Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 32

Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Þegar ég nú minnist Jónasar B. Jónssonar minnist ég manns sem var kallaður og hlýddi kallinu. Köll- un Jónasar var að leiða fólk til mennta og þroska. Störf hans að fræðslumálum eru kunn og viður- kennd, svo og fórnfúst starf hans í þágu skátahreyfingarinnar á Ís- landi. Ellefu ára varð ég svo lán- samur að kynnast góðu skátastarfi, þegar ég gekk í skátafélagið Heið- arbúa í Keflavík. Merki félagsins er varða. Vörður og vitar bera göfugt vitni þeim sem hlóðu og reistu þessi mannvirki. Að varða veginn og lýsa leiðina svo að þeir sem treysta leiðsögn þeirra nái að kom- ast í öruggt var. Undirritaður var svo lánsamur að njóta leiðsagnar Jónasar þegar ég af vanefnum tók að mér að sinna embætti skátahöfð- ingja í sjö ár. Að kosningu lokinni gekk til mín þessi fyrrverandi höfð- ingi, rétti mér vinstri höndina og sagði: „Ef ég get orðið þér að liði er ég viðbúinn.“ Við nánari kynni kom í ljós að Jónas var ekki einungis vörðu- hleðslumaður, hann var viti sem lýsti hátt og vítt og ljómi hans varir meðan Úlfljótsvatn er byggt. Það eru margir sem hvíla í hug- arfylgsni mínu nú þegar ég leiði hugann að fólki sem hefur haft áhrif á lífshlaup mitt. Tveir sitja þó ofarlega, nú á náðartíma uppris- unnar, þeir eru andlegir bræður – enda hafa báðir þjónað æskufólki til visku og þroska og leystu báðir landfestar á sama tíma, þeir Jónas B. Jónsson og Jóhannes Páll II páfi. Ágústínus kirkjufaðir segir svo í hugleiðingum sínum: „Sál mín öðl- ast ekki frið fyrr en ég er lentur í öruggri höfn í borg Guðs.“ Þessir tveir höfðingjar hafa nú siglt förum sínum heilum heim, í höfn á friðarlandi til hins nýja lífs í ljómanum frá hinu eilífa ljósi sem er Kristur. Þeir hvíli í friði. Gunnar Eyjólfsson. Verið í mér, þá verð ég í yður... Sá ber mikinn ávöxt sem er í mér og ég í hon- um. (Jóh. 15.4–5.) Páskar, sem boða upprisu ofar gröf og dauða og lífgun nýs vors fara saman hér á norðurhveli. End- urskapað líf og upprisa eru kveikt af þeirri fórnandi elsku Guðs er birtist og gefst í Jesú Kristi segir trúin, sem honum binst. Það varðar mestu á ævileið um daga og ár að vera farvegur þess kærleiksmáttar og berjast góðu baráttunni gegn öllu sem að lífinu vegur og hlúa að JÓNAS B. JÓNSSON ✝ Jónas BergmannJónsson, fyrrver- andi fræðslustjóri í Reykjavík, fæddist á Torfalæk í Austur- Húnavatnssýslu hinn 8. apríl 1908. Hann lést á Landakotsspít- ala aðfaranótt 1. apr- íl síðastliðins og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 8. apr- íl. því, vexti þess, við- gangi og þroska. Jón- as B. Jónsson fyrrum fræðslustjóri gerði það á langri ævileið sinni svo mjög og vel að ís- lenskt mannlíf og sam- félag ber glögg merki um framsækin viðhorf hans og ávaxtarík störf. Jónas óx úr grasi í norðlenskri sveit í byrjun fyrri aldar og mótaðist af hugsjónum um ræktun lands og lýðs í byr þjóðfrelsis- vona. Og þó svo að hann væri ávallt málsvari fjölþættrar menntunar sem aflgjafa fjölþætts samfélags og mannlífs hefur mennta- og mann- gildismat hans verið líkt því sem vesturheimsskáldið lýsir svo: Þitt er menntað afl og önd eigirðu fram að bjóða hvassan skilning, haga hönd hjartað sanna og góða. (Steph. G. St.) Jónas hafði verið fræðslustjóri í áratugi og séð margar skólabygg- ingar rísa, sem teiknaðar voru sam- kvæmt hugmyndum hans um virkni nemenda og svigrúm til skapandi fræðslu og menntunar, þegar við kynntumst honum á heimili þeirra Guðrúnar Ö. Stephensen á Mel- haga þrjú í Reykjavík sem bekkj- arbræður úr Menntaskóla og vild- arvinir Ögmundar sonar þeirra. Jónas var þá einnig skátahöfðingi Íslands og hafði með framtaki sínu og hvetjandi áhrifum eflt mjög skátahreyfinguna svo sem upp- byggingin á Úlfljótsvatni bar með sér, þar sem skátanámskeið og fræðsla fóru fram auk fjölmennra skátamóta. Guðrún sem er gagn- menntuð í uppeldisfræðum frá Norðurlöndum og Vesturheimi hafði augljóslega ekki aðeins sömu uppeldisviðhorf og hugsjónir og eiginmaður hennar heldur hefur hún haft gefandi áhrif á háleit sjón- ar- og stefnumið hans. Heimili þeirra varð enda dýr- mætt athvarf okkar vinanna á þýð- ingarmiklum og viðkvæmum þroskaárum. Gaman var að vera þar með Ögmundi og kynnast systkinum hans, Jóni Torfa, Ingi- björgu og Birni. En við sóttum þangað ekki aðeins þeirra vegna heldur líka vegna Guðrúnar og Jón- asar sem sýndu okkur fágætan skilning og hlýju. Þau leiðbeindu án þess að minnast á boð og bönn og sefuðu líkt og innri ótta og örygg- isleysi með nærfærinni umhyggju, hvöttu og hrósuðu svo að hikandi augnatillit varð upplitsdjarfara en fyrr. Þau miðluðu næmri lífsvirð- ingu og djúpum lífsskilningi. Þau tóku mark á okkur og virtu þó svo að framkoma okkar væri oft hik- andi og skoðanir reikular og horfðu líkt og fram á veg sem sýnt gæti atgerfismenn ef hlúð væri vel að gáfum og hæfileikum. Heimili þeirra var fagurt og vel búið en þó látlaust og lýsti hógværð og smekk- vísi. Blátt sófasett og píanó í stof- unni og málverk á veggjum m.a. af Snæfellsjökli sýndu það og skápar á skrifstofu með úrvalssafni ís- lenskra og erlendra bókmennta, og vel var borið á borð fyrir okkur í eldhúsinu eða borðstofunni og gætt að hollustu og heilbrigði. Og þegar við kvöddum fylgdu okkur góðar óskir og hvatning. Þótt leiðir góðvina lægju í ýmsar áttir í framhalds- og háskólanámi var komið saman á Melhaganum þegar færi gafst til og farið þangað einnig með áhuga- og áhyggjuefni til að fá uppörvandi viðbrögð og svör. Jónas varpaði oft fram gagn- rýnum spurningum til guðfræði- nemans, sem reyndi meira af vilja en mætti að útskýra lífsleyndar- dóma í trúarlegu ljósi, og rökræður urðu þá oft fjörlegar um tilgang lífs og hinstu rök. Honum var þó aug- ljóslega efst í huga að skerpa dóm- greind og glöggskyggni viðmæl- andans fremur en að þrengja að honum líkt og góður kennari sem nær fram því besta hjá nemanda sínum með sanngjörnum kröfum en jafnframt virðingu og hlýhug. Glettni og gamansemi krydduðu orð hans og athugasemdir svo að vel var við þeim tekið. Jónas var hlýr í viðmóti en einbeittur jafn- framt og festulegur. Hann hafði tígulegt og höfðinglegt yfirbragð, glæsilegur í sjón og raun. Hann var agaður og viljaserkur og vann bar- áttumálum sínum framgang með skýrri framsetningu, lipurð og lagni og laðaði að sér hæfileikaríka samstarfsmenn. Hann vildi að öll börn og unglingar gætu menntast við hæfi og enginn yrði afskiptur, innleiddi sér -og stuðningskennslu, kynnti opinn skóla og vann að mót- un fjölbrautarkerfis á framhalds- skólastigi. Jónas fagnaði mjög samfélags- umskiptum frá örbyrgð til alls- nægta og fjölþættum menntunar- kostum, sem nú byðust uppvaxandi kynslóðum en varaði við rótleysi og þeim áhrifum tækni- og vélmenn- ingar, sem gert gætu menn að viljalitlum verkfærum, sem skorti siðgæði og lífsvirðingu. Fjölskrúð- ug og mikilfengleik náttúra lands- ins væri sú lífsins bók sem þyrfti að lesa og læra af og sækja þangað þrótt og viðmið og gæta að sam- hengi og tilgangi lífsins. Við snark- andi skátaeld og söng var auðvelt að finna, að Lífið er söngur, glaumur, gaman. Gleðin hún býr í fjallsal, en jafnframt var brýnt að skynja það við hjartarætur, að gleði lífs og tilgangur felst í því vera við því bú- inn að liðsinna því og líkna og hlúa að því og rækta það í Guðsvitund og trausti. Ánægjulegt var að geta samfagn- að Jónasi níræðum fyrir nákvæm- lega sjö árum og flutt honum af- mælisbrag. Hann var þakklátur og glaður og enn vökull og víðsýnn í stórum fjölskyldu- og vinahópi. Með drift og dáð hafði hann ræktað vel akurinn sinn. Börnin hans vott- uðu það þó helst af öllu sem hafa látið mjög að sér kveða í mennta- og félagsmálum og yngri afkom- endur, nýju lífssprotarnir grósku- miklu. Það var líka gleðilegt og gef- andi að líta til Jónasar og Guðrúnar, þegar þau höfðu fært sig yfir á Fálkagötu og sjá hve þau hlúðu af miklu ástríki og djúpri virðingu hvort að öðru og þiggja enn blessun af þeim. Við þökkum hana af hjarta og dýrmæta leiðsögn fyrrum og biðjum góðan Guð, sem gefur páska og vor að líkna og lýsa Guðrúnu, börnum þeirra Jónasar og öllum ástvinum og fullkomna líf hans í upprisuljóma. Með lokaer- indum afmælisbragsins lítum við enn til þess sem gafst í ævi Jónasar og sögu og horfum fram í trúarvon og ljósi. Að mega hér á jörðu lifa lengi er lán og blessun ef að vel er gert, en fræjum sá og fagna heill og gengi og finna tilgang lífs er mest um vert Þín sæla reyndist sjálfum þér að gleyma er sóttist eftir bættum lífsins hag því fagra drauma geislar kvölds þér geyma er geta ræst við nýjan sólardag. Loftur Melberg Sigurjónsson, Gunnar Grettisson og Gunnþór Ingason. Föstudaginn 8. apríl sl. voru tveir þekktir heiðursmenn bornir til hinstu hvíldar. Þar voru Jóhann- es Páll páfi í Róm og Jónas B. Jónsson, fyrrverandi fræðslustjóri og skátahöfðingi Íslands. Við Jónas áttum samtímis setu í stjórn Bandalags íslenskra skáta í 14 ár, eða frá 1950 til 1964. Hann var í stjórn Bandalagsins í 21 ár, þar af sem skátahöfðingi í 13 ár. Við Jón- as áttum langt og náið samstarf. Ég var í tíu ár erlendur fulltrúi bandalagsins og þurfti því oft að leggja ýmis erlend mál fyrir skáta- höfðingjann, er ávallt var fljótur að átta sig á málunum og hvernig best væri að standa að þeim. Sérstak- lega kom þetta ljós 1962 er hér var haldinn Norðurlandafundur skáta- höfðingja. Sá fundur tókst með ágætum, en Jónas átti stærstan þátt í undirbúningi hans. Þessi fundur skapaði nána og persónu- lega vináttu og tengsl og fengum við mjög mörg ánægjuleg þakkar- bréf fyrir sérlega góða skipulagn- ingu á fundinum og utan hans, en þar fórum við nýjar leiðir. Við Jón- as höfðum verið á sams konar fundi í Svíþjóð 1959. Hlutur Íslands var góður, Jónas hélt þar vel á málum. Einn árangur fundarins var t.d. sá að hingað komu árið 1961 nokkrir tugir sænskra skáta í hópferð og ferðuðust víða um land vort. Eftir heimkomuna héldu þeir vel saman og höfðu m.a. Íslandskvöld og borð- uðu skyr. Sem skátahöfðingi hélt Jónas góðu sambandi við skátafélögin á landsbyggðinni með heimsóknum til þeirra og styrkti það skátastarf- ið verulega. Sérstaklega er upp- bygging á Úlfljótsvatni það sem stendur upp úr á skátaferli Jónasar B. Dr. Helgi Tómasson, skátahöfð- ingi Íslands 1938–1958, „fann“ Úlf- ljótsvatn 1938 og fór með Jónasi austur og sáu þeir fyrir sér upp- byggingu staðarins til framtíðar fyrir útilífsstarfsemi skátahreyfing- arinnar á Íslandi. Byrjað var á lít- illi skálabyggingu 1942, sem reist var á sex vikum. Nú eru skálarnir 1.200 m². Já, Jónas B. hefur svo sannar- lega, með aðstoð áhugasamra skátaforingja, lyft „Grettistaki“ á Úlfljótsvatni. Jónas B. var góður stjórnandi funda stjórnar Bandalags íslenskra skáta. Hann talaði hægt og yfirveg- að og hélt sig við efnið, var mál- efnalegur á þeim rúmlega 100 stjórnarfundum er við áttum sam- an. Ég vil sérstaklega þakka Jónasi fyrir mikilsverðan stuðning er ég vann að uppbyggingu foringjaskóla skáta, Gilwellskólans, er hefir lík- lega styrkt skátahreyfinguna meira en nokkurt annað mál. Fjölskyldu Jónasar B. Jónssonar sendi ég inni- legar skáta- og samúðarkveðjur. Franch Michelsen. ✝ AðalheiðurKristjánsdóttir fæddist á Mel í Stað- arsveit 4. okt. 1931. Hún lést á heimili sínu í Kópavogi 3. mars 2005. Foreldr- ar hennar voru þau Guðrún Hjörleifs- dóttir, f. 20. júní 1904, d. 12. okt. 1991, og Kristján Er- lendsson, f. 28. apríl 1896, d. 23. ágúst 1973. Þau bjuggu á Mel í Staðarsveit. Aðalheiður var fimmta í röðinni af tólf systkinum. Þau voru, Kristjana, f. 28. júlí 1926, Elín, f. 30. nóv. 1927, Magða- lena, f. 13. nóv. 1928, Theódór, f. 19. mars 1930, d. 4. janúar 1979, Helga og Þórunni. 3) Oddný, f. 16. des. 1953, maki Ólafur B. Guð- mundsson, þau eiga þrjú börn, Kristmund, Aðalheiði og Ídu. 4) Bjarni, f. 1. maí 1955, d. 22. ágúst 2002, maki Jóna Gunnarsdóttir, þau eignuðust þrjú börn, Aðal- heiði, Gunnar og Steinþór. 5) Ófeigur, f. 27. ágúst 1956, maki Linda Garðarsdóttir, þau eiga tvö börn, Marí Lenu og Jónas. 6) Þor- björg, f. 15. sept. 1958, maki Guð- mundur Guðmundsson, þau eiga fjóra syni, Karl Val, Sigurð, Bjarka og Andra. 7) Hlíf, f. 11. sept. 1956, d. 19. ágúst 1997, hún eignaðast soninn Ástþór Óðin. 8) Þór, f. 10. júlí 1963, hann á eina dóttir, Selmu Ósk. Langömmubörn eru nú orðin átta. Aðalheiður og Sigurður hófu búskap í Ólafsvík en þegar Sigurð- ur slasaðist fluttu þau til Hafnar- fjarðar. Er Sigurður lést hóf Að- alheiður vinnu í Hval h.f. og vann þar, þar til á síðasta ári. Frá 1987 bjó Aðalheiður í Kópavogi. Útför Aðalheiðar var gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 15. mars. Gunnar, f. 22. febr. 1933, d. 6. jan. 2000, Matthildur, f. 7. maí 1936, Hjörleifur, f. 16. des. 1937, Erlendur, f. 7. apríl 1939, Stefán, f. 4. sept. 1942, Sigurð- ur, f. 21. mars 1944, og Sólveig, f. 12. des. 1947. Aðalheiður giftist Sigurði Steinþórssyni, f. 16. júlí 1925 í Ólafs- vík. Hann lést 28. sept- ember 1980. Börn þeirra urðu átta og heita: 1) Guðrún, f. 10. maí 1951, maki Kristinn Ver- mundsson, þau eiga þrjá syni, Sig- urð, Birgi og Arnar. 2) Sigurborg, f. 5. ágúst 1952, maki Sigurður Sigurðsson, þau eiga tvö börn, Heiða vinkona mín er látin. Þess- ar fréttir bárust mér ekki fyrr en allnokkru eftir andlát hennar og jarðarför, því ég hafði verið erlendis um hríð. Þar sem mér tókst ekki að sýna henni virðingu mína með því að fylgja henni til grafar vil ég minnast hennar með nokkrum fá- tæklegum línum. Leiðir okkar lágu fyrst saman 1962 í Hafnarfirði þegar hún kom til mín með yngstu börnin sín til að hefja skólagöngu í Öldutúnsskóla. Sigurður maður hennar hafði lent í skelfilegu slysi við löndun í Ólafs- víkurhöfn. Hann lá milli heims og heljar í marga mánuði og þegar hann reis loks úr rekkju var hann öðrum fætinum og annarri hendinni fátækari. Sigurður var harðdugleg- ur sjómaður sem hafði stigið dans- inn við dætur Ægis af miklu harð- fylgi. Þetta var skelfilegt áfall fyrir fjölskylduna því þegar þarna var komið sögu voru börnin sjö. Heiða og Sigurður settust að í litlu húsi á Selvogsgötu í Hafnarfirði og þar vitjaði ég þeirra alloft. Æðruleysi Heiðu við þessar erfiðu aðstæður var aðdáunar vert. Sigurður, þessi kraftmikli maður, var kvalinn á sál og líkama eftir slysið. Alltaf hélt Heiða ró sinni þó að undir niðri væri kvíði og ótti við hvernig allt þetta mundi nú fara. Það var því mikill hamingjudagur í lífi þeirra þegar þau eignuðust bíl. Þá komst Sigurð- ur niður að höfn og gat tekið sjó- menn tali. Það kom í minn hlut að fylla út skattaskýrslur þeirra. Tekjur voru engar umfram það sem skammtað var úr hnefa úr trygg- ingum og til framfærslu. Heiða hafði öll árin eftir slysið hugsað af nær- færni um Sigurð þar til hann and- aðist 1980. Þegar það ár hóf hún störf sem verkakona hjá Hval h.f. Hún vildi ekki vera upp á neinn komin. Þar vann hún þar til kraftar hennar þrutu fyrir nokkru. Hún bar ráðamönnum Hvals h.f. afar vel sög- una og naut þess að fá að vera á góð- um vinnustað. En sorgin hafði ekki yfirgefið Heiðu. Hlín dóttir hennar greindist með krabbamein og háði erfiða baráttu við sjúkdóminn. Heiða var henni stoð og stytta í þeirri bar- áttu sem lauk með andláti Hlínar. Og enn kvaddi sorgin dyra þegar Bjarni sonur hennar lést úr sama sjúkdómi fyrir rúmum tveim árum. Seinni árin eftir lát Sigurðar lágu leiðir okkar Heiðu ekki eins oft sam- an. Aðallega þegar þurfti að fylla út skattaframtöl. En ég fylgdist alltaf með henni og í mínum huga er hún ein af hetjum hversdagslífsins, hún lét aldrei bugast þótt nóttin væri oft dimm. Því hneigi ég mig í djúpri virðingu fyrir henni á kveðjustund. Börnum hennar og ættingjum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Haukur Helgason. AÐALHEIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.