Morgunblaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Næsta mánuðinn beinist athygli
hrútsins að heimili, fjölskyldu og fast-
eignaviðskiptum. Það hentar hrútnum
ágætlega, enda er hann með hugann
við þessi málefni hvort eð er.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Annríki er framundan! Nautið er með
öll spjót úti og upptekið við að fara á
milli staða, hitta fólk og erinda. Ró-
semi og einbeiting eru lykilatriði til
þess að ná árangri.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn hugsar mest um peningana
sína þessa dagana. Hann vill vita
hversu mikið hann á og hvað hann
skuldar. Kannski eyðir hann meiru en
venjulega.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sólin er í krabbamerki núna og
næstu fjórar vikur. Það þýðir að
krabbinn á að njóta geisla hennar og
hlaða batteríin svo að hann endist út
árið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið þarf að gæta þess að hvíla sig
og slaka á næstu sex vikurnar. Það
þarf að fá frið til þess að koma skikki
á hlutina áður en það fer í ferðalag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti meyjunnar við vini og fé-
laga fara vaxandi á næstunni. Þiggðu
boð og gakktu í klúbba og samtök.
Njóttu aukinna vinsælda þinna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sólin trónar efst í korti vogarinnar
núna, sem þýðir að fólk tekur eftir
henni þar sem hún fer. Kannski þarf
hún að axla aukna ábyrgð. Ef það
gerist, á hún að slá til (og láta ljós
sitt skína).
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þrá sporðdrekans eftir því að ferðast
og verða einhvers vísari um heiminn
er sterkari nú en endranær. Ef hann
fær tækifæri til þess að leggja land
undir fót á næstunni á hann að grípa
það.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú er rétti tíminn til þess að hnýta
lausa enda varðandi sameiginlegt for-
ræði yfir einhverju, hvort sem um er
að ræða eignir, tryggingamál, erfða-
skrá eða skatta.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin hugsar nokkuð um nána
vináttu og parsambönd þessa dagana,
enda eru fjórar plánetur beint á móti
sólinni hennar þessa dagana.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn hefur næga orku og hef-
ur fullan hug á því að bæta skipulag
sitt, bæði heima fyrir og í vinnunni.
Hann þarf að finna botninn á fata-
skápnum sínum aftur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Rómantík, listir, afþreying með börn-
um, skemmtanaiðnaðurinn og allt sem
því viðkemur er í brennidepli núna og
á næstunni. Fiskurinn vill líf og fjör
og lyfta sér á kreik.
Stjörnuspá
Frances Drake
Tvíburar
Afmælisbarn dagsins:
Þú þykir hrífandi því þú ert lifandi og
orkumikil. Þú getur svo sannarlega
haft áhrif á aðra, jafnvel dáleitt þá ef
því er að skipta. Tilfinningar og
spenna fylgja þér. Innsæi þitt er af-
bragð, treystu því.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 sólarsinnis, 8
stíf, 9 haldast, 10 spils, 11
hlaupi, 13 dreg í efa, 15 él,
18 drengur, 21 ránfugl, 22
vinna, 23 heiðurinn, 24
ruglaðar.
Lóðrétt | 2 snæddur, 3
þyngdareiningu, 4 ákafur,
5 liðormurinn, 6 mynni, 7
opi, 12 kropp, 14 stök, 15
jó, 16 rengdi, 17 tigin, 18
borða, 19 tunnuna, 20
svelgurinn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 guldu, 4 fátæk, 7 sennu, 8 mennt, 9 nem, 11 nóar,
13 grun, 14 eggin, 15 skóf, 17 árás, 20 urt, 22 klénn, 23 ætl-
ar, 24 reisa, 25 tengi.
Lóðrétt | 1 gisin, 2 lenda, 3 unun, 4 fimm, 5 tenór, 6 kætin,
10 elgur, 12 ref, 13 Gná, 15 sækir, 16 óféti, 18 rolan, 19
serki, 20 unna, 21 tæpt.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Myndlist
Árbæjarsafn | Þorvaldur Óttar Guð-
laugsson sýnir íslensk fjöll úr postulíni í
Listmunahorninu.
Café Karólína | Hugleikur Dagsson – „I see
a dark sail“ til 24. júní.
Energia | Sigurður Pétur Högnason.
Feng Shui-húsið | Diddi Allah sýnir olíu- og
akrýlverk. Opið kl. 10–18 virka daga, kl. 12–
18 um helgar.
Gallerí 100° | Dieter Roth til 21. ágúst.
Gallerí Sævars Karls | Kristín Blöndal sýn-
ir málverk.
Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn-
ara II er opin virka daga frá kl. 11–17. Lokað
um helgar í sumar. Kaffikönnur, bangsar,
gosdrykkjamiðar, dúkkulísur, munkar, lista-
verk úr brotajárni og herðatrjám og margt
fleira skrýtið og skemmtilegt! Sjá
www.gerduberg.is.
Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til
1. ágúst.
Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn
Benediktsson. Fiskisagan flýgur, ljós-
myndasýning, til 31. ágúst.
Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce-
vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21 ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Guðbjörg Lind
Jónsdóttir sýnir myndverk í forkirkju og
kór Hallgrímskirkju. Sýningin stendur til 14.
ágúst.
Hallgrímskirkja | Þórólfur Antonsson og
Hrönn Vilhelmsóttir sýna ljósmyndir í Hall-
grímskirkjuturni.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auð-
ur Vésteinsdóttir.
Hrafnista, Hafnarfirði | Rúna (Sigrún Guð-
jónsdóttir) sýnir í Menningarsalnum á
fyrstu hæð.
Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í
Bergen. Til 4. sept.
Kaffi Langbrók | Elín Egilsdóttir sýnir
myndir unnar með olíu, vatnslitum og bleki.
Sýningin verður opin alla helgina og eitt-
hvað fram í næstu viku.
Kaffi Sel | Ástin og lífið. Gréta Gísladóttir
sýnir á Kaffi Seli við golfvöllinn á Flúðum.
Sýningin stendur frá 12. júní til 3. júlí.
Kaupfélag listamanna | KFL-group er með
hressandi myndlist í Gamla Kaupfélaginu í
Hafnarfirði, Strandgötu 28, 2. hæð. Mynd-
list 27 listamanna leikur um alla hæðina, í
herbergjum, í sal, á klósettum og dregur
sig einnig út úr húsinu. Sýningin stendur til
23. júní og er opið alla daga frá 14–18. Að-
gangur er ókeypis.
Leonard | Mæja sýnir út júnímánuð. Sjá
nánar á www.maeja.is.
Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21.
ágúst.
Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn-
ingu má nú sjá sænskt listgler. Um er að
ræða rúmlega 60 verk eftir 50 helstu gler-
listamenn Svía, úrval hins besta úr heimi
nytjaglers og skúlptúrglers. Sýningin kem-
ur frá Hönnunarsafni Íslands.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter
Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur
Jónsson, Urs Fischer, til 21. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sumarsýning Listasafns Íslands.
Norska húsið í Stykkishólmi | Ástþór Jó-
hannsson.
Ráðhús Reykjavíkur | Tjarnarsalur. Sýning
Helgu Windle til 21. júní.
Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi
Pétursson, sjá nánar www.or.is.
Við fjöruborðið | Inga Hlöðvers.
Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á þili í Boga-
sal. Sýningin er afrakstur rannsókna Þóru
Kristjánsdóttur á listgripum Þjóðminja-
safnsins en munirnir eru frá 16., 17. og 18.
öld. Sýningin er liður í Listahátíð í Reykja-
vík 2005.
Þjóðminjasafn Íslands | Skuggaföll. Port-
rettmyndir Kristins Ingvarssonar. Margir
þekkja stakar ljósmyndir Kristins en með
því að safna úrvali af þeim saman birtist ný
og óvænt mynd.
Þjóðminjasafn Íslands | Story of your life –
ljósmyndir Haraldar Jónssonar. Sýningin
varpar ljósi á margbrotið eðli ljósmynd-
arinnar, náin og um leið flókin tengsl henn-
ar við einstaklinginn, raunveruleikann, um-
hverfið, tímann, frásögnina og minnið.
Listasýning
Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi,
Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í
sumar frá kl. 10–17.
Söfn
Bókasafn Kópavogs | Sýning á ljós-
myndum úr fórum Kópavogsbúa af börn-
um í bænum í tilefni af 50 ára afmæli
Kópavogsbæjar í samstarfi Bókasafns og
Héraðsskjalasafns Kópavogs.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóð-
leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning og
skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu.
Jagúarinn í hlaðinu. Opið alla daga í sumar
frá kl. 9–17.
Lindasafn | Lindasafn er opið alla daga
sumar. Mikið úrval af ferðahandbókum og
garðyrkjubókum. Safnið er opið mánudaga
frá kl. 11–19, þriðjudaga til fimmtudaga frá
kl. 13–19, föstudaga 13–17.
Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð-
húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir
uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg-
undir og furðufiska.
Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu eru opnar alla daga frá
kl. 11 til 17. Helstu sýningar eru; Handritin,
Fyrirheitna landið og Þjóðminjasafnið –
svona var það. Á veitingastofunni Matur og
menning er gott að slaka á og njóta veit-
inganna og útsýnisins yfir Arnarhólinn og
höfnina.
Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband
2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk
eftir jafnmarga bókbindara frá Norð-
urlöndunum. Sýningin fer um öll Norð-
urlöndin og verður í Þjóðmenningarhúsinu
til 22. ágúst. Opið frá kl. 11–17.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Skrif-
stofan er opin: Mánudaga 10–13. þriðjudaga
13–16 og fimmtudaga frá 10–13. http://
www.al–anon.is.
Fundir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Nýliða-
fundir í Reykjavík. Mánudagur: Kirkja
Óháða safn. Kl. 20. Þriðjudagur: Karla-
fundur Seljavegi 2 kl. 18.30. Árbæjarkirkja
kl. 20. Miðvikudagur: Seljavegur 2 kl. 20.
Tjarnargötu 20 kl. 20. Neskirkja kl. 20.
Fimmtudagur: Áskirkja kl. 20. (Mælt er
með ca 6 fundum í röð).
Fyrirlestrar
Karuna Búddamiðstöð | Enska nunnan
Kelsang Nyingpo miðlar visku Búdda um líf
og dauða. Ný kennsla og hugleiðsla í hvert
skipti, kennt á ensku. Háskóli Íslands, Lög-
berg, stofa 204. Kl. 20 til 21.15
www.karuna.is.
Kynning
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Al-
Anon er félagsskapur fólks sem hafa orðið
fyrir áhrifum af drykkju ættingja eða vinar.
Al-Anon hefur aðeins einn tilgang: Að
hjálpa fjölskyldum og vinum alkóhólista.
Nánar á: www.al-anon.is.
Námskeið
Hátíðarsalur íþróttamiðstöðvar Álfta-
ness | Diane Gossen kennir skólamönnum
aðferðir í nemendamálum, að skapa að-
stæður fyrir uppbyggingu – sjálfsaga.
Margir hafa hrifist af hugmyndum hennar
og verður hún með framhaldsnámskeið
20.–21. júní. Skráning á: www.sunnuhvoll-
.com eða á netfanginu sunnuhvoll-
@ismennt.is eða í síma 561 1004.
Börn
Brúðubíllinn | Brúðubíllinn verður í dag á
Malarási kl. 10 og kl. 14 á Njálsgötu.
Draumalega.
Norður
♠10654
♥Á82
♦KG7
♣D84
Suður
♠ÁG873
♥104
♦1086
♣Á75
Samningur: Þrír spaðar doblaðir.
Austur er gjafari og opnar á einum
tígli. Suður kemur inn á spaðasögn,
sem vestur doblar neikvætt og síðan
hefst sagnbarátta sem lýkur með því
að vestur doblar þrjá spaða.
Staður og stund: Sumarbrids í
Síðumúlanum fyrir viku. NS eru á
hættu, svo einn niður er ávísun á vont
spil (mínus 200). Er einhver leið að
teikna upp legu sem gefur níu slagi?
Útspilið er smátt hjarta.
Til að byrja með verður vestur að
eiga laufkóng og tíguldrottningu. Síð-
an má ekki gefa nema einn slag á
tromp og þá er þriðji tígullinn vanda-
mál, því níuna vantar.
En aldrei þessu vant var legan við
borðið eins og skrifuð upp úr bók:
Norður
♠10654
♥Á82
♦KG7
♣D84
Vestur Austur
♠D9 ♠K2
♥D973 ♥KG65
♦D54 ♦Á932
♣K1092 ♣G63
Suður
♠ÁG873
♥104
♦1086
♣Á75
Austur fékk að eiga fyrsta slaginn
og spilaði hjarta til baka. Sagnhafi
tók með ás og trompaði hjarta. Spil-
aði svo litlu laufi að drottningu. Vest-
ur stakk upp kóng og spilaði laufi
áfram, sem sagnhafi drap í borði til
að spila spaða á ás. Þriðja laufið var
svo tekið og trompi spilað.
Austur lenti inni á spaðakóng.
Hjarta í tvöfalda eyðu kostar aug-
ljóslega slag, en ekki gengur heldur
að spila litlum tígli, því átta suðurs
þvingar þá fram drottninguna. Og
það skilar engu að henda spaða-
kóngnum undir ásinn og láta vestur
taka slaginn á drottninguna, því vest-
ur má ekki spila tígli frá drottning-
unni.
E.s. Spilið liggur vissulega til sagn-
hafa, en austur gat leyst höfuð sitt í
öðrum slag með því að skipta yfir í
tromp.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7. Dd2 b5
8. 0-0-0 Rf6 9. Bf4 Db6 10. Rb3 Rg4
11. h3 Rge5 12. Kb1 d6 13. Be3 Db7
14. Ka1 Hb8 15. Rd4 Ra5 16. f4
Rec4 17. Bxc4 Rxc4 18. Dd3 Rxe3
19. Dxe3 Be7 20. g4 b4 21. Rce2 Db6
22. Df3 g6 23. h4 e5 24. Rb3 a5 25.
h5 Hf8 26. hxg6 hxg6 27. Rbc1 a4
28. f5 gxf5 29. gxf5 Dc6 30. Kb1 Hb5
31. Rd3 Bb7 32. f6 Bd8 33. Rg3 a3
34. Rf5 Bc7 35. Dg3 Dxe4 36. Rg7+
Kd8
Staðan kom upp á búlgarska
meistaramótinu sem lauk fyrir
skömmu. Ivan Cheparinov (2.621)
hafði hvítt gegn Spas Kozhuharov
(2.375). 37. Re6+! fxe6 38. Dg7 og
svartur gafst upp þar sem til að
forðast máti verður mikið liðstap
óumflýjanlegt.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
VIGDÍS Finnbogadóttir opnaði formlega á dög-
unum handverks og listsýninguna ,,Hugur og
hönd.“ Sýningin er sett upp í tilefni af 75 ára
afmæli Sólheima og verður opin alla daga í
sumar frá kl. 13–17.
Sýningin er tvískipt. Annars vegar er mynd-
listarsýning í sýningarsal Ingustofu, þar sem
sýnd eru verk eftir 21 listamann. Hins vegar er
kynning á handverki og listmunum sem unnir
eru á verkstæðum Sólheima. Sýningunni sem
komið hefur verið fyrir í stóru sýningartjaldi í
Miðgarði Sólheima gefur gott yfirlit yfir þann
fjölbreytileika og þá miklu listsköpun sem fram
fer á vinnustöðum Sólheima.
Meðal þess sem á sýningunni má sjá eru mannhæðar háir skúlptúrar úr endurunnu
kertavaxi, listapúsl, skraut og nytjahlutir úr leir, órói úr reiðhjólagjörð, töskur og list-
munir úr gallabuxum, víkingaskip, verk úr pappamassa auk álfa og kynjavera.
Í tilefni af 75 ára afmæli Sólheima eru gestir velkomnir að skoða sýninguna, högg-
myndagarð og listhús Sólheima, þá er kaffihúsið Græna kannan opið alla daga vikunnar.
„Hugur og hönd“ á Sólheimum