Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 38

Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 38
Risaeðlugrín © DARGAUD framhald ... VIÐ HLIÐINA Á ÞEIM LÁTNA FUNDUST MARGAR KÚLUR AF STÆRÐINNI 6,35 SEM LEIÐA OKKUR ÖRUGGLEGA AÐ ORSÖK DAUÐSFALLSINS. ÞAÐ LIGGUR ENGINN VAFI Á ÞVÍ AÐ HANN VAR MYRTUR HEYRÐU STJÓRI JÁ TIL ÞESS AÐ SANNA AÐ ÞETTA HAFI VERIÐ MORÐ ÞARFTU ÞÁ EKKI AÐ FINNA MORÐVOPNIÐ? HEYRÐU NÚ MIG! ÞÚ SEGIR MÉR EKKI HVAÐ ÉG ÞARF EÐA ÞARF EKKI AÐ GERA! ER ÞAÐ SKILIÐ?! FARÐU NÚ OG TEIKNAÐU ÚTLÍNURNAR Á KAUÐA SKAL GERT STJÓRI EINS OG ÉG VAR AÐ SEGJA, ÞÁ ÞURFUM VIÐ AÐ FINNA MORÐVOPNIÐ TIL ÞESS AÐ SANNA AÐ ÞETTA HAFI VERIÐ MORÐ ÞAÐ EINA SEM VIÐ HÖFUM ERU KÚLURNAR ÞANNIG AÐ TIL ÞESS AÐ FINNA MORÐVOPNIÐ ÞURFUM VIÐ AÐ FINNA VOPN SEM GETUR SKOTIÐ KÚLUM AF STÆRÐINNI 6,35. SJÁÐU STÓRI! ER ÞETTA EKKI VEL TEIKNAÐ? NÚNA HEFST RANNSÓKNIN! KOMDU MEÐ PÍPUNA ÞARNA OG STATTU VIÐ KLETTINN Ö... STJÓRI... ERTU VISS UM... Ö... AÐ... ÞETTA... Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes ÍSMOLAR INN Á BUXURNAR ÞÍNAR AAAAHHHH! HA! HA! HA! NÚNA ER GOSIÐ MITT VOLGT SAMKVÆMT BLAÐINU VAR ÞETTA VEGNA STRÍÐSHUNDA ÞEIR SEGJA AÐ HUNDAR HAFI VERIÐ SENDIR TIL VÍETNAM OG ENGINN ÞEIRRA HAFI SNÚIÐ AFTUR HEIM ALLT SEM ÉG VEIT ER AÐ ÉG FÓR Á HUNDABÝLIÐ TIL ÞESS AÐ VERA MEÐ RÆÐU... EINHVER KASTAÐI SKÁL Í MIG... FASTUR Í ÓEYRÐUM, TÝNDUR Í REYKNUM... OG ÞAR VAR HÚN OHH! ROSALEGA LÍTUR ÞÚ GIRNILEGA ÚT Í ÞESSUM KJÓL MARÍA VILDIRÐU EKKI STUNDUM AÐ VIÐ VÆRUM GIFT? VIÐ ERUM GIFT... MEINARÐU GIFT HVORU ÖÐRU? ÉG VERÐ AÐ EIGA ÞIG. VIÐ ÆTTUM AÐ DREPA MAKANA DREPA? ÞÚ ERT SVO KLIKKAÐUR... ÞÚ ERT SVO SÆTUR ÞEGAR ÞÚ TALAR SVONA STUNDUM FINNST MÉR ÉG LÆRA MIKLU MEIRA Á ÞVÍ AÐ VERA HEIMA EN AÐ FARA Í SKÓLANN Dagbók Í dag er miðvikudagur 13. apríl, 103. dagur ársins 2005 Víkverji var á dög-unum á ferðinni í Evrópu og hafði gam- an af. Einna mestur var yndisaukinn af veðrinu enda vorið svo sannarlega komið og sól hátt á lofti. Er komið var út úr flug- stöðinni mætti hlýr andblær hinum fölu Íslendingum sem fækkuðu strax fötum, settu upp sólgler- augun og glenntu and- lit sín og útlimi í átt til sólar. Áttu fæstir þó von á þetta miklum hita, um og yfir 20 stigum, og höfðu hvorki pakkað niður stuttbuxum né sandölum, hvað þá sólvörn. Víkverji hélt í sínu mesta sakleysi að svona hefði veðurfarið verið á meginlandi Evrópu um einhvern tíma en ánægjulegt var að heyra frá heimamönnum að hinir fölu Íslend- ingar hefðu komið með vorið með sér. Voru Evrópubúar þá orðnir þreyttir á látlausri vosbúð og fögn- uðu sólinni álíka mikið og fölbleikir Frónbúarnir. Ekki dró úr ánægjunni með veðrið þegar líða tók á ferðina, ekki síst þegar lygileg símskeyti tóku að ber- ast frá Íslandi um ófærð, óveður og óhöpp í umferðinni, nú í aprílbyrjun. Ekki má skilja Víkverja svo að hann hafi glaðst yfir óförum annarra, síður en svo, heldur varð eigin hamingja yf- irsterkari, hamingja yfir því að geta rifið sig upp úr drunga hvers- dagslífsins og skipt um umhverfi. Farið á vit ævintýranna og upp- lifað annað og hlýrra loftslag en við eigum að venjast dags dag- lega. Mengunin er að vísu meiri í Evrópu en hverjum er ekki sama þegar hann kemst í sólbað? x x x Með Víkverja í för voru „allraflokka kvikindi“ en einhverra hluta vegna var það ungur framsókn- armaður í hópnum sem fyrstur veitti hinum iðjagrænu túnum hollenskra bænda athygli og fór fögrum orðum um búpening og allan aðbúnað. Þeg- ar ungur sjálfstæðismaður blandaði sér svo í umræðuna um fagurt og framandlegt umhverfið fór hún fljót- lega að snúast um ríkisstyrki í land- búnaði og stöðu Íslands í því sam- hengi. Er lífið ekki dásamlegt? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is             Gríndávaldurinn | Sailesh, gríndávaldurinn vinsæli sem sló í gegn hér á landi í fyrra, er á ný kominn til landsins. Hann mun standa fyr0ir fjórum sýningum, vítt og breitt um landið; tveim- ur sýningum á Broadway nk. sunnudag og mánudag, í Vestmannaeyjum 20. apríl og á Akureyri 21. apríl. Hann lætur þó ekki þar við sitja heldur mun hann standa fyrir nokkrum námskeiðum þar sem hann ætlar að hjálpa fólki við að vinna bug á ýmsum meinlegum ávönum og kvillum á borð við reykingar og ofát. Sailesh var ekki fyrr lentur í gær en hann rauk til og svaraði kalli nemenda Borgarholtsskóla, sem ólmir vildu láta dáleiða sig. Og varð þeim sannarlega að ósk sinni. Morgunblaðið/Golli Dáleiddir skóladrengir MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í kærleika sínum ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni. (Ef. 1, 5.–7.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.