Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 48

Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Vera Drake kl. 5.30 - 8 og 10.30 Maria Full of Grace kl. 6 og 10 b.i. 14 ára Hole in my Heart kl. 8 b.i. 16 ára The Education of Shelby Knox kl. 6 La Sierra kl. 8 Hlaut 2 Golden Globe verðlaun sem besta gamanmynd ársins. Geoffrey Rush sem besti leikari. The Motorcycle Diaries kl. 10 Don´t Move kl. 5.30 og 10.30 b.i. 16 ára Life Aquatic with Steve Zissou kl. 5,45 b.i. 12 ára Life and Death of Peter Sellers kl. 8 og 10.30 Million Dollar Baby kl. 8 b.i. 14 ára en  Frá framleiðendum Tryllimögnuð hrollvekja. Stórkostleg vegamynd sem hefur farið sigurför um heiminn, fengið lof gagnrýnedna og fjölda verðlauna. Penelope cruz ítölsk verðlaunamynd. Penelope Cruz hlaut Evrópsku kvikmyndaverðlaunin fyrir hlutverk sitt í myndinni. OPNUNARMYND IIFF 2005 3 ÓSKARSTILNEFNINGAR Og þið sem hélduð að þetta væri bara einhver draugasaga Magnaður spennutryllir MasterCard korthafar fá 2 fyrir 1 tilboð greiði þeir með kortinu MORGUNBLAÐIÐ fékk nokkra samstarfs- og samferðamenn Rún- ars til að tjá sig um afmælisbarnið á þessum tímamótum. Ester Ásgeirsdóttir [Fyrrverandi bassaleikari Kol- rössu krókríðandi, núverandi bassa- leikari Singa- pore Sling] „Rúnar er yf- irgengilega við- kunnanlegur töffari. Ég man að eftir tónleika með Kolrössu í Reykjavík stóð maður oft úti á götu með bass- ann á bakinu, húkkandi sér aftur far til Keflavíkur. Þá var hann oft að keyra til baka eftir tónleika og ég fékk oft far hjá honum. Það var mjög skemmtilegt að spjalla við hann. Við vorum stundum að vinna í Geim- steini og þá heilsaði hann upp á okk- ur. Hann var alltaf jafn svalur á því og áhugasamur um hvað var að ger- ast hjá krökkunum í Keflavík (hlær). Hann var líka mjög nettur á því ef við fórum fram yfir tímann í hljóð- verinu og svona. Mjög skilnings- ríkur. Einu sinni var ég að vinna í Dubl- in, í hippalegri fatabúð með notuð föt. Ég var á efri hæðinni og þá heyrði ég í honum og Maríu niðri. Þau voru voðalega hrifinn af búðinni og Rúnar gaf mér nýjustu plötuna sína, sem þá var Reykjanesbrautin. Maður er alltaf einhvern veginn vel- kominn og það stafa af honum hlýir straumar. Svo hef ég verið að skoða gamlar upptökur með honum og hann var þvílíkur massatöffari!“ Björgvin Halldórsson [Leiðtogi Brimklóar og félagi Rúnars í Hljómum og Ðe Lónlí Blú Bojs m.a.] „Ég var vart byrjaður í þess- um bransa þeg- ar ég kynntist Rúnari fyrst. Ég var þá í Flens- borg og hafði farið með hlut- verk í einhverju leikritinu þar sem ég notaðist við húfu sem ég fékk hjá bróður mínum – svokallaðan six- pensara. Svo var árshátíð um kvöldið þar sem Hljómar spiluðu og þeir slógu að sjálfsögðu í gegn. Ég hafði tekið húfuna með mér á ballið og Rúnar rekur augun í hana og fer svo að hann kaupir af mér húfuna en Rúnar er mikill hatta- og húfukarl. Næst þegar ég sé þennan sixpensara er Rúnar með hann utan á umslagi fjögurra laga plötu með Hljómum þar sem „Ertu með“ er á meðal laga. Þá varð lítill strákur úr Hafnarfirði dálítið montinn. Rúnar var mér mikil fyrirmynd í Það er kannski ekki tíðindi aðmaður á um sextugt sé ennað rokka, en merkilegt að hann sé enn að bæta sig, að sumt af því sem hann hefur gefið út á síð- ustu árum sé með því besta sem hann hefur sent frá sér. Svo er því háttað með G. Rúnar Júlíusson sem virðist eflast í listsköpuninni með hverju árinu, en þau urðu sextíu í morgun. Liðnir eru fjórir áratugir síðan þeir Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson settu saman hljómsveit til að spila bítmúsíkina sem þeir kynntust í Kananum. Þeir voru að taka þátt í uppreisn, höfnuðu göml- um hetjum og fyrirmyndum og fundu sér nýjar. Rúnar hefur feng- ist við tónlist síðan, samið lög og gefið út plötur, spilað með fjölda hljómsveita, sem sumar voru helstu og vinsælustu hljómsveitir íslenskr- ar rokksögu, og er enn að – í dag kemur út ný plata með Rúnari þar sem hann flytur eigin lög við undir- leik reggísveitarinnar góðu Hjálma. Það er reyndar einn helsti kostur Rúnars Júlíussonar að hann hefur verið ófeiminn að vinna með nánast hverjum sem er. Það sannaðist svo eftirminnilega á plötunni Það þarf fólk eins og þig sem kom út fyrir þremur árum, en á henni fékk hann Fálka úr Keflavík og Gáluna, son sinn, til að útsetja lög hans og spila inn. Sú plata var fyrirtak, sú besta sem Rúnar hafði gert lengi, og eins var platan Trúbrotin 13 sem kom út á síðasta ári afbragð, innileg og eft- irminnileg.    Eins og Rúnar benti á í viðtalifyrir allöngu tilheyrir það æskunni að gefa frat í það sem á undan er komið, að finnast allt það hallærislegt sem gamla settið gerði. Það fór þó svo að þó pönkararnir kynnu lítt að meta það sem kynslóð Rúnars hafði gert var hann ein- hvern veginn utan við þetta. Margir mundu sögurnar af honum þar sem hann var að sveifla sér eftir ljósa- grindum ber að ofan á böllum – mér þótti það svalt þegar foreldrar mín- ir komu heim af balli hneykslaðir yfir hegðuninni á þessum villi- manni. Hann kunni líka vel að meta pönkið, lét þau orð falla eitt sinn að pönkið væri ferskt og frískandi. Geimsteinn er svo sérkapítuli út- af fyrir sig, enda verið starfandi óslitið síðan 1976 og gefið út mikið af tónlist sem aðrir hafa ekki sinnt, ekki viljað taka áhættu á að gefa út. Rúnar hefur aftur á móti gaman af að taka áhættu og telur það ekki eftir sér að spila bara aðeins meira ef útgáfan gengur ekki sem skyldi. Oftar en ekki hittir hann þó nagl- ann á höfuðið, gefur út plötur sem fólk vill heyra, eins og sannast á einni af bestu plötum síðasta árs, reggíplötu Hjálma, sem kom út á síðasta ári og selst hefur vel. Þeir Hjálmapiltar hafa og verið nánast heimagangar hjá Rúnari, tíðir gest- ir í hljóðver Geimsteins sem hann er með heima. Fleiri tónlistarmenn af Suðurnesjum hafa stigið fyrstu skrefin þar, á jarðhæðinni á Skóla- veginum. Rúnar Júlíusson er hr. Rokk, rokkarinn sem ekki eldist og ekki þreytist, í það minnsta ekki fyrr en hjartað hægði aðeins á honum um tíma fyrir nokkrum árum. Rokk- hjartað sló þó af sama krafti og áð- ur og slær enn. Rokkhjartað slær ’Margir mundu sög-urnar af honum þar sem hann var að sveifla sér eftir ljósagrindum ber að ofan á böllum – mér þótti það svalt þegar foreldrar mínir komu heim af balli hneyksl- aðir yfir hegðuninni á þessum villimanni. ‘ AF LISTUM Árni Matthíasson arnim@mbl.is Morgunblaðið/RAX Rúnar Júlíusson fagnar sextugsafmælinu ásamt vinum og meðspilurum í Stapanum í kvöld – hvar annars staðar? Ljósmynd/Ólafur K. Magnússon Myndin er tekin árið 1963, er Hljómar léku á elliheimilinu Grund.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.