Morgunblaðið - 20.06.2005, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
HÖRMULEGT banaslys í umferðinni við
Akureyri virðist lítil áhrif hafa haft á
hraða ökumanna að sögn lögreglu, og
voru t.d. um 60 ökumenn kærðir fyrir of
hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á
Akureyri um helgina. Flestir þeirra sem
stöðvaðir voru á Akureyri síðastliðna nótt
óku innanbæjar. Einn var mældur á 127
km hraða á Drottningarbraut, en þar er
hámarkshraðinn 70 km á klukkustund.
Annar var stöðvaður eftir að hafa ekið á
107 km hraða á Glerárgötu þar sem há-
markshraðinn er 50 km. Lögregla segir
bílstjóranna bíða sekt upp á tugi þúsunda
króna og svipting ökuréttinda í mánuð.
Tillitsleysið stundum
algert í umferðinni
Fréttir af hraðakstri bárust víðar af
landinu. Lögreglan á Blönduósi segir
mikla umferð hafa verið á leið á höfuð-
borgarsvæðið í gærdag, og um miðjan
dag hafði um tugur ökumanna verið
stöðvaður fyrir of hraðan akstur. Segir
lögregla að tillitsleysið virðist stundum
algert í umferðinni, tekið sé fram úr þar
sem það sé óheimilt og ekið langt yfir há-
markshraða. Lögreglan á Selfossi stöðv-
aði um tvo tugi ökumanna fyrir of hraðan
akstur um helgina. Voru tveir þeirra
mældir á ofsahraða á Suðurlandsveginum
austan við Selfoss, annar á 151 km hraða
og hinn á 142 km hraða.
Lítið slegið
af þrátt fyr-
ir banaslys
HUNDRUÐ íslenskra kreditkorta
voru meðal þeirra sem lentu í víð-
tæku kortasvindli sem rakið er til
Bandaríkjanna. Talið er að upplýs-
ingum um tæpar 40 milljónir korta
um allan heim hafi verið stolið og
svindlararnir hafi verið við iðju sína
í nokkra mánuði.
Að sögn Þórðar Jónssonar, sviðs-
stjóra hjá kortaútgáfu Visa, hafa
þeir verið að fá upplýsingar jafnt og
þétt um íslensk kort sem tengjast
svindlinu. Þegar Morgunblaðið tal-
aði við hann í gær var vitað um 140
kort, en upp komst um misnotkun
sumra þeirra fyrir nokkru og var
þeim þá lokað.
Alvarlegra ef upplýsingum
er stolið af segulrönd
„Svindlið er aðallega rakið til net-
viðskipta og Íslendingar eru dug-
legir að versla á netinu þannig að
þessi fjöldi íslenskra korta kemur
ekki á óvart. Við munum hafa sam-
band við viðkomandi korthafa strax
á morgun og loka þeim kortum sem
þurfa þykir. Aðrir þurfa ekki að
hafa áhyggjur,“ segir hann.
Bergþóra Karen Ketilsdóttir,
forstöðumaður upplýsingatækni
hjá Kreditkortum, sem gefa út
Mastercard á Íslandi, segir að
tvenns konar upplýsingum hafi ver-
ið stolið. Annars vegar upplýsing-
um af segulrönd kortanna og hins
vegar kortanúmerum. „Fyrrnefndi
þjófnaðurinn er mun alvarlegri því
með þessum upplýsingum er hægt
að falsa kortin. Ljóst er að slíkum
upplýsingum var stolið af 50 kort-
um hjá okkur en af þeim höfðum við
þegar uppgötvað 16 sjálf. Við höf-
um nú þegar haft samband við hina
34 korthafana og lokað þeim kort-
um,“ sagði Bergþóra.
Hverfandi hætta er á svindli með
upplýsingum um kortanúmerin en
hundruðum slíkra númera var stol-
ið. Bergþóra segir að ákveðið verði í
samráði við korthafana til hvaða að-
gerða verði gripið. „Við viljum
hvetja fólk til að hafa samband við
þjónustuverið hjá okkur ef það hef-
ur áhyggjur og þá getum við séð
hvort það er á þessum lista,“ segir
Berþóra enn fremur.
Kortafyrirtækin grípa til aðgerða vegna fregna af víðtæku kortasvindli
Upplýsingum var stolið
af fjölda íslenskra korta
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
ÞAÐ er skammt stórhögganna á
milli hjá Jóni Bjarna Helgasyni, skip-
stjóra á Raufarhöfn og unnustu hans,
Kolbrúnu Sigurrós Sigurðardóttur.
Þann 18. maí sl. var Jóni Bjarna
bjargað um borð í björgunarskipið
Gunnbjörgu þegar leki kom að bát
hans, Hildi ÞH frá Raufarhöfn. Síð-
astliðinn laugardag, aðeins mánuði
síðar, var Jón Bjarni aftur mættur
um borð í Gunnbjörgu en í þetta sinn
í allt öðrum erindagjörðum þegar
hann og unnusta hans voru gefin
saman í heilagt hjónaband.
„Upphaflega ætluðum við að gifta
okkur í bát sem Jón Bjarni var með,
en þá kom upp þessi hugmynd að
gifta sig bara í björgunarbátnum og
ákváðum við að slá til,“ segir Kolbrún
Sigurrós og segir ástæður þess að
þau Jón Bjarni giftu sig til sjós vera
fjölmargar. „Í fyrsta lagi er Jón
Bjarni sjómaður og því afar heillaður
af hafinu, þannig að strax og við
ákváðum að gifta okkur vildi Jón
Bjarni að það yrði gert úti á sjó. Í
öðru lagi vildum við vera öðruvísi en
annað fólk og í þriðja lagi erum við
ekki mikið kirkjufólk.“
Fann fyrir blöndu af
gleði og ótta
Aðspurður segir Jón Bjarni það
hafa verið sérstaka tilfinningu að
koma aftur um borð í Gunnbjörgu
rétt fyrir giftinguna. „Ég fann fyrir
blöndu af gleði og ótta, auk þess sem
sérstakur skjálfti fór um mig þegar
presturinn minntist á björgunina í
ávarpi sínu,“ segir Jón Bjarni og tek-
ur fram að eftir því sem hann komist
næst sé þetta í fyrsta sinn sem brúð-
kaup fari fram um borð í Gunn-
björgu.
Skrýtin tilviljun
Að sögn Kolbrúnar Sigurrósar
vildi svo undarlega og skemmtilega
til að presturinn sem gaf þau hjón
saman heitir Hildur eins og bátur
Jóns Bjarna sem sökk í síðasta mán-
uði. „Við völdum prestinn með stutt-
um fyrirvara og vissum ekki hvað
hún héti fyrr en hún kom í heimsókn
til okkar kvöldið fyrir athöfnina,“
segir Kolbrún Sigurrós og hlær við
tilhugsunina. „Það var auðvitað
skrýtin tilviljun að þær væru nöfnur,
en mér leist strax afar vel á prest-
inn,“ bætir Jón Bjarni við.
Björgun og brúðkaup
fóru fram á sama skipinu
Ljósmynd/Ágústa V. Svansdóttir
Jón Bjarni Helgason, skipstjóri á Raufarhöfn, og Kolbrún Sigurrós Sigurð-
ardóttir gengu í hjónaband um borð í björgunarskipinu Gunnbjörgu um
helgina. Fyrir mánuði var Jóni Bjarna bjargað um borð í Gunnbjörgu.
GRÍÐARSTÓR járnrör voru hífð frá
borði flutningaskips á Eskifirði á dög-
unum, þaðan sem þau fara áleiðis upp á
Kárahnjúka þar sem þau munu fóðra
fallgöng virkjunarinnar. Rörin eru risa-
vaxin miðað við börnin, enda 31⁄2 metri í
þvermál og 9 metrar á lengd, og um 45
tonn hvert. Samanlagt er um 4.400 tonn
af stáli að ræða.
Áætlað að það taki um
18 mánuði að setja rörin saman
„Þýski verktakinn sem smíðar rörin
heldur því fram að það sé hvergi í
heiminum til svona hátt samfellt stálrör,
í öðrum virkjunum sé þetta tekið í
þrepum,“ segir Sigurður Arnalds, tals-
maður Kárahnjúkavirkjunar. Göngin
eru tvenn, hvor um sig 420 metrar á
hæð.
Til að koma rörbútunum fyrir á rétt-
um stað hefur verið sett upp ein hæsta
lyfta í heimi með vinnupalli sem er not-
aður til að koma mönnum niður til að
vinna við að festa rörbútana saman og
steypa meðfram þeim.
Þegar hefur verið hafist handa við að
setja saman þessi risavöxnu rörstykki,
og reiknað er með því að verkið taki
um 18 mánuði.Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Setja saman
hæstu járn-
rör í heimi
♦♦♦
STÖÐUGUR straumur síldar- og kol-
munnaveiðiskipa hefur verið til Nes-
kaupstaðar til löndunar og í Síldarvinnsl-
unni er unnið allan sólarhringinn við að
frysta síld. Að sögn Guðmundar Bjarna-
sonar, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, hef-
ur þetta óvænta síldarævintýri haft
mikla þýðingu fyrir bæjarlífið. „Mest
munar um þær auknu tekjur sem nú
renna í hafnarsjóð og vinnan í Síldar-
vinnslunni er kærkomið uppgrip fyrir
sumarstarfsfólk.“ Enn veiðist úr norsk-
íslenska síldarstofninum innan landhelg-
innar. „Veiðin síðustu viku hefur verið
góð og aflinn hjá flestum í kringum 1.000
tonn upp úr sjó, en mikill dagamunur er
á aflabrögðum,“ segir Birkir Hreinsson,
skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni.
Kærkomið
síldar-
ævintýri