Morgunblaðið - 06.05.2005, Page 42

Morgunblaðið - 06.05.2005, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jón Baldur Krist-insson fæddist í Reykjavík 15. júlí 1923. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 28. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ragnhildur Stefáns- dóttir, f. 4.6. 1896, d. 3.3. 1975, og Guð- mundur Kristinn Jónsson, f. 2.3. 1896, d. 29.5. 1964. Systkini Jóns eru Óli Vilhjálm- ur, f. 20.1. 1920, d. 1.3. 1937, Loftur Hlöðver, f. 8.1. 1925, d. 30.12. 1935, Sesselja, f. 2.1. 1928, og Stefán Jóhann, f. 14.5. 1933. Jón kvæntist 8. júní 1946 Hall- dóru Kristínu Björnsdóttur, f. 11.9. 1920. Foreldrar hennar voru Halldóra Kristín Helga- dóttir, f. 20.11. 1888, d. 22.12. 1920, og Björn Guðlaugsson, f. 18.1. 1876, d. 18.2. 1943. Fóstur- foreldrar Halldóru voru Krist- ján Helgason, f. 23.5. 1880, d. 1940, og Ásta Margrét Ólafs- dóttir, f. 9.8. 1878, d. 1962. Börn Jóns og Halldóru eru: 1) Loftur Hlöðver, f. 1.10. 1946, hann á fjögur börn og tvö barnabörn. 2) Kristján Már, f. 2.12. 1948. 3) Ragnhildur, f. 28.4. 1952, gift Kristmundi Árnasyni, þau eiga fimm börn og tíu barnabörn. 4) Ásta Margrét, f. 6.7. 1953, gift Sigurði H. Jónssyni, þau eiga fjögur börn og þrjú barnabörn. 5) Dóra Birna, f. 23.2. 1956, gift Hermanni Waldorff, þau eiga tvo syni. Jón lærði húsa- smíði á árunum 1943–1947 og lauk sveinsprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1948. Sem unglingur vann hann al- menna verka- mannavinnu og var fjögur sumur á síld. Jón og Halldóra áttu fyrstu árin heima í Reykjavík og Kópavogi en 1949 fluttu þau á Selfoss og bjuggu þar til 1964. Þá fluttu þau til Keflavíkur og bjuggu lengst af á Nónvörðu 2. Jón vann við húsasmíðar til ársins 1976, en þá gerðist hann mælingafulltrúi hjá Iðnsveina- félagi Suðurnesja og var þar til ársins 1995. Hann var formaður F.U.F. í Árnessýslu 1950–1953; formað- ur Félags byggingariðnaðar- manna í Árnessýslu 1959–1960; formaður Trésmiðafélags Suð- urnesja 1969–1972; formaður Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum frá stofnun 1971 til 1976. Hann sat í stjórn Fram- sóknarfélags Keflavíkur 1969– 1971, var í stjórn Sálarrann- sóknafélags Suðurnesja í níu ár, þar af formaður í fimm ár. Þá starfaði Jón einnig mikið með eldri borgurum og var far- arstjóri í nokkrum ferða þeirra. Jón Baldur verður jarðsung- inn frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd hjarta síns og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og skarð þeirra verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orðið sem best lýsir þér. (Teri Fernandez.) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Eiginkona og börn. Elsku afi og langafi, þinn tími er liðinn hjá okkur, og ég veit að þú varst tilbúinn að kveðja þennan heim eftir erfið veikindi. En alltaf er erfitt að kveðja. Þú varst alltaf svo hress. Þegar ég og stelpurnar heimsóttum þig fyrir nokkru varstu svo hress og gerðir óspart grín. Það var alltaf svo gott að vera hjá ykkur ömmu á Nónvörðu þar sem maður eyddi mörgum stundum á yngri ár- um. Og seinna langafabörnin sem kíktu í kaffi því alltaf var nú gott að gæða sér á kleinum og jólaköku. Elsku afi, þú varst okkur svo mikils virði. Við þökkum fyrir allar góðu stundirnar og kveðjum með söknuði. Kveðja. Helga, Gunnlaugur, Ragnhildur, Unnur Ósk og Borghildur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Við kveðjum þig með söknuði, elsku afi. Eyrún Jana og Elfa Sif. Jæja, gamli, nú þegar leiðir skilja um sinn koma margar góðar minn- ingar upp í huga okkar bræðra. Þú varst alltaf svo hnyttinn og snöggur í tilsvörum og kunnir vel að meta slíkt hið sama frá öðrum, eins og þegar fjögurra ára snáði sagði við þig: „Afi, gruglaðu þér út,“ þegar þú varst að kveðja okkur fjölskyld- una eftir heimsókn. Þar sem annar okkar var frekar röskur heyrðust oft setningar eins og: „Settu hend- urnar í vasana,“ og „Hvar er lykill- inn að baðherberginu?“ Alltaf voru þessar setningar þó vel meintar þó að mikill fyrirgangur væri í pilti. Þær voru ófáar næturnar sem við gistum hjá ykkur ömmu og þótti það alltaf spennandi, einkum vegna þess að við fengum að horfa lengur á sjónvarpið. Það lýsir þér einstaklega vel, að þegar við bræðurnir tilkynntum að við ætluðum í Lögregluskólann sagðir þú einfaldlega: „Hva, þarf að fara í skóla til að læra það?“ Þú lást aldrei á skoðunum þínum og áttir auðvelt með að gera fólk kjaftstopp og slá það út af laginu í góðum sam- ræðum. Við kveðjum þig með söknuði, en nú ertu frjáls og ekkert sem hamlar þér lengur. Þín verður sárt saknað, ekki aðeins af fjölskyldunni heldur einnig af allmörgum samferðamönn- um sem þú hittir á lífsleiðinni. Þú varst mikil félagsvera og starfaðir í hinum ýmsu félögum. Það er gaman að hitta marga af þínum samferða- mönnum sem enn hæla þér í há- stert. Það eru ekki allir sem geta tekið svo gott veganesti með sér á næsta stað, en þetta lýsir þér svo vel, elsku afi. Jón Halldór og Bjarki Freyr. Jón var afi minn í föðurætt. Mér þótti alveg óskaplega vænt um hann, þótt ég kæmi ekki oft í heim- sókn, því hann var í Keflavík og ég svo upptekin í Reykjavík. Ég sakn- aði oft ömmu minnar og afa þar, en eins og ég sagði var ég mjög upp- tekin og þótti mér það mjög leið- inlegt. Afi var mjög góður maður og mér fannst svo afalegt (ef það er eitthvað til sem heitir afalegt) þegar ég sá hann fara á svalirnar og reykja vindil með tengdasonum sín- um og pabba mínum. Ég hreinlega elskaði þegar ég kom til afa og ömmu, þá varð ég að fara út á sval- irnar, og ég elskaði að leika mér þar með frændsystkinum mínum og bróður mínum, Nonna. Það var svo gott að komast til Keflavíkur, til ömmu og afa. Afi minn hafði mikinn áhuga á félagsmálum og skák og kenndi meðal annars pabba mínum, Lofti Hlöðveri Jónssyni, manngang- inn. Svo hafði hann mikinn áhuga á ferðalögum, og gaman fannst þeim hjónum að landafræði. Mér þótti af- skaplega vænt um hann afa minn og ég vona að honum líði vel í himna- ríki. Þín sonardóttir Sigríður Halldóra Loftsdóttir Löve. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Þínar langafastelpur Ásta Sóllilja og Birgitta Rós. JÓN B. KRISTINSSON Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma, HELGA FRIÐRIKA STÍGSDÓTTIR, Hlíf 1, Ísafirði, lést laugardaginn 30. apríl. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 7. maí kl. 14.00. Rannveig Ragúelsdóttir, Amed Hajo, Hallfríður Ragúelsdóttir, Stefán Hagalín Ragúelsson, Berglind Árnadóttir, Jóna R. Ragúelsdóttir, Ciwan Haco og barnabörn. Ástkær sonur minn, faðir okkar, bróðir og mágur JOCHUM MAGNÚSSON lést á Almenna sjúkrahúsinu í Malmö, Svíþjóð, sunnudaginn 1. maí. Júlía Jónsdóttir, Sigríður Karen Jochumsdóttir, Marís Þór Jochumsson, Jóhanna Júlía Jochumsdóttir, Margrét Rósa Jochumsdóttir, Þorvaldur Jakob Jochumsson, Guðrún Þóra Magnúsdóttir, Sigurður Gizurarson, Sigrún Magnúsdóttir, Stefán Brynjólfsson, Valgerður Magnúsdóttir, Sölvi Ragnarsson, Sigurður Friðrik Magnússon, Hafdís H. Bárudóttir, tengdabörn og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, HARALDUR EGGERTSSON rafverktaki, lést sunnudaginn 24. apríl á Dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði. Bálför hans hefur farið fram í kyrrþey. Dóra Haraldsdóttir, Móses G. Geirmundsson, Jónas Haraldsson, Guðný Jónasdóttir, Lilja Mósesdóttir, Ívar Jónsson, Hildur Mósesdóttir, Aðalsteinn Gunnarsson, Ásta Mósesdóttir, Páll Hermannsson, Dögg Mósesdóttir, Valgerður Jónasdóttir, Jónas Þór Jónasson, Kristín Huld Þorvaldsdóttir, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, tengdaföður, afa og langafa, JÖRUNDAR KRISTINSSONAR skipstjór]ai, Foldasmára 11, Kópavogi, Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á krabbameinsdeild 11E, LSH Hringbraut og á líknardeild LSH Kópavogi fyrir mjög góða umönnun og mikinn hlýhug. Auður Waagfjörd Jónsdóttir, Kristinn Jörundsson, Steinunn Helgadóttir, Kristín Bára Jörundsdóttir, Eiríkur Mikkaelsson, Jón Sævar Jörundsson, Rita Sigurgarðsdóttir, Alda Guðrún Jörundsdóttir, Jóhann G. Hlöðversson, Anna Sigríður Jörundsdóttir, Bjarni Kr. Jóhannsson, Jörundur Jörundsson, Áslaug Hreiðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn og bróðir okkar, AÐALSTEINN JANUS SVEINJÓNSSON Sólheimum 25, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut miðvikudaginn 4. maí. Jarðarför tilkynnt síðar. Kolbrún Aðalsteinsdóttir, Brynjar Örn Sveinjónsson, Aníta Rut Harðardóttir, og aðrir aðstandendur. Ég var skírð í höf- uðið á frænku minni og við vorum næstum al- nöfnur, báðar Björns- dætur. Þetta olli stund- um misskilningi þegar amma mín var að kalla á aðra okkar því báðar sinntum við kalli á Önnu. Ég fékk því við- urnefnið„litla“ og vorum við að- greindar þannig, Anna og Anna litla. Við Anna frænka urðum snemma góðar vinkonur. Hún var léttlynd og hafði gaman af okkur systkinunum. Ég man eftir ófáum skiptunum þegar ég var yngri sem við lékum okkur saman með dúkkulísur, spiluðum Svarta-Pétur ANNA SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR ✝ Anna SigríðurBjörnsdóttir fædd- ist á Ytri-Másstöðum í Skíðadal 14. janúar 1919. Hún lést í Hlíð á Akureyri 17. apríl síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Akur- eyrarkirkju 3. maí. eða byggðum okkur spilaborgir. Hún hafði alltaf tíma fyr- ir litlu nöfnu sína og á meðan fjölskylda mín fór að sinna hestum var ég í pössun hjá henni. Þegar ég var yngri lék ég á fiðlu og höfðu þær systurnar Anna frænka og amma mín mjög gaman af því að hlusta á mig spila. Ég man eftir því að einu sinni var Anna frænka að útskýra fyrir mér hvað nafnið okkar þýddi, Anna merkir náð, sagði hún mér. Mér tókst að misheyra það og fannst það skrýt- ið að Anna þýddi nál, þá hlyti ég að verða góð að sauma að minnsta kosti. Saman eigum við margar sæluminningar sem ég geymi í brjósti mér, Guð blessi hana frænku mína. Þorgerður Anna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.