Morgunblaðið - 06.05.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.05.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 11 FRÉTTIR w w w .s ta si a. is S í m i : 5 6 8 - 1 6 2 6 Stærðir 36-56 2 afsláttur af öllum vörum um helgina %5 INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, hefði helst kosið að þurfa ekki að bjóða Össuri Skarphéðinssyni, for- manni flokksins, byrginn í for- mannskjöri. Þetta kom fram í máli hennar á fundi með stuðnings- mönnum í Borgarleikhúsinu í fyrrakvöld. Hún sagði þó að ekkert annað hefði verið í boði. „Ég vík mér ekki heldur undan því vegna þess að ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að gera breytingar á forystu Samfylkingarinnar. Hún þurfi að fá nýja ásýnd, annað yfirbragð og breiðari skírskotun til að við náum þeim árangri sem að er stefnt.“ Það er margt sem ríkisstjórnin hefði betur látið ógert, sagði Ingi- björg, sem sagði að í meira en ára- tug hafi ríkisstjórnin með atferli sínu sett mikið mark á pólitíska menningu og það yrði ekki auðvelt að vinda ofan af þeim skaða. „Rík- isstjórnin hefur skapað hér sam- félag valdstjórnar og misskipting- ar. Hún hefur klúðrað því tækifæri sem hún hafði til þess að takast á við nauðsynlegar breytingar á vel- ferðarkerfinu, menntakerfinu og atvinnulífinu. Breytingar sem hefðu getað skapað hér þróttmikið samfélag almennra lífsgæða, jöfn- uðar og jafnréttis.“ „Músarholusjónarmið“ Ingibjörg gagnrýndi ríkisstjórn- ina harðlega, og sagði hana ekki hafa sýn í utanríkis- og varna- málum. Í alþjóðamálum ríkti „hei- móttarleg músarholusjónarmið“ þar sem litið væri á alþjóðavæð- inguna sem ógn en ekki tækifæri. „Hún [ríkisstjórnin] er föst í at- vinnustefnu gærdagsins og sér enga aðra kosti en stóriðju sem byggir á stórvirkjunum í stað þess að skjóta stoðum undir fjölbreytta atvinnustarfsemi um land allt.“ Uppgjör að formanns- kjörinu loknu Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, hefur gert op- inberan þann kostnað og tekjur sem framboð hans hefur haft hing- að til, eins og sagt var frá í Morg- unblaðinu í vikunni. Ingibjörg sagði í samtali við Morgunblaðið að hún mundi ekki birta þess konar milliuppgjör, þess gerðist ekki þörf á tveggja mánaða ferli heldur væri fullnægjandi að birta uppgjör að formannskjöri loknu. Ingibjörg Sólrún fundaði með stuðningsmönnum sínum Hefði kosið að bjóða Össuri ekki byrginn Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason Fullt var út úr dyrum á sumargleði sem stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar stóðu fyrir í Borgarleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.