nauð- synleg eru talin um borð í bátum af þessu tagi. Á bátnum verður sex manna áhöfn og mun á næstunni hefjast þjálfun björgunarsveit- armanna í notkun og meðferð báts- ins. Haugabræla fyrir Straumnes Að sögn Ágústs Ómarssonar, sem var skipstjóri í þessari jómfrúrferð bátsins við Ísland, reyndist hann í alla staði hið besta. Sagði Ágúst að þeir hefðu fengið alls konar veður og sjólag á leiðinni þar með talda haugabrælu fyrir Straumnesið en báturinn hefði staðið sig mjög vel. Búið er að velja nafn á bátinn en hann verður þó ekki skírður form- lega fyrr en eftir tvær til þrjár vik- ur þegar búið verður að ganga formlega frá stofnun Björg- unarbátasjóðs Húnaflóa og kjósa honum stjórn. Sveitarfélög og fyrirtæki allt í kringum Húnaflóa hafa stutt Björg- unarbátasjóðinn myndarlega með fjárframlögum auk nokkurra stórra fyrirtækja sem starfa á landsvísu. Nýr björgunarbátur staðsettur á Skagaströnd Stóð sig vel í jóm- frúrferðinni norður Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Kominn heim Björgunarbáturinn við komuna til Skagastrandar. LANDIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ tillögur sem væru til þess fallnar að koma í framkvæmd“. Gunnar Dofri Ólafsson, ungmenn- aráði miðbæjar, flutti tillögu um aukið samstarf Reykjavíkurráðsins og borgarstjórnar. Vildi hann að Reykjavíkurráði yrði falið ráðgef- andi hlutverk í málefnum sem varða ungmenni og að borgarstjórn skuld- bindi sig til að senda slík mál til ráðsins til álitsgjafar, sem síðan færi yfir þau. Benti Gunnar Dofri á að farsælast væri fyrir borgaryf- irvöld að ráðfæra sig við þá sem breytingarnar kæmu við hverju sinni. Erla María Markúsdóttir, ung- mennaráði Austurbæjar/Laug- ardalsráði, flutti m.a. tillögu um að auka bæri trúarbragðakennslu í grunnskólum og að hún hæfist fyrr en raunin er nú. Þá vildi Soffía Kristín Jónsdóttir, ungmennaráði Kjalarness, m.a. bæta og auka að- stöðu fyrir göngufólk sem leggur á Esjuna og fá knattspyrnuvöll á Kjalarnesið. Umferðar- og samgöngumál voru áberandi í tillöguflutningi ungmenn- anna. Brynja B. Halldórsdóttir, Reykjavík | Reykjavíkurráð ung- menna, borgarstjóri og borg- arfulltrúar, funduðu í gær á opnum fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur um til- lögur sem ráðið telur brýnt að borg- aryfirvöld setji í framkvæmd sem fyrst. Fundinn sátu átta fulltrúar úr Reykjavíkurráði á aldrinum, 13–18 ára, jafnmargir borgarfulltrúar og borgarstjóri, sem fyrr segir. Rædd- ar voru þrettán tillögur sem lágu fyrir fundinn en þær eru afrakstur vinnu svonefndra ungmennaráða Reykjavíkurborgar sl. vetur. Fund- urinn í gær var fjórði fundur Reykjavíkurráðsins og borgarfull- trúa í borgarstjórnarsal Ráðhússins, en mörgum af þeim tillögum sem fram hafa komið síðustu ár hefur verið vísað til umfjöllunar í nefndum á vegum borgarinnar, og varð sú einnig raunin í gær, og sumar þeirra hafa síðan komið til framkvæmda. Björk Vilhelmsdóttir, borg- arfulltrúi R-lista, komst þannig að orði að fundir borgarfulltrúa og Reykjavíkurráðsins væru skemmti- legri en hefðbundnir borgarstjórn- arfundir, enda væri þar „fjallað um ungmennaráði Vesturbæjar lagði til að næturakstur strætisvagna yrði tekinn upp aftur, Brynhildur Bolla- dóttir, ungmennaráði Austurbæjar/ Kringluráði, vildi að hætt yrði við þau áform að fella niður leið 6 með nýju strætóleiðakerfi, enda kæmi það niður á nemendum Mennta- skólans v/Hamrahlíð og skjólstæð- ingum Blindrafélagsins, sem yrðu að ganga lengra út á stoppistöð. Magnús Jóel Jónsson, ungmenn- aráði Árbæjar, lagði til að hraða- hindranir yrðu settar upp sem víð- ast í Grafarholti, þá lagði Árný Rut Jónsdóttir, ungmennaráði Breið- holts, til að íþróttir, tónlistarnám og aðrar tómstundir yrðu metin inn í skóla sem valgreinar og Yousef Ingi Tamimi, ungmennaráði Vest- urbæjar, lagði til að kennd yrði skyndihjálp í grunnskólum. Þess má geta að Reykjavíkurráð var stofnað 2002 en í því eiga sæti tveir fulltrúar úr hverju þeirra átta ungmennaráða sem starfa í hverfum borgarinnar en þau tóku til starfa haustið 2001. Sextán ungmenni skipa þannig Reykjavíkurráð á aldr- inum 13–18 ára. Ungmennaráð Reykjavíkurborgar fundar með fulltrúum í borgarstjórn Skyndihjálp, næturakstur og meiri trúfræðsla Morgunblaðið/Árni Sæberg Bekkirnir í borgarstjórnarsal Ráðhússins voru þéttsetnir. Hlýtt á málflutning Borgarstjóri og forseti borgarstjórnar hlýða á Brynju B. Halldórsdóttur, ungmennaráði Vesturbæjar, flytja mál sitt. Hlíðar | Þessa viðbótarbyggingu á lóð Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð stendur til að flytja af lóðinni en framundan eru fram- kvæmdir við stækkun mötuneytis skólans og frágangur á lóð um- hverfis hann. Byggingin hefur verið nýtt undir skrifstofuhúsnæði. Að sögn Ólafs Proppé, rektors Kennaraháskólans, hefur viðbygg- ing við mötuneytið þegar verið boð- in út og eru framkvæmdir að hefj- ast. Ólafur segir húsnæði skólans frá mismunandi tímum og það hafi verið reist fyrir mismunandi teg- undir stofnana. Hugmyndin með stækkun mötuneytisins sé að byggja á milli tveggja húsa og fá þannig nýja miðju innan skólans. Stefnt er að því að framkvæmdum við stækkun mötuneytisins ljúki í ágúst. Þá er einnig áformað að bjóða út seinni hluta lóðaframkvæmda við Kennaraháskólann, á suðurhluta lóðar við svonefndan Hamar, eitt húsa KHÍ. Í því felst frágangur á lóð og að gengið verður frá bíla- stæðum og aðkomuleiðum að hús- inu. Stefnt er að því að fram- kvæmdum ljúki með haustinu, að sögn Ólafs. Morgunblaðið/Golli Tilbúið fyrir flutning Þetta hús hef- ur þjónað sem skrifstofuhúsnæði en verður nú flutt burt af lóðinni. Rýmt fyrir fram- kvæmdum Garðabær | Nýr vefur Garða- bæjar um Urriðaholt hefur verið opnaður á slóðinni www.urridaholt.is. en þar má nálgast ýmsar upplýsingar um byggingarlandið. Eins og fram hefur komið gera skipulagshugmyndir bæjarins ráð fyrir uppbygg- ingu þekkingarsamfélags á Urriðaholti og að starfsemin verði í nánum tengslum við íbúðabyggð, útivistarsvæði og þjónustu. Nýr vefur um Urriðaholt Hafnarfjörður | Vegna fram- kvæmda við Vesturgötu verður einstefna í vestur á hjáleiðinni á Norðurbakka frá 11. apríl til og með 16. maí. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og tæknisviði Hafnarfjarðarbæjar nær einstefnan frá Reykjavík- urvegi að Herjólfsgötu en hjá- leiðin á Norðurbakkanum verður opnuð aftur í báðar átt- ir er endurgerð Vesturgötu verður lokið í júlí. Lokanir á Vesturgötu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.