Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Hótelrekstur á landsbyggðinni
Vopnafjarðarhreppur auglýsir rekstur Hótels
Tanga á Vopnafirði til leigu. Unnið er að
gagngerum endurbótum á hótelinu, sem lokið
verður í júní nk. Leitað er eftir aðila, sem er til-
búinn að taka að sér spennandi en jafnframt
krefjandi rekstur hótels á Vopnafirði.
Æskilegt er að umsækjandi hafi rekstrar-
menntun eða reynslu á sviði hótels- og
veitingareksturs.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Steins-
son, sveitarstjóri, á skrifstofu Vopnafjarðar-
hrepps, í síma 473 1300 eða á netfangi
steini@vopnafjardarhreppur.is
Umsóknum skal skila á skrifstofu Vopnafjarðar-
hrepps, Hamrahlíð 15, 690 Vopnafjörður, fyrir
15. apríl nk.
Vopnafjarðarhreppur.
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
í Keflavík
frá 1. maí-31. ágúst
í Túngötu
og Hafnargötu
í Keflavík.
Upplýsingar veitir
umboðsmaður
Morgunblaðsins
í Keflavík,
Elinborg Þorsteinsdóttir
í símum
421 3463 og 820 3463.
Einnig vantar fólk
í sumarafleysingar
víða í Keflavík.
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
í Þingholtin
og Seljahverfi
Upplýsingar
í síma 569 1116
Ræstingastörf
Vantar starfskraft sem fyrst í hálft starf fyrir
hádegi við ræstingar á gistiheimili í miðbæn-
um. Mjög góð laun og góður andi á vinnu-
staðnum. Nánari upplýsingar í síma 861 1836.
Fasteignasala
— sölumenn
Fasteignasala vill ráða tvo vana sölumenn
fasteigna. Óskað er eftir sölumönnum sem
áhuga hafa á að starfa í góðu umhverfi, þar
sem áhersla er lögð á vönduð og góð vinnu-
brögð og góðan starfsanda.
Vinsamlegast skilið umsókn til auglýsinga-
deildar Mbl. eða á box@mbl.is, merktri:
„Fasteignir — 16969.“
Raðauglýsingar 569 1111
Tilkynningar
Aðalskipulag
Svf. Álftaness - breyting
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitar
félagsins Álftaness 1993-2013 auglýsist hér
með samkvæmt 18. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997. Breytingin nær frá mörkum
sveitarfélagsins að Garðabæ, vestur fyrir Brekk-
uhverfi og Breiðumýri, norður að skólasvæði
og Suðurtúni og austur að Norðurnesvegi.
Í tillögunni er gert er ráð fyrir að lega Álftanes-
vegar, Bessastaðavegar, Norðurnesvegar og
Suðurnesvegar á Bessastaðagranda verði
áfram í núverandi vegstæði í stað þess að vera
færð til suðurs. Miðsvæði, íbúðarsvæði og
svæði fyrir verslun og þjónustu norðan við nú-
verandi Suðurnesveg breytist í blandaða land-
notkun miðsvæðis og íbúðarsvæðis. Miðsvæði
sunnan við Suðurnesveg verður skilgreint á
sama hátt. Íbúðarsvæði sunnan Suðurnesvegar
er fært saman í eina heild. Opið svæði til sér-
stakra nota vestan við Breiðumýri stækkar.
Lega stíga breytist og þeir eru skilgreindir sem
aðal-, útivistar- og reiðstígar. Nýtingarhlutfall
á svæðinu breytist auk þess sem nú er gert ráð
fyrir að tilgreint nýtingarhlutfall á lóðum á
svæðinu verði til leiðbeiningar og viðmiðunar.
Skipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrif-
stofu Álftaness á Bjarnastöðum frá kl. 08:00—
16:00 alla virka daga frá 14. apríl til og með
27. maí 2005. Þeim sem telja sig eiga hags-
muna að gæta, er gefinn kostur á að gera
athugasemdir við skipulagstillöguna.
Frestur til að skila inn athugasemdum rennur
út 27. maí 2005.
Athugasemdum skal skilað skriflega á bæjar-
skrifstofu Álftaness á Bjarnastöðum. Þeir, sem
ekki gera athugasemdir við tillöguna innan til-
skilins frests, teljast samþykkir henni.
Gunnar Valur Gíslason,
bæjarstjóri
Sveitarfélagið
Ölfus
Lóðir í Þorlákshöfn
Sveitarfélagið Ölfus gengst fyrir kynningar-
fundi á lóðum undir parhús, raðhús og einbýl-
ishúsum í Þorlákshöfn. Fundurinn er ætlaður
einstaklingum, fyrirtækjum og öðrum, sem
áhuga hafa á verkefninu. Um er að ræða lóðir
í öðrum áfanga Búðahverfis, um 115 íbúðir
samtals.
Kynningarfundurinn verður í Ráðhúskaffi,
Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, föstudaginn
15. apríl kl. 13:00.
Bæjarstjórinn í Ölfusi,
Ólafur Áki Ragnarsson.
Mosfellsbær
Tillaga
að breytingu á deili-
skipulagi með Varmá
frá Reykjalundarvegi að
Húsadal – Lóð Ásgarðs
í Mosfellsbæ
Á fundi bæjarstjórnar þann 16. mars sl. var
samþykkt kynning á tillögu að breytingum
á deiliskipulagi með Varmá frá Reykjalund-
arvegi að Húsadal - Ásgarðs, í samræmi
við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og bygginga-
laga nr. 73/1997.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulag-
inu á landi Ásgarðs, austan við Efra Hvol.
Þar er um að ræða breytingu á lóðarmörk-
um tveggja lóða og byggingarreitum
þeirra svo og breytingu á aðkomuvegi.
Allar breytingar eru innan eignamarka Ás-
garðs.
Deiliskipulag á frístunda-
lóð við Silungatjörn,
þjóðskrárnr. 9000-2190
Á fundi bæjarstjórnar þann 9. mars 2005
var samþykkt tillaga að deiliskipulagi fyrir
frístundarlóð við Silungatjörn, þjóðskránr.
9000-2190.
Skipulagstillagan nær til frístundarlóðar
sem er 2,2 ha að stærð og afmarkast af
Silungatjörn og lóð fyrir frístundahús til
norðurs, opnu óbyggðu svæði til suðurs
og vesturs og lóð fyrir frístundahús til
austurs. Aðkoma er um slóða frá Múla.
Byggingarreitur er í 50 m fjarlægð frá vatn-
inu.
Tillögurnar verða til sýnis í Þjónustuveri
Mosfellsbæjar, að Þverholti 2, fyrstu hæð
frá 13. apríl 2005 til 11. maí 2005.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu
hafa borist skipulags- og byggingarnefnd
Mosfellsbæjar fyrir 26. maí 2005.
Jafnframt má kynna sér tillögunar á heim-
asíðu Mosfellsbæjar www.mos.is undir:
Framkvæmdir.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkir tillögun-
um.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
Félagslíf
Njörður 6005041319 I Lf.
HELGAFELL 6005041319 VI
GLITNIR 6005041319 III
I.O.O.F.181854138
I.O.O.F. 9 1854138½
I.O.O.F. 7 185
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Tilboð/Útboð
Útboð OTR-02
Sigöldustöð
Viðgerð á malbikskápu
Hreinsun og undirbúningur
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í hreinsun
og undirbúning fyrir malbiksviðgerðir á Sig-
öldustíflu, í samræmi við útboðsgögn OTR-02.
Verkið fellst í að hreinsa og undirbúa gallað
yfirborð á efsta hluta malbiksþekju Sigöldu-
stíflu fyrir malbiksviðgerðir.
Verktími er frá byrjun júní næstkomandi og
verklok 15. júlí 2005.
Útboðsgögn verða seld í móttöku Landsvirkj-
unar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og
með fimmtudeginum 14. apríl 2005 á kr. 1.000
fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
innkaupadeild, Háaleitisbraut 68, Reykjavík,
fyrir kl. 14:00 mánudaginn 2. maí 2005, þar sem
þau verða opnuð og lesin upp að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.