Morgunblaðið - 06.05.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 29
UMRÆÐAN
Ármúla 44, sími 553 2035.
Hafðu það gott!
- Mismunandi stærðir
• Allir hlutar STRESSLESS eru vandlega
hannaðir til að tryggja þér
hámarksþægindi
• Sjálfvirk hnakkapúðastilling
• Sérstakur mjóbaksstuðningur
• Þyngdarstýring
• Sterk fjaðrandi stálgrind
• Kaldsteyptur svampur
• Úrvals nautaleður - yfir 50 litir
• Öflug viðargrind - fæst í 6 litum
• Borð fyrir fartölvur
• Sjálfvirk hnakkapúðastilling
veitir bestu mögulegu þægindi
- þú velur þína stærð
Sjálfvirk hnakkapúðastilling
veitir bestu möguleg þægindi
®
Sérstakur hæðarstillanlegur
hnakkapúði
360° snúningur
með fullkomnum
stöðugleika
MIKIL umræða hefur farið fram
síðustu daga um ráðstöfun opinbers
fjár til vegaframkvæmda. Í þessari
umræðu hefur þeirri einföldun verið
beitt að vegir á höfuðborgarsvæðinu
nýtist höfuðborgarbúum og aðrir
landsbyggðarbúum.
Þar sem ég hef stund-
að umfangsmiklar
rannsóknir á land-
fræðilegum ávinningi
samgöngubóta og
hvernig þær kvíslast
um allt landið langar
mig að leggja orð í
belg og draga fram
nýtt sjónarhorn í þess-
ari umræðu.
Þegar ávinningur af
samgöngubót er rak-
inn landfræðilega hef-
ur tveimur aðferðum
aðallega verið beitt. Önnur þeirra
felst í því að skilja á milli ávinnings
á fjárfestingartímabili og rekstr-
artímabili. Hún felst m.a. í því að
rekja til hverra fjármagnið rann í
viðkomandi vegaframkvæmd. Í því
samhengi er mikilvægt hvaðan
verktakarnir koma og starfsmenn
þeirra sem vinna samgöngubótina.
Hin aðferðin sem er algengari
felst í því að kanna hver nýtir við-
komandi samgöngubót. Búseta
þeirra einstaklinga og fyrirtækja
sem nýta sér viðkomandi samgöngu-
bætur er lykillinn í þessu tilfelli.
Ef við tökum Hvalfjarðargöng
sem dæmi, en ég lagði mat á þessa
þætti þar, þá féll sáralítill hluti fjár-
magns vegna fjárfestingarinnar
Vestlendingum í skaut. Þess utan
eru Vestlendingar aðeins 40%
þeirra sem nýta sér göngin. Þess má
geta að höfuðborgarbúar nýta göng-
in mest, bæði í atvinnusókn sinni og
frístundaiðkun. Að sama skapi nýtir
fólk af landsbyggðinni vegakerfið á
höfuðborgarsvæðinu.
Vegakerfi landsins er hluti af
grunngerð þess. Ein meginorsök
fyrir viðvarandi efnahagsstöðnun
margra þriðja heims ríkja er skort-
ur á grunngerð og telja t.d. ýmsir
málsmetandi menn í Þýskalandi, yf-
irburði þess lands felast m.a. í öfl-
ugu samgöngukerfi.
Í framhaldi af þessu má benda á
að ef landið hefur ekki öflugt sam-
göngukerfi þá verða atvinnuvegir
sem fela í sér landnýtingu svipur hjá
sjón. Þar má nefna sjávarútveg,
ferðaþjónustu, orkufrekan iðnað,
ýmsan smáiðnað og landbúnað svo
eitthvað sé nefnt. Flest þessara fyr-
irtækja er erfitt að starfrækja öðru-
vísi en dreift um landið.
Ef samgöngukerfið er vanbúið
gæti sjávarútvegur ekki haslað sér
völl á ferskfiskmörkuðum, okkar
verðmætustu fiskmörkuðum, ef ekki
væri hægt að koma vörunni á sem
stystum tíma í flug svo dæmi sé tek-
ið. Áhrif sem þessi hefðu áhrif á
staðbundinn hagvöxt höfuðborg-
arsvæðisins. Vanbúið samgöngu-
kerfi á landsbyggðinni myndi draga
úr staðbundnum hagvexti á höf-
uðborgarsvæðinu með ýmsum
hætti. Það gerði það með beinum
hætti vegna lakari afkomu fyr-
irtækja á landsbyggð-
inni sem eru í eigu höf-
uðborgarbúa eða sem
höfuðborgarbúar vinna
hjá. Það gerði það með
óbeinum hætti vegna
lakari afkomu fyr-
irtækja sem höf-
uðborgarbúar þjón-
usta. Þetta má taka
saman með því að
segja að með hverri
mínútu sem það er
styttra að aka á milli
einstakra svæða á
landsbyggðinni og höf-
uðborgarsvæðisins stækkar mark-
aður höfuðborgarsvæðisins. Þetta á
einkum við vinnu-, vöru- og þjón-
ustumarkað höfuðborgarsvæðisins.
Því má segja að höfuðborgarbúar
hagnist töluvert á samgöngubótum
utan höfuðborgarsvæðisins og koma
því höfuðborgarbúum við. Lands-
byggðin hagnast líka á samgöngu-
bótum á höfuðborgarsvæðinu. Ef
menn vilja gera það upp hversu
mikið kom í hlut hvers svæðis þarf
að rekja það með fyrrgreindum
hætti, það er nefnilega ekki nóg að
finna staðsetningu vegabótarinnar.
Af þessum sökum finnst mér
þessi umræða um landfræðilega
ráðstöfun opinbers fjármagns á
þessum nótum of afmörkuð. Hún er
líka of afmörkuð vegna þess að hún
snýst um einn málaflokk hins op-
inbera. Hvers vegna er ekki litið til
þeirra allra og spilin lögð á borðið
eins og undirritaður hefur gert til-
raun til.
Rannsóknina um svæðisbundin
áhrif Hvalfjarðarganganna má finna
í heild sinni á heimasíðu SSV þróun
og ráðgjöf. (http://www.ssv.is)
Vegakerfi einstakra landshluta
snerta lífskjör allra landsmanna
Vífill Karlsson fjallar
um vegaframkvæmdir ’Vanbúið samgöngu-kerfi á landsbyggðinni
myndi draga úr stað-
bundnum hagvexti á
höfuðborgarsvæðinu
með ýmsum hætti. ‘
Vífill Karlsson
Höfundur er dósent við Viðskipta-
háskólann á Bifröst og ráðgjafi hjá
SSV þróun & ráðgjöf.
Fréttir á SMS