Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 1
Rússíbanareið í boltanum Guðmundur Benediktsson öðlast nýtt líf á sparkvellinum | 16—17 Tímaritið og Atvinna Tímaritið | Vettvangsrannsóknir lögreglu  Níu og hálft líf Mickey Rourke  Er Ísland smáríki eða stórveldi? Atvinna | Atvinnuleysi minnkar lítillega í Evrópu  Meiri harka yfirvalda 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 STOFNAÐ 1913 177. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is „ÉG HELD að þetta hafi bara gengið vel,“ segir Björk Guðmundsdóttir sem var meðal þeirra fyrstu sem komu fram á stærsta tónlistarviðburði sögunnar, Live 8 tónleikunum, sem fram fóru víða um heim í gær. „Viðtökurnar voru allavega góðar. Ég held þær hafi verið í anda við málstaðinn. Japanskir áhorf- endur eru líka svo samviskusamir.“ Björk kom fram í Makuhari Messe, 20 þúsund manna tónleikahöll sem er í nágrenni Tókýó og var stærsta nafnið en þar léku einnig m.a. breska sveitin McFly og vinsælustu tónlistarmenn í Japan nú um mundir. „Þeir höfðu samband við mig, skipuleggjendur tónleikanna í Japan. Þetta er ekki bara alþjóðlegur atburður heldur er líka verið að pressa á stjórn- málamenn í viðkomandi landi. Það er ein af ástæð- unum fyrir því að þeir spurðu mig því af einhverjum ástæðum fara plöturnar mínar í efsta sæti,“ segir Björk. „Stefnan var að vekja eins mikla eftirtekt og hægt er, og setja mikla pressu á stjórnmálamenn.“ Þar vísar Björk til megintilgangs með þessari „stærstu baráttusamkomu sem haldin hefur verið“ eins og Bob Geldof, aðalskipuleggjandi Live 8 við- burðarins, hefur orðað það, að hvetja leiðtoga átta helstu iðnríkja heimsins, sem hittast á fundi í Skot- landi á miðvikudag, til að ræða af alvöru um hvernig útrýma beri fátækt í heiminum. Björk segist samstundis hafa samþykkt að leggja málefninu lið jafnvel þótt hún sé ekkert alltof vongóð um að Live 8 muni breyta miklu. „Þetta er uppsafnaður áhugi. Maður fylgist með fréttunum og sér börnin svelta og fer náttúrlega bara að gráta eins og annað fólk. En ég efast þó um að svona góðgerðarsamkomur hafi mikil áhrif. Kannski svona frá mínus tuttugu prósentum upp í fjögur pró- sent. En ef það er hægt að ýta aðeins við yfirvöldum þá hefur einhverju verið áorkað. Þetta er allavega einn atburður sem gæti haft einhver smááhrif.“ Björk tók átta lög, studd af japönskum strengja- oktett og var klædd í hönnun eftir Jeremy Scott. Reuters „Gæti haft smááhrif“ Björk Guðmundsdóttir söng á Live 8 í Japan Eftir Skarphéðin Guðmundsson skarpi@mbl.is Bagdad. AP. | Allt að tuttugu manns fórust í sprengjuárás í höfuðborg Íraks í gærmorgun. Svipaður fjöldi manna var færður slasaður á sjúkra- hús. Tilræðismaðurinn hafði sprengju- belti um sig miðjan og kom sér fyrir í miðjum hópi manna sem stóð fyrir utan miðstöð utan við innanríkis- ráðuneyti Íraks í miðborg Bagdad. Talið er að flestir þeirra sem létu líf- ið hafi verið menn sem hugðust sækja um starf í sérsveit írösku lög- reglunnar. Vel vopnaðar lögreglu- sveitir komu á vettvang í hvítum pallbílum og hófu að skjóta upp í loft- ið til að ryðja svæðið. Uppreisnar- menn í Írak hafa að undanförnu beint árásum sínum að öryggissveit- um og stöðum þar sem langar bið- raðir myndast fyrir utan til að reyna að koma af stað borgarastríði. 1.400 Írakar hafa týnt lífi frá því að Ibrahim al-Jaafari forsætisráð- herra myndaði ríkisstjórn sína 28. apríl síðastliðinn, en hún er að mestu skipuð sjítum. Súnní-múslímar standa að mestu að baki þeirri blóð- ugu uppreisn sem stendur yfir í landinu. Þeir réðu lögum og lofum í ríkinu í áratugi en misstu völdin þeg- ar Saddam Hussein var steypt af for- setastóli. Íbúar Bagdad kvarta nú mjög undan skorti á hreinu drykkjarvatni og á föstudag braust út eldur í vatns- virkjun sem þjónar meirihluta íbúa höfuðborgarinnar. Um það bil þrjá daga tekur að gera við skemmdirnar og fá hreint vatn á ný. Vatnsskort- urinn eykur mjög á eymd íbúa borg- arinnar, sem eru hálf sjöunda millj- ón. Rafmagn dettur oft út í borginni, eldsneyti er af skornum skammti, miklar umferðarteppur eru algeng- ar, almenningsþjónusta hefur minnkað til muna og óttinn við sprengjuárásir og mannrán er mik- ill. Mikið mannfall í Írak TÆKNIDEILD lögreglunnar í Reykjavík, sem þjónar öllum lögregluembættum lands- ins, bárust 3.662 verkbeiðnir á síðasta ári, en um áramót var aðeins 31 óafgreidd. Mörg stór mál bárust deildinni, manndrápsmál, kynferðisbrotamál, stórbrunar og fjöldi smærri mála. Starf tæknideildarinnar skiptir oftar en ekki sköpum við rannsókn mála, hvort sem litið er til greiningar á DNA eða fingraför- um, fótsporum eða brunarústum. Deildin er ágætlega búin, en starfsmenn hennar segja að með 30–40 milljón króna framlagi verði þeir enn betur í stakk búnir til að rannsaka sakamál. Þar nefna þeir sem dæmi, að þótt fjölbylgjuljósgjafinn, sem getur greint blóð eða sæði þar sem mannlegt auga sér ekkert, sé frábært tæki myndi koma sér ákaflega vel að hafa tvö smærri tæki til að fara með á vettvang. Og tæknideildarmenn myndu heldur ekki slá hendinni á móti skáp, sem er þeirrar náttúru að hægt er að setja ýmsa stærri hluti í hann, baða þá í sérstakri gufu og leita þannig fingrafara. Slíkur búnaður er til fyrir smærri hluti, eins og hnífa, en til að rannsaka t.d. húsgögn þarf skáp, sem kostar um 14 milljónir. | Tímaritið Morgunblaðið/Júlíus Tæknideild lögreglunnar leitar ummerkja í herbergi þar sem maður fannst látinn. Vettvangs- rannsóknir skipta oft sköpum Washington. AFP. | Þess sáust merki í gær að repúblikanar og demókratar í Bandaríkjunum væru að búa sig undir hörð átök um skipan hæstaréttardómara. Á föstudag greindi hin 75 ára gamla Sandra Day O’Connor frá því að hún hygðist láta af störfum. Í leiðara dagblaðsins The New York Times í gær var því spáð að mikil átök væru í vændum. Sagði þar að mikilvægt væri að George W. Bush forseti gerði sér ljóst hversu mikið hann hefði átt undir „þessum hófsama dómara, sem ávallt gætti hagsmuna almennings.“ Kvaðst blaðið telja að farsælast væri að velja „eftirmann sem er steypt- ur í sama mót“. Dagblaðið Washington Post hvatti Bush for- seta til að velja dómara sem stæði undir kröfum hans og „nýtur hylli miðjumanna beggja flokka“. Þetta er í fyrsta sinn í 11 ár sem Bandaríkja- forseti fær tækifæri til að velja hæstaréttardóm- ara. Skipan nýs dómara er jafnan talin afar mik- ilvæg í pólitísku tilliti enda er rétturinn æðsta dómsstigið og hlutverk hans að túlka stjórnar- skrána. Aðeins örfáum mínútum eftir að O’Connor til- kynnti afsögn sína hófst baráttan um sæti henn- ar er stjórnmálamenn og þrýstihópar hófu að reka áróður. Frjálslyndir vöruðu forsetann við því að velja „öfgasinna“ og repúblikanar hvöttu hann til að velja dómara sem myndi beita stjórnarskránni í stað þess einungis að túlka hana. „Ég mun velja hæstaréttardómara sem Bandaríkjamenn geta verið stoltir af,“ sagði forsetinn. Hann sagði val sitt mundu einkennast af „drengilegri meðferð, drengilegri áheyrn og drengilegri kosningu.“ Ákvörðun um eftirmann O’Connor yrði ekki tek- in fyrr en hann kæmi heim af G8-fundinum í Skotlandi í næstu viku. Þetta er mikilvægt tækifæri fyrir Bush, því mörg hitamál bíða réttarins þegar hann kemur aftur saman eftir sumarfrí í október. Þá verður tekist á um mál á borð við fóstureyðingar, rétt- indi samkynhneigðra og réttinn til að aðstoða við sjálfsmorð. Demókratar óttast að Bush tilnefni dómara sem sé andvígur fóstureyðingum, en O’Connor en studdi iðulega málstað íhaldsmanna í ýmsum siðfræðilegum efnum. Hörð barátta í vændum um dómarasæti vestra Bush ætlar að gefa sér góðan tíma til að velja eftirmann O’Connor STARFSMENN geðdeildar sjúkrahússins í Dartford í Bretlandi telja að dularfulli „píanómaðurinn“ kunni að vera norskur. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Maðurinn, sem er um þrítugt, fannst rennblautur og illa til reika á götu í bæn- um Sheerness í Kent 7. apríl síðastliðinn. Hann hefur ekkert tjáð sig síðan og allir merkimiðar höfðu verið klipptir af fötum hans svo ómögulegt hefur verið að rekja uppruna hans. Maðurinn reyndist hins vegar mjög fær píanóleikari. Nú telja starfsmenn sjúkrahússins sig þó hafa náð einhverjum árangri. Þegar manninum var fengið kort af Noregi benti hann á höfuðborgina Ósló. Þá er talið að norskt skip hafi verið á siglingu undan ströndinni á þeim tíma sem maðurinn fannst. Því var norskumælandi túlkur fenginn til að ræða við „píanómanninn“. Maðurinn ansaði engu, en starfsmenn segja hann hafa brugðist betur við norska túlkinum en öðrum túlkum sem sendir hafi verið til að ræða við hann. Talsmaður spít- alans segir að nú sé rökrétt að kanna hvort Noregur sé heimaland mannsins. „Píanómað- urinn“ hugs- anlega norskur ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.