Morgunblaðið - 20.06.2005, Qupperneq 26
26 MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þorbjörg Einars-dóttir fæddist á
Ekru í Stöðvarfirði
16. ágúst 1915. Hún
lést á Droplaugar-
stöðum í Reykjavík
11. júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Einar Bene-
diktsson, útvegs-
bóndi og símstöðvar-
stjóri, f. 9. apríl
1875, d. 6. nóvember
1967, og Guðbjörg
Erlendsdóttir, hús-
móðir, f. 5. nóvem-
ber 1886, d. 25. júlí
1978. Systkini Þorbjargar voru
Björg, f. 23. september 1905, d. 19.
mars 1993, Elsa Kristín, f. 4. des-
ember 1908, d. 23. október 1937,
Ragnheiður Sigurborg, f. 26. júní
1912, d. 10. desember 1929, Bene-
dikt, f. 7. mars 1918, d. 1. apríl
2001, Anna Valgerður, f. 4. ágúst
1920, Björn Óskar, f. 10. maí 1924,
d. 7. janúar 1993, og óskírður, f. 1.
desember 1923, d. 6. desember
1923.
f. 1978, b) Birgit Þorbjörg Ingrid,
f. 1981. 5) Björn, f. 27. janúar 1952,
kvæntur Láru Guðleifu Hansdótt-
ur, f. 1951. Börn: a) Hans Tómas, f.
1975, b) Þorbjörg Edda, f. 1979, c)
Björn Einar, f. 1988. 6) Einar Stef-
án, f. 23. apríl 1958, kvæntur Þor-
gerði Jónsdóttur, f. 1957. Börn: a)
Sigrún Lára, f. 1982, b) Stefán, f.
1987, c) Elísabet, f. 1989, d) María
Viktoría, f. 1994.
Þorbjörg ólst upp hjá foreldrum
sínum á Ekru og hjálpaði þeim við
búskapinn og símavörsluna. Hún
fór suður til náms og gekk í Ingi-
marsskólann í Reykjavík í þrjá vet-
ur, 1932-1935.
Eftir að þau Björn gengu í
hjónaband tók Þorbjörg fullan
þátt í störfum eiginmanns síns við
kaupfélögin á Stöðvarfirði, Siglu-
firði og Egilsstöðum, svo við var
brugðið. Þegar Björn og Þorbjörg
fluttu frá Egilsstöðum á Kópa-
vogsbrautina stundaði Þorbjörg
margvísleg störf við umönnun
þroskaheftra á Kópavogshæli. Ár-
ið 1979 settust Þorbjörg og Björn
að á Hóli í Stöðvarfirði og var það
heimili þeirra síðan. Landareignir
Hóls og Ekru liggja saman, en þar
var Þorbjörg borin og barnfædd.
Útför Þorbjargar fer fram frá
Stöðvarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Hinn 9. maí 1941
giftist Þorbjörg Birni
Stefánssyni, kaup-
félagsstjóra, f. 7. apríl
1910 á Fögrueyri við
Fáskrúðsfjörð, d. 5.
ágúst 1997. Börn Þor-
bjargar og Björns eru:
1) Nanna Ingólfsdótt-
ir, fósturdóttir, f. 12.
ágúst 1934, gift Sveini
Víði Friðgeirssyni, f.
1932, d. 6. september
2004. Börn: a) Þröstur
Ingólfur, f. 1953, b)
Friðgeir Fjalar, f.
1955, c) Bjarnþór Elís,
f. 1957, d) Elsa Kristín, f. 1963, d.
1974. 2) Eysteinn, f. 9. janúar 1942,
kvæntur Önnu G. Njálsdóttur, f.
1944. Börn: a) Harpa, f. 1965, b)
Njáll, f. 1970, c) Þorbjörg Rún, f.
1981. 3) Lára, f. 25. október 1943,
gift Ingólfi Hjartarsyni, f. 1942.
Börn: a) Jón, f. 1967, b) Hildur
Björg, f. 1973, c) Björn Freyr, f.
1977. 4) Guðbjörg Ólöf, f. 6. júlí
1946, gift Lars-Göran Larsson, f.
1944. Börn: a) Martin Björn Georg,
Ég mála af þér mynd
lesandi framhaldssögu fyrir blindan
mann.
Það er falleg mynd, máluð í fegurstu
litum,
litum kærleikans, hreinleikans, lífsins og
gleðinnar.
Falleg mynd, af sterkri góðri móður,
íklæddri hinu fegursta skarti,
sannleikanum, góðlyndinu og tryggðinni.
Ég sat á stól, lítil stúlka
Og lærði um lífið og kærleikann.
Ég tók hann með mér
og bar hann yfir höfin.
Ég mála þessa mynd
með krafti kærleikans
sem þú gafst mér.
Hún er þín og mín og okkar allra að njóta.
(Guðbjörg Ólöf.)
Þetta ljóð orti ég til mömmu á átt-
ræðisafmæli hennar, en þá var ég
búsett erlendis og ég fann hversu
mikið ég saknaði hennar. Var hún
virkilega orðin áttræð, hvers vegna
leið tíminn svona hratt og ég syrgði
það að hafa misst svo mörg ár af lífi
hennar og okkar saman, vegna bú-
setu minnar úti í heimi. Ég elskaði
mömmu mína mikið þá, á því var
enginn vafi, en í dag hef ég tengst
henni og kynnst svo miklu meir, og
ég finn hversu hjarta mitt er barma-
fullt af ást og þakklæti til hennar,
fyrir allt sem hún hefur verið mér.
Guð er nefnilega góður. Guð kom
því svo fyrir að ég fékk tækifæri til
að vera nálægt mömmu síðustu árin,
þar sem ég hef stundað guðfræði-
nám við Háskóla Íslands, þótt heim-
ili mitt sé ennþá í Bandaríkjunum.
Tvö síðustu árin höfum við mamma
búið mjög nálægt hvor annarri, svo
við gátum sést og talast við daglega
og gefið hvor annarri stuðning, gleði
og kærleika. Ég þakka Guði fyrir
þennan tíma með mömmu, sem gaf
mér svo óendanlega mikið, og ég
fann daglega hversu mikið ég elsk-
aði hana, bar virðingu fyrir henni og
reyndi stöðugt að læra af henni. Ég
fann betur og betur hversu mikil
kona og manneskja hún var, svo
sjaldséð í heimsins glaumi í dag og
það voru þessi séreinkenni hennar
sem heilluðu fjölskyldur og alla sem
kynntust henni.
Mamma var „a woman of integr-
ity“ eins og þeir segja hér í Banda-
ríkjunum. Hún var heilsteypt og
heiðarleg, hafði sterka sjálfsmynd,
var lífsglöð og algjörlega laus við
smjaður, hræsni og fölskva. Hversu
mjög ég vildi líkjast henni!
Mamma var í fyrsta lagi mikil
móðir, sem hugsaði alltaf um hag
okkar, allt frá móðurlífi. Hún varði
okkur og stóð alltaf með okkur,
byggði okkur upp með hollu fæði og
góðu fyrirdæmi og henni eigum við
systkinin góða heilsu að þakka.
Mamma var fórnfús og óeigingjörn
og elskaði okkur skilyrðislaust.
Síðustu tvö árin með mömmu
voru dýrmæt reynsla, og við mynd-
uðum djúpa vináttu og persónuleg
tengsl, sem ég mun aldrei gleyma.
Með hana mér við hlið varð námið
og lífið á Íslandi léttara og ánægju-
legra. Hún var mjög trúuð og vel að
sér í Biblíufræðum og almennum
málefnum, var gáfuð og góð mann-
eskja, með skýra hugsun og tók með
áhuga þátt í guðfræðiumræðunni.
Meðal annars hjálpaði hún mér að
þýða texta úr hinni fornu Guð-
brandsbiblíu frá 16. öld, sem ég átti
í erfiðleikum með, í sambandi við
ritskýringu Biblíunnar. Ég þáði
gjarnan skynsamleg ráð hennar.
Ég elska mömmu mína mikið og
sakna hennar sárt. Hún studdi mig,
uppörvaði og elskaði mig, eins og öll
börnin sín jafnt, barnabörn og lang-
ömmubörn. Hún var bænheit og bað
fyrir okkur öllum, fjölskyldu, vinum
og sjúkum. Trúin og bænirnar voru
líflína hennar, eins og mín og við
báðum oft saman.
Mamma kenndi mér stöðugt eitt-
hvað nýtt og var mikið fyrir mann-
réttinda- og jafnréttisbaráttu.
Mamma og pabbi hlúðu alltaf að lít-
ilmagnanum og þau störfuðu sann-
arlega í anda Krists og vildu vera
Kristur náunganum.
Mamma var mikil móðir og hafði
stóran móðurfaðm. Þegar hún var
18 ára, þá við nám við gagnfræða-
skóla í Reykjavík og bjó hjá eldri
systur sinni, mági og stúlkunni
þeirra, varð hún og þau öll fyrir
þeirri biturri reynslu að systir henn-
ar dó í sambandi við uppskurð. Þá
varð litla stúlkan móðurlaus, sem
hjúfraði sig upp að 18 ára frænku
sinni, sem hún þekkti vel. Mamma
var svo þroskuð, mikil móðir og bar
svo mikinn kærleika til stúlkunnar,
að hún hafði hana í faðmi sínum eft-
irleiðis, þar til litla stúlkan gifti sig.
Stúlkan Nanna varð elsta systir
okkar, sem var okkur alltaf svo góð
og við öll elskum.
Mamma var elskuð og mikils met-
in af börnum, barnabörnum, fjöl-
skyldu og vinum. Sem dæmi um
kærleika og umhyggju fólksins
hennar skiptist það á að sitja við
sjúkrabeð hennar, halda í hönd
hennar og strjúka henni um vang-
ann, þar til yfir lauk, og ég veit að
hún skynjaði það með þakklæti og
gleði.
Lífið verður ekki það sama án
mömmu og ég óttast að Ísland, sem
hún elskaði, verði ekki lengur Ís-
land, en ég veit að þetta er rödd
sorgarinnar, sem við verðum að
vinna úr.
Ég fann að mamma var orðin lík-
amlega þreytt og ég skil að hún
þurfti að hvílast.
Hún hafði unnið svo mikið, gefið
svo mikið og undirbúið okkur vel. Af
mömmu þáðum við gott veganesti
fyrir lífið, við þáðum gleðina til lífs-
ÞORBJÖRG
EINARSDÓTTIR
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, dóttir og systir,
EDDA SNORRADÓTTIR,
Sléttahrauni 24,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 21. júní kl. 13.
Sigurberg Þórarinsson,
Jóhann Snorri Sigurbergsson, Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir,
Katrín Sigurbergsdóttir,
Jóhanna Sigurbjörnsdóttir
og systkini.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og tengda-
faðir,
ÞORGEIR GESTSSON
læknir,
frá Hæli,
lést sunnudaginn 19. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ása Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þorgeirsson, Bryndís Guðmundsdóttir,
Gestur Þorgeirsson, Sólveig Jónsdóttir,
Eiríkur Þorgeirsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRARINN SIGURGEIRSSON
pípulagningarmeistari,
Árskógum 6,
Reykjavík,
lést 17. júní á Borgarspítalnum.
Júlíus Már Þórarinsson, Jóna Kristrún Sigurðardóttir,
María Þórarinsdóttir, Örn Þorsteinsson,
Sigurgeir Þórarinsson, Charlotta Ingadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn,
HELGI HALLGRÍMSSON
húsgagna-
og innanhússarkitekt,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 21. júní kl. 13.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Blindrafélagið og Krabbameinsfélagið.
Rut Helgadóttir.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
ÞRÖSTUR VALDIMARSSON,
Keilufelli 33,
Reykjavík,
er látinn.
Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdimar Kristjánsson, Guðrún Þorgeirsdóttir
og systkini.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
PÁLL MAREL JÓNSSON,
Lækjasmára 4,
Kópavogi,
lést laugardaginn 18. júní sl.
María Ásgeirsdóttir,
Jón Pálsson,
Jakob Einar Jónsson,
Páll Marel Jónsson
og systkini hins látna.
Elskulegur eiginmaður minn,
SIGURÐUR SIGURÐSSON,
versluninni Hamraborg,
lést á sjúkrahúsi í Rimini, Ítalíu, mánudaginn
13. júní síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóna Kjartansdóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, Kjartan Guðjónsson,
Hrafnhildur Einarsdóttir, Björn Jónsson,
Kjartan Bergsson, Lene Fejrö,
Bergur H. Bergsson, Anna Maria Gregersen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,,
BJÖRN GUÐMUNDUR ERLENDSSON,
fyrrum bóndi í Skálholti,
Merkilandi 2c,
Selfossi,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
laugardaginn 18. júní.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
María Eiríksdóttir.