Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 45
Skógrækt 2005
Blaðauki með Morgunblaðinu
Sumardaginn fyrsta, 21.apríl, fylgir Morgunblaðinu glæsilegur blaðauki um skógrækt á Íslandi.
Blaðið er fullt af fróðlegu og spennandi efni,
þar á meðal:
Leiðbeiningar um ný-skógrækt • 75 ára afmæli
Skógræktarfélags Íslands • Fróðleiksmolar um
trjárækt • Skógrækt til kolefnisbindingar
Staðreyndir um Alaskaöspina • Formenn nokkurra
skógræktarfélaga segja frá
Auglýsendur, pantið fyrir
klukkan 16 mánudaginn 18. apríl
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105
eða kata@mbl.is
MARÍA er ung, ólétt og örvænting-
arfull. Þegar henni býðst vinna við að
vera burðardýr milli Kólombíu og
Bandaríkjanna grípur hún tækifær-
ið. Hún flytur
heilmörg hylki í
maganum en
áætlunin fer úr
skorðum þegar
hún kemur til
New York.
Þetta er mjög
raunsæ mynd og
sérlega upplýs-
andi um burð-
ardýr og hvernig
ferlið fer ná-
kvæmlega fram.
Sýnt er hvernig
hylkin eru búin
til og þegar aum-
ingja María er að
rembast við að
gleypa þau. Hún
sýnir vel hversu
örvæntingafull
burðardýrin eru
í leit að betra lífi, og gefur þannig
góða tilfinningu fyrir stemningunni í
Suður-Ameríku, þar sem unga fólkið
er til í flest til að þurfa ekki að sjá
fram á eymd í framtíðinni. Á vissan
hátt er myndin líkari leikinni heim-
ildarmynd en kvikmynd, svo raunsæ
er hún. Það fer minna fyrir dramanu
í þeim skilningi að myndin hefur ekki
þessa klassísku byggingu með sterk-
um hápunktum. Maður finnur þó
mikið til með Maríu og hinum burð-
ardýrunum og er stöðug undirliggj-
andi spenna alla myndina í gegn.
Þetta er það sem kallast lítil mynd,
en hún er bæði látlaus og áhrifarík.
Leikararnir eru leikmenn, sem jafn-
vel eykur enn á raunveruleikablæ-
inn. Don Fernando leikur t.d sjálfan
sig í myndinni, mann sem aðstoðar
fólk frá Kólombíu í New York.
Mér finnst nafnið á myndinni mjög
sterkt en þar er vitnar í kaþólskan
sálm og veggspjald myndarinnar
sem einnig hefur kirkjulega skír-
skotun. Því þótt þetta fólk sé allt af
vilja gert að vera kaþólskt og guð-
rækið, þá því miður hafa þau ekki
annarra kosta völ en að brjóta lög og
taka áhættur í leit að betra lífi í ham-
ingju.
Í leit að
betra lífi
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – IFF
Leikstjórn og handrit: Joshua Marston.
Kvikmyndataka: Jim Denault. Aðal-
hlutverk: Catalina Sandino Moreno,
Yenny Paola Vega, Guilied Lopez, John
Álex Toro og Patricia Rae. 101 mín.
BNA/Kólombía 2004.
María (Maria full of Grace)
Catalina Sandino
Moreno var til-
nefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í
Maria Full of
Grace.
Hildur Loftsdóttir
Reuters
FREGNIR
herma að
Mel Gibson
ætli sér að
gera kvik-
mynd um
ævi Jóhann-
esar Páls II
páfa.
Hefur Gib-
son þegar fest lokakafla
myndarinnar á filmu, að því
er bandaríska götublaðið
The New York Post greinir
frá. Þá mun Gibson hafa sent
mannskap til Rómar til að
taka myndir við jarðarför
páfa.
Gibson er strangtrúaður
kaþólikki, og í fyrra frum-
sýndi hann umdeilda mynd,
Píslarsaga Krists, sem skilaði
einhverjum mesta hagnaði
sem um getur í Hollywood.
Vill gera
mynd um
ævi páfa
Fólk | Mel Gibson
TEIKNIMYNDIN Svampur Sveinsson sogaði
upp samkeppnina um helgina og er á toppnum á
lista yfir mest sóttu myndir helgarinnar hérlendis.
Alls hafa um 3.500 manns séð myndina og segist
Christof Wehmeier hjá Sambíóunum vera
„svampakátur“ með aðsóknina.
Aðrar nýjar myndir á lista eru Boogeyman, sem
situr í þriðja sæti með aðsókn uppá 1.700 manns,
og In Good Company er í fimmta sæti með tæp-
lega 1.400 manns. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin á
Íslandi, IIFF 2005, setur líka mark sitt á listann.
Mótorhjóladagbækurnar eru í fjórða sæti en
myndin var opnunarmynd hátíðarinnar. Alls hafa
um 2.200 manns lagt leið sína á þessa vegamynd,
þar af rúmlega 1.400 um helgina. Til viðbótar er á
listanum hátíðarmyndin Der Untergang, sem
fjallar um síðustu daga Hitlers. Hún er í sjöunda
sæti en um þúsund manns sáu hana um helgina.
Kvikmyndir | Svampur Sveinsson sogar upp samkeppnina
!
"
#$
%&'(
)*
%*
+*
,*
-*
.*
/*
0*
1*
)2*
52"B5 $ )$ $*+< $
(0
Teiknimynd á toppnum
Fylgst er með skringilegum ævintýrum neðansjávar á staðnum Bikiníbotni
í teiknimyndinni um Svamp Sveinsson.
Í DAG og annað kvöld mun hljóm-
sveitin Morthana troða upp hér-
lendis. Um er að ræða jaðardjass-
tríó sem leitt er af Íslandsvininum
Andrew D’Angelo en með honum í
sveitinni eru tveir Norðmenn, þeir
Anders Hana gítarleikari og Mort-
en Olsen trommuleikari. Þeir fé-
lagar hafa verið á tónleika-
ferðalagi um Evrópu að
undanförnu og ætla að ljúka því
hér á landi. D’Angelo hefur verið
tíður gestur hér á landi und-
anfarin tíu ár eða svo en Hilmar
Jensson og Skúli Sverrisson eru
vinir hans. Hann segist ánægður
með að vera loksins kominn með
hljómsveit hingað, en mest hefur
hann verið í ýmiss konar sam-
starfsverkefnum. Annars gerir
hann út frá New York og hefur
verið áberandi í hinni mjög svo
fjölskrúðugu jaðardjass- og til-
raunatónlistarsenu þar í borg.
D’Angelo segir að Morthana
hafi orðið til fyrir fjórum árum, en
þá kynntust meðlimir á djasshátíð
í Noregi en Morten og Anders
hafa spilað saman bæði í Stav-
anger og Ósló, í tilraunadjasssen-
unum þar.
Ástæðan fyrir hingaðkomu
sveitarinnar liggur í því að Morten
segist eiga marga íslenska vini
sem hann hefur kynnst í Amst-
erdam á undanförnum árum.
Hann hafi lengi langað til að skoða
landið og því hafi þeir kýlt á það
að enda tónleikaferðalagið hér á
landi.
Nýverið kom þá út samnefnd
plata með sveitinni á vegum
norska fyrirtækisins JazzAway
Records. D’Angelo segir þetta
fyrstu opinberu útgáfu sveitarinnar
en áður hafa komið úr tvær plötur
sem meðlimir framleiddu sjálfir.
D’Angelo hefur í nógu að snúast í
þessari heimsókn. Auk þess að
leika með Morthana mun hann spila
á föstudaginn með Hilmari Jens-
syni í Langholtskirkju auk þess sem
hann tekur þátt í útskriftarverk-
efni Hildar Guðnadóttur (Rúnk) í
Listaháskóla Íslands á laugardag-
inn.
Tónlist | Morthana í 12 tónum og á Pravda
Andrew D’Angelo í heimsókn
Morgunblaðið/Sverrir
Jaðardjasssveitin Morthana. Andrew D’Angelo er í miðið.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Morthana spilar í 12 Tónum í dag
klukkan 17.00 og á Pravda á morg-
un klukkan 22.00. Aðgangur er
ókeypis á hvora tveggju tónleika.