Morgunblaðið - 06.05.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 121. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Girnileg
matarkista
Sumarsalat í sól og
blíðu | Daglegt líf
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Skódinn orðinn 100 ára Vinnubíll sem ríkið gerði að fólks-
bíl Sígildar sjálfrennireiðar sýndar í sumar Íþróttir | KR-ingar
unnu deildarbikarinn Birgir Leifur á einu höggi yfir pari
FYRIR dyrum stendur að einka-
væða litháska ríkisflugfélagið,
Lithuanian Airlines. Þegar tilboðs-
frestur einka-
væðingarnefndar
Litháens rann út
kl. 10.00 í gær-
morgun höfðu
nefndinni borist
fjögur tilboð í
flugfélagið; þrjú
frá litháskum
fjárfestum og
eitt frá Eignar-
haldsfélaginu
Feng, félagi í eigu þeirra Pálma
Haraldssonar og Jóhannesar Krist-
inssonar, sem eiga nú þegar eins og
kunnugt er Icelandic Express og
norræna lágfargjaldaflugfélagið
Sterling.
Tilboð þeirra Pálma og Jóhann-
esar hefur verið unnið í samvinnu
og samkvæmt ráðgjöf MP Fjárfest-
ingarbanka.
Pálmi Haraldsson sagði í gær-
kvöldi, þegar Morgunblaðið náði
tali af honum í London, að þetta til-
boð hefði verið í undirbúningi í all-
nokkurn tíma. Lithuanian Airlines
flygi með liðlega 500 þúsund far-
þega á ári og það sem hann og fé-
lagi hans Jóhannes sæju helst í
þessum kaupum, ef af yrði, væri að
hægt yrði að efla sóknarfærin,
bæði hjá Lithuanian Airlines og
Sterling.
„Þetta er auðvitað í beinu fram-
haldi af því sem við höfum sagt áð-
ur. Við erum að halda áfram útrás-
inni í tengslum við kaup okkar á
Sterling og við sjáum þarna öflug
tækifæri. Ég lít þannig á, að þetta
sé í rauninni fyrsta skref okkar af
vonandi mörgum til frekari útrásar
í kjölfar kaupanna á Sterling. Fé-
lagið er með nýlegan og góðan
flugvélakost og við sjáum fyrir okk-
ur ýmsa samlegðar- og samvinnu-
kosti þessara félaga,“ sagði Pálmi.
Niðurstaða fæst í júní
Ómar Sigtryggsson hjá fyrir-
tækjasviði MP Fjárfestingarbanka
sagði í gærkvöldi, þegar Morgun-
blaðið náði tali af honum í Vilnius í
Litháen, að nú myndi einkavæðing-
arnefnd Litháens vega og meta þau
tilboð sem borist hefðu. „Þetta
verður bið í einhverjar vikur og við
eigum ekki von á því að niðurstaða
liggi fyrir fyrr en einhvern tíma í
júnímánuði,“ sagði Ómar. Hann
sagði jafnframt að ekki yrði upp-
lýst, að svo komnu máli, upp á hvað
tilboð Fengs hljóðaði.
Lithuanian Airlines hefur yfir
átta flugvélum að ráða, þar af fimm
Boeing 737-500. Hjá félaginu starfa
nú um 700 manns.
Fengur vill kaupa
Lithuanian Airlines
Pálmi Haraldsson
RANNSÓKNIR, sem gerðar hafa verið í Bretlandi á börnum, sem
standa sig illa í skóla, eru óróleg og einbeitingarlaus, sýna, að
frammistaða þeirra og hegðun stórbatna ef þeim eru gefnar nátt-
úrulegar fitusýrur, blanda af lýsi og næturljóssolíu.
Meira en 120 börn frá sex til tólf ára tóku þátt í rannsókninni og
fékk helmingurinn blöndu af lýsi eða omega-3-fitusýru og omega-6-
fitusýru úr næturljósi, sem er planta af eyrarrósarætt. Hin fengu lyf-
leysu að því er fram kom á fréttavef BBC, breska ríkisútvarpsins.
Eftir þrjá mánuði kom í ljós, að þau börnin, sem fengu náttúrulegu
fitusýrurnar, höfðu bætt sig verulega í náminu og í allri framkomu.
Dregið hafði úr ofvirkni og skammtímaminni var betra. Þá hafði
lestrargeta barnanna batnað og þá ekki síður sjálfsmynd þeirra.
Lýsið betra en lyfin?
London. | Verkamannaflokkurinn
sigrar í þingkosningunum í Bret-
landi samkvæmt þeim tölum sem
lágu fyrir klukkan eitt í nótt að ís-
lenzkum tíma. Þrátt fyrir verulegt
fylgistap frá síðustu kosningum er
sigur Tonys Blairs forsætisráð-
herra sögulegur; aldrei áður hefur
Verkamannaflokkurinn haldið um
stjórnartaumana þrjú kjörtímabil í
röð. Íhaldsflokkurinn bætir við sig
fylgi og þingsætum, en þrátt fyrir
fylgisaukningu Frjálslyndra demó-
krata virðist sem þingmönnum
þeirra fjölgi ekki í samræmi við
það sem þeir vonuðust til.
Samkvæmt útgönguspá sjón-
varpsstöðvanna BBC og ITN, sem
náði til tæplega 20.000 kjósenda,
fær Verkamannaflokkurinn um
37% atkvæða og 356 þingsæti af
646, Íhaldsflokkurinn 33% atkvæða
og 210 þingsæti og Frjálslyndi
demókrataflokkurinn 22% atkvæða
og 54 þingsæti. Samkvæmt þessu
hafa íhaldsmenn aftur bætt við sig
á lokaspretti kosningabaráttunnar,
á kostnað Verkamannaflokksins. Í
kosningunum árið 2001 fékk
Verkamannaflokkurinn 41% at-
kvæða og 412 þingsæti, íhaldsmenn
30% og 166 sæti og Frjálslyndir
18% atkvæða og 52 þingmenn í
Westminster.
Þegar úrslit lágu fyrir í 168 kjör-
dæmum hafði Verkamannaflokkur-
inn unnið 135 sæti, Íhaldsflokkur-
inn 16 og Frjálslyndir 12. Í þessum
kjördæmum hafði Verkamanna-
flokkurinn tapað þingmönnum í
fimm, íhaldsmenn höfðu bætt
þremur við sig og Frjálslyndir ein-
um.
Verkamannaflokkurinn fær sam-
kvæmt spá BBC kl. eitt í nótt 68
þingsæta meirihluta, en hafði 160
sæti umfram stjórnarandstöðuna á
síðasta þingi.
Lítill meirihluti eykur
þrýsting á Blair
Stjórnmálaskýrendur líta al-
mennt svo á að ríkisstjórn Tonys
Blairs muni lenda í vandræðum
verði meirihlutinn minni en 50
sæti. Vinstrivængur flokksins geti
þá stöðvað stjórnarfrumvörp.
Stærð meirihlutans getur líka
haft áhrif á hvenær Blair afhendir
Gordon Brown fjármálaráðherra
stjórnarforystuna. „Ef meirihlut-
inn verður minni en 50 sæti eykst
þrýstingurinn á Blair að segja af
sér,“ sagði Patrick Dunleavy, pró-
fessor í stjórnmálafræði við LSE, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. „Stuðningsmenn Browns
vilja að Blair hætti sumarið 2007,
þegar hann hefur setið í tíu ár.
Hann situr varla lengur en til sum-
ars 2008, en þá slagar forsætisráð-
herratíð hans hátt upp í setu Mar-
grétar Thatcher í embætti.“
Þriðji sigur Blairs
Þingmeirihluti Verkamannaflokksins minnkar verulega Íhaldsflokk-
urinn bætir við sig þingsætum Vinstrimenn geta þvælzt fyrir Blair
AP
Blair og Cherie, kona hans, er þau komu í nótt til að hlýða á úrslit kosninganna í hans kjördæmi.
Eftir Ólaf Þ. Stephensen
olafur@mbl.is
Kjördagur/Miðopna