Morgunblaðið - 06.05.2005, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 53
MENNING
– auglýsingar 569 1111
Panta þarf auglýsingar fyrir
kl. 16 miðvikudaginn 11. maí
M verður dreift með laugardagsblaðinu í
60.000 eintökum laugardaginn 14maí
Blaðið er unnið á faglegan hátt þar sem
samspil fallegra mynda og áhugaverðra
uppskrifta opnar auglýsendum nýja leið
að mikilvægum markhópi.
M tímarit um mat og vín
fyrir sælkera á öllum aldri
ÞRÁTT fyrir hálfgerðan dumbung í
hádeginu á miðvikudaginn ríkti vor í
hjörtum fjölmargra áheyrenda á tón-
leikum Bergþórs Pálssonar söngvara
í Hafnarborg. Tónleikarnir báru yf-
irskriftina Vorið kemur að hugga og á
efnisskránni voru lög um vorið eftir
Sigvalda Kaldalóns, Atla Heimi
Sveinsson, Jón Ásgeirsson og fleiri.
Fjölmargar glaðlegar landslags-
myndir á veggjunum juku á nátt-
úrustemninguna, en um þessar
mundir stendur yfir sýning í Hafn-
arborg þar sem líta má Íslands-
myndir danskra og íslenskra mynd-
listarmanna undanfarin 150 ár.
Tvennt gerði tónleikana óvenju-
lega. Í fyrsta lagi man ég ekki eftir
öðrum eins fjölda á hádegistón-
leikum; það var svo troðfullt að allar
tónleikaskrár voru búnar þegar ég
kom rétt fyrir tólf. Í öðru lagi var
Bergþór svo pottþéttur í hlutverki
sínu að maður dáðist að. Söngvarar
kynna oft lögin sem þeir flytja, en
gera það afar misjafnlega. Bergþór
var einfaldlega frábær – enda
skemmtikraftur af guðs náð – og allt
sem hann sagði um lögin var áhuga-
vert. Til dæmis nefndi hann að píanó-
leikarinn, Antonia Havesi, hefði sagt
sér að sér þætti íslenskar vögguvísur
svo ógnandi. Sem er alveg rétt; sum-
ar vögguvísur eru eins og útfar-
arsálmar og engum heilvita manni
dytti í hug að syngja slíka músík fyrir
börnin sín. En Bergþór setti þetta í
sögulegt samhengi; barnadauði var
því miður skelfilega algengur fyrr á
öldum og ekki að ástæðulausu að fólk
óttaðist um börn sín og að það kæmi
fram í vögguvísunum. Þessi mikli
drungi er þó hálfgerð tímaskekkja í
dag (ef ekki klisja) og má segja að það
sé óþarfi af íslenskum nútíma-
tónskáldum að semja Sofðu unga ást-
in mín æ ofan í æ.
Hvað um það, Bergþór söng öll lög-
in afar vel, röddin var fókuseruð, tær
og hrein og túlkunin var ávallt sann-
færandi. Havesi stóð sig líka ágæt-
lega og var mun fágaðri en þegar ég
heyrði hana síðast. Gleðilegt vor!
Morgunblaðið/EyþórAntonía Hevesi og Bergþór Pálsson.
Vorstemning
í Hafnarborg
Jónas Sen
TÓNLIST
Hafnarborg
Bergþór Pálsson og Antonia Havesi
fluttu lög eftir ýmis tónskáld. Miðviku-
dagur 4. maí.
Söngtónleikar
JÓN Páll Eyjólfsson gerir það ekki
endasleppt við okkur. Eftir hina stór-
kostlegu sýningu Stúdentaleikhúss-
ins, Þú veist hvernig þetta er, fer
hann norður og leiðir Leikklúbbinn
Sögu sömu leið í átt að samfélagslegu
ádeiluleikhúsi. Greinilegt er að sama
aðferð hefur verið viðhöfð og útkom-
an er önnur, nútímaleg, fyndin og
flugbeitt pólitísk revía.
Afrek Jóns Páls er stórt. Það er
engin hefð fyrir svona leiksýningum á
Íslandi. Hafi þær einhverntíma tíðk-
ast, sem ég efast um, þá er það fyrir
löngu síðan og öllum gleymt nema
leiklistarsagnfræðingum og engin list
er eins mikið í augnablikinu og þessi.
Það er samtíminn sem verið er að
öskra á, við erum bæði áhorfendur og
viðfangsefni Davíðs Oddssonar –
Súperstar. Það er hin stóra snilldin í
þessum sýningum. Hér er nefnilega
ekki bara kastað ódýr-
um skítabombum að yf-
irvöldum heima og
heiman, heldur kastljós-
inu líka beint að okkur.
„Ég er ekki pólitísk, ég
er bara kjósandi,“ segir
einn leikarinn í sýning-
unni og hinir samsinna
brosandi. Við berum
ábyrgð á ástandinu, við
látum okkur tvískinn-
ung stjórnmálamann-
anna lynda, við tökum
þátt í neysluæðinu,
skuldafylleríinu og
klámvæðingunni. Við
erum meðal viljugra
pyntingameistara í Írak. Á allt þetta
er brugðið leifturljósi í kaldranalegu
Útihúsinu á Akureyri þar sem Leik-
klúbburinn Saga hefur hreiðrað um
sig til að segja sannleikann.
Þetta er fantavelgerð sýning á öll-
um póstum. Þó svo leikhópurinn sé
greinilega ekki hokinn af reynslu skil-
ar hann erindi sínu skýrt og af krafti
sannfæringarinnar. Og þegar atriðin
kalla á innlifaðan tilfinningaleik þá er
hann þarna líka, eins og stúlkurnar í
súludanskeppni
ófrískra sýndu á áhrifa-
ríkan hátt. En þó öllum
sé mikið niðri fyrir er
grunntónninn kóm-
ískur, þetta er jú revía
og hlátrarsköllin voru
mörg og innileg.
Sýningin er full af
snjöllum lausnum og
skýrum hugmyndum.
Atriðið með hinum
óþolandi sjónvarps-
stubbum var bæði
skelfilegt og skelfilega
fyndið og skírn-
arathöfn nýbúa einfalt
en algerlega afhjúp-
andi um landlæga afstöðu til þeirra
sem hingað koma. Svona mætti í
sjálfu sér lengi telja, en nær væri að
hvetja Eyfirðinga og aðra sem eiga
leið um að koma við í Hafnarstrætinu
og hlusta eftir því sem Leikklúbb-
urinn Saga hefur fram að færa. Davíð
Oddsson – Súperstar er afbragðsgóð
sýning og Jón Páll Eyjólfsson er
maður ársins í íslensku leikhúsi.
Þegar við útskrifumst
verður búið að selja allt
Jón Páll Eyjólfsson
LEIKLIST
Leikklúbburinn Saga
Höfundar: Leikstjóri og leikhópurinn.
Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson.
Útihúsinu, Akureyri 1. maí 2005.
Davíð Oddsson – Súperstar
Þorgeir Tryggvason
LISTAHÁTÍÐIN List án landa-
mæra var sett í Iðnó í gær af Þor-
valdi Þorsteinssyni, forseta Banda-
lags íslenskra listamanna.
Dagskrá hátíðarinnar er fjöl-
breytt að vanda og er sérstök
áhersla lögð á samvinnu fatlaðra og
ófatlaðra listamanna. Listahátíðin
fer fram í Reykjavík, Egilsstöðum
og Vestmannaeyjum.
List án landamæra var fyrst
haldin á Evrópuári fatlaðra 2003 og
stóð fram á mitt ár 2004. Á vegum
hátíðarinnar voru tæplega sextíu
viðburðir af fjölbreyttum toga.
Í ár verður hátíðin styttri og
mun hún standa til 13. maí. Að
sögn aðstandenda verður eitthvað
nýtt og spennandi að gerast á
hverjum degi.
Meðal viðburða má nefna:
Félagar í skautafélaginu Birn-
inum sýna skautaatriði við kvik-
myndatónlist og verðlaunahafar frá
Special Olympics sýna listir sínar.
Tónlistarmenn frá Fjölmennt
ásamt Blikandi stjörnum í Salnum.
Ný-ung og fjöldi annarra lista-
manna úr framhaldsskólum lands-
ins sýna stuttmyndir í Háskólabíói.
Perlan og sönghópurinn Blikandi
stjörnur leika og syngja í samvinnu
við atvinnuleikara og dansara.
Myndlistarsýning Guðbjargar
Láru Viðarsdóttur í Hinu húsinu.
Opið verkstæði í Gerðubergi.
Nanna Sigríður Baldursdóttir tekur
á móti gestum.
Aðstandendur Listar án landa-
mæra eru: Átak, félag fólks með
þroskahömlun, Fjölmennt, Sérsveit
Hins hússins og Landssamtökin
Þroskahjálp.
List án
landamæra
hafin
Morgunblaðið/Árni Torfason
Bogomil Font spilaði og söng með M & M-dúettinum við opnunarathöfnina.
VÍKINGAHRINGURINN opnar
formlega Gallerý Galdur og rúnir á
laugardaginn að Síðumúla 10 í
Reykjavík. Þar verður boðið upp á
list og fræðslu sem tengist fornri nor-
rænni menningu. Starfar þar lista-
maðurinn Haukur Halldórsson við
listsköpun sína ásamt því að vera með
sýningarsal.
Í fyrstu verður boðið upp á myndir
unnar af Hauki Halldórssyni. Hér má
sérstaklega nefna verk tengd goða-
fræðinni, ásamt myndum af galdra-
stöfum frá miðöldum og jafnvel frá
eldri tíma. Verk þessi eru unnin með
hágæða litum og ýmist á pappír eða
fínofinn striga (poly/cotton).
Galleríið sérhæfir sig í norrænni
goðafræði og eiga flest verkin upp-
runa sinn að rekja til gömlu sagnanna
og goðafræðinnar.
Opið er alla virka daga frá kl 13-18
og eftir samkomulagi um helgar.
Gallerý Galdur
og rúnir opnað
www.primrun.is