Morgunblaðið - 14.06.2005, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.06.2005, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ N iðurskurður í ræstingum áLSH hefur m.a. valdið því aðerfiðara er að ráða viðákveðnar sýkingar innan spítalans en áður. Stöðugur niður- skurður hefur verið í ræstingum á LSH undanfarin ár til að lækka rekstrarútgjöld. Á sama tíma eykst mikilvægi góðra þrifa og réttra vinnu- bragða þeirra sem við þau starfa. Þótt sýkingavarnir hafi verið bættar þarf engu að síður að auka þrif og ræst- ingar á LSH. Fyrirkomulag húsnæðis spítalans og gamlar byggingar auka á þennan vanda. Mikilvægt er að fá fjármuni til að mæta vandanum við núverandi aðstæður að mati stjórn- arnefndar sjúkrahússins sem fjallaði um málið í vetur. Starfsmönnum í ræstingu hefur fækkað og eru tvær ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi var hluti af ræstingu fluttur í verktakastarfsemi með út- boðum og eru nú um 35% af húsnæði spítalans ræst af verktökum. Í öðru lagi ákvað framkvæmdastjórn að skera niður í ræstingum um 40 millj- ónir króna um áramótin 2003-2004 þegar spítalinn stóð frammi fyrir mik- illi hagræðingarkröfu. Sýkingavarnir eru eitt helsta verk- efni sjúkrahúsa nútímans. Margir þættir hafa áhrif á aukna útbreiðslu þeirra, s.s. húsnæði spítalanna, aldur sjúklinganna og ónæmi örvera fyrir algengustu lyfjunum. Allir á tánum Nokkrir faraldrar vegna sýkinga hafa komið upp á LSH á undanförn- um árum. Ólafur Guðlaugsson, yfir- læknir sýkingavarnadeildar LSH, segir Íslendinga þó í óvenjulegri stöðu hvað varðar ýmsar spítalasýk- ingar. Sýkingar sem sjúkrahús er- lendis hafa misst tökin á hafa ekki enn náð fótfestu hér. „En við þurfum sí- fellt að vera á tánum hvað þetta varð- ar,“ segir hann. Mikið er lagt upp úr eftirliti og skráningu sýkinga á LSH og í undirbúningi er enn ítarlegri skráning sýkinga á öllum spítalanum. Stöðugt er unnið að leiðbeiningum um sýkingavarnir fyrir starfsfólk og var sérstakt átak gert í þeim efnum á síð- asta ári. Þegar talað er um spítalasýkingar er átt við sýkingar sem einstaklingur fær á spítalanum. Ástæðan fyrir al- gengi spítalasýkinga er að inni á sjúkrahúsum er sérstakt umhverfi. Þar koma margir saman og mikil snerting á sér stað. Margir eru þar með opin sár og mikil notkun sýkla- lyfja kallar á þróun baktería. Þá eru á sjúkrahúsum margir ónæmisbældir einstaklingar sem eru næmir fyrir sýkingum. Erlendar rannsóknir hafa bent til að um 7-10% allra sjúklinga sem leggjast inn á spítala fái spítala- sýkingu. Afleiðingar þess geta verið misjafnar en þær geta valdið varan- legum skaða og jafnvel kostað fólk líf- ið. Bakteríur og veirur sem valda sýk- ingum geta borist manna á milli með snertingu en einnig með lofti eða vatni. Á LSH hafa komið upp faraldrar vegna Nóróveira, MÓSA og inflú- ensu. Vitað er að tveir sjúklingar hafa látist úr legionellu (hermannaveiki) sl. þrjú ár. Nóróveiran sem veldur meltingarfærasýkingum er einnig skæð. Faraldrar af Nóróveirum koma upp úti í samfélaginu, og eldri ein- staklingar hafa orðið mikið veikir af þeim og þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna þessa. Þegar þangað er komið skortir oft verulega á ein- angrunaraðstöðu sem gerir baráttu við frekari útbreiðslu á sjúkrahúsinu erfiða. Í rannsókn sem gerð hefur verið á LSH kemur fram að 10% sjúk- linga sem fengu nórósýkingu létust af völdum hennar. Inflúensan veldur ár- legum faraldri. Dánartíðni, sérstak- lega hjá öldruðum og þeim sem veikir eru fyrir, er há. MÓSAr sjaldgæfir hér Talsvert hefur borið á MÓSA-sýk- ingum á LSH og hefur verið glímt við þrjá faraldra undanfarin ár. Bakterí- urnar, sem saman eru kallaðar MÓS- Ar, smitast með snertingu og geta valdið alvarlegum sýkingum. MÓSA getur tekið sér bólfestu í nefi manna og á húð án þess að valda þar ein- kennum. Bakterían getur hins vegar valdið sýkingum ef hún kemst í sár, blóð eða aðra vefi. Greinst hafa fimmtán MÓSA-til- felli á Íslandi það sem af er þessu ári en aðeins þrír hafa sýkst. Enginn hef- ur sýkst inni á sjálfu sjúkrahúsinu. Algengast er að fólk beri bakteríurn- ar hingað til Íslands eftir að hafa legið á sjúkrahúsum erlendis. Ólafur segir Ísland í einstakri aðstöðu í heiminum hvað varðar MÓSA-tilfelli. Bæði í Evrópu og Bandaríkjunum hafa mörg sjúkrahús misst tökin á útbreiðslunni. Ástandið er allt annað og betra hér á landi og vekur það mikla athygli er- lendis. „Af einhverjum ástæðum sem ekki er vitað hverjar eru voru MÓSAr nær óþekktir á Íslandi fram til ársins 2000,“ segir Ólafur. Árið 2001 kom hins vegar upp faraldur á Íslandi sem átti uppruna sinn í útlöndum. Til að hefta útbreiðslu MÓSA hefur LSH tekið upp ákveðin vinnubrögð sem m.a. fela í sér að allir sjúklingar sem koma inn á sjúkrahúsið frá út- löndum eru skimaðir fyrir bakterí- unni. Þá er skimað eftir bakteríunni hjá öllum þeim sem hafa verið í nánu samneyti við þann sem sýktur er eða ber bakteríuna. Ef einstaklingar reynast jákvæðir er reynt að uppræta bakteríuna. „Með þessum aðferðum höfum við getað kveðið í kútinn þessa faraldra sem hér hafa komið upp,“ segir Ólafur. Eitt helsta áhyggjuefnið er að sumir stofnar af MÓSA eru farnir að breiðast út utan sjúkrahúsa í Bandaríkjunum og víðar en hingað til hefur smit verið bundið við sjúkrahús. Enginn hefur látist af völdum MÓSA hér á landi. Nóróveirur skæðar Sýking í meltingarfærum af völd- um nóróveirunnar hefur reynst skæð hérlendis undanfarin ár og skortur á einangrunaraðstöðu háir mjög bar- áttu gegn henni. Sjö faraldrar af spít- alasýkingum vegna nóróveira urðu á níu deildum LSH á síðasta ári. Í þeim veiktust 79 einstaklingar, bæði sjúk- lingar og starfsmenn, en mun fleiri voru með sýkingareinkenni. Veiran veldur oft niðurgangi og uppköstum með alvarlegum afleiðingum. Nóró- veiran var enn skæðari í árslok 2002 en það ár kom fram nýr stofn af henni sem var mjög smitandi, sérstaklega inni á sjúkrahúsum. Í þeim faraldri greindust 214 sjúklingar á LSH og átta starfsmenn. Veiran smitast með lofti og því gat sýktur sjúklingur sem kom inn á LSH og var lagður á fjöl- býli smitað marga mjög fljótt. Með ýmsum aðgerðum, t.d. með því að setja deildir tímabundið í einangrun, tókst að ráða niðurlögum faraldr- anna. Dæmi eru um það erlendis frá að loka hafi þurft heilu sjúkrahúsun- um vegna nórósýkinga. Lítið hefur borið á nórósýkingum undanfarna mánuði. Ólafur segir að vissulega hafi bættar sýkingavarnir haft mikið að segja en þó sé líklegra að faraldsfræði veirunnar hafi breyst. Ferðalög eru orðin mjög algeng og fólk leitar mikið á heilbrigðisstofnanir erlendis, og er útsett fyrir þeim bakt- eríum og veirum sem þar finnast. „Einmitt af þeim sökum er gríðarlega mikilvægt að vera í alþjóðlegu sam- starfi varðandi þessi mál,“ segir Ólaf- ur. Nánast daglega berast sýkinga- varnadeild kvartanir yfir ræstingu á LSH. Þegar MÓSA-sýkingar komu upp á sjúkrahúsinu í byrjun árs reyndust sýni, sem tekin voru á sjúkrastofu þar sem sýktir sjúklingar lágu, innihalda MÓSA eftir að sótt- hreinsun hafði farið fram. Varð að loka sjúkrastofunni tólf dögum lengur en annars hefði þurft. Á meðan lágu sjúklingar á göngum deildarinnar. Vantar einangrunaraðstöðu Sjö sérhæfð einangrunarherbergi eru á LSH. Öll eru þau í Fossvogi. Ólafur segir að þau þyrftu að vera fleiri. „Sjúkrahúsin okkar eru gömul og henta ekki nógu vel í þá starfsemi sem fer fram á nútíma sjúkrahúsum. Fjölbýlin eru barn síns tíma og þykja afskaplega óheppileg í dag. Almennt er aðstaðan síðri en hún ætti að vera.“ Einangrunarherbergin eru sér- staklega útbúin. Hægt er að stilla loft- þrýsting í sérstöku forherbergi á þann veg að loftið streymi annað hvort út eða inn í herbergið, eftir því hvort verið er að verja sjúklinginn eða umhverfið. Á skurðstofunum er loftræstibún- aður sem skiptir um loft á stofunum tuttugu sinnum á mínútu. Það minnk- ar verulega hættuna á sýkingum. Nýtt sjúkrahús verður sérstaklega hannað með sýkingavarnir í huga, t.d. verða þar eingöngu einbýli fyrir sjúk- linga, en þangað til eru mörg ár og nauðsynlegt er að efla varnirnar í nú- verandi húsnæði sem mest. „Það er erfiðara að hemja sýkingar á sjúkra- húsi þar sem eru stór fjölbýli,“ segir Ólafur. Ólafur segir marga samverkandi þætti hafa áhrif á aukna tíðni spítala- sýkinga í heiminum. Ein breytan sé styttri legutími. Umsetning rúma á sjúkrahúsum sé því miklu meiri en áður. Þá hefur aukinn fjöldi aldraðra áhrif. Sjúklingar inni á sjúkrahúsum eru almennt veikari en áður því tækniframfarir gera kleift að halda lífi í fólki með erfiða sjúkdóma lengur. Þetta fólk er oft með viðkvæm ónæm- iskerfi og þar af leiðandi næmt fyrir sýkingum. Einmitt af þessum sökum eru sjúkrahús byggð á annan hátt í dag en áður. Niðurskurður í þrifum veldur aukinni sýkingarhættu ’Sýkingavarnir eru eitt helsta verkefni sjúkrahúsa. Stöðugt er unnið að leið-beiningum um sýkingavarnir á LSH og var sérstakt átak gert á síðasta ári.‘ sunna@mbl.is Hvers vegna deilt er um stjórnskipulag Landspítalans fimm árum eftir sameiningu. Á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.