Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.07.2005, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ferðir við að elda hefðbundna ís- lenska rétti, t.d. sagði hann ekki orð þegar ég tók mig til og steikti lifra- pylsukepp til að hita hann upp í stað þess að borða hann kaldan. Ég var nefnilega ekki vön því að borða kjöt- rétti kalda. Ég komst ekki að því hvað fólki fannst um eldunaraðferð mína fyrr en vinur okkar lýsti því fyrir mér af tilviljun hvað steikt lifrapylsa væri hræðilega vond.“ Eftir tveggja mánaða veru á Ís- landi hélt Anh-Dao aftur til Banda- ríkjanna til að ljúka BA-náminu. „Fjarsamband á milli Bandaríkj- anna og Íslands var mjög erfitt á þessum tíma. Ekki var hægt að senda tölvupóst og símasamband var bæði flókið og dýrt. Ég man að þegar ég var að vinna með 2,5 doll- ara á tímann kostaði hver mínúta til Íslands 5 dollara,“ segir Anh-Dao og tekur fram að ekki hafi verið um annað að ræða en að hún flytti til Ís- lands til að láta reyna á sambandið eftir að hún lauk námi. „Ég gat vel hugsað mér að búa í öðru landi en Bandaríkjunum. Eftir að ég flutti frá Víetnam hafði ég hvort eð er ekki á tilfinningunni að ég ætti raun- verulega heima á einhverjum sér- stökum stað. Við Jónas vorum líka sammála um að betra væri að við byggjum einhvers staðar þar sem annað okkar ætti rætur heldur en hvorugt. Ég var tilbúin til að láta reyna á að búa á Íslandi, kynnast bakgrunni Jónasar, tungumálinu og menningunni.“ Íslendingar og Víetnamar líkir – Hvernig var þér tekið á Íslandi? „Mjög vel,“ svarar Anh-Dao að bragði. „Fjölskylda Jónasar reynd- ist mér sérstaklega vel. Ég fann heldur ekki fyrir andúð eða for- dómum úti í samfélaginu. Fyrst þeg- ar ég kom til Íslands fyrir 25 árum bjuggu fáir útlendingar á Íslandi. Ég átti eina vinkonu frá Taílandi. Henni fannst fólk glápa mikið á sig þegar hún fór út með manninum sín- um á kvöldin. Ég tók aldrei sér- staklega eftir því hvort fólk væri að glápa á mig og kunni strax vel við Íslendinga. Satt að segja finnst mér ýmislegt líkt með Íslendingum og Víetnömum. Rétt eins og Íslend- ingar eru Víetnamar að mörgu leyti hjátrúarfullir, þeir eru líka vinnu- samir og gera sér ekki óþarfa rellu yfir smáatriðum. Víetnamar eru líka fremur afslappaðir gagnvart trúar- brögðum og láta sér yfirleitt í léttu rúmi liggja þó börnin þeirra taki þátt í kristindómsfræðslu og ýmsum trúarlegum uppákomum í íslenskum skólum,“ segir Anh-Dao og neitar því ekki að aðlögunin að Íslandi hafi líka átt erfiðar hliðar. „Ég hef alltaf verið sjálfstæð og framkvæmt það sem mér hefur dottið í hug. Fyrst eftir að ég flutti hingað fannst mér erfitt að þurfa alltaf að vera að bíða eftir Jónasi til að geta framkvæmt hugmyndir mínar. Eftir að hafa lok- ið háskólanámi var líka mikið áfall fyrir mig að átta mig á því hvað ég var ósjálfbjarga án tungumálsins – skyndilega var ég aftur orðin ólæs og nánast ósjálfbjarga í samfélag- inu.“ Innflytjendakonur öðlist rödd Anh-Dao og Jónas héldu til frek- ara náms í Bandaríkjunum eftir stutta dvöl á Íslandi. Anh-Dao sneri til baka með MA-gráðu í kennslu- fræði heyrnleysingja og Jónas með MA-gráðu í hagfræði árið 1984. Eft- ir að hafa m.a. stundað nám í ís- lensku og kennslu á grunn- og fram- haldsskólastigi lá leið Anh-Dao aftur til Bandaríkjanna árið 1999. „Jónas fékk Fulbright-rannsóknarstyrk og kaus að vinna rannsóknarverkefni við Georg Washington University. Ég ákvað að fara með honum til Bandaríkjanna og vann hjá eins konar asísk-amerískum samtökum „Asian American Leadership, Empowerment and Development.“ Starf mitt, sem aðstoðarfram- kvæmdastjóri samtakanna, gekk að- allega út á að efla sjálfsmynd fá- tækra mæðra og barna í þeim tilgangi að ýta undir að börnin færu í háskólanám.“ Eftir að Anh-Dao flutti aftur til Íslands hafði hún áhuga á að nýta reynslu sína frá því í Bandaríkj- unum í samfélagi innflytjenda á Ís- landi. „Engin hreyfing komst þó á málið fyrr en mér og nokkrum öðr- um konum af erlendum uppruna var boðið á ráðstefnu um menntun, laga- og vinnuumhverfi innflytjenda- kvenna á Norðurlöndunum á vegum Norðurlandaráðs í Ósló árið 2002. Á þessari ráðstefnu rann upp fyrir mér að í rauninni hefðu innflytj- endakonur á Íslandi engan vettvang til skoðanaskipta. Ég óskaði því eftir því í niðurlagi ráðstefnunnar að fá aðstoð Norðurlandaráðs við stofnun Samtaka innflytjendakvenna á Ís- landi. Málið fór svo á hreyfingu þeg- ar boðað var til annarrar ráðstefnu fyrir innflytjendakonur í Málmey árið 2003. Ég miðlaði hugmyndinni til íslensku þátttakendanna og í framhaldi af því fengum við nokkrar norsk-indversku baráttukonuna Rachel Eapen Paul til að aðstoða okkur við grunnvinnuna við stofnun samtakanna. Samtök kvenna af er- lendum uppruna voru svo stofnuð á Íslandi í nóvember árið 2003.“ Anh-Dao var fyrsti formaður Samtaka kvenna af erlendum upp- runa. Hún segir að meginmarkmið samtakanna sé að stuðla að því að rödd innflytjendakvenna heyrist í samfélaginu. „Ég eyddi miklum tíma til að byrja með í að ná sam- bandi við konur af ólíkum uppruna. Ég komst fljótt að því að besta leiðin til að ná sambandi við þær væri að hringja til hverrar og einnar. Aðrar leiðir báru yfirleitt lítinn árangur,“ segir Anh-Dao. „Innflytjendur á Ís- landi eru yfirleitt mjög uppteknir – ekki síst konurnar sem vinna oft langan vinnudag og bera oftast meginábyrgðina á börnunum og heimilishaldinu.“ Heiðrún Giao-Thi, 14 ára dóttir Anh-Dao og Jónasar, rekur inn nefið í borðstofuna áður en hún er aftur horfin á vit félaganna í rigningar- suddanum fyrir utan. Eftir örstutt hlé er Anh-Dao spurð að því hvort eitthvað sérstakt brenni á konum af erlendum uppruna á Íslandi sem hópi. Á meðan hún hellir aftur í boll- ana rifjar hún upp fund sinn með nokkrum konum frá Filippseyjum. „Ein þeirra hafði unnið í sama fyr- irtæki í 8 ár við góðan orðstír. Hún hafði tekið eftir því að hópur ungs íslensks fólks hafði verið ráðinn í fyrirtækið og hafði áhyggjur af því að ráðning þeirra ylli því að hún missti vinnuna. Hún var svo langt leidd af þessum áhyggjum sínum að hún var farin að velta því fyrir sér að leita að annarri vinnu til að koma í veg fyrir að hún stæði skyndilega uppi atvinnulaus. Slíkar áhyggjur af vinnuöryggi og réttindastöðu í tengslum við hjónabandið eru áber- andi meðal innflytjendakvenna. Þess vegna er einmitt svo mikilvægt að þær hafi greiðan aðgang að lög- fræðingi. Svo eru samtökin, eins og félög kvenna frá ákveðnum upp- runalöndum, líka mikilvægur tengslavettvangur kvenna, m.a. með tilliti til upplýsingamiðlunar og fé- lagslegra tengsla.“ Námserfiðleikar og félagsleg einangrun í framhaldsskólum Eftir langan formála er loks kom- ið að því að ræða síðustu verkefni Anh-Dao er snúa að menntun ungra innflytjenda af asískum uppruna á Íslandi. „Fyrra verkefnið gengur undir heitinu Rannsókn á þáttum sem hafa áhrif á námsárangur asískra nemenda 2002 til 2004,“ seg- ir hún og tekur fram að mennta- málaráðuneytið, Barnavinafélagið Sumargjöf og Kennarasamband Ís- lands standi að verkefninu. „Mark- mið rannsóknarinnar er að skoða námsárangur og félagslega aðlögun ungmenna á aldrinum 14 til 20 af japönskum, taílenskum, fil- ippeyskum og víetnömskum upp- runa á Íslandi. Ég er einmitt að taka saman skýrslu með niðurstöðum úr ítarlegum viðtölum mínum og með- rannsakenda minna við foreldra, skólastjórnendur og kennara um efnið um þessar mundir. Vonandi get ég greint frá niðurstöðunum í haust.“ Seinna verkefnið ber heitið Fram- tíð í nýju landi. „Eftir að ég kom frá Bandaríkjunum fór ég að velta því fyrir mér hvernig stæði á því að að- eins örfá víetnömsk ungmenni hefðu lokið framhaldsskólanámi á Íslandi,“ segir Anh-Dao. „Svo komu foreldrar til mín og báðu mig um að veita sér aðstoð vegna skólagöngu barna þeirra. Endirinn varð sá að ég ákvað að hella mér út í þetta verkefni árið 2002. Skemmst er frá því að segja að verkefnið vatt upp á sig og varð að lokum að samstarfsverkefni Rauða kross Íslands, Velferðarsjóðs barna, Reykjavíkurborgar, Alþjóðahúss, félags- og menntamálaráðuneytisins árið 2004. Alþjóðahús leggur til vinnuaðstöðu og ráðgjöf vegna verk- efnisins.“ Eins og áður segir nær rann- sóknin til 60 víetnamskra ungmenna á aldrinum 16 til 25 ára. Ungmennin eru fædd í Víetnam og tilheyra því fyrstu kynslóð innflytjenda á Ís- landi. „Þegar grunnskólagöngunni lýkur skila þessi ungmenni sér mun verr í framhaldsskóla en jafnaldrar þeirra af íslenskum uppruna. Aðal- ástæðurnar virðast vera lítil þekk- ing á valmöguleikum innan fram- haldsskólakerfisins, brotakennd íslenskukunnátta og þrýstingur á að ungmennin afli tekna til eigin þarfa og fjölskyldna sinna,“ segir Anh- Dao og tekur fram að um einn fjórði af hópnum stundi nám í framhalds- skóla. „Öll tóku þau fram í samtali við mig að námið reyndist þeim erf- itt. Þau gætu illa haldið í við jafn- aldra sína í bóknáminu og byggju við félagslega einangrun í skól- unum.“ Lausnin gagnleg fleirum – Hvað er til ráða? „Þetta er stór spurning,“ svarar Anh-Dao og getur ekki varist brosi. „Flest þessara ungmenna dreymir um að læra einhverja iðn. Íslenskan er yfirleitt stærsti þröskuldurinn á þeirri leið. Ég er þeirrar skoðunar að fremur en að kenna almenna ís- lensku í grunnnáminu eins og nú er gert ætti að samþætta íslenskunám- ið viðkomandi iðngrein, þ.e. þannig að erlendu ungmennin væru ekki al- veg út á þekju þegar kæmi að því að nota fagorð greinarinnar. Aðrar grunnnámsgreinar væri með sama hætti hægt að flétta inn í námsefni hverrar iðngreinar fyrir sig, t.d. get ég ekki ímyndað mér annað en hægt væri að flétta námsefni í eðlisfræði saman við bifvélavirkjun, efnafræði inn í hárgreiðslu og áfram mætti telja.“ Anh-Dao nefnir aðra hindrun á vegi ungmenna af erlendum upp- runa. „Ef nemendur ætla í iðnnám verða þeir að byrja á því að fá sér vinnu innan greinarinnar til að eiga þess kost að uppfylla skilyrði skól- ans um meðmæli frá vinnuveitanda í iðninni. Vandamál ungmenna af er- lendum uppruna er oft að þau hafa ekki sömu sambönd og ungmenni af íslenskum uppruna til að fá slíka vinnu og þar af leiðandi nauðsynleg meðmæli,“ segir hún og bendir á að rannsóknir sýni að einungis rúmlega helmingur þeirra íslensku ung- menna sem hefji framhalds- skólanám ljúki því með stúdents- prófi innan 25 ára aldurs. „Ég held að ef hægt yrði að ná samvinnu á milli framhaldsskóla, stofnana og vinnuveitenda um einhvers konar stuðningslíkan til hjálpar erlendu ungmennunum myndi slíkt líkan án efa einnig geta nýst ungmennum af íslenskum uppruna.“ Anh-Dao leggur áherslu á að í framhaldsskólanáminu felist ekki aðeins ávinningur fyrir ungmennin sjálf og samfélagið í heild sinni held- ur einnig til framtíðar því mennt- unin auðveldi ungmennunum að styðja sín eigin börn til mennta. „Ef þau fara bara á nokkur stutt námskeið í íslensku er hætt við því að þau hafi fá tækifæri til að tala ís- lensku því að oft vinna innflytjendur láglaunastörf í hópi annarra innflytj- enda en ekki Íslendinga. Ef ekki er hægt að hjálpa þessum ungmennum í gegnum framhaldsskóla er hætt við að menntaðir einstaklingar komi ekki upp í fjölskyldunum fyrr en einni kynslóð eða jafnvel tveimur kynslóðum seinna en hægt hefði verið að stuðla að með réttum stuðn- ingi,“ segir hún með áherslu. „Við verðum að finna leið til að mennta innflytjendur og koma þannig í veg fyrir að stór hluti þeirra verði „ann- ars flokks“ íbúar í landinu.“ Skortur á karlkyns mentorum Einn angi verkefnisins felst í svo- kölluðum mentora-þætti. „Mentorar eru fullorðnir sjálfboðaliðar á vegum Rauða krossins sem hitta ungmenni af erlendum uppruna einu sinni í viku, tvo til þrjá klukkutíma í senn. Meginmarkmiðið er að mentorinn veiti innsýn í menningu, sé góð fyr- irmynd, stuðli að eflingu sjálfs- myndar, aðstoði við val á námi og við markmiðssetningu einstaklingsins. Ekki má heldur gleyma því að sam- skiptin geta verið mjög gefandi fyrir mentorinn. Með því að mynda fé- lagasamband við ungmenni af er- lendum uppruna gefst honum dýr- mætt tækifæri til að kynnast upprunalandi ungmennisins,“ segir Anh-Dao og er spurð að því hvernig gangi að finna mentora. „Núna erum við komin með 5 góð- ar konur í verkefnið. Engu að síður vantar okkur fleiri konur og svo sár- vantar okkur karla. Ungu karlarnir eru ekki síður áhugasamir en kon- urnar að fá mentor.“ Ekki er hægt að sleppa Anh-Dao án þess að spyrja hana hvort hún telji Íslendinga fordómafulla gagn- vart innflytjendum. „Rétt eins og í öðrum löndum er ekki hægt að neita því að fordómar fyrirfinnast gagnvart innflytjendum á Íslandi og bitna mest á fólki með framandi útlit. Þó ég hafi sjálf ekki orðið fyrir áberandi fordómum hafa asískar konur til að mynda sagt mér frá því að á vinnustöðum leyfist þeim síður að spjalla saman heldur en konum af íslenskum uppruna. Ég hef líka tekið eftir því að margir Ís- lendingar halda því fram að útlend- ingar vilji ekki læra íslensku. Ég held að fólk velti því sjaldnast fyrir sér hvort og/eða hvernig komið sé til móts við innflytjendur varðandi ís- lenskunám. Innflytjendur koma frá ólíkum löndum með ólík tungumál og menntunargrunn að baki. Sumir eru ekki einu sinni læsir þegar þeir koma hingað. Samfélagið verður að gera mun betur til að koma til móts við hvern hóp fyrir sig og alls staðar á landinu því að þó að innflytjendur séu skyldaðir til að læra íslensku eru íslenskunámskeið alls ekki alls stað- ar í boði. Mér finnst líka að gæta verði að því að kenna lifandi tungu- mál. Tungumál sem gagnast við störf og daglegt líf,“ segir Anh-Dao. „Síðast en ekki síst er mikilvægt að veita innflytjendum tækifæri til að nýta menntun sína og reynslu frá því í gamla landinu, t.d. með því að starfa í sama fagi og þeir störfuðu við áður. Með því móti nýtast hæfi- leikar þeirra betur og þeir eiga auð- veldara með að styðja við bakið á börnum sínum.“ Fyrst eftir komuna til Bandaríkjanna var Anh-Dao au-pair-stúlka hjá bandarískri fjölskyldu. Hér er hún ásamt móðurinni Sandy og börnunum Jamie og Jeff. Anh-Dao, 5 ára, með uppáhaldsbrúðuna sína í fanginu. Brúðan var meðal þess sem hún varð að skilja eftir á þyrlupallinum í Víetnam. Hjá henni stendur besta vinkona hennar og jafnaldra, Lan Huong. Hún er búsett í París. ’Ef ekki er hægt að hjálpa þessum ungmennum ígegnum framhaldsskóla er hætt við að menntaðir ein- staklingar komi ekki upp í fjölskyldunum fyrr en einni kynslóð eða jafnvel tveimur kynslóðum seinna en hægt hefði verið að stuðla að með réttum stuðningi.‘ ago@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.