Morgunblaðið - 14.06.2005, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 49
ÁLFABAKKI
AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANSýningatímar ÁLFABAKKI
Sjóðheit og sláandi góð hrollvekja með hinni umdeildu djammstelpu,
Paris Hilton, Elisha Cuthert úr Girl Next Door og 24 þáttunum og Chad Michael Murray úr One Tree
Hill Þáttunum. Stranglega bönnuð innan 16 ára.
A LOT LIKE LOVE kl. 8 - 10
HOUSE OF WAX kl. 8 - 10
Halldóra - Blaðið
Mr. and Mrs. Smith Kl. 8 og 10.15
Ice Princess Kl. 8
The Jacket Kl. 10
Debra Messing Dermot Mulroney i t l
Capone XFM
S.K. DV.
ashton kutcher RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU amanda peet
LEYFÐ ÖLLUM ALDURSHÓPUM
Er þetta ást? Er þetta vinátta eða er þetta hvort tveggja.
Þetta er mynd sem þú og þín þurfið að sjá. DV
MBL
CRASH kl. 10.30 B.i. 16
THE WEDDING DATE kl. 6-8
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4
A LOT LIKE LOVE kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.30
HOUSE OF WAX kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.30 B.i. 16
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.30
A LOT LIKE LOVE kl. 6 - 8.30 - 10.40
HOUSE OF WAX kl. 6 - 8.30- 10.40 B.i. 16
THE WEDDING DATE kl. 6
11.06. 2005
5
5 0 1 1 5
5 8 2 0 3
11 14 35 37
6
08.06. 2005
6 13 21 32 39 44
9 10 8
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4741-5200-0012-5404
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Í BLAÐI gærdagsins féll niður
stjörnugjöf um plötu Bubba Morth-
ens …í 6 skrefa fjar-
lægð frá Paradís í
dómi Arnars Eggerts
Thoroddsen. Gagn-
rýnandi gefur plöt-
unni fjórar stjörnur af
fimm og segir m.a. um hana: „Trú-
badúrinn Bubbi fær að skína hér og
hann sannar, enn og aftur, að í þeim
geiranum er hann mikill meistari.“
LEIÐRÉTT
Fær fjórar stjörnur
NORSKU glysrokkararnir í Wig Wam eru væntanlegir hingað til
lands til tónleikahalds 2. júlí næstkomandi. Fyrir þá sem ekki vita
er hér um að ræða hljómsveitina sem keppti fyrir hönd Noregs í
nýafstaðinni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og lenti
þar í 9. sæti. Íslendingar virtust taka vel í tónlist nágrannaþjóð-
arinnar en þjóðin gaf Wig Wam 12 stig, eða fullt hús, í keppninni.
Lagið sem þeir fluttu í keppninni, „In My Dreams (Come On)“
hefur hljómað víða á öldum ljósvakans og því ættu landsmenn að
vera nokkuð vel með á nótunum á tónleikunum sem fram fara á
Gauki á Stöng laugardaginn 2. júlí næstkomandi.
Tónlist | Norska rokksveitin
Wig Wam með tónleika á Íslandi
Þakka fyrir stigin tólf
Miðasala á tónleika Wig Wam hefjast á miðvikudag á www.-
concert.is og í síma 511-2255. Miðaverð er 1.900 krónur í forsölu.
STELPURNAR í
Destiny’s Child
sögðu 16.000 tón-
leikagestum í
Barcelona um
helgina að þær ætli
að hætta í haust.
Sögðu stelpurnar
þetta rétta tímann
til að leggja tríóið
niður. Í tilkynningu
sem þær sendu frá
sér í gær kemur
fram að þær ætli að
einbeita sér að sóló-
verkefnum. Síðustu
tónleikar Destiny’s
Child verða í Van-
couver í Kanada 10.
september næst-
komandi.
Destiny’s Child
hafa selt yfir 50
milljón geisladiska
frá því hljómsveitin
komst fyrst á vinsældalista árið 1998. Tríóið hefur unnið til fjölda verðlauna. Þar á með-
al hlutu þær Grammy verðlaun fyrir lagið „Say my name“ árið 2000 og sömu verðlaun
fyrir lagið „Survivor“ ári síðar.
Þær Beyoncé Knowles, Kelly Rowland og Michelle Willams sem mynda tríóið hafa
allar unnið að sólóverkefnum samhliða Destiny’s Child. Af þeim hefur Beyoncé gengið
best en hún hefur slegið í gegn beggja vegna Atlantsála fyrir tónlist sína og leik í kvik-
myndum.
Síðasti diskur Destiny’s Child kom út í lok síðasta árs. Hann hét Destiny’s Fulfilled.
Diskurinn seldist í 2.7 milljónum eintaka og fór snarlega í fyrsta sæti bandaríska vin-
sældarlistans.
Tónlist | Stærsta stelpnasveitin
Destiny’s Child hætt
Ein vinsælasta stúlknasveit heims er að leggja upp laupana.
Reuters
KK-BANDIÐ er vaknað af
dvala og ætlar að halda þrenna
tónleika í vikunni, í Reykjavík
og í Biskupstungum. Auk þess
stendur meiri spilamennska til í
sumar hjá fjórmenningunum en
bandið er skipað þeim Kristjáni
(KK) Kristjánssyni, Þorleifi
Guðjónssyni og Kormáki Geir-
harðssyni auk þess sem Þor-
steinn (Steini) Einarsson úr
hljómsveitinni Hjálmum bættist
í hópinn á dögunum.
KK-band hefur auk þess að
undanförnu dvalist í stúdíói við
upptökur á plötu sem áætlað er
að komi út með haustinu. Það
er því í nógu að snúast hjá KK
en auk spilamennsku og upp-
töku með bandinu lagði hann
nýverið lokahönd á plötu með
Magnúsi Eiríkssyni. Í samtali
við Morgunblaðið sagði KK að
plötunnar væri líklega að vænta
seinnipart júnímánaðar.
Hann sagði ekkert áformað
um spilamennsku þeirra Magn-
úsar í kjölfarið. „Það getur vel
verið að við spilum eitthvað eft-
ir að platan kemur út, það verð-
ur bara að koma í ljós,“ segir
KK.
Á síðasta ári hóf KK jafn-
framt að vinna að sólóplötu en
vegna anna hefur hún ekki enn
komið fyrir eyru almennings.
„Platan hefur ekki farið neitt en
ég veit ekki hvenær ég næ að
klára hana,“ segir KK. „Það eru
ýmis önnur verkefni sem ég er
að sinna þessa dagana en það
er mögulegt að hún komi út
með haustinu þó það sé enn
óvíst.“
Tónlist | KK-band ætlar að spila víða um land í sumar
Steini úr Hjálmum í hópinn
KK er með mörg járn í eldinum en það eru þrjár plötur væntanlegar frá honum.
KK-Band leikur á eftirtöldum
stöðum um helgina: 16. júní –
Grandrokk á miðnætti, 17. júní –
Arnarhóll í Reykjavík kl. 18.55.,
18. júní – Úthlíð í Bisk-
upstungum kl. 23.