Morgunblaðið - 14.06.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 43
DAGBÓK
Lyktarskynið.
Norður
♠4
♥D6
♦108632
♣ÁD742
Suður
♠ÁD109876
♥854
♦ÁK
♣6
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur leggur af stað með hjartaás,
fær kall frá makker sínum, og spilar
hjarta áfram. Austur drepur á kónginn
og skiptir yfir í smátt tromp.
Hvernig myndi lesandinn spila?
Það er augljóslega nauðsynlegt að
svína í laufi, en spurningin er hvort
svína eigi spaðadrottningu strax eða
drepa á ás og reyna svo síðar að fella
kóng eða gosa annan.
Þetta er staða sem reynir á nefið.
Spilarar með gott lyktarskyn reyna
gjarnan að setja sig í spor andstæðing-
anna. Prófum að setjast í sæti austurs:
Myndi hann spila trompi frá KGx?
Tæplega, því þá er meira freistandi að
halda áfram með hjarta og neyða
blindan til að trompa. Myndi austur
spila trompi frá Kx? Varla, því af sömu
ástæðu væri eðlilegt fyrir hann að
halda áfram með hjartað.
Sem sagt, austur er ekki líklegur til
að trompa út frá kóng nema hann sé
smátt þriðji. Og það gefur þeirri leið
undir fótinn að drepa á spaðaás og
reyna síðan að fella gosann annan ef
laufsvíningin heppnast.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
HJÁ Vöku-
Helgafelli er kom-
ið út kvæðasafnið
Dáið er alt án
drauma og fleiri
kvæði eftir Hall-
dór Laxness.
„Frá unglings-
aldri orti Halldór
Laxness kvæði af
ýmsu tagi, angurvær og skrýtin, trega-
full og harmþrungin, galgopaleg og
fyndin. Öll eru þau minnisstæð og við
mörg þeirra hafa verið samin vinsæl
lög. Þessi bók er safn margra þekkt-
ustu kvæða Halldórs og þeirra sem
orðið hafa þjóðinni mest hjartfólgin,“
segir í kynningu útgefanda.
Í bókinni eru 35 kvæði, flest í fullri
lengd en fáein stytt. Kvæðin eru hér
birt eins og Halldór gekk frá þeim í 5.
útgáfu Kvæðakvers árið 1992. Þar
gerði hann í eftirmála grein fyrir tilurð
allra kvæðanna í kverinu og er þeim
sem hér hafa verið valin til birtingar
raðað í tímaröð eftir því hvenær þau
voru frumort. Elsta kvæðið var ort
1918 en það yngsta er frá 1975.
Bókin er 58 bls. Verð: 2.990 kr.
Kvæði
HJÁ Máli og menn-
ingu er komin út
bókin Hannes
Pétursson: Ljóða-
safn.
„Hannes Pét-
ursson er löngu
viðurkenndur sem
eitt helsta skáld
20. aldar. Allt frá
því hann sendi frá sér Kvæðabók árið
1955, aðeins 23 ára að aldri, hefur
þjóðin tekið skáldskap hans fagn-
andi. Fá skáld yrkja af jafn miklum
hagleik og öryggi, bæði undir hefð-
bundnum háttum sem og í frjálsara
formi, og bragleikni Hannesar helst í
hendur við einstaka myndvísi. Hann-
es yrkir um mannlegar tilfinningar í
öllum sínum fjölbreytileika, en ekki
síst eru það yrkisefni tengd náttúru
og sögu Íslands sem hafa gert hann
ástsælan með þjóðinni,“ segir í kynn-
ingu útgefanda.
Í þessari bók er að finna öll ljóð
Hannesar auk Kvæðabókar, bæk-
urnar Í sumardölum, Stund og staðir,
Innlönd, Rímblöð, Óður um Ísland,
Heimkynni við sjó, 36 ljóð og Eldhyl,
en fyrir þá bók hlaut Hannes Íslensku
bókmenntaverðlaunin árið 1993.
Njörður P. Njarðvík ritar inngang um
ljóð Hannesar.
Bókin er 461 bls. Verð: 4.690. kr.
Ljóð
SÓLEY S. Bender ritstjóri íslenska
kaflans í fjölþjóða alfræðiriti um
kynlíf, The International Encyclo-
pedia of Sexuality, hefur afhent
Landsbókaverði, Sigrúnu Klöru
Hannesdóttur, eintak af hinu veg-
lega riti að gjöf til afnota á Þjóð-
arbókhlöðu fyrir fagfólk, fræði-
menn, nemendur og aðra sem
áhuga hafa á efninu.
Fjölþjóða alfræðirit um kynlíf,
The International Encyclopedia of
Sexuality, undir ritstjórn Roberts
T. Francoeur og Raymonds J.
Noonan kom fyrst út í New York í
fjórum bindum á árunum 1997–
2001. Í hverju bindi fjalla sérfræð-
ingar frá nokkrum löndum um við-
horf til kynlífs, kynhegðun, kyn-
hneigð, kynsjúkdóma, takmörkun
barneigna, kynfræðslu, kynlífs-
ráðgjöf og meðferð auk þess að
greina frá rannsóknum um kynlíf
og kynhegðun. Í fjórða bindi ritsins
sem kom út árið 2001 var framlag
frá sautján löndum og var Ísland
eitt af þeim. Ritstjóri íslenska kafl-
ans er Sóley S. Bender, dósent við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands. Jafnframt eru Sigrún Júl-
íusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf
við félagsvísindadeild Háskóla Ís-
lands, Þorvaldur Kristinsson, fyrr-
verandi formaður Samtakanna ’78
og dr. Guðrún Jónsdóttir, fé-
lagsráðgjafi, höfundar að efni í kafl-
anum.
Á árinu 2004 kom út heildstætt
og endurbætt verk, The Continuum
Complete International Encyclo-
pedia of Sexuality, þeirra 60 landa
sem höfðu skrifað kafla í fyrri bindi
bókanna.
Hægt er að skoða efni bókarinnar
á slóðinni www.sexquest.com/ccies/
CCIESreviews.html.
Þjóðarbókhlöðu afhent
alfræðirit um kynlíf
Þorvaldur Kristinsson, Sigrún Júlíusdóttir, Sigrún Klara Hannesdóttir og
Sóley S. Bender við afhendingu ritsins í Þjóðarbókhlöðunni á dögunum.
Við erum sérfræðingar í útimálningu
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík
Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
KÓPAL STEINTEX er frábær málning til notkunar á múr og
steinsteypta fleti þar sem krafist er mikils veðrunarþols.
KÓPAL STEINTEX er fáanleg í þúsundum lita.
Hentar einkar vel til endurmálunar.
KÓPAL STEINTEX
Hörkutilboð
10 lítrar
aðeins
5.990 kr.
4 litir, hvítt, marmarahvítt, hrímhvítt og antikhvítt
Útimálning fyrir íslenskar aðstæður
Nýtt útilitakort á næsta sölustað