Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
MUSTAPHA Moussaoui er kokkur
á Café Kulture í Alþjóðahúsinu en
hann er frá Alsír og hefur búið hér á
landi í þrjú ár. Hann lærði til kokks í
Bretlandi og segist elda allra þjóða
rétti á Café Kulture eins og vera ber
í húsi sem kennt er við margar þjóð-
ir. Þegar hann er spurður að því
hvað sé helst einkennandi fyrir mat-
argerð í heimalandi hans, Alsír, seg-
ir hann að í þremur nyrstu löndum
Afríku; Marokkó, Alsír og Túnis, sé
matargerð mjög áþekk. „Í þessum
löndum eru couscous-réttir áberandi
og þeir eru til í óteljandi útfærslum.
Rétt eins og íslensk kjötsúpa er ekki
gerð með sama hætti norður á Ak-
ureyri og hér fyrir sunnan, þó svo að
hún heiti íslensk kjötsúpa í báðum
tilfellum. Couscous-réttur á ein-
hverju ákveðnu svæði í Marokkó er
allt öðru vísi en couscous-réttur á
öðru svæði í Túnis eða Alsír, en allir
heita þeir þó couscous. Í Alsír er kjöt
mikið notað í couscous-rétti og þá
getur það verið lamb, kjúklingur eða
hvaða annað kjöt sem fólk vill hafa.
Kjötið kaupum við alltaf beint af
slátraranum til að tryggja fersk-
leika. Á einu svæði í Marokkó er
fiskur notaður í couscous og þá er
hann veiddur í ákveðinni á og hann
verður að vera karlkyns. Við notum
kjúklingabaunir mikið í couscous-
réttina og einnig höfum við svokall-
aða tangine-rétti sem eru pottréttir
úr kjöti með miklu grænmeti, ólív-
um, gulrótum og fleiru.“
Kryddilmur fyllir húsið
Mustapha segir að í Alsír byrji fólk
alltaf daginn á því að fá sér kaffi með
krossant. „Móðir mín er svo yfirleitt
að elda alveg frá klukkan níu á
morgnana fram á miðjan dag. Þeir
sem vinna úti fara heim í hádeginu
til að borða og fá þá staðgóðan há-
degismat. Við leggjum mikið upp úr
því að allt heimilisfólkið borði sam-
an. Síðan fáum við kaffi og brauð í
MATARKISTAN | Lostæti frá Alsír, Túnis og Marokkó
Í Afríku borða
allir saman
Morgunblaðið/Árni Torfason
Mustapha Moussaoui er frá Alsír og er kokkur á Café Kultura í Alþjóðahúsinu.